Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lögreglu- og hjálparsveitarmenn skemmtu sér á Nesjavöllum
Nokkrir hlutu
áverka í átökum
Morgunblaðið/Júlíus
GREIÐLEGA gekk að slökkva eld sem kom upp í kjallaraíbúð
við Bjarnhólastíg í Kópavogi á laugardagskvöld. Tvennt var í
ibúðinni, maður og kona, og slapp konan naumlega út.
Ibúð mikið skemmd
og allt innbú ónýtt
eftir bruna
SLAGSMÁL brutust út í Nesbúð
á Nesjavöllum aðfaranótt laugar-
dags en þá stóðu þar um 30
manna þorrablót einnar vaktar
lögreglunnar í Reykjavík annars
vegar og tæplega 50 manna árs-
hátíð Hjálparsveitar skáta í
Garðabæ hins vegar. Nokkrir
menn hlutu áverka og þurftu að
leita á slysadeild. Lögreglan á
Selfossi var kölluð á staðinn en
kom ekki fyrr en átök voru yfir-
staðin. Menn úr báðum hópum
íhuga að leggja fram kærur.
Þegar ljóst var að þessir tveir
hópar yrðu með skemmtanir í
Nesbúð sama kvöld höfðu hjálpar-
sveitarmenn samband við lögregl-
una og stungu upp á að hóparnir
deildu kostnaði við hljómsveit en
lögreglumenn afþökkuðu.
Deilt um bar og dansgólf
Að loknu borðhaldi var aðeins
einn bar opinn í húsinu. Hann var
í enda salar hjálparsveitarinnar
og var lögreglumönnum bent á
að nota hann. Heimildarmaður úr
hópi lögreglumanna segir að það
hafí farið fyrir brjóstið á hjálpar-
sveitarmönnum að þeir hafí notað
barinn, hafí krafíð þá um að-
gangseyri og hent konum úr lög-
regluhópnum út. Heimildarmaður
úr hjálparsveitinni segir hins veg-
ar að konunum hafí verið vísað
út úr salnum vegna þess að þær
hafi verið á dansgólfínu og ekki
viljað greiða uppsettan aðgangs-
eyri og ekki viljað fara með góðu.
Lögreglumaðurinn segir að
málið hafí verið leyst með því að
opna bar í salnum sem þeir voru
í. Hjálparsveitarmaðurinn segir
hins vegar að sitt fólk hafí ekki
vitað að báðir hópamir hafí átt
að nota sama barinn, enda hafí
málið ekki snúist um hann, heldur
um það að fólk úr hópi lögreglu-
manna hafí viljað dansa við tón-
list hljómsveitar sem það vildi
ekki borga fyrir.
Karlar á kvennaklósetti
Um tvöleytið voru tveir hjálpar-
sveitarmenn inni á kvennaklósetti
á gangi í svefnálmu með stúlku
úr sínum hópi, sem hafði skorist
á hendi. Þá kemur þar að kona
úr lögregluhópnum og gerir at-
hugasemd við veru karlanna inni
á kvennaklósettinu. Hjálpar-
sveitarmenn segjast hafa ýtt
henni út eftir að hún reif til þeirra,
lögreglan segir að henni hafi ver-
ið skellt upp að vegg og síðan
hent út. Þá kemur eiginmaður
hennar að og verður vitni að því
þegar henni er ýtt/hent út. Lög-
reglumaðurinn segir að hjálpar-
sveitarmenn hafí ráðist að eigin-
manninum, hjálparsveitarmenn
segja að eiginmaðurinn hafí ráðist
á þá.
Með bitsár á baki og hálsi
Lögreglumaðurinn segir að
þeim hafí verið gert viðvart og
þeir hafí komið á vettvang til að
skakka leikinn. Heimildarmaður
úr hjálparsveitinni segir að lög-
reglumenn hafí komið inn á gang-
inn, skellt einum þeirra með and-
litið í gólfíð, sveigt hendur hans
upp fyrir höfuð og lúskrað á hon-
um. Hann sé með bitsár á baki
og hálsi. Öðrum úr þeirra hópi
hafi verið skellt á bakið og högg-
in látin dynja á andlitinu á honum
þar til sprakk fyrir á vinstra gagn-
auga, svo blóð spýttist á lögreglu-
mann. Á meðan þessu fór fram
hafi lögreglumenn staðið í dyrum
og vamað hjálparsveitarmönnum
inngöngu.
Hjálparsveitarmaðurinn segir
að þessir tveir hafí farið á slysa-
deild á sunnudag og fengið
áverkavottorð og sá sem var bit-
inn fékk sýklalyf.
Lögreglumaðurinn segir að þeir
hafí komið á vettvang til að greiða
úr málunum en hafi þá fengið
allt björgunarsveitarliðið á bakið.
„Ég vil taka það fram að ég set
ekki alla þessa krakka undir sama
hatt. Margir þeirra komu til okkar
meðan á þessu stóð og eftir á til
að biðja okkur afsökunar á hegðun
hinna, enda voru þetta ekki nema
tveir eða þrír menn sem voru að
æsa til uppþota."
Lö'greglumaðurinn segir að þeir
hafí tekið menn tökum til að
skakka leikinn. Þess vegna hafí
ekkert tjón orðið á húsnæði og lík-
amstjón jafnlítið og raun bar vitni.
Mennimir á kvennaklósettinu hafí
deilt innbyrðis áður en til átakanna
kom og áverkar á þeim geti allt
eins verið eftir þær deilur.
Brotið fingurbein
Nokkrir lögreglumenn eru með
áverka. Einn þeirra er í gifsi og
þarf að fara í aðgerð í vikunni en
baugfingursbein brotnaði á
handarbaki upp við úlnlið þegar
fíngurinn á honum var sveigður
aftur. Þann hinn sama var, að
sögn heimildarmanns, reynt að
hengja í bindi og er hann með
áverka á hálsi. Hann er frá vinnu
og verður um nokkurn tíma. Potað
var í auga annars lögreglumanns
og sparkað í hann liggjandi, þann-
ig að hann þurfti að fara á slysa-
deild, einn var sleginn í andlit og
fékk kúlu á ennið, einn var bitinn
í kálfa og er með marblett og
bólgur og bitsár.
Lögreglumaðurinn segir að þeir
hafí verið þolendur í þessu máli
vegna starfs síns og segir hann
hjálparsveitarmenn hafa hótað því
að beita fjölmiðlum til að ná sér
niðri á þeim.
ELDUR kom upp í kjallaraíbúð
húss númer 10 við Bjarnhólastíg
í Kópavogi um sjöleytið á laugar-
dagskvöld. Tvennt var í íbúðinni,
maður og kona, og mátti, að sögn
lögreglu, vart tæpara standa að
konan slyppi út.
Tilkynnt var um lausan eld í
íbúðinni klukkan rétt rúmlega 19.
Maðurinn, sem í íbúðinni var,
komst út og fékk íbúa efri hæðar
til að aðstoða sig við að koma
konunni út einnig. Allt tiltækt lið
slökkviliðs og lögreglu var kallað
út og komu fimm slökkvibílar og
tveir sjúkrabílar á staðinn. Þegar
slökkviliðið kom voru rúður
sprungnar og eldtungur stóðu út
um glugga á íbúðinni sem var þá
alelda. Ibúar hússins, bæði kjall-
araíbúðar og aðalíbúðar, voru
komnir út.
Fyrst var ráðist til atlögu gegn
eldinum inn um glugga og síðan
fóru tveir reykkafarar inn og
slökktu þeir eldinn. Að sögn varð-
stjóra hjá slökkviliðinu var aðal-
lega um yfirborðseld að ræða sem
ekki hafði logað lengi og gekk
greiðlega að slökkva hann.
Skömmu eftir að fólkið komst út
úr íbúðinni varð reyksprenging,
sem verður þegar reykur er orðinn
það heitur að það kviknar í honum.
íbúðirnar tvær voru síðan reyk-
ræstar en lítilsháttar af reyk
komst upp í aðalíbúðina. Þá var
vatn sogað upp úr kjallaranum.
Fólkið var flutt á slysadeild vegna
gruns um reykeitrun og var höfð
vakt slökkviliðs við húsið til klukk-
an 9 um kvöldið.
Tjónið er mikið, allt innbú er
ónýtt og íbúðin mjög mikið
skemmd. Að sögn lögreglu komu
menn frá Rannsóknarlögreglu og
Rafmagnseftirliti á staðinn til að
rannsaka eldsupptök en grunur
beinist að opnum eldi við sjón-
varpstæki.
Kjaramálaráðstefna Alþýðubandalagsins um ráðstöfunartek)ur verkafólks
RÁÐSTÖFUNARTEKJUR íslensks verka-
fólks eru 40-60% lægri en ráðstöfunartekj-
ur dansks verkafólks að því er fram kom
á kjaramálaráðstefnu Alþýðubandalagsins
á laugardag. Kjaramálaráðstefnan var
haldin í tengslum við fyrsta miðstjómar-
fund nýrrar miðstjórnar Alþýðubandalags-
ins í Þinghóli í Kópavogi. Jóhann Geirdal,
varaformaður, segir að elstu menn muni
ekki eftir jafn mikilli einingu og ríkti á
fundinum.
Jóhann sagði að miðstjórnin hefði
hleypt af stokkunum vinnu í öllum helstu
málefnaflokkunum. „Hóparnir voru form-
lega skipaðir og væntanlega verður vinn-
unni stýrt af höfuðborgarsvæðinu, en hún
fer fram víða um land með aðstoð sam-
skiptatækni. Skil hafa verið tímasett á
fjórum miðstjórnarfundum fram að næsta
landsfundi."
í ályktun um kjaramál er tekið fram að
á kjaramálaráðstefnu hafi komið fram að
110-170% munur sé á dagvinnulaunum
verkafólks á íslandi og í Danmörku. Ef
skattar og fleiri þættir séu teknir með
verði ráðstöfunartekjur íslensks verkafólks
40-60% lægri.
Stuðlað verði að stækkun fyrirtækja
Miðstjórnin segir að þessi mikli munur
sé óþolandi og tryggja verði sambærileg
lífskjör hér og í nálægum löndum. Nauð-
synlegt sé að draga úr yfírvinnu samhliða
verulegri hækkun grunnlauna og færa
ákvarðanir um kjör nær fólkinu og fyrir-
tækjunum. „Brýnt er að einstökum stéttar-
félögum verði gert kleift að semja um kjör
félagsmanna sinna innan einstakra greina
og fyrirtækja í tengslum við heildarsamn-
40-60% lægri
tekjur hér
en í Danmörku
Morgunblaðið/Þorkell
Á NÍUNDA tug fulltrúa sótti fundinn. Fremstar eru Hildur Jónsdóttir
og Kristín Á. Guðmundsdóttir.
inga á vinnumarkaðnum," segir ennfremur
í ályktuninni.
Miðstjórnin telur að byggja þurfi upp
öflugt atvinnulíf sem sé samkeppnishæft
við nálæg lönd m.a. með því að stuðla að
stækkun fyrirtækja, sérhæfingu þeirra og
samvinnu. Brýnt sé að huga að möguleik-
um á áhættufjármögnun, t.d. með því að
stofna öflugan áhættulánasjóð í samvinnu
ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumark-
aðarins.
íslenskt launafólk búi ekki einungis við
bágari kjör en launafólk í nálægum löndum,
heldur búi það og íslensk verkalýðshreyfíng
við stöðugar árásir stjórnvalda, sem oftar
en ekki séu studdar af samtökum atvinnu-
rekenda eða tilkomnar vegna hvatningar
þeirra. Nýjustu dæmin séu drög að frum-
vörpum um samskiptareglur á vinnumark-
aði og um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna. í stað samráðs við verkalýðs-
hreyfinguna um farsælar lausnir velji ríkis-
stjórnin að gefa í botn og keyra yfír verka-
lýðshreyfinguna og launafólk.
LÍN hverfi frá kröfu um 100%
námsárangur
í ályktun um Lánasjóð íslenskra náms-
manna er lögð áhersla á að hverfa þurfi
frá kröfu um 100% námsárangur, afnema
eftirágreiðslur, falla frá kröfu um ábyrgðar-
menn á námslánum, létta endurgreiðslu-
byrði og gera undanþágureglur og aðrar
reglur sjóðsins skýrari. Miðstjórnin lýsir
fullri ábyrgð á hendur menntamálaráðherra
vegna þess skaða sem það valdi fólki að
geta ekki lokið starfsnámi vegna erfiðleika
sem verkmenntaskólar standi frammi fyrir
þegar koma eigi nemum í starfsþjálfun.
:
>