Morgunblaðið - 31.01.1996, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hópar nemenda nota tónlist, tölvur, myndlist og myndbönd í samnorrænu verkefni
Horft inn í
næstu öld
Myndrænir miðlar og manngert umhverfi
eru heiti tveggja verkefnahópa í norrænu
samstarfsverkefni. Þessi heiti segja þó lítið
um forvitnileg og margbreytileg viðfangs-
efni unga fólksins sem vinnur að þeim.
HÓPAR grunn- og framhalds-
skólanemar sem vinna í
vetur samnorrænt verk-
efni, Borg unga fólksins, og sýnt
verður næsta haust í Kaupmanna-
höfn, kynntu verkefni sín hver fyr-
ir öðrum síðasta sunnudag. Einnig
báru nemendur saman bækur sínar.
Verkefnin eða verkstæðin eru
unnin í Menntaskólanum við Sund,
Hólabrekkuskóla, Æfingaskóla
KHI og Hlíðaskóla og eru viðfangs-
efnin sett fram á margs konar hátt;
í tónlist, með tölvum, myndböndum,
dansi og arkitektúr. Leiðbeinendur
koma bæði úr kennaraliði skólanna
og síðan fær hver hópur faglega
aðstoð sérfræðinga á viðkomandi
sviðum. Blaðamaður Morgunblaðs-
ins leit inn hjá hópunum sem
kynntu störf sín í Menntaskólanum
við Sund.
- Við erum að undirbúa mynd-
band, litla sögu um þroskaheftan
strák og drauma hans, hvemig fólk
bregst við þeim og hvernig þeir
rætast, sögðu þeir Hjalti Baldurs-
son og Ólafur P. Georgsson. Þeir
eru báðir í öðrum bekk í MS og
starfa í hópnum Myndrænir miðlar.
Þeir voru beðnir að rekja hvernig
þeir hafa unnið að verkefninu:
- Eins og aðrir hópar byrjuðum
við í haust. Fyrst fengum við Odd
Albertsson og Óskar Jónasson til
að leiðbeina okkur. Oddur sagði
okkur eitt og annað almennt um
kvikmyndir, hugtök og tækni og
annað slíkt en Óskar fór meira í
sjálfa handritagerðina.
Saga okkar Ijallar um Villa sem
er þroskaheftur og er að sýsla við
brotajárn og fleira, finnur fötu og
á sér þann draum að ferðast á henni
í Perluna af því að honum fínnst
hún falleg. Þeim fullorðnu líst ekk-
ert á þessa vitleysu en draumur
Villa rætist og má segja að sagan
sé ádeila á að þeir sem eru minni
máttar skuli ekki mega hrinda
draumum sínum í framkvæmd.
Þessi þráður varð eiginlega til upp
úr einhveiju gríni og svo spannst
handritið áfram svona af sjálfu sér.
Eruð þið miklir áhugamenn um
myndbanda- eða kvikmyndagerð?
- Við höfum dútlað dálítið við
þetta og erum búnir að læra ýmis-
legt eins og til dæmis um tækin
en við fáum aðstoð þegar tökurnar
sjálfar iieflast. Meðal annarra ætlar
Óskar að vera okkur innan handar.
Við fáum lánaðan tækjabúnað hjá
Hinu húsinu og hér í skólanum en
síðan verður myndin trúlega klippt
í Fjölbraut í Breiðholti.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ILLUGI Eysteinsson myndlistarmaður er hér að ræða við hópinn en leiðbeinendur voru með í
. för þegar hóparnir heimsóttu hver annan.
HJALTI Baldursson og Ólafur P. Georgsson
eru í hóp sem vinnur að myndrænum miðlum.
HUGRUN Ösp Reynisdóttir og Désirée Kleiner
fjalla um manngert umhverfi.
Ást, rómantík og kynlíf
Manngert umhverfi heitir hitt
verkefnið sem unnið er í MS. Eru
10 nemendur skólans í þeim hópi.
- Hópurinn hér fjallar um efnið
rómantfk, ást og kynlíf og er ætlun-
in að útbúa heimili fyrir heimilis-
Iausa. Við áttum hvert og eitt að
fara um og ljósmynda eitthvað sem
okkur finnst rómantískt og síðan
eiga allir að vinna að sameiginlegri
framsetningu, sögðu þær Hugrún
Ösp Reynisdóttir og Désirée Klein-
er, en hún er skiptinemi frá Þýska-
landi. „Við höfum verið með viku-
íegar stundir frá því í september
og höfum einkum notið leiðsagnar
Illuga Eysteinssonar og Haraldar
Jónssonar myndlistarmanna."
í mars- sýna allir hóparnir af-
raksturinn í Listasafni Islands en
sameiginleg yfirskrift þessa sam-
norræna verkefnis er Framtíðarsýn
fyrir nýtt árþúsund. Sumir hóparn-
ir munu eiga samstarf um fram-
setningu á efninu og verður síðan
eftir sýninguna ákveðið hvernig
endanleg framsetning þess verður
í Kaupmannahöfn.
Fíkn - mál allrar fjölskyldunnar
Ráðstefna um fíknsjúk-
dóma haldin á Islandi
EVRÓPSK ráðstefna um fíknsjúk-
dóma, EuroCAD/96, verður haldin á
Hótel Sögu 10.-13. apríl nk. Ráð-
stefnan er nú haldin í þriðja sinn en
hún hefur áður verið haldin í Edin-
borg og Lundúnum. Yfirskrift ráð-
stefnunnar, sem fram fer á ensku,
verður Fíkn - mál allrar fjölskyld-
unnar.
EuroCAD (European Conference
on Addictive Disease) er sniðin eftir
þekktri ráðstefnu, SECAD (The So-
utheastern Conference on Alcohol
and Drug Abuse), sem haldin er í
Atlanta í Bandaríkjunum og íslensk-
ir læknar og áfengisráðgjafar hafa
sótt árum saman.
EuroCAD-ráðstefnan er skipulögð
af Sveini Rúnari Haukssyni lækni
og Tom Claunch. Claunch hefur stað-
ið fyrir fyrri EuroCAD-ráðstefnum
og hann var um árabil forseti banda-
rísku áfengisráðgjafarsamtakanna,
NAADAC. Hann stundar nú ráð-
gjafastörf í ýmsum Iöndum.
Markmiðið að auka áhuga
Markmið EuroCAD/96 er að vekja
áhuga og skilning á alkohólisma og
annarri efnafíkn sem sjálfstæðum
sjúkdómi er þurfi sérhæfða meðferð;
að auka skilning á þeirri meðferð við
áfengis- og vímuefnafíkn sem byggir
á bindindi og 12 spora leið AA-sam-
takanna og annarra sjálfshjálpar-
hópa; að stuðla að vísindalegum
rannsóknum á fíknsjúkdómum og að
skapa vettvang fyrir umræður um
meðferð og forvarnir.
Helstu stuðningsaðilar ráðstefn-
unnar eru Alþjóðaráðið um áfengi
og fíkn (ICSS), sem starfar í tengsl-
um við Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unina (WHO) og Sameinuðu þjóðirn-
ar; bandarísku ráðgjafarsamtökin
(NAADAC); samtök hjúkrunarfræð-
inga á sviði efnafíknar (CANSA);
Samtök áhugafólks um áfengis- og
vímuefnavandann (SÁA) og Lækna-
félag íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sveini Rúnari Haukssyni lækni var
ísland valið að hluta til vegna þess
árangurs sem hér hefur náðst í
áfengismeðferð með starfi SÁÁ og
ríkisspítalanna. „Gæði og umfang
þessarar þjónustu hefur vakið at-
hygli og áunnið íslenskri heilbrigð-
isþjónustu sérstakt álit, hvað varðar
meðferð á alkóhólisma og skyldum
sjúkdómum. Litið er til íslands sem
fyrirmyndar fyrir önnur lönd, ekki
síst í Evrópu, þegar um er að ræða
forvarnir, íhlutun og meðferð á fíkn-
sjúkdómum," segir Sveinn Rúnar.
Höfðar til margra stétta
Sveinn Rúnar segir að ráðstefnan
verði á þverfaglegum grunni og höfði
jafnt til lækna, sálfræðinga, áfengis-
ráðgjafa, hjúkrunarfræðinga, félags-
ráðgjafa, starfsmannastjóra, presta,
kennara, lögreglumanna, æskulýðs-
Ieiðtoga og allra þeirra sem vinna á
einn eða annan hátt að forvörnum
og lausn á áfengis- og vímuefna-
vanda.
Fjölmargir erlendir ræðumenn
verða á ráðstefnunni, þ.á m. Robert
Ac.kerman Ph.D. og Claudia Black
Ph.D. frá Bandaríkjunum, auk nokk-
urra íslenskra lækna og ráðgjafa.
Kjartansgata
4ra herb. íbúð á 2. hæð í fjórb. 110 fm ásamt 27 fm bílskúr. jbúðin
skiptist í 3 svefnherb., stofu, eldhús með nýrri eldhúsinnr. og rúm-
gott baðherb. Tvennar svalir. Nýlegt gler. Ahv. veðdeild 1,2 millj.
Verð 8,9 millj.
Séreign - fasteignasala,
Skólavörðustíg 38A, sími 552 9077.
i
J
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RÁÐSTEFNA Stúdentaráðs HI hófst sl. mánudag í Odda.
Háskólamál rædd frá
ýmsum sjónarhornum
FYRIRLESTRAR í tengslum við
ráðstefnu Stúdentaráðs Háskóla ís-
la.nds, um rannsóknir og nýsköpun
sem hófst sl. mánudag, verður fram
haidið í hádeginu alla daga vikunn-
ar. Á laugardag verða Nýsköpunar-
verðlaun forseta íslands afhent á
háskólahátíð. Verða verðlaunin veitt
í fyrsta sinn.
I dag, miðvikudag, verður í Lög-
bergi 101 fjallað um hvort framlög
til rannsókna eigi að vera frádrátt-
arbær frá skatti. Fyrirlesarar eru
Vilhjálmur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarráðs, og
Pétur Blöndal alþingismaður.
Fimmtudaginn 1. febrúar verður
í Odda 101 fjallað um Nýsköpunar-
sjóð námsmanna, fluttir verða fyrir-
lestrar um verkefni og kynning verð-
ur á sjóðnum. Fundarstjórar og
umsjónarmenn eru Ásdís Jónsdóttir,
Kristín Edwald, Heiðrún Gígja
Ragnarsdóttir, Örn Úlfar Sævars-
son, Gunnar Bjarni Ragnarsson og
Dagur B. Eggertsson. Eftir hádegi
verða Nýsköpunarsjóðsverkefni
kynnt í hverri byggingu.
Föstudaginn 2. febrúar fara fram
pallborðsumræður um framtíð Há-
skólans í Odda 101. í pallborði sitja
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, Guðrún Pétursdóttir dósent,
Sveinbjörn Björnsson háskólarektor,
Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins, og Þórólfur
Þórlindsson prófessor. Eftir hádegi
fer fram hönnunarkeppni verkfræði-
nema.
Við upphaf háskólahátíðar á laug-
ardaginn mun frú Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, afhenda Ný-
sköpunarverðlaunin. Sjö verkefni
hafa hlotið tilnefningu en ekki verð-
ur tilkynnt um hvert þeirra verður
fyrir valinu fyrr en við afhendingu.
I
i
»
»
»
í
f:
€
Ci
€
C1
f
6