Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 4

Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Stöð 3 sýnir Jóhannesarpassíu í flutningi Langholtskirkjukórs Tæknilið náð- istsaman á einum degi STÖÐ 3 hefur gengið frá samn- ingum við Kór Langholtskirkju um að sýna upptöku af Jó- hannesarpassíu eftir Johann Sebastian Bach sem gerð var í kirkjunni um síðustu páska. Upptakan er um tveggja klukkustunda löng og verður væntanlega sýnd á föstudaginn langa. Sjónvarpsstöðin greiðir fyrir rétt til að sýna passíuna þrisvar sinnum. Úlfar Steindórsson, fram- kvæmdastjóri Stöðvar 3, segir aðstandendur hennar mjög hreykna af því að verða með þetta efni á dagskrá hjá sér og Jón Stefánsson, stjórnandi Langholtskirkjukórsins, lýkur lofsorði á sjónvarpsstöðina fyrir framtakið. „Vonandi eru þeir að gefa tóninn í sambandi við sína menningarstefnu," segir Jón. Eina sviðsetning Jóhannesarpassíu í heiminum Jóhannesarpassía var flutt fyrir fullu húsi á skirdag, föstu- daginn langa og laugardaginn fyrir páska í fyrra. Jón segist ekki hafa heimildir fyrir því að hún hafi verið sviðsett í heimin- um áður og þó hafi hann gengið mjög rækilega úr skugga um hvort það gæti verið og leitað heimilda víða. Hann segist lengi hafa dreymt um að færa Jóhannesarpassíu í þennan búning, allt frá því kór- inn flutti hana fyrst. „Þá gerði ég mér strax grein fyrir því hvað tónlistin er nálægt óper- unni. Það er svo mikill hraði í frásögninni," segir Jón. Einu sinni áður voru uppi áform um slíkan flutning en þá varð að leggja þau á hilluna af fjár- hagsástæðum. Ljósaskiptin hluti lýsingar Mikið fjölmenni tók þátt í sýn- ingunni. Fyrir utan kórinn og einsöngvara lék Kammersveit Langholtskirkjn, sem er 24 manna hljómsveit atvinnuhljóð- færaleikara, undir. Hulda Krist- ín Magnúsdóttir gerði leikmynd og búninga, Árni Baldvinsson sá um lýsingu og David Gre- enall danshöfundur leikstýrði. Jón segir að nánast hafi verið búið að ganga frá því að Sjón- varpið tæki upp eina tónleika og sendi þá jafnvel út í beinni útsendingu. Svo hafi komið upp sú staða að forsvarsmenn þar hafi ekki séð sér fært að hafa tæknifólk í vinnu að kvöldi til og greiða því tvöfalt helgidaga- álag en tónleikarnir urðu að vera að kvöldlagi. Hluti af lýs- ingunni fólst í því að nýta síð- ustu dagsbirtuna og ljósaskiptin þar sem upphaf verksins gerist á þeim tíma dags þegar myrkrið skellur á. Tók æðiskast „Okkur fannst blóðugt að samningar við Ríkissjónvarpið rynnu út í sandinn þar sem búið var að leggja mikla vinnu í þetta og við litum svo á að um tíma- mótaatburð væri að ræða. Ég fékk þá eitt af mínum æðisköst- um á föstudaginn langa, fór í símann og hætti ekki fyrr en ég var búinn að ná saman töku- liði til að taka upp laugardags- tónleikana. Við leigðum upptökubíl af Samveri á Akureyri og fengum Egil Eðvarðsson til að stjórna upptökunni. Ég fékk landslið kvikmy ndatökumanna til að sjá um kvikmyndatöku og síðan fengum við Bjarna Rúnar Morgunblaðið/Þorkell FRÁ sviðsetningu Jóhannesarpassíu í Langholtskirkju , um páskana í fyrra. Bjarnason, tónmeistara RÚV, og Hrein Valdimarsson til að sjá um hljóðið. Við gerðum þetta bara sjálf í þeirri von að geta selt einhverri sjónvarpsstöð. Við gælum við að þetta geti verið markaðsvara erlendis þótt það sé óhemjuframboð af alls kyns tónlistarefni vegna þess að akk- úrat þetta hefur aldrei verið gert áður,“ segir Jón. Hann segir að ekki sé búið að ganga endanlega frá efninu, fjármagn hafi vantað til hægt væri að klippa þáttinn saman. Það dragi þó ekkert úr sölu- möguleikum vegna þess að efnið sé algjörlega óháð tíma. Einsöngvarar í aríum eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópr- an, Sverrir Guðjónsson alt, Kol- beinn Ketilsson tenór, og Loftur Erlingsson bassi. Þá fer Michael Goldthorpe tenór með hlutverk guðspjallamannsins, Sigurður Skagfjörð Steingrímsson bassi með hlutverk Jesú og Eiríkur Hreinn Helgason, bassi, með hlutverk Pílatusar. Lesendabréf í útbreiddu sænsku tímariti um hestamennsku Í NÝÚTKOMNU eintaki af sænska blaðinu Ridsport sem fjallar um hestamennsku í Svíþjóð og víðar er lesendabréf þar sem „Ahuga- samur“ skrifar um danska mynd sem sýnd var í sjónvarpi í Svíþjóð um áramótin. Lýsir hann þar tamn- ingu á íslandi á fjögurra vetra hesti sem sýnd var í myndinni. Eftir lýs- ingunni að dæma virðast hand- brögðin við tamninguna mjög hrottafengin og eiga lítið skylt við það sem kallast eðlileg og algeng vinnubrögð þegar hross eru tamin á íslandi. Af lýsingu bréfritara má ætla að aðferðirnar hafí verið mjög gróf- ar og ekki tekið hið minnsta tillit til eðlis hestsins né honum gefínn kostur á að skilja til hvers væri ætlast af honum. í framhaldinu veltir bréfritari því fyrir sér hvort óhætt sé _að kaupa hesta sem tamd- ir eru á íslandi. íslenski hesturinn sé kynntur sem hestur fyrir byij- endur sem vana hestamenn og vissulega fari hann að efast eftir að hafa séð umrædda mynd. Varar hann menn við að kaupa hesta frá íslandi og lætur að því liggja að hyggilegra sé að kaupa íslenska hesta úr sænskri ræktun. Tamn- ingamaðurinn segir í myndinni að eftir tvo til þrjá mánuði verði þessi hestur orðinn fulltaminn reiðhest- ur. Þess má geta að blaðið Rid- sport fjallar um allar tegundir af hestamennsku og er mjög útbreitt Varað við íslenskum tamningnm og víðlesið í Svíþjóð. Myndin sem hér um ræðir hefur einnig verið sýnd í Noregi og Danmörku. Formaður Félags Tamninga- manna, Trausti Þór Guðmundsson, sagði að hann hefði séð þessa grein en ekki myndina en ljóst sé að hér væri á ferðinni afar slæm kynning á tamningum á íslandi. Aðfarir í myndinni virðist eiga lítið skylt við tamningar eins og þær eru stundaðar hér og þama væri sem betur fer um að ræða fátíða undan- tekningu sem því miður hefði kom- ist á filmu hjá dönskum sjónvarps- mönnum. Af lýsingu að dæma væri um að ræða hluti sem flokka mætti undir dýraníðslu en vissulega ætti hér þó við að ekki skuli for- dæma allan skóginn þótt finnist eitt fölnað laufblað. Félag tamn- ingamanna ynni markvisst gegn óvönduðum vinnubrögðum í tamn- ingu og þjálfun hrossa. Benti hann af þessu tilefni á samstarf FT og Bændaskólans á Hólum sem miðaði að því að útskrifa tamningamenn og reiðkennara með góða grunn- þekkingu. Margt væri enn ógert og gott dæmi þar um væri sú stað- reynd hversu mörg af þeim hross- um sem koma á markaðinn stand- ast ekki kröfur til útflutnings vegna. lélegrar tamningar. „Við eigum í harðri samkeppni við ræktendur annarra hestakynja og ræktendur íslenskra á hesta á erlendri grund,“ sagði Trausti. ___________é.-------— Sjómannasam- band íslands Sjómenn aðstoðaðir við að leita réttar síns SÆVAR Gunnarsson, for- maður Sjómannasambands íslands, segir að samtökin muni veita þeim sjómönnum sem hafa verið látnir taka þátt í kvótakaupum eða leigu aðstoð við að ná rétti sínum fyrir dómstólum. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hefur Hæstiréttur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness og dæmdi útgerðarmann Guð- finns KE 19 til að endurgreiða fyrrum háseta á bátnum 292 þúsund krónur sem dregnar höfðu verið af launum hans vegna leigu á kvóta fyrir bát- inn frá mars til maí 1992. Sævar segir að umrædd málssókn sem nú hafi unnist fyrir Hæstarétti hafi verið runnin undan rifjum Sjó- mannasambands íslands, og þeir sem möguleika hefðu á að fara sömu leið ættu ein- faldlega að hafa samband við félag sitt eða Sjómannasam- bandið. „Stór hluti af okkar starfi er að hjálpa mönnum við að leita réttar síns bæði í sam- bandi við þetta og allt ann- að,“ segir Sævar. Sterkt opið skák- mót í Frakklandi Góð byrjun Islendinga FIMM íslenskir skákmenn tefla á geysisterku opnu skák- móti sem hófst á laugardaginn í Dunqkerque í Frakklandi. Keppendur á mótinu eru 520 talsins, þar af 60 stórmeistar- ar og 100 alþjóðlegir meistar- ar. Ein umferð var tefld á laug- ardag og sunnudag en í gær voru tefldar tvær umferðir. Að loknum fjórum umferðum eru þeir Hannes Hlífar Stef- ánsson og Þröstur Þórhallsson með 2Vi vinning, bræðurnir Helgi Áss og Andri Grétars- synir hafa 2 vinninga og Sig- urður Daði Sigfússon hefur lVi vinning. íslendingarnir hafa mætt sterkum andstæðingum, t.d. hefur Þröstur teflt við 3 stór- meistara. Hann lagði einn þeirra að velli, Anastastian. Mótinu lýkur á laugardaginn. Bridshátíð lokið > Italir unnu tvöfalt ÍTALSKA sveitin sigraði í sveitakeppninni sem lauk í gærkvöldi á Hótel Loftleiðum. Italir fengu 217 stig, 10 stig- um meira en sveit VÍB sem leiddi nær allt mótið og tapaði einungis síðasta leiknum og þá með minnsta mun. Allar bestu sveitir landsins röðuðu sér í efstu sætin en Kanadamenn og sveit Zia Mahmood urðu að láta sér nægja 9. og 11. sætið. 99 sveitir tóku þátt í mótinu en nánar verður greint frá úrslit- unum í bridsþætti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.