Morgunblaðið - 20.02.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 19
ERLENT
Einn lét lífið í sprengjutilræði í strætisvagni í miðborg London
IRA hótar frekari aðgerð-
um í breskum borgum
London. Reuter.
EINN maður lést og átta særðust
er sprengja sprakk í strætisvagni
í miðborg London á sunnudags-
kvöld. Lögreglan handtók í gær
tvo menn sem grunaðir eru um
aðild að verknaðinum. írski lýð-
veldisherinn (IRA) hefur lýst yfir
ábyrgð á sprengjutilræðinu en
breska lögreglan útilokar ekki að
sprengjan hafi sprungið fyrr en
ætlað var, í fangi manns er var
að færa hana á áfangastað. IRA
hótaði síðdegis í gær að að efnt
yrði til tilræða í fleiri stórborgum
Bretlands ef stjórnvöld í London
létu ekki undan kröfum samtak-
anna.
Þetta er þriðja sprengjan sem
IRA kemur fyrir í bresku höfuð-
borginni á tíu dögum, en eina
sprengjuna tókst að aftengja áður
en hún sprakk. Fulltrúi samtak-
anna lýsti yfir ábyrgð á tilræðinu
á sunnudagskvöld í símtali til
BBC í Belfast á mánudag.
„Sprengjan sem sprakk í gær-
kvöldi var frá okkur komin. Á
þessu stigi getum við sagt að við
hörmum að hún hafi valdið mann-
sláti og sárum,“ sagði írski lýð-
veldisherinn.
Jafnt lögregla sem stjórnmála-
menn voru undrandi á því að ekki
hefði verið gefin út viðvörun áður
en sprengjan sprakk á Aldwych-
svæðinu, skammt frá Covent
Garden. Hefur það ýtt undir
vangaveltur um að sprengjan hafi
sprungið óvænt á meðan verið var
að fara með hana á þann stað,
þar sem írski lýðveldisherinn
hugðist sprengja hana.
Að sögn sjónarvotta rifnaði
strætisvagninn, sem var tveggja
hæða, í sundur líkt og um niður-
suðudós hefði verið að ræða.
Sært fólk lá á götunni í blóði sínu
ásamt málmtætlum og glerbrot-
um.
Hélt um skjalatösku
„Einn maður virtist vera í miðj-
um strætisvagninum. Ég held að
hann hafi verið sprengjumaðurinn.
Hann hélt utan um leifarnar af
skjalatösku en var allur brunn-
inn,“ sagði Jonathan Bray, sem
varð vitni að sprengingunni.
Þegar Tony Rowe lögreglufor-
ingin var inntur eftir því hvort um
sprengjumanninn hafi verið að
ræða svaraði hann: „Ég útiloka
það ekki né heldur get ég stað-
SPRENG JUTILRÆÐI
í LONDON
Reuter
BRAK strætisvagnsins í London. Ekki er vitað hve stór sprengj-
an var en lögregla hélt áfram að kanna aðstæður á svæðinu.
Sprengja frá írska lýðveldis-
hernum sprakk í strætisvagni
í miðborg London á sunnu-
dagskvöld. Einn maður lét
lífið og átta særðust.
hæft það á þessu stigi. Starfs-
bræður mínir í andhryðjuverka-
sveitinni einbeita sér meðal annars
að þeirri tilgátu í rannsókn sinni
á tilræðinu.“
Patrick Mayhew, sem fer með
málefni Norður-írlands í bresku
ríkisstjórninni, hvatti öfgasinnaða
mótmælendur, sem styðja yfir-
stjórn Breta á Norður-Irlandi, til
að halda fast við vopnahlé það er
þeir lýstu yfir í október 1994, sex
vikum eftir að IRA batt enda á
25 ára vopnaða baráttu sína gegn
Bretum. „Hefndaraðgerðir væru
stórslys fyrir alla aðila,“ sagði
Mayhew.
Adams harmar
sprengjutilræðið
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, hins pólítíska arms Irska
lýðveldishersins, sagði í samtali
við BBC í gær að sprengingin
væri mikið áfall. „Ég tek ekki á
mig neina ábyrgð á því sem gerð-
ist [á sunnudagskvöld]. Við erum
allir ábyrgir, ekki síst þeir okkar
sem eru í forystuhlutverki.“
írska dagblaðið Irísh Times
sagði í gær írsk öryggisyfirvöld
gruna að nýr miskunnarlaus yfir-
maður, sem hefði blóði drifinn fer-
il að baki innan IRA, hefði tekið
við forystu samtakanna, þegar
uppstokkun átti sér stað nýlega.
Blaðið nefndi engin nöfn í því sam-
bandi.
Filippseyjar
7 0 manns
drukkna
Cadiz, Filippseyjum. Reuter.
UM 70 manns drukknuðu þegar
feija sökk við Filippseyjar í
stórsjó á sunnudag. Áð minnsta
kosti 141 maður bjargaðist með
því að synda í land eða halda um
fljótandi brak úr feijunni, sem
var á siglingu til borgarinnar
Cadiz. Strandgæslan setti skip-
stjóra feijunnar og tvo yfirmenn
í varðhald þegar í ljós kom að
200 manns voru um borð, en
aðeins leyfilegt að feija 100 far-
þega.
Fidel Ramos, forseti Filipps-
eyja, fyrirskipaði í gær að rann-
sakað yrði hvers vegna skipinu
var leyft að sigla þótt helmingi
fleiri væru um borð en leyfilegt
væri. Sjóslys eru tíð á Filippseyj-
um. Ferjur eru oft eini samgöngu-
mátinn milli hinna fjölmörgu eyja,
en þær eru oft og tíðum gamlar
og illa við haldið.
24. febrúar
24. febrúar
*
V^úseigenda q
Aðalfundur og
grísaveisla
Aðalfundur og árleg grísaveisla Félags húseigenda á Spáni
verða haldin laugardaginn 24. febrúar í Kiwanishúsinu,
Engjateigi 11. Aðalfundur hefst kl. 13.30 og verður samkvæmt
útsendri dagskrá. Grísaveislan: Húsið opnað kl. 19.00, en þá verður
tekið á móti gestum með viðeigandi hætti.
Borðhald hefst kl. 20.00. Hafrót leikur fyrir dansi ásamt góðum
skemmtiatriðum og ekki má gleyma hinu frábæra happdrætti
okkar. Mætum öll og eigum góða stund saman.
Vinsamlegast pantið miða sem fyrst, ekki seinna en
miðvikudaginn 21. febrúar.
Upplýsingar fyrir nýja félaga gefa Ólöf Jónsdóttir vs. 562 5999
og Jón Steinn Elíasson vs. 562 1344.
Vinsamlega pantið miða sem fyrst hjá Jóni Steini i síma 562 1344,
Stefáni Stefáns í síma 561 2129, Friðbirni í síma 568 1075,
Guðmundi í síma 554 2570 (vs.) eða Hrefnu í síma 581 3009.
Framsóknarfélag Reykjavíkur og Samband ungra framsóknarmanna
standa fyrir opnum fundi níeð Finni Ingólfssyni, iðnaðar og við-
skiptaráðhena og Páli Péturssyni, félagsmálaráðherra, þriðjudaginn
20. febrúar kl. 20.30 í Sunnusal ( áður Átthagasal) Hótel Sögu.
Allir velkomnir
FR og SUF
Framsóknarflokkurinn
Nýc lítiii GSM
á kynningarverbi
Audiovox GSM - 650
263 g með rafhlöðunni
sem fylgir simanum •
Rafhlaða endist i 70 mín.
samtal eða 18 klst. bið •
Tekur stórt kort
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800
Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, sími 550 6670 |
, Söludeild Kringlunni, sími 550 6690
N. Póst- og símstöðvum um land allt