Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 17
VIÐSKIPTI
Lækkun á iðgjöldum hjá Samlífi
Stuðst viðminnk-
un á dánarlíkum á
tíu ára tímabili
SAMEINAÐA líftryggingarfélagið
hefur tekið upp nýja iðgjaldaskrá
þar sem útreikningar á dánarlíkum
byggjast á tölum yfir dánartíðni á
árunum 1986-1990 í stað talna frá
1976-1980. Eitís og fram kom í við-
skiptablaði í gær hefur þessi breyt-
ing ásamt lækkun rekstrarkostnaðar
í för með sér að iðgjöld Iíftrygginga
lækka um 20% að meðaltali.
Að sögn Ólafs H. Jónssonar, deild-
arstjóra hjá Sameinaða líftrygging-
arfélaginu, eru tölur yfír dánarlíkur
Islendinga teknar saman á fimm ára
fresti. Tölurnar sýna t.d. að sam-
kvæmt reynslu áranna 1986-1990
megi búast við því að einn af hvetj-
um þúsund tvítugum körlum muni
deyja árlega. Dánartíðni tvítugra
kvenna er hins vegar 0,3 þannig að
líklegt er að árlega muni ein kona
af hveijum 3 þúsund konum deyja
á þeim aldri. Samsvarandi upplýs-
ingar fyrir árin 1981-1985 gáfu til
kynna að dánartíðni karla væri 1,21
og kvenna 0,214.
Dánartíðni fertugra karla er hins
vegar 1,717 og fyrir konur á sama
aldri er talan 1,025. Á árunum 1981-
1985 voru þessar tölur 1,93 fyrir
karla og 0,94 fyrir konur.
Tölurnar hækka hratt eftir aldri
og hjá 60 ára körlum má vænta
þess að 11 af hveijum eitt þúsund
deyi á hveiju ári en samsvarandi
tala fyrir sextugar konur er 7. Sam-
kvæmt eldri tölunum var dánartíðnin
13,6 hjá körlum og 6,9 hjá konunum.
Lítið vart við erlenda
samkeppni
Um lækkun rekstrarkostnaðar
sagði Ólafur að verið væri að færa
iðgjöldin nær kostnaði á undanföm-
um árum sem hefði farið lækkandi.
Aðspurður um hvort samkeppni
af hálfu erlendra tryggingafélaga
ætti einhvem þátt í þessari ákvörðun
sagði Ólafur að svo væri ekki. „Við
höfum lítið orðið vör við að erlend
tryggingafélög bjóði stakar dánará-
hættutryggingar hér á landi. Þau
hafa boðið söfnunarlíftryggingar sem
má segja að séu í samkeppni við
annan sparnað á borð við ríkisskulda-
bréf. Þess má geta að Sameinaða líf-
tryggingarfélagið hefur verið með
slíkar tryggingar á markaðnum frá
árinu 1993 undir heitinu Óskalífeyr-
ir. Með söfnunartryggingum er fólk
fyrst og fremst að leggja til sparnað
og er áhættuhlutinn því tiltölulega
lítill hluti heildariðgjaldsins."
Iðgjöld Sameinaða lítryggingarfé-
lagsins á árinu 1994 vom 206 mtllj-
ónir og útlit er fyrir að þau hafí auk-
ist um 12-13% á síðasta ári. „Við
gáfum út á síðasta ári u.þ.b. fjögur
þúsund nýjar líftiyggingar sem er það
mesta frá upphafí. Það er mun meiri
skilningur hjá ungu fólki fyrir líftrygg-
ingum en áður var. Hjá fjölskyldufólki
er þetta orðinn sjálfsagður þáttur í
vátryggingarvemdinni. Líklega em
iðgjöldin í heild á þessum markaði
rúmlega 500 milljónir króna.“
Uppsagnir hjá A T& T
New York. Reuter.
AT&T fjarskiptafyrirtækið hefur
skýrt frá því að það muni leggja
niður um 40.000 störf og veija um
6 milljörðum dollara fyrir skatta til
að standa straum af kostnaði við
að skipta fyrirtækinu í þrennt þann-
ig að það standi betur að vígi í
harðri samkeppni, sem framundan
er í fjarskiptageiranum.
Um 30.000 þeirra sem hætta
störfum munu ekki gera það af eig-
in vilja að sögn fyrirtækisins. Loka-
tala þeirra sem hætta mun fara
eftir því hve margir stjórnendur
taka við uppsagnargreiðslum í nóv-
ember. Robert Allen stjórnarfor-
maður sagði í yfirlýsingu að fækk-
unin í starfsliðinu yrði erfiðasta og
kvalafyllsta skrefið í endurskipu-
lagningu, sem væri nauðsynleg til
að gera fyrirtækið samkeppnishæft.
Hlutabréf í fyrirtækinu hækkuðu
um 2,625 dollara í 67,375 í kaup-
höllinni í New York eftir tilkynning-
una.
Samkvæmt frumvarpi fyrir
Bandaríkjaþingi fá Baby Bell síma-
félög í sjö landshlutum rétt til aðild-
ar að langlínumarkaði, sem er met-
inn á 80 milljarða dollara á ári og
þar sem AT&T hefur 60% markaðs-
hlutdeild. Jafnframt fá AT&T og
fleiri aðilar að hasla sér völl í síma-
mörkuðum Bell-félaganna.
Lægsta
verð á áli í
15 niánuði
London. Reuter.
ÁL seldist á Iægsta verði síðan í
október 1994 í London í gær og er
það síðasta breyting af nokkrum,
sem hafa orðið á málmmarkaði á
nýja árinu.
Verð áli samkvæmt þriggja mán-
aða framvirkum samningum lækk-
aði í 1637 dollara tonnið á málm-
markaðnum í London og var það 35
dollara lækkun frá því á miðvikudag.
Fyrr í vikunni hafði kopar lækkað
í 2.565 dollara tonnið og hafði verð-
ið ekki verið Iægra í 14 mánuði, en
það styrktist nokkuð í gær.
í London er sagt að aðallega einn
aðili hafí valdið lækkuninni á álinu
og gefið var í skyn að fjárfestinga-
sjóðir eða spákaupmenn hefðu verið
að verki. Einn heimildarmaður taldi
að um sjóð með bækistöð í Banda-
ríkjunum væri að ræða.
i Álkaupmenn sögðu að eftirspurn
væri enn treg á flestum helztu not-
endasvæðum, en þeir búast við að
eftirspurn aukist í febrúar eða marz.
Murlyftari
jrvimilBstir
Framúrskarandi
hönnun
með þægindi
ökumanns í fyrirrúmi.
Gámagengur lyftari.
2,2’/! og3tonna lyftigeta.
UMBOÐS- OG HEILOVERSLUN
SMIÐJUVEGl 70, KÓP. • SlMI 564 4711 • FAX 564 4725
UTSALA - UTSALA
20-70% AFSLÁTTUR
• Servíéttur • Kerti
• Kertahringir • Kertastjakar
• jólavörur • Borðskreytingar
Verðdæmi:
Servíéttur frá kr. 75 pakkinn • Kerti frá kr. 30 • 6 kerti í pakka frá kr. 140
• Kertastjakar frá kr. 50 • Jólavörur með allt að 70% afslætti.
Flóra
í bláu húsunum við Faxafen • Sími 588 5250
Opiö mán. - fös. kl. 12-18, laugardaga kl. 10-14.
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.-° á laugardaginn.
M tÆá!
-vertu viðbúinm vinningi
1. vinningur stefnir í
22 milljónir króna