Morgunblaðið - 20.02.1996, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.02.1996, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MENIMTUN Frásagnargleði í fyrirrumi Á að leggja minni áherslu á að læra ljóð utanað en gert hefur ver- ið í grunnskólum landsins og í stað- inn að lesa ljóð fyrir bömin og leyfa þeim að glíma við að semja? Hild- ur Fríðriksdóttir fylgdist með lokatíma á nýstárlegu bókmennta- námskeiði fyrir kennara. Jóhanna Antonsdóttir Þóra Melsted ÞRJÁTÍU grunnskólakennarar hafa hist hálfsmánaðarlega í vet-' ur, setið með „sveittan skallann" við að semja ljóð og smásögur, lesa fornsögur og nútímasögur undir leiðsögn Baldurs Hafstað dósents og Þórðar Helgasonar lektors við Kennaraháskóla ís- lands (KHÍ). Var námskeiðið hald- ið í samvinnu við Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur að undirlagi Hannesar Sveinbjörnssonar kennsluráðgjafa. Námskeiðið er nýst- árlegt að því leyti að lögð er áhersla á að kennari sé meira áberandi og geri örlítið meira úr persónu sinni í kennslu en verið hefur fram til þessa. „Við fórum vandlega í frá- sagnartækni og létum hvern og einn semja sögu og ljóð, en sýnd- um einnig mikið af ljóðagerð nem- enda, sem ég á mikið safn af,“ sagði Þórður. Of lítið verið iagt í frásagn- ir en því meir í ritgerðir Ætlaði mér þetta ekki! Þegar Morgunblaðið leit inn í kennslustund komu nemendur, þ.e. kennarar, hver á fætur öðrum upp í púlt og fluttu frumsamin ljóð. Flestir höfðu uppi afsakanir í for- mála um að þeir hefðu aldrei ætlað að taka þátt í þessari uppákomu en hér stæðu þeir engu að síður. Greinilegt var að þeim þótti verkefnið ögrandi og skemmtilegt. Einn kenn- arinn sagðist ekki geta hugsað sér að vera fjar- verandi þótt hann væri veikur því kennslustund- imar væm svo skemmtilegar. Það flaug í gegnum huga blaðamanns að miklum árangri væri náð í skóla- starfí, ef nemendum þætti svo skemmtilegt í tímum, að þeir gætu ekki hugsað sér að sleppa þeim! Þórður lagði áherslu á að með því að kennarar fæm í gegnum sama ferli og nemendur, þ.e. að semja, koma upp og flytja ljóð eða sögu, skynjuðu þeir líðan nemenda. „Það er þessi blanda af tilhlökkun og kvíða sem allir hafa gott af að ganga í gegnurn," sagði hann. Augljóst var að kennuram þótti hafa tekist vel til því í lokin báðu þeir um framhaldsnámskeið eða jafnvel annars konar námskeið af sama tagi og allir töluðu í einu. „Líttu bara á,“ sagði Þórður glott- andi og beindi orðum til blaða- manns: „Þeir hegða sér alveg eins og tíu ára!“ Las Gunnlaugs sögu fyrir 11 ára nemendur sína Til að heyra hvernig námskeiðið hefði skilað sér í kennslunni ræddi blaðamaður við tvo kennara, Þóru Melsted, sem kennir 11 ára krökk- um í Laugarnesskóla, og Jóhönnu Antonsdóttur, sem kennir 7. bekk í Foldaskóla. „Þegar okkur finnst gaman, þá hlýtur það að smita út frá sér til nemendanna,“ sagði skólar/námskeið handavinna skjalastjórnun myndmennt ■ Ódýr saumanámskeið Samvinna við Burda. Sparið og saumið fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður kennari. Sigríður Pétursd., s. 5517356. tölvur ■ Tölvunámskeið Starfsmenntun: - 64 klst tölvunám - 84 klst. bókhaldstækni Stutt námskeið: - PC grunnnámskeið - Windows 3.1 og Windows 95 - Word grunnur og framhald - WordPerfect fyrir Windows - Excel grunnur og framhald - Access grunnur - PowerPoint - Paradox fyrir Windows - PageMaker fyrir Windows - Internet námskeið - Tölvubókhald - Novell námskeið fyrir netstjóra - Bamanám - Unglinganám í Windows - Unglinganám í Visual Basic - Windows forritun Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar kennslubækur fylgja öllum námskeiðum. Upplýsingar og skráning í síma 561 6699. Tolvuskóli ReykiavíKur Borgartúni 28, sími 561 6699. tónlist ■ Pianókennsla Einkakennsla á píanó og í tónfræði. Upplýsingar og innritun í s. 553 1507. Anna Ingólfsdóttir. ■ Inngangur að skjalastjórnun Námskeið, haldið 26. og 27. febrúar (mánud. og þriðjud.). Gjald kr. 11.000. Bókin „Skjalastjórnun" innifalin. Skráning hjá Skipulag og skjöl í sima 564-4688, fax 564-4689. ýmislegt ■ Tréskurðarnámskeið Fáein páss laus í mars og apríl. Hannes Flosason, s. 554 0123. 5571156 ■ Opið hús laugard. 24. febrúar kl. 13-17. Pýska fyrir ferðaþjónustu Þýs I: Þri./fim, kl. 18.30 og þýs. ferða.: mán./mið. kl. 20. Ens, spæ, stæ, ísi, ICELANDIC. Námsaðstoð fyrir samræmd próf og framh. Opið hús laugard. 24. febrúar. Kaffi og meðlæti - happdrætti. ■ Barnfóstru- námskeið 1996 1. 6., 7., 11. og 12 mars 2. 13., 14., 18. og 19. mars. 3. 20., 21., 25. og 26 mars. 4. 10., 11., 15. og 16. apríl. 5. 17., 18., 22. og 23. aprfl. 6. 6., 7., 8. og 9. maí. 7. 29. og 30. maí, 3. og 4. júní. 8. 5., 6., 10. og 11. júní. Kennsluefni: Umönnun ungbarna og skyndihjálp. Upplýsingar/skráning: Sími 568 8188 kl.8-16. Reykjavíkurdeifd RKÍ. Gerðuberg 1,3 hfcð ■ Bréfaskólanámskeið f myndmennt Á nýársðnn, janúar-maí, eru kennd eftir- farandi námskeið: Grunnteikning. Líkamsteikning. Lita- raeðferð. Listmálun með myndbandi. Skrautskrift. Innanhússarkitektúr. Híbýlafræði. Teikning og föndur fyrir börn. Fáðu sent kynningarrit skólans með því að hringja eða senda okkur línu. Sími 562 7644, pósthólf 1464, 121 Reykjavík. http://www.mmedia.is/handment/ nudd ■ Konur - konur - Menn Hin vinsælu Venusarkvöld hefjast á ný fimmtudaginn 29. febrúar. Kvenna- og blandaður hópur. Kennsla í sjálfs- nuddi, handa-, höfuð-, axla- og punkta- nuddi. Sjálfsstyrking, tjáning og sjálfs- ögun. Innri-, hugar- og innsæisæfingar. Slökun og hugleiðsla. Leiðbeinendur Þórgunna Þórarinsdóttir, svæóa- og nuddfræðingur, og Inga Bjamason, leikstjóri. Upplýsingar og innritun fyrir 26. febrúar á Heilsusetri Þórgunnu, Skúlagötu 26, sfmi 562-4745 og hjá Ingu milli kl. 17 og 19 í síma 552-3132. Morgunblaðið/Ásdís SPOSKIR á svip fylgjast þeir Baldur Hafstað dósent (t.v.) og Þórður Helgason lektor með nemendum sínum. Jóhanna. Þóra kveðst hafa lesið Gunnlaugs sögu Ormstungu fyrir nemendur sína, því hún var ein af þeim sögum sem lesnar vom á námskeiðinu. „Þeir fussuðu í fyrstu en síðan fannst flestum sagan skemmtileg. Mér hefði aldrei dottið í hug að lesa fornsögur fyrir nem- endur nema af því að ég fékk hér innblástur," sagði hún. Jóhanna segir að ekki sé spurn- ing að kennarar hafi gott af því að sækja námskeið. „Því lengur sem maður hefur kennt því meiri er þörfin. Við fengum svolítið spark frá stjórnendum námskeiðs- ins og það er af hinu góða,“ sagði hún. Þær segjast hafa lært að oft sé betra að endur- segja sögur í stað þess að lesa þær upp. Einnig að árangursríkt sé að ræða um efni sögunnar við nemendur, koma með reynslu- sögur úr eigin lífi og fá fram um- ræður í stað þess að láta nemend- ur fá verkefni til að vinna úr. „Mér finnst kennslan markvissari nú en áður,“ sagði Jóhanna. Hún tók einnig fram að á námskeiðinu hefðu allir átt að segja frá atburð- um og það hefði reynst mörgum býsna erfitt. „Okkur var bent á að á undanförnum árum hefði ver- ið of mikið lagt í ritgerðaruppbygg- ingu en of lítið í frásögnina. Eg held að þetta sé alveg rétt.“ Þá vom þær hrifnar af því hvað Þórður og Baldur höfðu einstakt lag á að draga fram skemmtileg og ljóðræn atriði í sögum. Samt var ekki laust við að ljóðaþátturinn stæði upp úr hjá báðum. Þóra tók fram að þó að hún hafi alltaf látið nemendur semja sögur og ljóð kunni hún ekkert fyrir sér í ljóða- gerð. Nú sé hún heldur ömggari. „Ég hef líka velt því fyrir mér hvort það borgi sig að leggja svo mikla áherslu á utanbók- anærdóm. Sjálf fékk ég ofnæmi fyrir ljóðum í skóla því allt gekk út á að læra utan að. Nú geri ég mun meira af því að lesa ljóð fyrir nemendur mína, auk þess að láta þá finna ljóðstaff, rím, kanna form ljóðanna og innihald." „Ég hlakka sérstaklega til að fara í ljóðagerðina," sagði Jó- hanna. „Það er ótrúlegt hvað nem- endur geta samið af vísum. Ég er með nokkra, sem ég hef trú á að verði ljóðskáld.“ Gott að fá fram umræð- ur og segja reynslusögur Reykvískir skólastj órnendur Krafa um námsráð- gjafa í grunnskóla FUNDUR reykvískra skólastjórn- enda hefur sent Sigrúnu Magnús- dóttur formanni Skólamálaráðs ályktun, þar sem því er beint til Skólamálaráðs Reykjavíkur að við samningagerð um yfírtöku grunn- skólans verði gerð sú skýlausa krafa á hendur ríkinu að námsráð- gjafar verði ætlaðir til formlegra starfa við grunnskólana. í ályktuninni segir m.a.: „Fjöldi þeirra [námsráðgjafa] verði við. það miðaður að einn ráðgjafí verði á hverja 500 nemendur. Nái þessi krafa ekki fram skora skólastjórn- endur á Skólamálaráð Reykjavíkur að beita sér fyrir því að Reykjavík- urborg efli til muna þátt námsráð- gjafar við gmnnskólana frá og með hausti komanda.“ Ályktunin var samþykkt með samhljóða atkvæðum allra fundar- manna, sem voru um 60 talsins, bæði skólastjórar og aðstoðar- skólastjórar. Fundurinn var hald- inn á Nesjavöllum 8. febrúar sl. Til hans hafði verið boðað af Skólamálaráði og Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur í því skyni að kynna skólastjórnendum vinnu- brögð varðandi flutning grunn- skólans frá ríki til sveitarfélaga. Ragnar Gíslason formaður reykvískra skólastjórnenda segir að forsendur fyrir kröfum um námsráðgjafa séu tilkomnar vegna breytts skóla. „Félagslegi þáttur- inn og ráðgjöf við nemendur er sívaxandi í starfi kennara og stjórnenda. Námsráðgjafar hafa menntun til að sinna þessum mál- um sérstaklega,“ sagði hann. Nýjar námsbækur • ÚT ER komið frá Námsgagna- stofnun nýtt námsefni í móður- máli. • Skinna eftir Gísla Ás- geirsson og Þórð Helgason með myndum eftir Halldór Baldurs- son, Freydísi Kristjánsdóttur o.fl. er grunnnámsefni í móður- máli, ætlað 9-10 ára. Bókin hefur að geyma talsvert af stuttum bókmenntatextum, en auk þess er töluðu máli og tjáningu gerð sérstök skil og teflt er fram leikj- um sem eiga við efnið. Verkefna- hefti fylgir bókinni en síðara heftið kemur út á þessu ári. í þeim eru mál- fræði- og les- skilnings- verkefni ásamt leikjum og krossgát- um. Bókin er 142 bls. að stærð, en verkefnabókin 48 bls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.