Morgunblaðið - 05.01.1996, Síða 24
24
FOSTUDAGUR 5. JANUAR 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Petri Sakari stjórnar Sinfóníuhljómsveit æskunnar í Háskólabíói á morgun
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
PETRI Sakari einbeittur á svip á æfingu með Sinfóníuhljómsveit æskunnar sem hann stjórnar nú í fyrsta sinn.
Þrívíð
verk úr
hör, vír og
tágum
FRÍÐA S. Kristinsdóttir opn-
ar sýningu í Listhúsi 39,
Strandgötu 39 í Hafnarfirði,
á morgun, laugardag, kl. 15.
Þetta er fyrsta sýning Fríðu.
Á sýningunni eru myndverk
og þrívíð verk með tvöföldum
vefnaði, úr hör, vír, tágum,
og myndvefnaður úr ull.
Fríða er mynd- og hand-
menntakennari og kennir við
handíðabraut Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti. Hún er með
vinnustofu í Listhúsinu við
Engjateig.
Fríða lauk handavinnu-
kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands 1971. Stundaði
nám við Statens Læreskole
í Forming-, Osló 1977-78.
Nám í uppeldisgreinum við
KHÍ 1984-86, smíðadeild
KHÍ 1987-88 og mynd-
menntadeild KHÍ 1987-90.
Hún var gestanemandi við
textíldeild Myndlista og
handíðaskóla íslands
1991-93. Þar lagði hún að-
allega stund á vefnað.
Sýningin er opin frá 6.-22.
janúar. Virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 12-18 og
sunnudaga kl. 14-18.
Land míns
föður
í DAG föstudag kl. 20 hefj-
ast að nýju sýningar á „Land
míns föður“ hjá Leikfélagi
Selfoss. Leikritið er eftir
Kjartan Ragnarsson með
tónlist eftir Atla Heimi
Sveinsson. Leikstjóri er Ing-
unn Ásdísardóttir og tónlist-
arstjórn er í höndum Helga
E. Kristjánssonar.
Að hverri sýningu standa
um 50 manns, 33 leikarar og
6 hljómlistarmenn auk tækni-
fólks.
Mikilvægt að
starfrækja svona
hljómsveit
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT æsk-
unnar gengst fyrir tónleikum
íHáskólabíói kl. 14 á morgun.
Á efnisskrá verða Myndir á
sýningu eftir Mússorgskíj og
Petrúsjka eftir Stravinskíj.
Tónsprotinn verður í höndum
Petris Sakaris.
Myndir á sýningu kom sem
píanóverk frá hendi rússneska
tónskáldsins Modest Petrovitsj
Mússorgskíj árið 1874. Maurice
Ravel færði það síðar í hljóm-
sveitarbúning og þannig hefur
verkið verið flutt við verulegar
vinsældir víða um heim.
Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar hyggst hins vegar fara
óhefðbundna leið og flytja
verkið í hljómsveitarútsetn-
ingu Slesíumannsins Leos Fun-
dek. „Ástæðan fyrir því að við
veljum útsetningu Fundeks er
sú að mér hefur alltaf þótt
útsetning Ravels hljóma meira
eins og Maurice Ravel en Mo-
dest Mússorgskíj. Hún er síst
lakari en útsetning Fundeks
en sú síðarnefnda kemst nær
uppruna verksins. Síðan gerir
Fundek ráð fyrir stærri hljóm-
sveit en Ravel,“ segir Petri
Sakari.
Tímamótaverk
Verk rússnesk-bandaríska
tónskáldsins ígors Stra-
vinskíjs, Petrúsjka, sem samið
var fyrir ballettflokk S. Díag-
hílev árið 1911, var álitið tíma-
mótaverk. Markaði það ásamt
fleiri verkum af sama toga
djúp spor og aflaði Stravinskíj
heimsfrægðar. „Þetta er stór-
brotið verk og maður þarf ekki
á ballettinum að halda til að
# skilja það,“ segir Sakari.
Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar var sett á laggirnar árið
1985. Er markmið hennar að
gefa ungum tónlistarnemum
tækifæri til að öðlast reynslu
í hljómsveitarleik í fullskipaðri
sinfóníuhljómsveit, kynnast
stórum hljómsveitarverkum og
öðlast þannig reynslu og undir-
búning undir atvinnumennsku
í hljóðfæraleik. Þá felst mikil-
vægur hluti starfs hljómsveit-
arinnar í samskiptum og sam-
vinnu við ungmennahljóm-
sveitir erlendis og þátttöku í
alþjóðlegu hljómsveitarstarfi
sambærilegra ungmenna-
hljómsveita.
„Það er gríðarlega mikil-
vægt fyrir Islendinga að starf-
rækja hljómsveit á borð við
Sinfóníuhljómsveit æskunnar,"
segir Sakari, „ekki síst þar sem
engar fullskipaðar sinfóníu-
hljómsveitir eru starfræktar í
tónlistarskólum landsins. Ung-
ir tónlistarmenn hafa því tak-
mörkuð tækifæri til að kynnast
stórum hljómsveitarverkum en
fólk lærir ekki að spila í sinfón-
íuhljómsveit án þess að spreyta
sig á því.“
Leggja sig alla fram
Sakari hefur ekki sljórnað
Sinfóníuhljómsveit æskunnar í
annan tíma og segir að hún sé
betri en hann hafi búist við.
Hljóðfæraleikararnir leggi sig
alla fram, auk þess sem hann
hafi einvalalið leiðbeinenda sér
til aðstoðar við undirbúning-
inn. „Ég hef starfað mikið með
sambærilegum hljómsveitum á
Norðurlöndunum, einkum í
Finnlandi, og get fullyrt að ég
hef fengið mun meiri liðveislu
við undirbúninginn hér.“
Sakari bendir á að fjöldi fél-
aga sem skipað hafi hljómsveit-
ina á liðnum misserum hafi nú
haldið utan til náms. Nýtt blóð
setji því svip sinn á starfið nú.
„Það gengu margir ungir og
óreyndir hljóðfæraleikarar til
liðs við hljómsveitina í haust
og þess vegna er mikilvægt að
hún æfi vel. Frá mínum bæjar-
dyrum séð hefur þetta gengið
ljómandi vel.“
Sakari segir það ekkert
launungarmál að Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar búi við
þröngan kost. Fjármagn sé af
skornum skammti. Hann vonar
þó að þjóðin beri gæfu til að
láta hljómsveitina halda áfram
að dafna í framtíðinni.
„Leggi Sinfóníuhljómsveit
æskunnar upp laupana mun
Sinfóníuhljómsveit íslands
verða fyrir miklu tjóni. Sumir
af meðlimum hennar eru
komnir af léttasta skeiði og
fyrir vikið munu á næstu árum
opnast möguleikar fyrir unga
hljóðfæraleikara. Það er því
brýnt að leggja rækt við Sin-
fóníuhljómsveit æskunnar
enda er fé sem sett er í mennt-
un ungra hljóðfæraleikara og
uppbyggingu tónlistarlífs vel
varið.“
Ljós ogtími
-kjarni málsins!
INGIBERG Magnússon myndlist-
armaður opnar sýningu í Lista-
safni Kópavogs, Gerðarsafni, á
morgun laugardag kl. 15.
Sýningin ber yfirskriftina
„Ljós og tími“ og dregur nafn
sitt af röð mynda sem fjalla um
tímaskil birtu og myrkurs í
Reykjavík alla mánuði ársins.
Á sýningunni verða 28 verk,
tréristur og verk unnin með bland-
aðri tækni. Verkin eru flest gerð
á síðastliðnu ári.
Sýningin verður opin alla daga
nema mánudaga kl. 12-18 og lýk-
ur 21. janúar.
Ferð ársins - IU KINA
Farið verður til:
Til KXNA með
Unni Quðjónsdóttur
7.-28. maí, í fróðleíksferð/skemmtiferð ,
í stutterma hita í fámennum hópí ferðalanga.
FHeiIdarverð 265 þús. á mann. Q,n
Pantaðu strax Kínaklúbbur
Beijíng
Xian
Quílín
Suzhou
Shanghai
Reykjahlið 12,105 Reykjavik, sími 551-2596.