Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Þingholtin
Á besta stað í Þingholtum er til sölu húsnæði.
Tilvalið t.d. fyrir gistiheimili.
Nafn, heimilisfang og símanúmer sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
10. janúar, merkt: „Þingholtin - 15928“.
^in!^níuihl{öms;veit(
æskunnar.
loóníetÁnr
i éfflás&k(airiói
Ámytm&pim & jtmtiw M. Í4JX).
STJÓRNANDI PETRl SAKARI
M. MUSSORGSKY:
MYNÐIR Á SÝNINGU (LEO FUNTEK, 1922).
I. STRAVINSKY:
PETRUSCHKA (1911).
Miðaverð kr. 1.000 skólafólk kr. 500
Músikleikfimin
hefst mánudagin 15. janúar.
Góö alhliða þjálfun fyrir konur, sem vilja bæta
þol, styrk og liðleika á markvissan og
skemmtilegan hátt.
Byrjenda- og framhaldstímar.
Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla.
Upplýsingar og innritun í síma 551 3022 alla
daga eftir kl. 17.
Gígja Hermannsdóttir, íþróttakennari.
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsinv!
yimrnmar í
HAPPDRÆTTI
KRABBAMEINSFELAGSINS
'Útdráttnr 24. de&emker 1995
HONDA CIVIC. Verðmæti 1.550.000 kr.:
95240
BIFREIÐ EÐA GREIÐSLA UPP í ÍBÚÐ. Verðmæti 1.200.000 kr.:
65184
ÚTTEKT HJÁ VERSLUN EÐA FERÐASKRIFSTOFU. Verðmæti 100.000 kr.:
138 8038 27480 43005 51492 66984 84843 100241 113914 134025
410 9689 29682 43705 52253 69133 85786 102646 116072 136037
2155 10335 30922 44315 54229 69159 86196 103630 116601 137828
2360 14171 31295 44766 54248 69975 87316 105182 121392 139420
3769 15098 33427 45370 56785 73540 88267 105245 121473 140091
3773 15620 33995 45608 56404 76509 89971 108414 123748 144947
3940 16941 35695 46818 58635 77708 90857 106459 126635 145010
4093 17422 37333 47382 58827 78752 90906 107693 131687 147408
5156 19164 38823 48491 61211 79598 91338 107965 131821 147568
5438 21130 39159 49481 61814 82243 97240 107966 131946 147799
6183 21433 40677 51009 62860 82871 98403 109113 132314 148668
7799 25378 41071 51447 66941 83328 99934 112502 132932 151739
GSM FARSÍMAR, Philips. Verðmæti 57.800 kr
521 28414 62825 78784 91378 98386 114452 119399 124638 136214
1196 28733 64861 79206 93687 101298 115336 119452 129685 136844
16871 31951 69742 90997 94656 105768 116547 122336 130883 144608
24129 47162 71433
Handhafar vinningsmiða
framvísi þeim á skrifstofu
Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8, sími 562 1414
TQ-ahhaitieiiMjeJagid þakkar
land&mönnunv ueittatv 6tiuhiinfr
Krabbameinsfélagið
I DAG
ÞESSIR duglegu drengir, sem heita Daníel Þorláks-
son, Guðmundur Bæring Ágústsson, Ólafur Kristinn
Ágústsson og Gunnar Finnur Gunnarsson, fengu eftir-
farandi bréf frá Ásgeiri Haraldssyni forstöðulækni
Barnaspítala Hringsins: „Þakka ykkur fyrir komuna
á Barnaspítala Hringsins. Það er sérstaklega gott að
þið skylduð ákveða að gefa Barnaspítala Hringsins
peningana, kr. 4.300, sem þið öfluðuð með snjó-
mokstri fyrir fólk í Fossvogsdalnum í desember. Við
munum að sjálfsögðu reyna að nota peningana vel til
að bæta vist barnanna hér.“
Með morgunkaffinu
TM Rog. U.S P«1.0 .11 rtghts roserved
(c) 199S Los Ang ime» Syndicate
6-30
að fara saman í veiðiferð
út meðsjó.
Ást er ...
ÞETTA er gasalega neyð-
arleg staða. Ég veit nefni-
lega ekki hvort við erum
vinkonur núna.
COSPER
Það er alveg sama bragðið að matnum og þegar pabbi
var búinn að fá nóg - og skildi við mömmu.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Ekkifáallir
desmberuppbót
MIKIÐ hefur verið fjasað
um desemberuppbótina
upp á síðkastið. En vissir
hópar i þjóðfélaginu fá
enga svona uppbót, s.s.
öryrkjar með enga tekju-
tryggingu. Mig langar til
að vita af hveiju það
stafar.
Hörður
Tapað/fundið
Gleraugu o.fl.
fundust
GLERAUGU o.fl. fund-
ust á gamlársdag fyrir
utan Hátún 4. Upplýs-
ingar hjá Guðrúnu í síma
552 0116.
Myndavél
tapaðist
LÍTIL ljósmyndavél tap-
aðist við áramótabrennu
Fylkis á gamlárskvöld.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 587 1468.
Armband
tapaðist
ÞYKKT silfurarmband
með brúnu munstri tapað-
ist við áramótabrennu á
Ægisíðu á gamlárskvöld.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 561 1048.
Barnahúfa
fannst
BARNAHÚFA úr skinni
fannst í Ljósheimum á
gamlárskvöld. Upplýs-
ingar í síma 587 4463.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pctursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á
minningarmótinu um Et-
hel B. Collins þar sem
bandarísk og íslensk ung-
menni háðu nokkurs kon-
ar landskeppni. Einar
Hjalti Jensson (1.840)
hafði hvítt og átti leik, en
Joan Santana (1.965)
hafði svart og lék síðast
18. - Hf8- c8?
19. Rxe5! (Nú sést af
hverju betra var að leika
hinum hróknum til c8.
Svartur getur ekki svarað
með 19. — Bxe5? 20.
Bxe5 — Dxc6 21. Dxc6 —
Hxc6 vegna þess að svarti
hrókurinn á b8 stendur í
uppnámi) 19. - Rg4!? 20.
Rxg4 - Bxg4 21. Bd5! -
Bxh2+ 22. Khl - Bd7
23. Ddl - Bf4 24. Dd4!
- Bh6 25. He7 -
Hf8 26. Be6! og eft-
ir þennan laglega
lokahnykk gafst
svartur upp.
Það var 83ja ára
gamli skákkennar-
inn John W. Collins
sem kom með 25
börn og unglinga frá
Bandaríkjunum.
Margir muna vafa-
laust eftir honum
frá heimsmeistara-
einvíginu í Laugar-
dalshöllinni árið 1972.
Hann kenndi Bobby Fisc-
her sem ungum dreng og
kom svo hingað til að
fylgjast með honum vinna
heimsmeistaratitilinn. Þar
rættist svo sannarlega
óskadraumur kennarans.
Undankeppni fyrir
yngsta flokk Norður-
landamótsins í skólaskák
verður haldið í kvöld og á
morgun. Mótið hefst
föstudaginn 5. janúar kl.
19.00 í Skákmiðstöðinni
við Faxafen. Umhugs-
unartíminn er 25 mínútur
á skák. Mótið er opið
börnum fæddum 1985 og
síðar.
Víkveiji skrifar...
GJAFAKORT eru vinsæl til
tækifærisgjafa, en misjafn-
lega standa menn að málum.
Víkverja var sagt frá afmælis-
barni, sem fékk gjafakort Þjóðleik-
hússins að gjöf. Af ýmum ásstæðum
dróst leikhúsferðin, en af því hafði
afmælisbarnið ekki áhyggjur, því
kortið gilti í ár, eftir því sem á því
stóð. Var svo enda gott að láta til-
hlökkunina stigmagnast með hveij-
um degi og með hverri auglýsingu
Þjóðleikhússins um ágæti gjafa-
korta þess.
En svo kom að því að draumur-
inn skyldi rætast. Kom þá í ljós,
að Þjóðleikhúsið er of gott til að
vera satt, því afmælisbarnið var
rukkað um peninga til að afmælis-
gjöfin gilti. Miðaverð hafði hækkað
og þótt gjafakortið gilti í ár, þá
gilti það ekki lengur fyrir gjöfinni,
tveimur leikhúsmiðum.
Afmælisbarnið gerði strax at-
hugasemd við þetta, en varð að
borga til þess að af leikhúsferðinni
gæti orðið. Leiðrétting hefur heldur
ekki fengist eftir á.
XXX
VÍKVERJI vildi því hafa vaðið
fyrir neðan sig, þegar hann
varð að grípa til gjafakorts í verzl-
uninni Tékk-Kristal, þar sem
ákveðin diskategund var uppseld
og ekki væntanleg aftur fyrr en
eftir ákveðinn tíma.
En málið var auðleyst, því af-
greiðslukonan sagði strax að
verzluninni myndi aldrei detta í
hug að fara að rukka þann sem
kæmi með gjafakortið, jafnvel
þótt diskarnir hækkuðu eitthvað
í verði. Og til öryggis skrifaði hún
fjölda diskanna í gjafabréfið en
ekki peningaupphæðina, sem Vík-
verji borgaði.
Og þetta var talið sjálfsagt mál.
FRÉTT úr Víkurfréttum í Kefla-
vík í lokin, en þar var nýlega
sagt frá happdræti Lionsklúbbsins
Óðins í Keflavík:
„Skemmtileg saga var á bakvið
miðann hjá Einari (Júlíussyni
söngvara). Formaður klúbbsins,
Albert Hjálmarsson, kom við hjá
Einari klukkan 22 á Þorláksmessu-
kvöld og afhenti honum miða og
fána klúbbsins fyrir að hafa komið
fram á herrakvöldi klúbbsins í októ-
ber síðastliðinn.
Einar vildi þá ekkert taka fyrir
að syngja fyrir klúbbfélaga en Li-
onsmenn vildu sýna Einari hug sinn
í verki og færðu honum eins og
fyrr segir miða og fána. Um klukku-
stundu síðar komu þeir aftur til
hans og tilkynntu honum að hann
hefði unnið bílinn, VW Polo að verð-
mæti um ein milljón króna.“