Morgunblaðið - 20.02.1996, Page 16

Morgunblaðið - 20.02.1996, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÚRVERINU Úr reikningum Borgeyjar hf. árið 1995 Rekstrarreikningur 1995 1994 Breyt. Rekstrartekjur millj. króna 1.359,1 1.353,2 0,44% Rekstrargjöld (1.182,1) (1.146,7) 3,09%j Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði 177,0 206,5 -14,26% Afskriftir (78,9) (68,8) 14,87% Fjármagnsliðir (51,1) (57,2) -10,54%, Aðrar tekjur og (gjöld) 0 0 Skattar (3,3) (1,3) 161,94% Hagnaður ársins 43,6 79,3 -45,03% Efnahagsreikningur Veltufjármunir 372,8 407,4 : -8,51% Skammtímaskuldir (222,1) (183,3) ! 21,17% Hreint veltufé 150,7 224,1 -32,78% Fastafjármunir 688,3 601,8 ! 14,37% Langtímaskuldir (340,2) (348,8) -2,45% Eigið fé 348,1 253,1 37,55%\ Kennitölur og aðrar uppl. 498,8 477,2 4,52% Veltufé til/(frá) rekstri 123,0 149,1 -17,49% Handbært fé frá rekstri 177,4 97,4 *! 82,25%! Greiddur arður 37,5 0 Veltufjárhlutfall 1,68% 2,22% Hagnaður í hlutfall við rekstrart. 3,21% 5,86% Eigið fé í hlutfalli við heildareignir 47,00% 47,28% I Arðsemi eigin fjár frá ársbyrjun 9,00% 20,16% Borgey á OTM HLUTABRÉF í Borgey hf. á Höfn í Hornafirði voru skráð formlega á Opna tilboðsmarkaðnum síðastliðinn föstudag og áttu fyrstu viðskipti með bréf í fyrirtækinu sér stað sama dag á genginu 1,22, að því er fram kem- ur í frétt. Aðalfundur fyrirtækisins verður haldinn næstkomandi fimmtudag og fyrir fundinum liggur tillaga um hlutafjáraukningu að nafnvirði 60 milljónir króna á genginu 1,25 til forkaupsréttarhafa, en það gengi verður jafnframt lágmarksverð til annarra kaupenda. Jafnframt liggur fyrir fundinum tiliaga um arð- greiðslu, en ekki liggur fyrir hversu há hhún verður. í meðfylgjandi töflu gefur að líta afkomutölur Borgeyjar á síðasta ári. Samkeppnisráð úrskurðar í máli Félags eggjaframleiðenda Ámælisverð brot á samkeppnislögum SAMKEPPNISRÁÐ telur sannað að Félag eggjaframleiðenda hafi á ár- unum 1994 og 1995 gerst brotiegt við samkeppnislög. Félagið hafi í senn hvatt til samráðs um verð og afslætti á eggjum, haft forgöngu um skiptingu markaða eftir svæðum eða viðskiptavinum og reynt að tak- marka aðgang nýrra aðila að mark- aðnum. Ætla megi að aðgerðir fé- lagsins hafi leitt til hærra eggjaverðs en ella hér á landi. í úrskurði sem ráðið samþykkti á föstudag er þess krafist að féiagið láti af hvers konar athöfnum sem brjóti í bága við bannákvæði sam- keppnislaga og hindri virka sam- keppni í viðskiptum með egg. Jafn- framt er félaginu óheimilt að grípa til hvers konar aðgerða sem tak- markað gætu möguleika nýrra aðila á því að hefja eggjaframleiðslu. Stuðst við fundargerðir Samkeppnisstofnun ákvað í októ- ber sl. að eigin frumkvæði að gera athugun á því hvort ýmsir starfs- hættir Félags eggjaframleiðenda stríddu gegn ákvæðum samkeppnis- laga. Áður hafði fundargerð borist til stofnunarinnar frá fundi Félags eggjaframleiðenda, þar isem atriði sem virtust varða við samkeppnislög komu fram. Jafnframt aflaði ráðið sér upplýsinga um verð og afsláttar- kjör verlsana. í október sl. óskuðu Ríkisspítalar síðan eftir tilboðum í verð á eggjum og fengu tilboð þar sem veittur var afsláttur frá skráðu heildsöluverði. Félag eggjabænda skrifaði bréf til Ríkisspítala þar sem bent var á að samkvæmt búvörulögum mætti ekki selja egg á iægra verði en skráðu heijdsöluverði. I niðurstöðu Samkeppnisráðs kem- ur m.a. fram að Félag eggjaframleið- enda hefði haft skýran og einbeittan vilja til þess að ræða, stuðla að og framkvæma aðgerðir sem hvað al- varlegastar þykja jafnt í íslenskum sem erlendum samkeppnisrétti. Þá segir jafnframt að brot Félags eggjaframleiðenda á árunum 1994 og 1995 séu að mati ráðsins alvarleg og ámælisverð. Félag sem að vissu leyti starfi í skjóli búvörulaga og hafi ákveðnu hlutverki að gegna við framkvæmd þeirra hafi á þessu tíma- bili fjallað um skipulag og fram- kvæmt samkeppnishamlandi aðgerð- ir sem fari þvert gegn markmiðum samkeppnislaga. Samkeppnisráð hefur heimild til að leggja á stjórnvaldssektir á bilinu 50 þúsund til 40 milljóna kr.,,en þó allt að 10% af ársveltu í viðkomandi starfsemi ef ábatinn er meiri. Ráðið segir í úrskurði sínum að til álita komi í jafn alvarlegum tilvikum sem þessum að leggja á stjórnvaldssektir þar sem þær geti haft áhrif til auk- innar samkeppni. „Á hinn bóginn verður að horfa til þess að álagning sekta af hálfu stjórnvalda er viðurhlutamikil ákvörðun sem ríkar kröfur verður að gera til. I þessu sambandi skiptir máli að tengsl samkeppnislaga og búvörulaga geta virst óljós og því ekki hægt að útiloka að um hafi verið að ræða afsakanlega vanþekk- ingu eða misskilning á viðkomandi réttarreglum. Einnig ber að hafa hugfast að Félag eggjaframleiðenda naut í vissum skilning samþykkist lahdbúnaðarráðuneytis fyrir hluta af þeim aðgerðum félagsins sem lutu að markaðsskiptingu." í ljósi þessa ákvað ráðið að leggja ekki að svo stöddu stjórnvaldssekt á félagið. Hins vegar mun Samkeppn- isráð fylgjast grannt með aðstæðum á eggjamarkaði. Félagar í Sindra íhuga úrsögn úr FFSÍ „Óánægjan með FFSÍ ein- skorðast ekki við Sindra“ SKIPSTJÓRA- og stýrimannafé- lagið Sindri á Austfjörðum íhugar nú úrsögn úr Farmanna- og físki- mannasambandi íslands. „Þetta er vegna megnrar óánægju með frammistöðu forystumanna FFSÍ, sérstaklega í kjara- og réttindamál- um fyrir sjómenn," segir Sturlaugur Stefánsson, formaður Sindra. „í sambandi við réttindamálin fínnst okkur við standa ansi aftarlega hvað varðar enduráunnin veikinda- réttindi. Ef maður veikist og nýtir sinn veikindarétt að fullu fær hann ekki neitt ef hann veikist t.d. 8 árum síðar hjá sömu útgerð. Þá er hann búinn að nýta sinn veikinda- rétt fyrir lífstíð. Við höfum lagt mikla áherslu á það hjá Sindra að þessu verði breytt.“ Á aðalfundi Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Sindra var sam- þykkt að efna til allsheijaratkvæða- greiðslu meðal félagsmanna um úrsögn úr Farmanna- og físki- mannasambandi íslands. Vegna formgalla á samþykktinni verður efnt til félagsfundar, að öllum lík- indum nk. fimmtudag, þar sem þetta verður eina mál á dagskrá. Innanfélagsmál FFSÍ og Sindra Ef samþykkt verður að efna til allsheijaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna verða settir upp kjör- kassar á félagssvæðinu sem nær frá Seyðisfirði til Djúpavogs. Að sögn Sturlaugs Stefánssonar má búast við því að þetta ferli taki nokkum tíma, en stefnt er að því að niðurstaða fáist um miðjan mars. „Ég tel málið að svo stöddu vera innanfélagsmál FFSÍ og Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Sindra og þar af leiðandi tel ég ótímabært að lýsa nokkru yfir opinberlega," sagði Benedikt Valsson, framkvæmda- stjóri FFSÍ, í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Ég og Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ, vorum austur á fjörðum um helgina til að ræða við félagsmenn Sindra, bæði um félagsmál og verðlagningu á loðnu. Að mínu áliti var þessi ferð báðum aðilum gagnleg." Sturlaugur segir að menn sjái ekki fram á að samstaða náist nokk- urn tíma meðal sjómanna í kjara- málum eins og síðastliðið vor. „Þá léku útgerðarmenn þann leik að leigja skipin hingað og þangað þannig að þau stoppuðu ekki í verk- fallinu. Þegar við sáum að verið var að flagga út skipum vildum við að samningaviðræðum yrði slitið. En það var samþykkt í samninganefnd- unum að halda þeim áfram.“ Tillagan hefur komið upp áður en var ekki fylgt eftir Sturlaugur segir að þessi tillaga hafi komið upp áður hjá Sindra. Það hafi verið í beinu framhaldi af því þegar sjómannaafslættinum hafi verið breytt árið 1991. „Þá töldum við að okkar maður, Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ, hefði ekki varið þau mál sem skyldi þeg- ar hann sat á þingi,“ segir hann. „Tillagan var samþykkt á aðal- fundi, en henni var ekki fylgt eftir.“ Þegar Sturlaugur er spurður að því hvað taki við segi Sindri sig úr FFSÍ segist hann telja að óánægjan með FFSÍ einskorðist ekki við Sindra. Óánægja sé meðal sjó- manna almennt með sín forystu- samtök og í samþykktinni á aðal- fundi Sindra hafi verið ákvæði um að reyna að sameina sjómenn á Austurlandi í eitt félag. „FFSÍ sendi út fréttabréf til fé- lagsmanna Sindra, sem er hið besta bréf,“ segir Sturlaugur. „Ég gerði nú samt strax athugasemdir við tvennt í bréfinu. Þar er sagt að Sindri hafi lítið haft sig frammi í FFSÍ og stjórnarmaður Sindra hafi ekki nýtt sæti sitt í stjórninni. Ástæðan fyrir því er sú að fundar- boðunin hefur verið með það skömmum fyrirvara að okkar mað- ur hefur ekki séð sér fært að mæta. Ómaklega að Sindra vegið Ennfremur lýsti forsetinn því yfir að hann hefði margsinnis sóst eftir að halda hér fund. Það er rangt. Við sóttumst einu sinni eftir að fá hann á fund eftir sjómanna- samningana, en hann komst ekki. Hann sóttist eftir að vera viðstadd- ur aðalfundinn, en við höfnuðum því vegna þess að við vildum fá að ræða málin sjálfir." Sturlaugur segir að sér finnist mjög hart að gefíð sé í skyn í frétta- bréfinu að Sindri hafi ekki verið virkur í félagsmálum innan sam- bandsins. Þeir hafi verið í góðu sambandi símleiðis og þarna sé ómaklega að þeim vegið: „Það hef- ur skort á að forystumenn FFSI hafí sýnt lit, sem þeir hafa gert núna eftir að tillagan kom upp. Þá hafa þeir látið sjá sig á Austfjörðun- um, höfðingjarnir, og hefðu mátt gera fyrr.“ Hábergið með fullfermi á þremur klukkutímum Morgunblaðið/Þorsteinn Kristjánsson LOÐNUNNI 4ælt um borð í Hábergið. „VEIÐARNAR ganga mjög vel þegar veður leyfir,“ sagði Sveinn Isaksson, skipstjóri á Hábergi GK 299, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það var sólarhringsbræla í fyrrinótt, en annars er mokveiði allan sólarhringinn." Þegar náðist tal af honum var hann að landa fullfermi eða 650 tonnum í Grinda- vík. Aflinn fór allur í vinnslu og á Japan, en hrognafyllingin er komin yfir 16%. „Við fengum aflann á þremur tímum eða í tveimur köst- um,“ segir Sveinn. Hann segir að það sé um 10 tíma sigling á miðin og hallast að því að loðnan haldi sig nálægt Kötlu- tanga. „Núna er aðalvinnslu- tíminn," segir hann. „Tíðarfarið næstu viku sker úr um það hvernig vinnslan gengur hér fyrir suðvest- urhorninu.“ Göslast áfram meðan þrekið leyfir Hann segist ekki hafa reiknað það út hversu miklum loðnuafla Hábergið hafí náð í heild. „Ég hef ekki einu sinni haft tíma til að kíkja á blaðið,“ segir hann. „Það er bara göslast áfram meðan þrekið leyfír. Það gengur svo mikið á núna þessa tvo mánuði sem loðnan gefur sig.“ Sveinn er vantrúaður á að kvót- inn náist vegna þess að tíminn sé orðinn of naumur. Hann segist vona að loðnan veiðist út mars eða fram- undir páska. „Þá verður kvótinn vonandi langt kominn, en ég held hann náist ekki,“ segir hann. „Það er afleiðing af því hvað sumarveið- arnar gengu illa vegna þess að loðn- an var svo smá.“ Heildarloðnuafli nálgast 400 þúsund tonn Alls hefur verið tilkynnl um land- anir á rúmum 30 þúsimd tönnum af loðnu frá síðustu tílkynningu Samtaka fiskvinnslustöðva. Þar af kom mestur hluti aflans á land um helgina. Heildarveiði íslenskra skipa á loðnuvertíðinni er komin í 395.425 tonn, en þar af var afli á haust- og sumarvertíðinni 171.992 tonn. Hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hefur alls verið landað 39.612 tonn- um, en hjá Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað hefur verið landað 38.975 tonnum. Hjá SR-mjöli hf. á Seyðisfirði hefur verið landað 32.812 tonnum, Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyj- um 17.685 tonnum, Loðnuvinnsl- unni á Fáskrúðsfirði 15.471 tonni, SR-mjöli á Raufarhöfn 13.496 tonnum og SR-mjöli á Reyðarfirði 13.529 tonnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.