Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
IVIIIMNIIMGAR
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 35
KRISTBERGUR
GUÐJÓNSSON
+ Kristbergur
Guðjónsson,
flugumsjónarmað-
ur, fæddist á
Laugavegi 99a (síð-
ar Snorrabraut 33)
í Reykjavík 6. jan-
úar 1925. Hann lést
á sjúkrahúsinu Sól-
vangi í Hafnarfirði
9. febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðjón Ólafur
Jónsson f. 19.12.
1890, trésmiður í
Reykjavík, d. 22.8.
1978, en foreldrar
Guðjóns bjuggu í Þjkkvabæ og
síðar á bænum LJtgðrðum á
Stokkseyri. Kona hans var Guð-
rún Jónsdóttir, f. 14.3.1893, frá
Melum á Kjalarnesi, d. 21.6.
1986, en hún var alin upp hjá
móðursystur sinni að Möðru-
völlum í Kjós. Kristbergur var
fimmti í hópi sex systkina. Þau
voru: Guðfinna, f. 26.9. 1915,
húsmóðir, gift Karli Jónssyni,
járnsmið, í Reykjavík; Róbert
en hann dó sem kornabarn;
Guðmundur, f. 3.3. 1922, hús-
gagnasmiður og söngvari en
starfaði lengi sem sviðsstjóri
hjá Sjónvarpinu, kona hans er
Kristín Bjarnadóttir, húsmóðir,
þau búa í Reykjavík; Markús
Hörður, f. 29.8. 1923, járnsmið-
ur, d. 18.3. 1980, giftur Sigur-
ínu Friðriksdóttur, húsmóður í
Reykjavík; og Ásta Hulda, f.
1.3. 1929, húsmóðir, d. 9.6.
1988, gift Birni Guðmundssyni,
iðnrekanda, þau bjuggu í Kópa-
vogi en Björn býr nú í Reykja-
vík.
Árið 1951 giftist Kristbergur
Valgerði Ármannsdóttur, f.
2.11. 1927, í Reykjavík en þau
hjón fluttust til Keflavíkurflug-
vallar og bjuggu þar lengst af
að Grænási 2 en fluttu siðan
1978 að Móavegi 9 í Njarðvík
þar sem þau hafa búið síðan.
Börn þeirra hjóna eru: 1) Krist-
berg, f. 3.3. 1952, matvælaverk-
fræðingur, dósent við Háskóla
íslands. Kona hans
er Guðrún Mar-
teinsdóttir, fiskvist-
fræðingur á Haf-
rannsóknastof nun,
þau eiga eina dótt-
ur, Hlín og eru þau
búsett í Reykjavík.
2) Guðjón Ólafur,
f. 13.4. 1953, fram-
kvæmdastjóri All-
ianz á íslandi. Kona
hans er Berglind
Friðþjófsdóttir,
húsmóðir, og eiga
þau fjögur börn,
Friðsemd Dröfn,
Kristberg, _ Lindu Dögg og
Ragnheiði Ósk. Þau eru búsett
í Hafnarfirði. Guðjón á eina
dóttur fyrir hjónaband, Val-
gerði sem býr í Bandaríkjunum.
3) Ásta, f. 4.11. 1954, arkitekt,
hún var gift Níelsi Ólafssyni,
tæknifræðingi, en þau skildu.
Þau eiga tvo syni, Hafþór og
Tryggva. Ásta er búsett í
Reykjavík.
Kristbergur lærði til klæð-
skera hjá Andrési og lauk
sveinsprófi 1946 en árið 1947
hóf hann störf á Keflavíkur-
flugvelli, fyrst hjá Lockheed
og BOAC. Hann hóf síðan störf
hjá flugmálastjórn og var
stöðvarstjóri flugafgreiðslunn-
ar í 12 ár eða þar til Loftleiðir
tóku við starfseminni af ríkinu.
Árið 1962 fór Kristbergur til
Bandaríkjanna á vegum flug-
málastjórnar og lærði flugum-
sjón og hóf síðan störf þjá Loft-
Ieiðum 1963 sem deildarstjóri í
flugumsjón þar sem hann starf-
aði síðan, síðast hjá Flugleiðum.
Kristbergur átti einnig herra-
fataverslunina Herradeildina,
sem hann rak ásamt fjölskyldu
sinni um árabil í Keflavík. Árið
1989 veiktist Kristbergur
skyndilega en síðan hefur hann
átt við vanheilsu að stríða.
Utför Kristbergs verður
gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Elsku afi, við viljum þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar. Sér-
staklega þá allar skíðaferðirnar,
hvort sem það vorum við öll eða
bara við og þið amma. Eins voru
stundirnar í Vík, þegar þið komuð
í heimsókn til okkar, allar mjög
góðar. Þú varst búinn að vera mjög
veikur í nokkur ár þannig að við
gátum ekki lengur farið á skíði,
en það var samt alltaf svo gott að
koma til ykkar ömmu í 'Njarðvík-
ina.
Nú er komið að kveðjustund.
Líði þér alltaf sem best, elsku afi.
Ragnheiður Ósk og Linda biðja
fyrir kveðju. Takk fyrir allt, elsku
afi.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(H. Pétursson.)
Þín barnabörn,
Friðsemd og Kristbergur.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast elskulegs mágs míns
og vinar sem nú hefur lokið göngu
sinni hér á jörð eftir erfið veik-
indi. Efst í huga er þakklæti fyrir
samfylgdina og fyrir allt það sem
hann gerði fyrir mig í æsku. Krist-
bergur eða Kris eins og hann var
jafnan nefndur í minni fjölskyldu
var heimsmaðurinn í minni
bernsku. Hann átti einkennisbún-
ing og vann úti á Keflavíkurflug-
velli, sem voru útlönd í huga lítils
drengs í Reykjavík. Það voru
ógleymanlegir hátíðisdagar þegar
ég fékk að fara og vera nokkrum
sinnum yfir helgar hjá þeim Vall-
ýju og Kris út í SP2 sem var nafn-
ið á íbúðarhúsum þeim, sem ís-
lenskir starfsmenn hjá flugmála-
stjórn bjuggu í á árunum upp úr
1950. Kris fór með okkur að veiða
kola og^ifsa í Njarðvíkurhöfn, spil-
aði við mig hornskák og myllu
langt fram yfir háttatíma. Áuk
þess kenndi hann mér fyrstu takta
við að spila á píanó og leiddi mig
inn í veröld Schuberts með því að
kenna mér hina yndislegu Seren-
öðu hans svo eitthvað sé nefnt.
Svo fékk maður amerískar smá-
kökur sem Vallý bakaði, sem voru
það besta sem ég hafði smakkað
og veröldin hafði stækkað að mun
í lífsreynslunni.
Þau fóru ung saman til Parísar
og kveiktu áhuga minn á þeirri
borg, sem hefur viðhaldist síðan
og Kris bar alltaf mikla virðingu
fyrir því sem franskt var. Átti
hann m.a. um árabil afar vandaðan
franskan bíl, sem við kölluðum allt-
af fransa og var hann m.a. með
ekta leðursætum og fínni en aðrir
bílar, sem ég þekkti ungur. Mest
lá leið þeirra þó sennilega til
Bandaríkjanna, enda stutt að
skreppa yfir hafið frá Keflavík.
Mun það örugglega hafa átt stóran
þátt í að elsti sonur þeirra, nafni
föður síns, valdi sér það land til
framhaldsnáms í matvælafræði.
Kristbergur var einn af frum-
kvöðlum íslenskra flugmála og má
segja að nær allur hans starfsdag-
ur hafi legið á sviði flugafgreiðslu
og flugumsjónar. Hann hóf störf á
Keflavíkurflugvelli 1947 hjá
bandarískum fyrirtækjum, sem í
upphafi sáu um flugafgreiðslu þar.
Síðan þegar íslenska flugmála-
stjórnin yflrtók þessa þjónustu
fékk Agnar Kofoed Hansen Krist-
berg aftur 1948 og varð hann einn
af stöðvarstjórum flugafgreiðsl-
unnar. Þegar síðan Flugleiðir yfir-
tóku flugumsjón á Vellinum var
Kristbergur í hópi fyrstu íslend-
inga, sem lærðu það starf úti í
Bandaríkjunum og yfirtóku þeir
það síðan af Bandaríkjamönnum
og starfaði hann þar síðan öll þau
ár, sem hann naut starfsorku.
Hann var einnig lærður klæð-
skeri og ráku þau Vallý herrafata-
verslun um nokkurra ára skeið í
Keflavík. Man ég hvað honum var
annt um að bjóða aðeins það besta
í verslun sinni og kom þar glöggt
fram hve Kristbergur var alla tíð
mikill smekkmaður. Var hann mín
fyrirmynd um hvernig maður ætti
að vera vel klæddur. Kristbergur
hafði verið í sýningarflokki fim-
leikamanna á yngri árum og mót-
aði það örugglega framkomu hans
og lýsti sér í því hve vel hann bar
sig alla tíð. Hann var einnig afar
músíkalskur og góður söngmaður
eins og bróðir hans Guðmundur,
sem er einn af ástkærustu
söngvurum þjóðarinnar. Þessum
hæfileikum sínum flíkaði hann þó
aldrei. Hjónaband Vallýjar og Kris
var á þann veg að þau hafa verið
óaðskiljanleg í huga okkar, sem
eitt. Sá sem öllu ræður færði þau
saman ung og hafa þau síðan deilt
lífinu saman. Þau hafa búið nær
alla tíð annað hvort á Keflavíkur-
velli eða mörg seinni árin að Móa-
vegi 9 í Ytri-Njarðvík þar sem þau
byggðu sér fallegt einbýlishús.
Vallý hefur háð hetjulega bar-
áttu án þess að kikna í erfiðum
sjúkdómi Kristbergs undanfarin ár
og á hún óskipta virðingu okkar
allra.
Að leiðarlokum, elsku Kris,
fylgja þér bestu óskir og þakklæti
fyrir að hafa fengið að kynnast
þér öll þessi ár, far þú í friði.
Ármann Örn Ármannsson.
í dag kveðjum við góðan félaga
og vin, Kristberg Guðjónsson. Árið
1966 gerðist hann Lionsfélagi. Það
kom fljótt í ljós að hann var ákaf-
lega starfsfús, reiðubúinn að fylgja
eftir öllum góðum málum hvort
sem hann starfaði í stjórn, nefnd-
um eða hann ynni að fjáröflun.
Starf hans var flugumsjón á Kefla-
víkurflugvelli, þar naut hann mik-
ils álits meðal starfsmanna, þó
sérstaklega þeirra flugmanna sem
nutu leiðsagnar hans fyrir væntan-
legar ferðir sínar til annarra landa.
Kristbergur var ferðavanur og vel
kunnur öllum flughöfnum í nálæg-
um löndum vegna tíðra ferða í
starfi sínu. Það var athyglisvert
að hlusta á þau hollu ráð, sem
hann gaf viðmælendum sínum, og
finna það traust sem hann naut í
starfi sínu. I Lions eru mér minnis-
stæðastar fyrirspumir frá erlend-
um klúbbum um land og þjóð, lax-
veiðar, golf o.fl. Kristbergur svar-
aði slíkum fyrirspurnum svo mynd-
rænt og á þann hátt að vakti hrifn-
ingu á viðkomandi stöðum, fékk
klúbburinn okkar mikið hrós fyrir
þá landkynningu. Það er mikil
gæfa að fá að kynnast og starfa
með slíkum félaga. Kristbergur var
gerður að ævifélaga árið 1989.
Síðustu ár þurfti hann að beijast
við sjúkdóm og gat því ekki starf-
að, en við félagarnir fundum að
hann fylgdist ætíð með starfinu
og því sem var að gerast í klúbbn-
um. Fyrir allt sem hann vann Li-
onsklúbbi Njarðvíkur viljum við
þakka af heilum hug. Lionsfélagar
votta eiginkonu hans, börnum og
aðstandendum dýpstu samúð.
Fyrir hönd Lionsklúbbs Njarð-
víkur,
Áki Granz.
SIGURJÓN
INGVARSSON
+ Siguijón Ing-
varsson skip-
stjóri var fæddur á
Ekru í Norðfirði
30. nóvember 1909.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 13.
febrúar sl. Foreld-
ar hans voru Ing-
var Pálmarsson út-
vegsbóndi og al-
þingismaður og
kona hans Margrét
Finnsdóttir á Ekru.
Eignuðust þau níu
börn og eru nú þrjú
þeirra á lífi. Sigurjón stundaði
sjómennsku frá 15 ára aldri og
allt til ársins 1965 á ýmsum
fiskiskipum og togurum. Síðari
starfsár vann hann á netaverk-
stæði. Hann stundaði nám i
unglingaskóla á Norðfirði, hið
minna fiskimannapróf tók hann
í Stýrimannaskólanum 1941.
Sigldi til Bretlands öll heims-
styrjaldarárin síðari. Sat í bæj-
arsljóm Neskaupstaðar 12 ár
sem aðalmaður og átta ár sem
varamaður.
Siguijón kvæntist 4. nóvem-
ber 1934 Jóhönnu Sigfinnsdótt-
ur, f. 16. febrúar 1916, d. 19.
mars 1993. Þeirra börn: 1) Sig-
urborg, f. 5. nóvember 1933,
d. 28. janúar 1986, giftist Sig-
hvati Karlssyni. Eignuðust þau
tvo syni. Seinni mað-
ur: Ragnar Ingólfs-
son. 2) Margrét, f.
7. mars 1937, gift
Jóni Elíasi Lund-
berg, þau búa í Nes-
kaupstað og eiga
fjögur börn. 3) Jó-
hann, f. 9. febrúar
1942, kvæntur Val-
gerði Árdísi Frankl-
ín, þau eru búsett á
Akureyri og eiga
þijú börn. 4) Ingvar,
f. 25. júní 1956, d.
28. febrúar 1960. 5)
Sigþór, f. 20. júlí
1947, kvæntur Sigrúnu Guð-
mundsdóttur og búa þau á Sel-
tjarnarnesi og eiga þijú börn.
6) Benedikt, f. 14. mars 1949,
kvæntur Jónu Katrínu Aradótt-
ur, þau eru búsett í Neskaup-
stað og eiga þijá syni. 7) Frið-
rik Pétur, f. 5. júlí 1955, kvænt-
ur Taínu Liisu Otsamó, þau eru
búsett í Finnlandi og eiga tvær
dætur. 8) Hjálmar, f. 5. júlí
1956, kvæntur Wendelin Suur-
ing, þau em búsett í Hollandi
og eiga eina dóttur. 9) Anna
Margrét, f. 21. júní 1958, gift
Ove Bolow Nielsen, þau eru
búsett í Danmörku og eiga tvær
dætur.
Útför Siguijóns fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 14.
ELSKU afí minn, nú hefur þú kvatt
þetta líf eftir langa ævi og hitt
ömmu, sem þú saknaðir svo sárt.
Ég minnist þeirra stunda þegar
ég kom til þin, þar sem þú sast við
eldhúsborðið með spilastokkinn og
lagðir kapalinn þinn. Það var alltaf
svo gott að koma í heimsókn og
hlusta á þig fara með vísur, hveija
á fætur annarri.
En með þessari vísu, sem þú fórst
oft með fyrir mig, vil ég kveðja þig
elsku afí minn.
Fagra mey úr söltum sjó
Siguijón við bryggju dró
hlut af afla hirti ei þó,
heiðurinn var meira en nóg.
(Einar Sveinn Frímann.)
Hanna Ýr.
Seglin blunda björt við rána,
blessuð aldan sefur rótt,
ganga á sjónum geislar mána.
Guð minn, þetta er fógur nótt.
Aldan ruggar Ránar-dýri,
raunum mínum gleymi ég,
glaður vík frá stjóm og stýri,
strengi hjartans boga dreg.
Stjömurnar á himnum heiða
hafa skæran vonarlit.
Kveð ég burtu kviða og leiða,
kveð þig til mín, þar ég sit.
(Páll Ólafsson.)
Elsku afi, guð geymi þig.
Barnabörn.
A TILBOÐI
10-30% afsláttur
ef pantað er
í febrúar.
15% afsláttur
af skrauti.
Graníl
HELLUHRAUN 14 mna
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707