Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 23 LISTIR Fyrstu tónleikar ársins 1996 TONLIST Listasaf n í slands SAMLEIKUR A FIÐLU OG PÍANÓ Guðný Guðmundsdóttír konsert- meistari og Delana Thomsen pianóleikari fluttu verk eftir Moz- art, Brahms, Wieniawsky, Chaus- son og Ravel. Miðvikudagurinn 3. janúar 1996. FYRSTU tónleikar ársins 1996, voru haldnir af Listasafni Islands og voru það listakonurn- ar Guðný Guðmundsdóttir og Delana Thomsen er gáfu tóninn varðandi væntanlega tónlistar- vertíð á nýju ári. Tónleikarnir hófust á G-dúr fiðlusónötunni K.301, eftir Mozart, þeirri fyrstu af svonefndum Mannheim sónöt- um, sem samdar voru snemma árs 1778. Þær þykja bera nokk- ur merki Mannheimstílsins en einnig vera undir áhrifum af fiðluverkum eftir Joseph nokk- urn Schuster, er starfaði í Munc- hen. Um er að ræða nokkur atr- iði er varða samspil hljóðfær- anna, eins og t.d. undirleik ein- leikshljóðfærisins, þegar stefið er leikið í píanóröddinni og nokk- ur atriði varðandi meðferð stefj- anna. G-dúr sónatan er fallegt verk og var það fallega „sungið“ af báðum flytjendum og vonandi gefur þetta yndislega verk tón- inn fyrir hið ókomna á nýju ári. Brahms átti næsta tónleik og það var A-dúr fiðlusónatan op 100, samin 1886 og frumflutt sama ár. Þessi sónata er stöku sinnum nefnd „Verðlaunasöngs- sónatan“ vegna þess að þrír tón- ar aðalstefsins minna á verð- launasönginn úr Meistarasöngv- urunum eftir Wagner. Verkið var glæsilega flutt og mikil reisn yfir fyrsta þættinum. Annar þátturinn, sem er sambland af hægum þætti og „scherzo" rit- hætti, var einnig vel fluttur en í þeim þriðja, sem er rondo, er að finna sérlega fagra tónhend- ingu í öðru stefi kaflans, sem Guðný lék mjög fallega. í raun var hið stóra í skáld- skap tekið fyrir í verkum Moz- arts og Brahms, því eftir hlé var fengist að mestu við „virtúósa- verk“ fyrst eftir Wieniawsky (Polonaise brillant) þá eftir Chausson (Poéme) og síðast eft- ir Ravel (Tzigane). Polonaise Wieniawskys lék í höndum Guðnýjar en bestur var flutning- ur hennar í því ágæta verki, Poéme eftir Chausson, sem er þrungið rómantískri tilfinninga- semi og Guðný útfærði á sann- færandi máta. Tzigane eftir Ra- vel er margslungið verk og á margan hátt svipað að gerð og „La Valse“. Lék Guðný verkið mjög vel, þó inngangurinn hefði mátt vera ögn meira haminn, „bældur“, til að skapa inni- byrgða spennu í þennan magn- aða inngang og gera hann svolít- ið j.innhverfan". I heild voru þetta skemmtileg- ir tónleikar, byggðir á afburða góðu samspili og þrunginni túlk- un, og gefa því fyrirheit um gott listaár og veitir ekki af, til að færa okkur gleði og milda dimma harma frá liðnu ári. Jón Asgeirsson Rými, leikur, ljóð LEIKLIST Leiksm iðja Rcykjavíkur SPUNI Leikendur: Páll Sigþór Pálsson, Arni _ Pétur Reynisson, Stefán Baldur Árnason. Hinu húsinu, menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks, Reykjavík. Annan dag í nýári. OG LÝSING. Rými, leikarar, ljóð, lýsing. Fleira þarf ekki, sagði ungi maðurinn sem stóð í anddyr- inu að pakkhúsloftinu í Hinu hús- inu (gamla Geysishúsinu við Aðal- stræti) og tók enga miða af leik- húsgestum því ekkert kostaði inn. Þetta var stysta kynning á leik- verki sem ég hef heyrt, hnitmiðuð og sönn og ég fann ekki betur en að áhorfendum líkaði hún vel þar sem þeir stóðu dreifðir og aldrei í báða fætur í einu (eftirvænting hefur þessi áhrif á þyngdaraflið) í anddyrinu sem er í raun lítið gallerí fyrir unga listamenn (nú Söru Maríu og Ásdísi Sif) með grænbláa líkamsparta af konum í sundi á veggjunum og drauma, umkringda blómum. Og þá fálmuðum við okkur upp dimma og bratta stiga einhvern veginn af fingrum fram til þess að rekast ekki uppundir og vissum í raun ekki hvert ferðinni væri heitið en það er einmitt galdurinn við þessa sýningu félaganna íLeik- smiðju Reykjavíkur: Maður fer til að sjá hana í von um fyrirheit um ferð en engan skýran áfangastað enda er hann ekkert annað en til- finningin um ferðalagið sjálft. Kannski er tilfinning, hughrif, lykilorðið hér eins og jafnan þegar rými og hreyfing eru aðlöguð orð- um. Þeir Páll, Arni og Stefán eru orkubelgir miklir, líkamlega vel á sig komnir og sýningin nýtur þess þegar þeir æða um sviðið og segja fram texta sem oftast er helgaður af kyrrari stundum: Brot úr ljóðum ýmissa góðskálda á íslenska tungu og enska, og texta á borð við trúarjátninguna. I þessum spuna liggur mikið við. Einhver ógn er í loftinu. Mik- il tíðindi verða senn. Friðleysi gljá-- ir á hverri brá. Allt er á huldu um framvinduna, en framvindan ku víst vera lífið. Þeir flögra upp á rúður eins og flugur en detta jafn- harðan niður aftur. Þeir æða um sviðið, sveifla sér upp í rafta, hala sig upp, skjótast upp úr gólfinu, áttlausir menn. Það hefði ekki komið mér neitt sérstaklega á óvart ef risastór krumla hefði ruðst inn um gaflinn á pakkhúsinu og numið þessar mannflær á brott með sér út í myrkrið. Einu sinni slógu þeir á léttari strengi og gerðu það bráðvel. Reyndar hefði sýningin öðlast meiri breidd hefðu þeir gert meira af því. En ég veit (og vona) að það bíður betri tíma. Þeir Páll, Árni og Stefán eru ágætlega agað- ir leikarar og það hentar óreiðu verk'sins vel. Þessi sýning er eins langt frá hefðbundnum sýningum áhuga- leikhúsa og komist verður. Hún er af þvi taginu sem maður er ekki vanur, hvorki á landsbyggð- inni né í Reykjavík. í því felst sumpart ágæti hennar. Borgin stækkar við það -að Leiksmiðja Reykjavíkur skuli vera til. Stækk- ar á sama hátt og hún stækkar við það að nú skuli víða vera hægt að ganga inn á kaffihús og panta sér expressó. Lítinn sopa en rót- sterkan. Guðbrandur Gíslason TÍAAASPARNAÐUR ÖRYGÚI FUNDIÐFÉ NÝJAR ÁÆTLANIR A RETTRI HILLU MEP EGLU BREFABINDUM... ...GENGUR ÞU AD MIKILVAGUM HLUTUM VISUM Egla bréfabindin fást í 5 mismunandi stærðum. Þau stærstu taka 20% meira en áður, en verðið er það sama. Og litaúrvalið eykur enn á fjölbreytnina! Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. RÖt> OG REGLA Múlalundur Vinnustofa SÍBS Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819 Starfsnám VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Lærið hjá þeim sem þekkja þarfir viðskiptalífsins Bókhalds- og tölvunám Kennslugreinar: Almenn tölvunotkun - stýrikerfið WINDOWS 95 Töflureiknirinn EXCEL Gagnagrunnurinn ACCESS Ritvinnslukerfið WORD for Windows 7.0 Bókfærsla Tölvubókhald (Opus-Alt) 208 kennslustundir. Verð kr. 51.800. Kennsla hefst 15. janúar og náminu lýkur með prófum í maí. VR og mörg önnur stéttarfélög og starfsmenntunarsjóðir styrkja þátttöku félagsmanna sinna. Innritað verður á skrifstofu Verzlunarskóla íslands, Ofanleiti 1, 5.-11. janúar 1996 kl. 08.30-18.00. 9512
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.