Morgunblaðið - 04.02.1996, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 28/1 - 3/2
INNLENT
►ÞRÁTT fyrir snjóléttan
vetur hafa 211 manns leitað
til slysadeildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur rúma tvo und-
anfarna mánuði eftir að
hafa orðið fyrir meiðslum
vegna hálku. 167 þeirra
voru fótgangandi þegar slys
bar að höndum.
►FULLTRÚAR Evrópu-
sambandsins á fundi Norð-
austur-Atlantshafsfis-
kveiðinefndarinnar lögðu
fram nýja tillögu í viðræð-
um um skiptingu á úthafs-
karfastofninum á Reykja-
neshrygg. Tillagan gerir
ráð fyrir að 70% skiptingar-
innar byggist á veiði-
reynslu. Guðmundur Eiríks-
son, formaður íslensku
sendinefndarinnar, segir að
ísland geti ekki sætt sig við
þá hugmyndafræði sem til-
lagan byggist á.
► S AM VINNUFERÐIR-
Landsýn hafa samið við
flugfélagið Atlanta um sól-
arlandaflug með 350 sæta
Tri-Star breiðþotu félagsins
í sumar. Fyrirtækið segir
að þetta þýði allt að 18%
verðlækkun á sólarlanda-
ferðum frá því sem var í
fyrra.
►ÞORSTEINN Pálsson
sjávarútvegsráðherra hefur
lagt fram frumvarp á Al-
þingi um samningsveð þar
sem ekki er að finna ákvæði
um veðsetningu veiðiheim-
ilda. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins hafnaði
þingflokkur Framsóknar-
flokksins þessu ákvæði
frumvarpsins.
►ÍSLENSKA útvarpsfélag-
ið hefur óskað eftir viðræð-
um við Ríkisútvarpið um
hugsanleg kaup á sjón-
varpshúsinu á Laugavegi.
Eyðing tanna
EYÐING tanna bama og unglinga
er orðin mjög stórt vandamál á Is-
landi en ástæðan er óhófieg gos-
drykkjaneysla. Tennumar eru að
hverfa í sumum unglingum, að sögn
sérfræðinga, vegna þess að gos-
drykkir, sódavatn og djús em svo súr
efni að þau leysa upp tennumar.
64% með veiði-
leyfagjaldi
SAMKVÆMT niðurstöðum skoðana-
könnunar, sem Gallup hefur gert fyr-
ir Samtök iðnaðarins á afstöðu fólks
til töku veiðileyfagjalds, era 64%
þeirra sem afstöðu taka fylgjandi
veiðileyfagjaldi og 36% andvígir því.
Svipuð niðurstaða varð i atkvæða-
greiðslu meðal almennings á Stöð 2
á fimmtudagskvöld í þættinum Al-
mannarómi.
Sjómaður sýknaður
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað bresk-
an sjómann af ákæra um að hafa
nauðgað íslenskri konu um borð í tog-
ara í Reykjavíkurhöfn. Maðurinn var
dæmdur til eins árs fangelsis í héraðs-
dómi. Verjanda Bretans, Ásgeiri A.
Ragnarssyni, hefur verið falið að
skoða hugsanlegt skaðabótamál.
Bjargi ekki lokað
RÍKISSPÍTALAR og Hjálpræðisher-
inn á Islandi hafa komist að sam-
komulagi um að leita lausnar á rekstri
vistheimilisins að Bjargi. Skoðað
verður sérstaklega hvort hægt er að
hagræða í rekstri vistheimilisins að
Bjargi og ná niður kostnaði. Einnig
verður skoðað hvort hægt er að fínna
lausn á vanda heimilismanna með
þátttöku félagsmálaráðuneytisins,
svæðisstjóra og sveitarstjóma.
Lyf hækka í verði
DÆMI er um að ný lyfjareglugerð,
sem tók gildi sl. fímmtudag, leiði til
38% hækkunar á lyfjaverði til elli-
og örorkulífeyrisþega. Reglugerðin
leiðir til þess að meðalverð lyfseðils
hækkar úr 1.200 krónum í 1.400
krónur.
Frakkar hætta öllum
kjarnorkutilraunum
JACQUES Chirac,
forseti Frakk-
lands, greindi frá
því í sjónvarpsá-
varpi sl. mánu-
dagskvöld, að
Frakkar myndu
ekki sprengja fleiri
kjarnorkusprengj-
ur í Kyrrahafi í til-
raunaskyni. Sjötta
og síðasta
sprengjan var sprengd um síðustu
heigi. Chirac sagði ennfremur að
Frakkar myndu taka framkvæðið í af-
vopnunarmálum og varðandi sameigin-
legar evrópskar vamir. Bandaríkja-
menn fögnuðu ákvörðun Frakka og
spáðu því að hún myndi auðvelda vinnu
við að ljúka allsheijarsáttmála gegn
kjarnorkutilraunum, sem til stendur að
undirrita síðar á árinu. Chirac hélt til
Bandaríkjanna á miðvikudag og ávarp-
aði m.a. Bandaríkjaþing og átti fund
með Bill Clinton forseta.
Norðmenn æfa varnir
við fiskistríði
SÍÐUSTU daga hafa farið fram leyni-
legar æfíngar í Noregi þar sem meðal
annars var skipulagt hvemig brugðist
skyldi við átökum um fiskinn í Barents-
hafí, olíu og gas, flugránum, hryðju-
verkum og kjarnorkuslysi. Sett var
m.a. á svið sú staða, að samskipti við
eitt nágrannalandið, sem nefnt var
„Opforia", hafí versnað mjög vegna
deilna um réttinn til fiskveiða og ann-
arra auðlinda í Barentshafi. Á síðari
stigum æfínganna náði svo spennan
eða æfíngin hámarki þegar Opforia
kom með beinar landakröfur á Noreg
og krafðist yfirráða á Bjarnarey og Jan
Mayen.
►GÍFURLEG ringulreið
varð í Colombo, höfuðborg
Sri Lanka, á miðvikudag er
öflug sprengja hafði
sprungið í miðborginni með
þeim afleiðingum að um 100
manns biðu bana og 1.500
slösuðust.
►GRIKKIR og Tyrkir
deildu hart um eyðisker við
Tyrklandsstrendur og var
um tima óttast að til stríðs-
átaka kæmi þar sem ríkin
stefndu miklum flota að
skerinu og orrustuþotur
sveimuðu yfir. Um síðir
tókst Bandaríkjamönnum
að miðla málum.
►STJÓRN Þýskalands
samþykkti í vikunni áætlun
sem miðar að því að fjölga
atvinnutækifærum og ýta
undir hagvöxt. Var henni
lýst sem „vítamínssprautu“
fyrir efnahagslifið án þess
að útgjöld ríkisins væru
aukin eða velferðarkerfið
rifið niður. Enginn hagvöxt-
ur hefur verið og jafnvel
samdráttur í Þýskalandi og
atvinnulausum hefur fjölg-
að stöðugt.
► BRESKIR vísindamenn
segjast telja líklegt, að líf
hafi áður dafnað á Mars og
kunni enn að þrífast djúpt
undir yfirborði plánetunn-
ar.
►UM hálf milljón rúss-
neskra kolanámamanna
lagði niður vinnu á fimmtu-
dag og krafðist þess að fá
greidd nokkurra mánaða
vangoldin laun.
FRETTIR
Lyfsalar ósáttir við lyfjasölu apóteka spítalanna
Auka sértekjumar
með meiri lyfsölu
FÉLAG íslenskra lyfsala hefur
kært lyfsölu apóteks Ríkisspítal-
anna til Samkeppnisstofnunar. Lyf-
salar telja að samkeppnisstaða al-
mennra lyfsala og apóteka spítal-
anna sé ójöfn, en nú er hinum síðar-
nefndu heimilt með lögum að selja
lyfseðilsskyld lyf til sjúklinga og
göngudeildarsjúklinga. Vilja lyfsal-
ar að rekstur spítalanna og apóteka
þeirra verði skýrt aðgreindur.
Vegna niðurskurðar á fjárveiting-
um til spítalanna hefur stjóm
Sjúkrahúss Reykjavíkur gert áætl-
un um að auka sértekjur sjúkra-
hússins með aukinni lyfsölu.
Ríkið í samkeppni
við einkaaðila
Ingolf Petersen, formaður Félags
íslenskra lyfsala, segir að ríkið sé
með þessu að fara í samkeppni við
einkaaðilana. Þarna skjóti skökku
við því það sé yfírlýst stefna ríkis-
stjómarinnar að losa sig út úr
rekstri fyrirtækja sem eru í sam-
keppni við einkaaðila.
„Þarna vinnur opinbert starfs-
fólk, húsaleigan er væntanlega eng-
in og rafmagn og hiti kostaður af
hinu opinbera. Það er þetta sem við
fettum fíngur út í og höfum kært
til Samkeppnisstofnunar og bíðum
nú svara,“ segir Ingolf Petersen.
Ingolf kvaðst eiga von á niðurstöð-
um frá Samkeppnisstofnun í þess-
um mánuði.
Rannveig Gunnarsdóttir hjá heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytinu
segir að 15. mars nk. gangi í gildi
annar hluti lyfsölulaganna, þ.e. þau
ákvæði sem snúa að lyfsöluleyfum
og lyfjaverði. Ný nefnd, lyfjaverðs-
nefnd, leysir eldri lyfjaverðlags-
nefnd af hólmi. Lyfjaverðsnefndin
ákveður hámarksverð á lyfjum sem
Tryggingastofnun tekur þátt í að
greiða og gerir verðsamanburð á
lyfjum í nágrannalöndunum sem
hún getur stuðst við þegar há-
marksverð er ákveðið. Nefndin hef-
ur þó ekki verið stofnuð enn. Rann-
veig telur hugsanlegt að með nýjum
lögum um lyfjaverð komist á verðs-
amkeppni í lyfseðilsskyldum lyfjum.
Líklegast yrði það á þann veg að
lyfsalar gæfu afslátt af kostnaðar-
hjuta sjúklinga.
'
Lyfsalar segja að apótek spítalanna njóti
niðurgreidds húsnæðis og starfskrafta
og hafa kært til Samkeppnisstofnunar.
Guðjón Guðmundsspn fjallar um þau
sjónarmið sem eru uppi í þessu máli.
Meiri þjónusta til sjúklinga
Rannveig Einarsdóttir, yfirlyfja-
fræðingur í apóteki Landspítalans,
segir að allt þar til fyrir einu og
hálfu hafi apótek spítalans haft
heimild til takmarkaðrar sölu á lyfj-
um samkvæmt lyfseðli, þ.e. ein-
göngu svonefnd S-merkt lyf, sem
einvörðungu mátti afgreiða frá
sjúkrahúsum. Þetta eru einkum
krabbameinslyf og lyf við flóknum
sýkingum.
„Við gátum því ekki alltaf af-
greitt sjúklinga með öll þau lyf sem
voru á lyfseðlinum. Þeir þurftu sum-
ir að koma fyrst til okkar og fara
síðan í annað apótek.“
Heimild sjúkrahúsanna var
rýmkuð fyrir einu og hálfu ári og
nú mega apótek þeirra afgreiða
sjúklinga, sem eru að útskrifast af
sjúkrahúsunum, og göngudeildar-
sjúklinga um öll Iyfseðilsskyld lyf.
Lyfin eru á sama verði og í öðrum
apótekum. Enginn getur keypt lyf
í apótekum spítalanna nema sjúkl-
ingar og göngudeildarsjúklingar.
Rannveig kvaðst ekki telja að
breytingar yrðu á lyfsölu apóteka
spítalanna með gildistöku lyfsölu-
laganna 15. mars nk. Hún segir að
meginhlutinn í veltu apóteks Land-
spítalans sé í sölu á sérmerktum
lyfjum.
„Grunnhugsunin hjá okkur er að
veita sjúklingunum sem besta þjón-
ustu.“
Samkeppnisstaða apóteka
sjúkrahúsanna lakari
Sjúkrahús Reykjavíkur áætlar að
auka sértekjur sínar á þessu ári
með sölu á lyfjum. Jóhannes Pálma-
son, forstjóri Sjúkrahúss Reykjavík-
ur, segir að sjúklingar á slysadeild
hafí haft sama aðgang að lyfsölu
spítalans og aðrir sjúklingar en lyf-
sala verði nú einnig staðsett á slysa-
deild. Hann segir að mjög margir
sem leita til slysadeildar fái lyf-
seðla. „Við viljum spara þeim spor-
in með því að gefa þeim kost á að
kaupa sín lyf um leið og þeir ganga
út.“
Jóhannes kvaðst eiga erfítt með
að svara því hve miklum tekjum
lyfsalan myndi skila. Hann benti á
að þetta fyrirkomulag hefði einnig
í för með sér spamað fyrir spítalann
því hingað til hefðu margir sjúkling-
ar á slysadeild fengið heim með sér
litla lyflaskammta án þess að þurfa
að greiða fyrir þá.
Kristján Linnet, yfirlyfjafræðing-
ur í apóteki Sjúkrahúss Reykjavík-
ur, segir að lyfsalan hafi hafíst um
áramótin og farið rólega af stað.
„Það er alveg ljóst að það er gífur-
legur fjöldi sjúklinga sem fær lyf-
seðla hér á spítalanum og fer með
þá annað. Við vildum gjaman geta
þjónað þessu fólki. Þegar Alþingi
ákvað að skera svo mikið niður fjár-
veitingar til spítalans urðu við-
brögðin þau að leita leiða til þess
að auka sértekjurnar og þetta er
eitt af því sem við höfum horft til,“
segir Kristján.
Kristján segir að apótek spítal-
anna séu í mun lakari samkeppnis-
stöðu en almennir lyfsalar. Þau
hafí ekki sömu sóknarfæri á mark-
aðnum og lyfsalar og sé mjög
þröngur stakkur skorinn í sam-
keppninni. Hann segir að sam-
kvæmt lögunum sé rekstur apóteks
spítalans skilinn frá rekstri spítal-
ans og greitt sé reiknað markaðs-
verð fyrir húsnæði og aðra þætti.
Fullyrðingar um annað séu aðeins
rangfærslur.
Morgunblaðið/Þorkell
6000 áskoranirvegnaBjargs
„OKKUR gekk ótrúlega vel að
safna undirskriftunum. Ég held
bara að enginn hafi neitað,"
sagði Bryndís Schram í samtali
við Morgunblaðið. Hún afhenti
8.1. föstudag Guðmundi G. Þórar-
inssyni, formanni stjórnar Ríkis-
spítalanna, áskorun rúmlega
6000 íslendinga af höfuðborgar-
svæðinu og utan af landi um að
vistheimilinu Bjargi verði ekki
lokað. Á milli Bryndísar og Guð-
mundar standa Vigdís Magnús-
dóttir, forstjóri Rikisspítalanna,
Arni Steinsson, fulltrúi aðstand-
enda heimilismanna Bjargs, og
Anna Birna Ragnarsdóttir. Anna
Birna vann að söfnun undir-
skriftanna með Bryndísi. Bryndís
sagði að lokun Bjargs hefði verið
frestað.