Morgunblaðið - 20.02.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 15
Könnun Fijálsrar verslunar
Samkeppnisráð afgreiðir erindi Bónuss hf.
Flugleiðir
vinsælasta
fyrirtækið
FLUGLEIÐIR hf. eru vinsælasta
fyrirtæki landsins, samkvæmt
könnun tímaritsins Frjálsrar
verslunar sem er að koma út.
Bónus lendir í öðru sæti, Eimskip
í því þriðja og Hagkaup í fjórða
sæti. 011 fjögur fyrirtækin mæl-
ast einnig sem þau óvinsælustu
og lenda Flugleiðir þar efst á list-
anum, en síðan Eimskip, Hag-
kaup og Bónus.
Könnunin var gerð seinni
hluta janúar 1996 og er byggð á
803 númera handahófsúrtaki úr
símanúmeraskrá. Alls vildu 494
svara.
Fyrst tölublað Talnakönnuuar
Tímaritið Fijáls verslun er nú
að koma út í fyrsta sinn á vegum
nýs eigenda, Talnakönnunar hf.,
sem keypti útgáfuna um áramót-
in. Að sögn Benedikts Jóhannes-
sonar, framkvæmdastjóra, er
fyrirtækið sjötti aðilinn í 57 ára
sögu tímaritsins sem gefur það
út. Hann segir að nokkrar
áherslubreytingar verði hjá
tímaritinu. Það muni ekki ein-
göngu fjalla um verslun og við-
skipti heldur verði lögð áhersla
á að fjalla um efni sem höfði til
aðila í viðskiptum og sljórnun.
Þannig verði t.d. i meira mæli
fjallað um stjórnmál og ferðamál
en áður.
Akveðið hefur verið að ráðast
í áskriftarherferð til að auka
útbreiðslu blaðsins og hafa sölu-
menn verið ráðnir í því skyni.
Þau Jón G. Hauksson, ritstjóri
og Sjöfn Sigurgeirsdóttir, aug-
lýsingastjóri fylgja Fijálsri versl-
un yfir til nýs eiganda.
íslandsbanki hf. telur góðar líkur á
lækkandi vöxtum á peningamarkaði
Vaxtahækkun bank-
ans gengur tíl baka
ÍSLANDSBANKI hf. hefur ákveðið
að lækka vexti á morgun, miðviku-
dag. Verður mest lækkun á vöxtum
óverðtryggðra útlána eða 0,5% og
gengur þá að langmestu leyti til
baka vaxtahækkun bankans sem
varð 11. febrúar. Þannig lækka t.d.
kjörvextir af almennum skulda-
bréfalánum úr 9,1% í 8,6%, en til
samanburðar má nefna að sömu
vextir hjá Landsbankanum eru nú
9,5%, 9,35% hjá Búnaðarbanka og
9,25% hjá sparisjóðum.
Fram kemur í frétt frá íslands-
banka að hræringar á peninga-
markaði og eftirmarkaði ríkisverð-
bréfa hafi á síðustu mánuðum gefið
tilefni til nokkurra vaxtahækkana.
íslandsbanki hafi fylgt þróuninni á
þessum mörkuðum en þó leitast við
að fara varlega fram um vaxta-
hækkanir. Bankinn hafi því fylgt í
kjölfar samkeppnisaðila, ríkis-
banka, sparisjóða og Þjónustumið-
stöðvar ríkisverðbréfa sem leitt
hafi vaxtahækkanirnar að undan-
förnum.
Bankastjórn íslandsbanka telji
nú góðar líkur til þess að vextir á
peningamarkaði muni lækka á
næstunni og vilji stuðla að þeirri
þróun með því að lækka nú vexti
bankans.
Mikil samkeppni á innlánahlið
Þá segir ennfremur: „í umræðu
síðustu daga hefur margsinnis verið
vísað til þess að síðustu hækkun
vaxta megi rekja til þess að verð-
bólguspá Seðlabanka íslands hafi
reiknað með meiri hækkun verðlags
en raun varð á um síðustu mánaða-
mót. Vegna þessa vill bankastjórn
íslandsbanka taka fram að á síð-
ustu misserum hefur bankinn eink-
um litið til vaxtabreytinga á mark-
aði fyrir ríkisvíxla, spariskírteini
ríkisins og ríkistryggð húsbréf. Á
innlánahlið hefur samkeppni verið
afar mikil og einkennst af tilboðum
í tengslum við innlausn spariskír-
teina, sem Þjónustumiðstöð ríkis-
verðbréfa leiddi.
Bankastjórnin mun á næstunni
fylgjast náið með framvindu mark-
aðsvaxta og mun eftir sem áður
beita sömu viðmiðunum og að und-
anförnu við vaxtaákvarðanir. Aug-
ljóst er að aðgerðir stjórnvalda sem
áhrif hafa á markaðsvexti munu
ráða mestu um hvort framhald
verður á vaxtalækkunum."
Bandvídd alnets-
ins tvöfölduð
STJÓRN Internets á íslandi
hf.(INTIS) ákvað á fundi í vikunni
að tvöfalda flutningsgetu tenging-
ar fyrirtækisins við útlönd sem
þýðir að flutningsgetan eykst í
2Mb, eða sem svarar 248 þúsund
stöfum á sekúndu. Að sögn Sigurð-
ar Jónssonar, markaðsstjóra hjá
INTIS, hefur bandvíddin í tenging-
unni til útlanda þá rúmlega 15-
faldast á einu ári. Hann segir að
þessi aukning endurspegli þá gríð-
arlegu aukningu sem orðið hafi á
notkun alnetsins á síðasta ári.
Að sögn Sigurðar jók fyrirtækið
síðast bandvíddina í september
1995 og hafi þá verið um 4-földun
á bandvídd að ræða. Sú stækkun
sé þegar orðin fullnýtt, eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd, og því
hafi verið ákveðið að auka enn
frekar við bandvíddina. Hann segir
að þessi stækkun verði að öllum
líkindum komin í gagnið þann 15.
mars næstkomandi.
Internet á íslandi hf. rekur IS-
net, sem er hinn íslenski hluti al-
netsins. Allar nettengingar fara
því í gegnum fyrirtækið. Viðskipta-
vinir þess eru nú um 170 talsins
og endurselja sumir þeirra net-
tengingar til einstaklinga. Flestir
af stærstu viðskiptavinum fyrir-
tækisins eru jafnframt hluthafar
að sögn Sigurðar.
Osta- og smjörsalan veiti
magnafslátt í viðskiptum
SAMKEPPNISRÁÐ hefur mælt
fyrir um að Osta- og smjörsalan
sf. bjóði viðskiptavinum sínum við-
skiptakjör sem samræmist því
hagræði sem magn viðskiptanna
gefi tilefni til, en fyrirtækið hefur
fram til þessa synjað viðskiptavin:
um sínum um magnafslátt. í
ákvörðun ráðsins segir ennfremur
að fyrirtæki sem eigi í sams konar
viðskiptum við Osta- og smjörsöl-
una skuli njóta sömu kjara og eigi
upplýsingar um viðskiptakjör fyr-
irtækisins að vera aðgengilegar.
Ákvörðun Samkeppnisráðs er
tilkomin vegna erindis sem ráðinu
barst frá Bónus hf., þar sem óskað
var eftir því að kannað yrði af
hvetju Osta- og smjörsalan sf.
veitti ekki magnafslátt í viðskipt-
um sínum. Jafnframt var farið
fram á að Samkeppnisráð nýtti sér
heimildir til að hlutast til um breyt-
ingar á viðskiptaháttum Osta- og
smjörsölunnar þannig „að sam-
keppni fái notið sín með lækkuðu
vöruverði til almennings“.
Osta- og smjörsalan
markaðsráðandi fyrirtæki
I ákvörðun Samkeppnisráðs
segir að líta verði á Osta- og smjör-
söluna sem markaðsráðandi fyrir-
tæki og því „að verulegu leyti
kleift að starfa án þess að þurfa
að taka tillit til keppinauta, við-
skiptavina og neytenda“. Þá segir
þar ennfremur að þær vörur sem
Osta- og smjörsalan dreifi, en séu
ekki verðlagðar samkvæmt
ákvæðum búvörulaga, falli undir
ákvæði samkeppnislaga. Tekið er
fram að heildarviðskipti Bónuss
við Osta- og smjörsöluna nemi
nálægt 400 milljónum króna á ári
og þar af sé um 55% vörur sem
ekki falla undir verðlagsákvæði.
í ákvörðuninni segir ennfremur:
„Vöruverð er veigamikill sam-
keppnishvati í viðskiptum. Þar eð
Osta- og smjörsalan er markaðs-
ráðandi á þeim markaði sem við á
í þessu máli setur fyrirtækið við-
skiptavinum sínum þröngar skorð-
ur með viðskiptaháttum sínum og
kjörum m.a. um verð og viðskipta-
kjör. Með því að selja vöruna á
sama verði til þeirra endurseljenda
sem kaupa vöruna í miklu magni
og þeirra sem kaupa lítið er Osta-
og smjörsalan að draga úr mögu-
leikum fyrirtækja í smásölu til að
koma við verðsamkeppni. Þetta
stríðir gegn markmiði samkeppn-
islaga."
Samkeppnisráð metur synjun
Osta- og smjörsölunnar um magn-
afslátt, þegar það eigi við á grund-
velli sanngjarnra viðskiptalegra
sjónarmiða, því til þess fallna að
skaða samkeppni á viðkomandi
markaði.
wwni n H1111
ú' brabarttia Hítaplötur
Einnig afsláttur af:
Emile Henry leirvörum (20%) • Brabantia eldhúsvörum, strauborð ofl. (20%) • Ismet heimilistæki allt að 30%
Afsláttur af öllum AEG vörum í verslun okkar í 10 daga!
ismet
— •' Æ
'Á jV* ,j) aJ I
ígggEgl l
BBi
- í *
tWö.-- l'M __