Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 8

Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 8
8 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Áfram skal Skrattanum skemmt hvað sem tautar og raular... Umræða um kvótaleigu innan Framsóknar HJÁLMAR Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins á Reykja- nesi, segir að innan Framsóknar- flokksins eigi sér stað umræður um að ríkið leigi kvótann í stað þess að úthluta honum endur- gjaldslaust eins og nú er gert. Hann segir ekki ljóst hversu mikið fylgi sé við þessa hugmynd meðal flokksmanna. Reikna megi með að umræður verði um hana á flokksþingi Framsóknarflokksins í haust. Hjálmar sagði að hann og Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins á Vestur- landi, hefðu verið að móta hug- myndir um breytingar á fiskveiði- stjómkerfinu. „Hugmynd okkar gengur út á að það verði ríkið sem leigi kvótann, en að það verði óheimilt að framselja eða leigja þriðja aðila, þó með þeirri undan- tekningu ef menn eru að skiptast á fisktegundum. Við gerum ráð fyrir að ef fyrirsjáanlegt er að menn nái ekki að veiða kvótann þá sé þeim skylt að skila honum aftur og hann komi þá til endur- leigu til annarra. Vankantar á kvótakerfinu Við göngum út frá því að kvótakerfið verði áfram við lýði. Á kerfinu eru nokkrir vankantar sem við teljum nauðsynlegt að sníða af því. Það eru aðallega tveir þættir. Annar þeirra er framsal aflaheimilda og leiguliða- fyrirkomulagið sem bitnar hart á hefðbundnum vertíðarbátum og hefur haft vond áhrif á nokkrum landssvæðum. Hinn veikleikinn er umgengnin um auðlindina. Á því er verið að taka í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi.“ Hjálmar sagði að það væri mik- il spenna úti í þjóðfélaginu út af afleiðingum frjáls framsals veiði- heimilda. Hluti sjómanna, aðallega á Reykjanesi og Vesturlandi, þyrfti að sæta þeim kjörum að borga handhafa veiðiheimildanna fé til að mega draga fisk úr sjó. Á þessu yrði að taka með einhverj- um hætti. Hjálmar tók fram að þessar hugmyndir hefðu enn ekki verið ræddar í stofnunum flokksins enda væri ekki búið að útfæra þær í einstökum atriðum. Flokkurinn hefði því ekki breytt um stefnu í sjávarútvegsmálum, en orð væru til alls fyrst. • • • Lilijan leðursófasettum ** ogAlcantara sófasettum Opið í dag kl.1 3 - 17 Suðurlandsbraut 54 - Sími: 568 2866 Rætt um sjúklega fíkn og fjölskylduna Tólf spora kraftaverkið SVEINN Rúnar Hauks- son er í óða önn að leggja lokahönd á skipulagningu ráðstefnu sem hann stendur fyrir á Hótel Sögu dagana 10. til 13. apríl næstkomandi. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Fíkn - mál allrar fjölskyldunnar" og er alþjóðleg með þátttöku sumra af frægustu fyrirles- urum heims á sviði ávana- og fíkniefnaneyslu og afleið- inga hennar. Ráðstefnan fer enda fram á ensku og einu Norðurlandamáli. Hvað mun verða á dagskrá ráðstefn- unnar? „Það verða toppfyrirlesar- ar og þeir munu íjalia um áfengis- og aðra ávanafíkn frá ýmsum hliðum, ekki síst meðvirkni í umhverfinu. Áherslan verður ekkert sér- staklega á áfengi, það er eins og hvert annað fíkniefni þótt löglegt sé. Þekktustu fyrirlesararnir sem koma eru þau Claudia Black og Robert Ackerman. Þau hafa skrif- að metsölubækur um þessi málefni og haldið fyrirlestra víða um lönd. Þau hafa meðal annars unnið með foreldrahópum auk þess að vera frumkvöðlar að hreyfingunni „full- orðin börn alkóhólista" með skír- skotun til meðvirkninnar. Meðvirknin er ekkert til að spauga með, því allir aðstandend- ur alkóhólista, makar og börn upplifa oftast öll líkamlegu, sál- rænu og andlegu einkennin sem alkóhólistinn sjálfur upplifir. Vandinn er sem sé ekki leystur þótt alkóhólistinn taki sig saman í andlitinu, því þá sitja eftir allir aðstandendurnir, þeir meðvirku, og það dugar ekki að segja við þá, jæja, ég er hættur að drekka, nú er allt í lagi! Þessi mál verða rædd og reifuð og svo verður auðvitað komið miklu víðar við. Það er eiginlega ekki hægt að koma að öllu í stuttu spjalli." Hvers vegna ert þú að vasast í þessu einn þíns liðs? „Ég hef nú góðan stuðning, en upphafið er, að að ég hef um ára- bil sótt reglulegar ráðstefnur í Atlanta í Georgiu í Bandaríkjun- um, svokölluð S.E. Conferenee on addictive diseases. íslendingar hafa fylgst með þessum merku ráðstefnum á hveiju ári í_ 20 ár, ekki hvað síst félagar í SÁÁ. Árin 1986-88 vann ég talsvert á þessu sviði og árið 1993 var ég beðinn að halda fyrirlestur á veg- um Euro-CAD í Skotlandi. Það var svolítið gaman að því, að Anthony Hopkins átti að flytja opnunarer- indið, en hann forfallaðist á síð- ustu stundu og ég var beðinn um að dekka fyrir hann og fór létt með! Árið áður hafði ég séð ráðstefnu auglýsta í Evrópu og tók eftir því að ekkert var minnst á ísland. Ég setti á mig snúð og fór að segja frá því hvern- ig starfað hefði verið á íslandi. Það væri með þeim hætti að önnur lönd gætu tekið það til fyrirmynd- ar. Ég var þá spurður hvað ég væri að tala um og þá kynnti ég „tólf spora kraftaverkið". Það varð úr að ég var beðinn að segja frá því og ég gerði það. Það vakti slíka athygli að ég var beðinn að koma aftur að ári og það var hlustað á mig er ég greindi frá því ytra að ráðstefna um þessi málefni ætti hvergi betur heima en á íslandi. Hún átti raunar að vera í fyrra, Sveinn Rúnar Hauksson ► Sveinn Rúnar Hauksson er fæddur í Reykjavík 10. maí 1947. Hann starfar sem heimilis- læknir með aðsetur I Domus Medica. Eftir að hafa útskrifast frá Háskólanum í Árósum 1979 starfaði hann í þrjú ár á sjúkra- húsum Reykjavíkur og nágrenn- is og síðan í þijú ár til viðbótar á Húsavík. Sveinn er giftur Björk Vilhelmsdóttur félagsráð- gjafa og eiga þau tvö börn, Guðfinn 6 ára og Kristínu 4 ára, en auk þess á Sveinn Gerði 23 ára, Ingu 18 ára og Hauk 15 ára frá fyrra hjónabandi. Og þá kynnti ég „tólf spora kraftaverkið" á íslandi en það reyndist ekki unnt vegna tímaskorts.“ Hvaða mikla starf ert þú með í huga? „Ég er að tala um að á íslandi hefur verið byggð upp aðstaða til fíkniefnameðferðar sem á sér varla hliðstæðu í heiminum. Ég er ekki að tala um sjálfa meðferð- ina eina og sér. Hún er eins og best gerist í nágrannalöndunum. Ég er að auki að tala um samtvinn- unina og aðgengið. Á íslandi er viðurkennt að fíkn er sjúkdómur og stjórnvöld eru opin fyrir þeirri staðreynd. Hér borgar fólk ekki frekar fyrir fíkniefnameðferð en aðra sjúkrahúsmeðferð og á ís- landi þarf fólk ekki að standa í stríði við tryggingarfélög eða fé- lagsmálastofnanir til að fá að fara í meðferð, sem þykir sjálfsagt á íslandi. Mál þessi eru sem sé á allt öðru plani á Islandi heldur en annars staðar og fyrir vikið eru fordómar miklum mun minni. Það eru auðvitað alltaf einhverjir for- dómar, en þetta er ekki sambæri- legt við útlönd. Ég hef haldið fyrirlestra um þetta í jafn ólíkum löndum og Grænlandi og Bólivíu og alltaf vekur þetta jafn mikla athygli.“ Þetta hefur þá ekkert að gera með óvenju mikla umræðu um fíkniefnavanda ungs fólks á ís- landi síðustu misseri? „Það er hrein tilviljun að þetta skuli gerast á sama tíma, en það getur sannarlega komið sér vel. Eg vona innilega að þeir sem að þeirri umræðu koma, sjái sér fært að sitja okkar ráðstefnu, því þar tala margir af helstu kunnáttu- mönnunum í vandamálum af þessu tagi. Bæði gæti fólk haft gagn af fyrirlestrunum svo og starfinu í þeim vinnuhópum sem stofnað verður til.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.