Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 39
BRÉF TIL BLAÐSINS
Lúther og
prestsembættið
Frá Skúla Torfasyni:
ÁRIÐ 1520 gaf Lúther út rit er
nefndist Babýlonarherleiðingin (A
prelude to the Babylonian captivity
of the church), sem fjallaði um
sakramentin. Nafngiftin lýsir boð-
skap ritsins í hnotskurn, en þar
leggur hann til atlögu við sakra-
mentisskilning kirkjunnar, og líkir
ástandinu við herleiðingu gyðinga
til Babýlonar á tímum Daníels spá-
manns. Lúther fækkaði sakrament-
unum úr sjö í tvö, er hann afnam
ferminguna, hjónavígsluna, prests-
vígsluna, yfirbót og síðustu smurn-
ingu sem sakramenti, en skildi að-
eins eftir máltíð Drottins og skírn-
ina.
„Afnám prestsvígslunnar sem
sakramentis eyðilagði stéttaskipt-
ingu klerkaveldisins og varð traust
undirstaða að prestsdómi allra trú-
aðra, því að Lúther taldi prestsvígsl-
una aðeins vera helgisið, sem kirkj-
an viðhefði, er presti væri falið að
hafa ákveðna þjónustu með hönd-
um.‘“
„Vér öll sem skírð erum, erum
prestar með sama hætti. En þeir,
sem vér köllum presta, eru þjónar,
sem vér höfum valið að gera allt í
voru nafni, og prestsdómur þeirra
er ekkert nema þjónusta.“2
Köllunin til prestsþjónustunnar
er tengd kenningunni um prestsdóm
allra trúaðra. Fyrir tilstuðlan skím-
ar og trúar þá „á hver maður Orð
Guðs og hlýtur fræðslu og útnefn-
ingu til að vera prestur"3 ritaði
Lúther árið 1923.
Kirkjuþingið í Trent, sem ka-
þólskir efndu til á árunum 1545-47
komst að eftirfarandi niðurstöðu
varðandi prestsvígslusakramentið
og er í fullu gildi fram á þennan
dag á þeim bæ „þeir hafa rangt
fyrir sér, sem segja að þeir sem
einu sinni hafa réttilega verið vígð-
ir (til prests) geti aftur orðið leik-
menn, ef þeir hætta þjónustu við
Orð Guðs“ og við prestsvígsluna
„Öðlast vígsluþegi eðliskosti, sem
verða af honum máðir‘“
Prestsvígslusakramentið er hið
sjötta samkvæmt kaþólskri guð-
fræði. Varðandi það ritar Lúther:
„Það er uppfinning kirkjunnar og
páfans. Hvergi er loforð um náð
því tengt, og ekki orð um það í
öllu Nýja testamentinu. Það er fár-
ánlegt að telja sakramenti nokkuð
sem ekki er hægt að finna að sé
af Guði stofnað.“5
í umfjöllun sinni um prestsvígslu-
sakramentið segir hann að hinir
„ævarandi eiginleikar“ sem sakra-
mentið á að færa hinum vígða séu
„uppspuni“ (fiction), frá upphafi til
enda, og að „prestum má víkja úr
embætti tímabundið eða varan-
lega“.6
Út frá ofangreindum tilvitnunum
leyfi ég mér að draga eftirfarandi
ályktanir byggðar á lútherskum
skilningi.
1. Kristið fólk tilheyrir heilögu
prestafélagi. Allir skírðir eru prest-
ar með sama hætti.
2. Þeir sem við köllum presta eru
þjónar safnaðarins, taldir hæfir í
það starf, og kosnir af söfnuðinum,
sem einnig hefur vald til að leysa
þá frá störfum.
3. Æviráðning presta í þjónustu
kirkjunnar hlýtur að vera í andstöðu
við skoðanir Lúthers varðandi stöðu
og hlutverk prestsins.
SKÚLITORFASON,
Hallgilsstöðum, Hörgárdal, Akureyri.
Hvar endar
þetta með
eldri borg-
ara og
öryrkja?
Frá Halldóri Finnssyni:
HVAÐ eru orðnar margar tilkynn-
ingarnar núna í janúar ’96, um alls-
konar skerðingu, og auknar greiðsl-
ur, vegna lækna og lyfja?
Ég er einn af þessum lánsömu
I ” lífeyrisþegum, sem nutum náðar
j 1995, og fékk 15% skattafslátt af
I lífeyrisgreiðlum, sem reiknað hafði
' verið út af reiknispekingum að væri
nokkur sárabót vegna tvísköttunar
undanfarinna ára. Nú er komið ann-
að hljóð í strokkinn, nú á að taka
þetta af okkur lífeyrisþegum, svo
hægt sé að_ gefa eitthvað eftir tvís-
köttun ASÍ-félaga. Þvílík rök eða
rökleysa. Friðrik, svona gerum við
ekki.
Nú liðu nokkrir dagar, þá kemur
| hver tilkynningin af annarri frá
. Ingibjörgu heilbrigðisráðherra.
' Fyrst um það að nú eigi fólk allt
að sjötugu að greiða fullan læknis-
kostnað, en ekki skuli lækka gjaldið
við 67 ára aldur, eins og verið hef-
ur, að ég held sl. 30 ár. Svo kom
að öll þessi gjöld skuli hækka nokk-
uð. Síðan kom bílastyrkurinn til
öryrkja, þ.e. kaupa á nýjum bílum,
hann verður skertur stórlega, og
' mun færri sem fá styrkinn. Það er
j nú það. Og var ekki líka verið að
/ skerða eitthvað heimilisuppbótina
hjá þeim sem ekki hafa aðrar tekjur
en ellilífeyrinn.
Allt þetta kemur niður á ellílífeyr-
isþegum og öryrkjum eingöngu,
nema hækkunin hjá læknum, sem
allir sem leita þurfa til lækna greiða.
Davíð: Þú verður að segja þeim
Ingibjörgu og Friðriki að svona ger-
um við ekki.
Síst af öllu vil ég skorast undan
I að greiða skatta til samfélagsins,
| eins og aðrir sem eru í fullri vinnu
og halda heilsu. Ég sé ekki að nokk-
urstaðar sé aukin greiðsla á þá sem
eru í fullu starfi, og hafa á bak við
sig sterk stéttafélög. Það skyldi þá
vera að við gamla fólkið, höfum lít-
inn sem engan þrýstikraft á Al-
þingi, þó þar séu nokkrir þingmenn
sem vilja vel fyrir aldraða og ör-
, yrkja. En það þarf meira til.
Hvernig getum við aldraðir gert
• okkar félagsskap þess megnugan,
( svo að hlustað sé á okkur í alvöru.
HALLDÓR FINNSSON,
Hrannarstíg 5, Grundarfirði.
hOLl
FASTEIGN ASALA
- alltaf í
þorramatnum!
2*5510090
Opið hús í dag frá kl. 14-17
Vorum að fá í sölu 200 fm íbhæð
í Steniklæddu húsi á þessum
vinsæla stað. Parket og flísar á
gólfum. Arinn í stofu. Sauna
o.fl. Magaskipti mögul. á ódýr-
ari eign. Áhv. 5,5 millj. Verð
12,9 millj. Jón og Olga taka á
móti gestum milli kl. 13 og 16
í dag. 7866.
Stórglæsil. „penthouse“-íb. á
tveimur hæðum í nýju fjölbh.
Neðri hæð skiptist í 3 herb.,
baðherb., búr, þvottaaðst. eld-
hús og stofu. A efri hæð (risi)
eru 2 svefnh., setustofa og
sjónvhol. Falleg beykiinnr. í
eldh. m. vönduðum tækjum.
Efri hæð ófrág. að hluta (án
milliveggja). Verð 10,4 mitlj.
Sigríður býður ykkur velkomin
í dag miili kl. 14-17. 4597.
Laugavegur 82 - risíbúð
Sérlega falleg og vinaleg 77 fm risíb. með góðum kvistum og frábæru
útsýni. Nýleg eldhinnr. og baðinnr. Skipti mögul. á 4ra herb. íb. í Þing-
holtum eða Vesturbæ. Ahv. 3,1 millj. Verð 6,5 millj. Sigurjón og Anna
bjóða ykkur velkomin milli kl. 14-17 i dag. 3646.
Haukshólar 2 - sérh.
Lindasmári 39 - íb. 0301
Leiðhamrar-einb.
Afar fallegt og vel skipul. 206
fm einbhús sem stendur á fráb.
sjávarlóð með útsýni langt út á
hafið blátt. 4 svefnh., stór bíisk.
Sólstofa. Áhv. 5,0 millj. byggsj.
Verð 9,5 millj. 5610.
Laufásvegur - sérhæð.
Stórskemmtil. 5 herb. sérh. á
einum besta stað í Þingholtun-
um. Hús þetta er byggt úr grá-
grýti 1879. Falleg furugólfborð.
Mikil lofthæð. Húsið er friðað
og leggur húsfriðunarsjóður því
árlega til fé. Fallegur suðurgarð-
ur með einum elstu trjám Rvík-
ur. Áhv. 4,9 millj. húsbr. og
byggsj. Verð 9,8 millj.
skála o.fl. Tvöf. bílsk. Hér eru
endalausir möguleikar, fyrir
menningarvitann. Verð 9,9
millj. 5002.
Búagrund - Kjalarnesi.
Stórglæsil. einb. á einni hæð
m. tvöf. bílskúr. 4 góð herb.
Sólskáli útúr stofu. Fallegar
vandaðar innr. m.a. Merbau-
parket. Mikil lofthæð. Þak-
gluggar. Frábært útsýni.
Fullfrág. lóð. Eign í sérfl. Áhv.
3,5 millj. byggsj. Verð 18,4
millj. 5782.
Bakkastígur - einb.
Afar sérstakt og rómantískt
einb. m. mjög sterkan karakter.
Eignin skiptist í 4-5 herb., sól-
- kjarni inálsins!
Fagrahlíð - Hafnarfjörður
Til sölu er gullfalleg 3ja herbergja íbúð í Fögruhlíð 1,
Hafnarfirði (1. hæð t. vinstri). íbúðin er tilbúin að öðru
leyti en bví, að það vantar innréttingar. Vandað parket
á gólfum. Verð aðeins kr. 6.950.000. íbúðin verður til
sýnis í dag frá kl. 14-16. Magnús verður á staðnum!
Vatnsvirkinn hf.
Opið hús í dag, sunnudag, kl. 13-16
í Efstasundi 71 - 3ja herb.
Falleg ca 90 fm íb. á jarðh. Sérinng. Sérhiti. Parket.
Áhv. 4,3 millj. húsbr. Afh. strax. Verð 6,7 millj. Verið
velkomin. Hugrún og Hörður taka vel á móti ykkur.
Lyngvík, fasteignasala, sími 588 9490.
. s~, — stofbsitt i.s. >B
(2é FASTEIGNAMIÐSTOÐIN " iSé
SKIPHOLTI 50B - SÍMI 562 20 30 - FÍX 562 22 00
Magnús Leópoldsson, löggiltur fasteignasali
Jörð með laxveiðirétti í sjó
Til sölu jörðin Hámundarstaðir I í Vopnafirði. Jörðin er
án framleiðsluréttar. Byggingar eru 250 fm íbúðarhús,
steinsteypt, byggt 1954. Húsið er mjög mikið endur-
bætt að utan sem innan, m.a. búið að klæða og ein-
angra að utan og skipta um glugga og gler. Útihús eru
steinsteypt, 540 kinda fjárhús með hlöðu, 14 hesta hús
með hlöðu einnig vélageymsla. Ræktað land um 52 ha,
en land jarðarinnar er milli 600 og 700 ha og allt mjög
vel gróið beitiland, einnig á jörðin óskipt heiðarland
(með Hámundarstöðum II) sem skiptir þúsundum ha.
Hlunnindi fyrir utan laxveiðiréttinn, sem nú er leigður
til veiðifélags Selár, er reki, silungsveiði í vötnum og
möguleiki á æðarvarpi. Mikil náttúrufegurð, m.a. Fugla-
bjargarnes sem er á Náttúruminjaskrá. Verðhugmynd
15 millj. Nánari uppl. á skrifstofu FM. 10403.
BUSETI
BÚSETI HSF., HÁVALLAGÖTU 24, 101 REYKJAVÍK,
SÍMI 552 5788, FAX 552 5749.
ALMENNAR IBUÐIR TIL
ÚTHLUTUNAR í FEBRÚAR1996
Allir félagsmenn geta sótt um þessar íbúðir,
þ.á m. þeir, sem eru yfir eigna- og tekjumörkum.
Staður:
Laugavegur 146, löl Reykjavík
Birkihlíð 2a, 220 Hafnarfjöróur
Birkihlið 2b, 220 Hafnarfjörður
Arnarsmóri 6, 200 Kópavogur
Stærð: Nettó m2: Til afhend.:
3ja herb. 66,3 Samkomulag
3ja herb. 74,6 Fljótlega
3ja herb. 74,6 Samkomulag
3ja herb. 79,85 Samkomulag
FELAGSLEGAR IBUÐIR TIL
ÚTHLUTUNAR í FEBRÚAR1996
Aðeins félagsmenn, innan eigna- og tekjumarka,
geta sótt um þessar íbúðir.
Staður: Stærð: Nettó m2: Til afhend.:
Frostafold 20,112 Reykjavik 2ja herb. 62,1 Strax
Berjarimi 7,112 Reykjavík 2ja herb. 67,47 Samkomulag
Dvergholt 3,220 Hafnarfjörður 2ja herb. 74,3 Fljótlega
Miðholt 1,220 Hafnarfjörður 2ja herb. 80,1 Samkomulag
Frostafold 20,112 Reykjavik 3ja herb. 78,1 Sem fyrst
Frostafold 20,112 Reykjavík 3ja herb. 78,1 Strax
Trönuhjalli 15, 200 Kópavogur 3ja herb. 75,0 Mars
Trönuhjalli 17, 200 Kópavogur 3ja herb. 87.0 Febrúar
Berjarimi 3,112 Reykjavík 3ja herb. 78,27 Apríl
Suðurhvammur 13,220 Hafnarfj. 4ra herb. 102 Samkomulag
Garöhús 4,112 Reykjavík, 4ra herb. 115,2 Júni
Eiðismýri 24,170 Seltjarnarnes 4ra herb. 103,3 Mars
Miðholt 1, 220 Hafnarfjörður 4ra he’rb. 102,8 Samkomulag
Hvernig sótt er um íbúð:
Umsóknir um íbúðirnar þurfa að hafa borist Búseta fyrir kl. 15 þann
15. febrúar á eyðublöðum sem þar fást. Athugið að staðfest skattframtöl
sl. þriggja ára þurfa að fylgja umsókn.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan úr gildi.
Upplýsingar um skoðunardag ibúða og teikningar fást á skrifstofu Búseta.
Ath.: Þeir félagsmenn, sem eru með breytt heimilisfang, vinsamlegast
látið vita svo að fréttabréfið BÚSETINN berist á réttan stað.
-S^» BÚSETI
Hamragöröum, Hávallagötu 24, 101 Reykjavík. sími 552 5788.