Morgunblaðið - 04.02.1996, Side 10
10 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FINNUR Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Morgunblaðið/Kristinn
, BYSNA MARCT
IBURÐARUÐNUM
MILLI ferðalaga út á land
og í tvígang til útlanda,
auk ræðuhalda og fýr-
irlestra á þingum,
reyndist ekkert mál að smeygja inn
nokkuð rúmfreku viðtali við Morg-
unblaðið. Finnur Ingólfsson er sýni-
lega ötull maður og skipulagður.
Fyrst var hann inntur eftir þessum
12.000 framtíðarstörfum sem þeir
framsóknarmenn lofuðu í kosninga-
baráttunni.
„Einmitt þess vegna var mikil-
vægt fyrir Framsóknarflokkinn að
fá viðskiptaráðuneytið og iðnaðar-
ráðuneytið, því í þeim er lykillinn
að nýsköpun í atvinnulífinu,“ svaraði
Finnur um hæl. „Mitt starf sem ráð-
herra í báðum þessum ráðuneytum
mun fyrst og fremt beinast að at-
vinnumálum með því að bæta sam-
keppnisstöðu fyrirtækjanna, stuðla
að nýsköpun í nýjum og starfandi
fyrirtækjum, uppstokkun á fjárfest-
ingarlánasjóðakerfínu, umbreytingu
á fjármagnsmarkaðnum með það
markmið að auka samkeppni og
draga þannig úr fjármögnunar-
kostnaði fólks og fyrirtækja. Mestu
máli skiptir þó að festa stöðugleik-
ann í sessi, tryggja lágt raungengi
og lága vexti. Þannig aukum við
fjárfestinguna í atvinnumálum, auk-
um hagvöxtinn og fjölgum störfum.
Með því er lagður grunnur að öflugu
og þróttmiklu atvinnulífí. Atvinnulíf-
ið og efnahagslífið þarf að byggjast
á vexti og viðgangi lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja. Þann grundvöll
verðum við að treysta. Við getum
aldrei treyst á framtíð íslensks at-
vinnulífs með því eingöngu að
treysta á stóriðju. Hún verður að
vera okkur eins lottóvinningur, við-
bót við blómlegt atvinnulíf."
Finnur Ingólfsson er búinn að vera iðnaðar- og viðskiptaráðherra
frá því í apríl sl. Á upphafsdegi ráðherradóms sagði hann að sín
stærstu verkefni yrðu að fjölga störfum, að fylgja eftir stækkun
álversins í Straumsvík og breyta ríkisbönkunum í hlutafélög.
______Nú að níu mánaða meðgöngutíma liðnum, innti Elín_____
Pálmadóttir hann eftir því hvort eitthvað hefði
fæðst af þessum eða öðrum málum.
Grunnurinn í minni fyrirtækjunum
Ráðherrann segir það ekkert áfall
þótt töf verði á annarri stóriðju en
stækkun álversins í Straumsvík.
„Það er ekki gott fyrir efnahagslífið
að ganga í gegnum miklar kollsteyp-
ur. Við þurfum að búa svo um hnút-
ana að efnahagslífið sé á hveijum
tíma tilbúið til að taka á móti er-
lendri fjárfestingu án þess að það
leiði til mikillar röskunar, því þurfum
við fyrst og fremst að treysta litlu
og meðalstóru fyrirtækin í sessi. Þar
er í gangi ákveðin aðgerð. Ég hefi
verið með ráðgjafarnefnd starfandi
með fulltrúum úr atvinnuiífínu,
verkalýðshreyfingunni og frá stjórn-
völdum, þar sem Davíð Scheving
Thorsteinsson er formaður. Nefndin
er að leita allra leiða og hefur lagt
niður fyrir sér hvernig íslensk fyrir-
tæki geti nýtt sér þau tækifæri sem
samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið gefur.
Við höfum kortlagt þetta. Síðustu
vikur hefí ég verið á ferðaiagi um
landið til að kynna skýrslu þessarar
nefndar, þar sem skilgreind eru öli
ESB verkefnin sem við höfum að-
gang að gegnum samninginn um
EES. Nú er ég að kynna þetta fyrir
stjómendum fyrirtækja hér til að
opna aðgang þeirra að því sem þeir
geta nýtt sér erlendis.
Ráðherra var að koma úr yfirferð
um Norðurland og Vesturland og að
fara til Vestmannaeyja. Hvemig
ætli fólkið í hinum dreifðu byggðum
taki þessu? Finnur segir hafa komið
sér mjög á óvart þessi gríðarlega
góða mæting á hádegisfundi á litlum
stöðum úti á landi, þar sem mættu
70-100 stjórnendur fyrirtækja, tii
þess eins að kynna sér þau tækifæri
sem EES-samningurinn býður upp
á. Síðan er það spurningin hvernig
fyrirtækin geti nýtt sér þetta. Stjórn-
endur fyrirtækja á íslandi eru alger-
lega bundnir við að halda rekstrinum
gangandi frá degi til dags, og koma
kannski þessvegna ekki auga á mikla
möguleika í samningum. Vex líka í
augum að fara í gengnum þennan
frumskóg Evrópusambandsins. Þess
vegna er starfsmaður á mínum veg-
um úti í sendiráðinu í Bruxelles fram
á mitt ár. Fyrirtækin geta beinlínis
snúið sér til hans um aðstoð. Beri
þetta árangur, þá mun ég vilja halda
slíku samstarfi við atvinnulífið áfram
eftir mitt ár. Þetta er þjónusta sem
við bjóðum upp á til að bytja með.“
Átak til atvinnusköpunar
Jafnframt hefur ráðherra verið að
kynna annað verkefni, sem hann
kallar Átak til atvinnusköpunar. Það
er samstarfsverkefni Iðnlánasjóðs,
iðnaðarráðuneytis, Iðntæknistofnun-
ar og Iðnþróunarsjóðs í samvinnu við
samtök iðnaðarins og verkalýðs-
hreyfinguna. Meginmarkmiðið með
samstarfi þessu er að standa sameig-
inlega að verkefnum sem stuðla að
atvinnusköpun og aukinni sam-
keppnishæfni atvinnulífsins. Að sam-
ræma verkefni til hvatningar og
stuðnings lítilla og meðalstórra fyrir-
tækja, svo og einstaklinga á sviði
atvinnu og nýsköpunar og að hvetja
til aukins alþjóðasamstarfs fyrir-
tækja á sviði markaðsmála og tækni-
yfírfærsiu. Ráðherra nefnir þijú
verkefni sem falla undir það:
„Evrópumiðstöð lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja þar sem stjómend-
um fyrirtækja er opinn aðgangur að
öllum þeim verkefnum sem EES-
samningurinn skapar á sviði lítilla
og stórra fyrirtækja. Innflutningur
fyrirtækja þar sem hafin verði skipu-
leg leit að vænlegum fyrirtækjum
sem flutt verði til landsins með það
að leiðarljósi að efla íslenskt atvinnu-
líf og skapa ný störf. Góð reynsla
er af innflutningi slíkra fyrirtækja,
svo sem Límtrés og Alpans. Þá er
vöruþróunarverkefni er byggist á
aðstoð við fyrirtæki til að þróa innan
tveggja ára vörur sem eru samkeppn-
ishæfar á innanlandsmarkaði og
fallnar til útflutnings. Jafnframt er
stefnt að því að auka almenna þekk-
ingu og skilning á vöruþróun í fyrir-
tækjum og mikilvægi hennar við
nýsköpun í þjóðfélaginu. Hugmynda-
samkeppni er snjallræði til að hvetja
einstaklinga til að koma hugmyndum
sínum á markað og þannig vilja að-
standendur hennar örva nýsköpun í
íslensku atvinnulífí. Átakið mun
einnig veita ráðgjöf um stofnun fyrir-
tækja til að hvetja einstaklinga með
vænlegar viðskiptaliugmyndir til að
stofna eigin fyrirtæki. Til að veita
frumkvöðlum og athafnamönnum
hagnýta aðstoð við stofnun fyrir-
tækja á þann hátt að viðkomandi fái
nauðsynlegar leiðbeiningar og upp-
lýsingar. Jafnframt mun verða starf-
rækt námskeið um stofnun og rekst-
ur fyrirtækja, þar sem farið er í
grundvallaratriði á því sviði. í átak-
inu munu uppfínningamenn og frum-
kvöðlar fá aðstoð til að koma hug-
myndum sínum á framfæri og í fram-
kvæmd. Einnig verða styrkir til