Morgunblaðið - 05.01.1996, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
þbveisTAPMBz)
;R ILLA VIPAOÞO
Tommi og Jenni
Smáfólk
Ég hef ákveðið að fara ekki í
sumarbúðir í ár ...
Ég hef hugsað um það aftur og Um það bil tíu sekúndur
aftur ... Þú virðist hafa hugsað
hcilmikið um það ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Herör gegn fátækt
í heiminum
Frá Þóri Jökli Þorsteinssyni:
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa helgað
árið 1996 baráttunni við fátækt í
heiminum. Engum blandast hugur
um að fátækt er böl. Þetta böl hefur
fýlgt mannkyni allar götur. í huga
okkar hefur orðið „fátækt" jafnan
verið tengt efnalegum gæðum - þ.e.
skorti á fjármunum og því sem fyrir
þá má kaupa. Ef betur er að gáð
leysa fjármunirnir einir ekki vanda-
mál manna, hvorki einstaklinga né
þjóðfélaga. Það þarf meira til, því
fátæktin verður ekki einskorðuð við
skort efnalegra lífsgæða. Rót flestra
erfiðleika manna er að fmna í út-
breiddri fátækt hins innri manns.
Hver er svo ríkur að hann hafi efni
á að bera ekki kala til nokkurs
manns? Hver er svo vel efnum búinn
að hann þurfi ekki sífellt að réttlæta
sjálfan sig? Hver á þann auð í innum
sínum að þar er ávallt nóg eftir, þó
mikið sé af tekið? Persóna Krists
Jesú leitar á hugann og spumingin
um röð hlutanna verður áleitin þegar
þetta ber á góma. Hvað kemur fyrst
og hvað síðar?
Jesús segir á einum stað, að fá-
tæka verði ávalit að finna á jörðu.
Þetta eru orð að sönnu og samþykkt-
ir Sameinuðu þjóðanna munu engu
um þetta breyta. Auður í garði er
málefni sem varðar ekki aðeins krón-
ur og aura heldur einnig innri getu
manna og útsjónarsemi til að afla
þeirra, - og það sem ekki er minna
verk, að láta þá verða til blessunar
en ekki bölvunar eins og oft hendir
þegar mönnum misferst. Þetta gildir
um einstaklinga, fyrirtæki og heilar
þjóðir. Við blasir, að óvita þarf að
kenna að fara með fé ekki síður en
aðra hluti sem mæta mannanna börn-
um í tilverunni. Eitthvað verður að
koma á undan til að fjármunirnir
gagnist í raun og veru þeim sem
ætlað er með þá að fara. Þekkt eru
dæmi af fólki sem áskotnast miklir
peningar en á ekki auðnu til að gera
þá sér og öðrum að góðu, því grund-
völlinn vantar, þ.e. dómgreind, út-
sjónarsemi og sanna auðsæld hins
innri manns.
Því myndi kirkja Krists fagna, ef
þeirri gerð fátæktar væri útrýmt sem
veldur hatri, kúgun og blóðsúthelling-
um. Það er sú fátækt sem gerir að
verkum að fjármunir þessa heims
fara, ásamt þeim sem um þá fjalla,
til þjónustu við svikatrú, dauðann,
skelfínguna, hungrið, menntunar-
leysið og sjálfsréttlætinguna. Út-
breidd innri fátækt manna er einn
af orsakavöldum hinnar efnalegu fá-
tæktar og þetta innra efnaleysi er
ekki bundið við silfur og gull þessa
heims, heldur tengist það uppeldi okk-
ar, dómgreind og trú, þeim grundvelli
sem við stöndum á í raun og veru.
Það er nóg af peningum í heimin-
um og hefur jafnan verið. Vandamál-
ið er ekki skipting þeirra á fárra
hendur eða margra, heldur það sem
þeirri misskiptingu veldur, en það er
tilhneiging okkar til að samansafna
handa sjálfum okkur og sundurdreifa
handa öðrum. Þessi tilhneiging er
eitt birtingarform syndarinnar. En
ætli nú einhver að gefa öðrum, þá
skiptir miklu máli í huga gefandans,
þó ríkur sé, hvemig þiggjandinn fer
með hverja gjöf. Minnumst þess því
að Guð er ávallt gefandinn að baki
hverri mennskri hendi sem fram rétt-
ir það sem að sönnu er gott.
ÞÓRIR JÖKULL ÞORSTEINSSON,
sóknarprestur á Selfossi.
Slttá ouglýsingar
Landsst. 5996010616 I Rh.
kl. 16.00.
Líföndun
Námskeið í losun og stjórn til-
finninga. Tekist á við ótta og
kvfða. Sjö miðvikudagskvöld.
Hefst 10. janúar.
Sítfr»ftiþjónuiU,
Gunnars Gunnarss.,
sími 564 180.1
Hjálpræðis-
r| herinn
Kirkjustræti 2
kvöld kl. 20.00 Jólafagnaður
fyrir Heimilasamband og Hjálp-
arflokk. Turid Gamst talar.
Sunnudag kl. 20.00 Hjálpræðis-
samkoma.
Sr. Halldór Gröndal talar.
Frá Guðspeki-
„ félaginu
Ipgólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
I kvöld kl. 21 veröur fjallað um
myndina „Nóttin langa" í húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22.
A laugardag er opið hús frá kl.
15 til 17 með fræðslu og umræð-
um.
Á sunnudögum kl. 17 er hug-
leiöslustund.
I Guðspekifélaginu er fjallaö um
öll trúarbrögð og andlegar stefn-
ur án fordóma. Starf félagsins
er ókeypis og öllum opið.
Miðlar
Valgarður Einarsson, miðill, starf-
ar hjá Ljósgeislanum 9.-12. jan.
Inga Magnúsdóttir verður með
Tarot-lestur dagana 15. og 16.
janúar.
Heilun
Guðrún Marteins og Margeir
Sigurðarson verða með upplýs-
ingar alla daga (síma 588 8530.
Ljósgeislinn,
Suðurlapdsbraut 10.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNl 6 - SiMI 568-2533
Laugardagur 6. jan. kl. 17
Þrettándaganga og blysför
um álfabyggðir í Öskjuhlíð.
Mæting við Perluna (norðan-
megin). Blys á kr. 300 seld á
staðnum. Gengið um skógar-
stíga í 30-45 mín. Göngunni lýk-
ur við þrettándabrennu á Vals-
vellinum. Fjölmennið.
Sunnudagur 7. jan kl. 10
Nýársferð i Herdísarvík.
Við fögnum nýju ári með heim-
sókn á þennan stórbrotna stað,
þar sem Einar Benediktsson,
skáld, eyddi síðustu æviárum
sínum. Leyfi hefur fengist til að
skoða hús skáldsins og dvelja þar
um stund. Fjörubál. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Heimkoma kl. 17.
Nánar auglýst síðar. Brottför frá
BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6.
Gleðilegt nýtt ferðaárl
Ferðafélag Islands.