Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ
28 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
Magnusi
Scheving
og.
David
Letterman
Þaö veröur stöðugur gestagangur á Stöö 3 í kvöld.
Magnús Scheving veröur I essinu sínu
í þætti sínum Gestum kl. 21:35 og ræðir um hamingjuna.
David Letterman mætir svo á skjáinn kl. 23:00.
Gestgjafi
Magnús heldur heimili
fyrir skemmtilegar og
litríkar persónur, tekur
á móti gestum og
skiptir þá engu hvort
þeir eru frægir eður ei.
Meðal gesta í kvöld eru
Sr. Flóki Kristinsson sóknar-
prestur í Langholtskirkju,
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir
ungfrú ísland, Haukur Har-
aldsson, Jórunn Karlsdóttir,
Guðfinna Eydal,
Elísabet Sif
Haraldsdóttir og
Sigursteinn Stefánsson. Auðvitað verða
svo Toscana sem að eigin sögn getur
nánast hvað sem
er, fjármála-
| snillingurinn Júlli bróöir og
: tækjapúkinn Sigga Pjó amma,
1 á sínum stað og láta sér ekkert
I mannlegt óviðkomandi.
LATE SHOW
Gestir David Letterman
í kvöld kl. 23:00 eru ekki
af verri endanum. Fyrsta
skal telja ofurfyrirsætuna
Elle Macpherson, síðan tekur
grínarinn David Spade við
og hljómsveitin D'Angelo
endar svo veisluna.
RINGLUNNI 7 • S í M
FRÉTTIR
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1996 afgreidd
Engin tillaga niiiini-
hlutans samþykkt
ÞRETTÁN tillögum sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn Reykjavíkur
varðandi fjárhagsáætlun 1996 var
flestum vísað frá á fundi borgar-
stjórnar, sem stóð frá fimmtudags-
kvöldi fram á föstudagsmorgun sl.
Á fundinum fór m.a. fram síðari
umræða um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1996.
I máli borgarstjóra kom fram að
breytingar á áætluninni milli fyrri
og síðari umræðu hefðu ekki í för
með sér breytingar á niðurstöðu-
tölum í heild. í fjárhagsáætluninni
er meðal annars gert ráð fyrir að
skuldir borgarinnar muni aukast
um 500 milljónir króna á árinu.
Minnihluti með rammaáætlun
og meirihluti stoltur
Árni Sigfússon oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn sagði að
fjárhagsáætlun borgarinnar væri
ekki með öllu slæm en hins vegar
bæri hún með sér stöðnun. Hún
bæri það með sér að R-listinn treysti
sér ekki til að standa við lækkun
skulda. Hann kynnti rammaáætlun
minnihlutans, þar sem gert er ráð
fyrir 702 milljóna króna lækkun
rekstrargjalda frá fjárhagsáætlun
meirihlutans, að holræsagjald og
heilbrigðisgjald verði lagt af og að
skuldir verði greiddar niður um 129
milljónir króna.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi R-listans sagði að meirihlutinn
væri stoltur af þessari fjárhagsáætl-
un. Hún sagði að R-listinn hefði
gert sér grein fyrir því þegar hann
tók við að fjárhagsvandinn yrði ekki
leystur í einu vetfangi heldur yrði
að vinna hann með markvissri áætl-
anagerð, fyrirhyggju í framkvæmd-
um, siðhaldi í rekstri og breyttum
og bættum stjómarháttum.
Tillögum vísað frá
Tillögu sjálfstæðismanna um að
holræsagjald yrði fellt niður og fjár-
hagsáætlunin yrði endurskoðuð
með tilliti til rammaáætlunarinnar
var vísað frá. Eins var vísað frá
tillögum um að heilbrigðisgjald yrði
lagt af, heimgreiðslur til foreldra
yrðu teknar upp að nýju, rekstur
nýrra leikskóla yrði boðinn út, regl-
ur um fjárhagsaðstoð Félagsmála-
stofnunar yrðu endurskoðar, Eigna-
umsýsla Reykjavíkurborgar yrði
stofnuð og tillögu um að rekstrarfé-
lag yrði stofnað um Kjarvalsstaði.
Tillögu um að kannaður yrði
grundvöllur fyrir útboði á innheimtu
fasteignagjalda og útsvari sagði
meirihlutinn óþarfa og vísaði henni
frá. Þegar væri stefnt að því að
nýta innheimtuþjónustu bankanna
við allar innheimtur borgarinnar.
Tillögu um að þjónustusamningar
yrðu leiðandi tæki til hagræðingar
var visað frá á þeirri forsendu að
þjónustusamningar hefðu þegar
komið mjög til skoðunar í undirbún-
ingi sem nú stendur yfir fyrir
þriggja ára áætlun um fjármál,
rekstur og framkvæmdir borgarinn-
ar.
Áætlun til tíu ára
„Framtíðarsýn í fjármálum," til-
lögu minnihlutans, var vísað til
borgarráðs og kynningar hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga. Sú
tillaga gengur út á að þegar fjár-
hagsáætlun er lögð fram, sé einnig
lagt fram fjármálayfirlit til næstu
tíu ára, þar sem framreiknaðar eru
áætlaðar tekjur og kostnaður af
þjónustu, sem nú sé verið að veita.
Felld var tillaga um að Atvinnu-
og ferðamálastofa yrði lögð niður.
Loks var tillögu um sveigjanlegan
vinnutíma borgarstarfsmanna ein-
róma vísað til starfshóps um mótun
starfsmannastefnu.
Skyrið er fitusnauð mjólkurafurð og ein allra kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðu