Morgunblaðið - 04.02.1996, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SOLAR UPPRAS
ÁTTATÍU vörutegundir á 18 mánuðum. Um áramót höfðu 75
vörutegundir verið teknar í gegn, þær yfirfarnar og endurbætt-
ar, og á næstunni bætast fimm við.
VlDSKlPn/MVlNNUUF
Á SUIMIMUDEGI
► Páll Kr. Pálsson fæddist 15. október 1953 í Reykja-
vík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1973 og prófi í hagverkfræði frá Tæknihá-
skólanum í Berlín 1980. Á árunum 1980-86 vann hann
hjá ýmsum samtökum í iðnaði, var forsljóri Iðntækni-
stofnunar íslands 1986-91 ogframkvæmdastjóri Vífil-
fells hf. 1991-94. Frá 1. ágúst 1994 hefur hann starf-
að sem framkvæmdastjóri Sólar hf.
ILJÓS kemur að Páll er skipu-
lagður á sumum sviðum, en
„minna núna en áður“. Hann
vill gjarnan að samstarfs-
menn sínir vinni með aðgerðarlista
í hópverkefnum og líkar vel öguð
vinnubrögð. Hann hefur trú á sér-
fræðingum en finnst skorta mikið
á í íslensku atvinnulífi að fólk láti
í ljós hugmyndaríki og syndi á
móti straumnum. Hann segist enn-
fremur hafa mikla trú á tölum til
ákvarðanatöku í viðskiptum en
hefur að sama skapi ekki trú á
tilfinningum nema við mannaráðn-
ingar. Hann er á móti því að for-
stjóri sé of nátengdur starfsfólki
og forðast að verða persónulegur
vinur undirmanna sinna. Viður-
kennir þó að það geti stundum
þýtt að „svolítið kalt sé á toppn-
am“. „Ég á auðvitað marga vini
þar fyrir utan og hef eignast vini
sem eru viðskiptavinir mínir, en
það getur líka verið svolítið erfitt.“
Skrifstofa Páls er stílhrein og
bækumar í hillunni gefa heimilis-
legan blæ. Þarna eru alls kyns
bækur um stjórnun og stefnumörk-
un, markaðsmál og framtíðarsýn.
„Ég hef verið að kenna bæði í
Tækniskólanum og háskólanum,“
segir hann til útskýringar. Smám
saman hefur dregið úr kennslunni,
en hann er alltaf með eina bók um
stjómun í takinu, enda segir hann
að þar sé alltaf eitthvað nýtt að
finna.
„Stjómun snýst að mínu mati
einkum um tvennt. Annars vegar
er um að ræða reglur sem settar
em af umhverfinu til dæmis með
lögum og reglugerðum. Hér snýst
stjórnunarhlutverkið um að fylgja
þessum reglum og reyna að hafa
áhrif á þær til að bæta samkeppn-
isstöðuna. Hins vegar snýr stjórn-
un að fólki. Þar er hlutverk stjórn-
andans að ná sem bestum árangri
með ýmiss konar aðferðafræði á
borð við framleiðslustýringu og
jafnframt að virkja starfsfólkið til
að vinna sem best að þeirri fram-
tíðarsýn sem eigendur fyrirtækis-
ins hafa markað.“
Aðdragandi að kaupunum
En stjórnendum gengur ekki
alltaf vel að vinna saman og var
það að margra mati ástæða þess
að Páll yfirgaf Vífilfell á sínum
tíma. Hann segist hafa skilið í
sátt við forstjórann, en bætir við
að sér hafi að vissu leyti þótt leiðin-
legt að yfirgefa fyrirtækið, því
mörg ögrandi vbrkefni voru fram-
undan. Þetta var sumarið 1994 og
þá voru spennandi störf ekki á
lausu. „Ég vil helst hafa eitthvert
verksvið þar sem ég er að útfæra
hlutina og vinn málið til enda, en
hef einnig gaman af samblandi af
skipulagningu og framkvæmd,“
segir hann.
Hann fór því á stúfana að leita
að fyrirtæki sem væri í gjörgæslu
og vantaði endurhæfingu. Mörg
fyrirtæki komu' upp á borðið og
menn sem höfðu hug á samstarfi.
„Við vorum farin að kíkja á ýmis
fyrirtæki þegar okkur var boðið
að líta Sól hf. Við höfðum talið
það of stórt og flókið mál en fórum
engu að síður út í viðræður við
lánastofnanir, sem höfðu þá þegar
rætt við töluvert marga, bæði
heildsala og framleiðendur. Meðan
hann starfáði hjá Vífilfelli var þeim
t.d. boðin safaframleiðsla Sólar til
kaups, en verðmiðinn þótti of hár.
„Eigendur Seltzer höfðu áhuga
á að flytja þá framleiðslu til Wales
og þar með var dósaverksmiðjan
úr sögunni. Síðan varð úr að Bón-
us og Hagkaup stofnuðu fyrirtæk-
ið Ferskvatn og keyptu gos-
drykkjabúnaðinn en við keyptum
allt annað. Þannig vorum við kom-
in með einingu sem við töldum
hagkvæma í rekstri," segir Páll.
Eigendur Sólar eru Hans Peter-
sen, Stjörnuegg, Nesskip og Þró-
unarfélag íslands, sem hver um
sig á 20%, auk Páls Kr. sem á 15%
og Jóns Sch. Thorsteinssonar sem
á 5%. „Við lögðum áherslu á að
hafa ekki neina innan hópsins sem
tengdust endurseljendum. Því kom
aldrei til greina að taka Bónus,
Hagkaup, KEA eða önnur sam-
bærileg fyrirtæki inn sem eigend-
ur.“
Of hátt eða lágt verð?
Nýju eigendurnir tóku við
rekstrinum 1. ágúst 1994 eftir
langar og strangar viðræður en
báðir gengu sáttir frá borði. Eig-
endur lögðu fram 100 m.kr. hluta-
fé og tóku við rúmlega 600 m.kr.
skuldum. „Við yfirtókum tæplega
90 m.kr. birgðalán og höfum nú
þegar borgað tæplega 70 m.kr af
því. Til þess notuðum við hlutaféð
að einhveiju leyti en tókum einnig
fjármagn úr rekstrinum. Auðvitað
verður aldrei hægt að svara því til
fullnustu hvort við höfum greitt
of hátt eða of lágt verð fyrir fyrir-
tækið. Afkoman fram til þessa
gefur reyndar vísbendingar um að
það hafi verið eitthvað of hátt,“
segir Páll.
Strax var ákveðið að endur-
hanna allar vörur fyrirtækisins,
enda gerðu menn sér grein fyrir
að ástæða þess að sala allmargra
vöruflokka var á hraðri niðurleið
var sú að nauðsynieg vöruþróun
hafði ekki átt sér stað. Hver ein-
asta vara var skoðuð út frá inni-
haldi, umbúðum og ímynd. „Menn
einblína oft á eitthvað nýtt þegar
verið er að tala um vöruþróun.
Minnstar líkur eru þó á að tapa
peningum i vöruþróun og nýsköp-
un með því að endurbæta núver-
andi vörur fyrir núverandi mark-
að.“
I þessu skyni var sett á laggirn-
ar sérstakt þróunarráð. Gæðastjór-
inn var færður úr því að vinna
gæðastaðla yfir í að stjórna vöru-
þróun og nýsköpun. í sumum til-
vikum þótti betra að framleiða
nýja vöru en í öðrum var fram-
leiðslan endurbætt. Margar
ákvarðanir voru teknar og þurfti
til þess áræði og þor. „Auðvitað
fylgir hverri ákvörðun einhver
áhætta eins og komið hefur í ljós.
Sem dæmi um vörur þar sem sala
var á hraðri niðurleið en heppnast
hefur mjög vel má nefna allar gerð-
ir Svala nema 2 Iítra fernuna sem
hitti ekki í mark. Trópí var sömu-
leiðis á niðurleið en breyting á
honum hefur aukið sölu. I grófum
dráttum má segja að í langflestum
tilvikum hafi aðgerðirnar heppn-
ast, sem best sést á því að við
erum að auka sölu í velflestum
vörutegundum.“
Framkvæmdin við allt verkefnið,
þ.e. endurhönnun, nýjar vörur,
vélakaup, prófanir, markaðsað-
gerðir o.s.frv. hefur kostað fyrir-
tækið 80-90 m.kr. Um áramót
höfðu 75 vörutegundir verið teknar
í gegn og um þessar mundir eru
fimm að bætast við. „Við höfum
því komið með 80 nýjungar á 18
mánuðum og aðeins fjórar af þeim
hafa mistekist. Ég fullyrði að það
sé íslandsmet," segir Páll. Hann
tekur fram að kostnaður hafi verið
gjaldfærður á síðasta ár og árið
þar á undan, sem dragi afkomuna
verulega niður. Þá segir hann að
inni í þessari upphæð sé ekki öll
sú vinna sem starfsmenn hafi lagt
fram. „Án mikils framlags þeirra
ogstjórnar fyrirtækisins hefði okk-
ur aldrei tekist að framkvæmda
þetta verkefni."
Dæmið snerist við
Páll segir að rekstrartap hafi
verið í fyrra en sjóðsstaðan sé
góð, sem stafi af miklum afskrift-
um og litlum eignfærðum fjárfest-
ingum í vélum og tækjum. „Við-
snúningur á rekstrinum varð í
haust og afkoma janúarmánaðar
er í réttu samræmi við áætlun
þessa árs. Komi ekki upp einhver
skelfileg áföll eigum við möguleika
á hagnaði í ár. Við höfum að vísu
tap sem við þurfum að vinna niður
bæði frá síðasta ári og síðustu
fimm mánuði árins 1994.“