Morgunblaðið - 20.02.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 41
Heimsmeistarinn sterk-
ur á lokasprettinum
SKÁK
Fíladcl fíu
KASPAROV-TÖLVAN
„DIMMBLÁ“
SKÁKEINVIGI Kasparovs og IBM-
ofurtölvunnar, Deep blue, sem á
íslensku hefur hlotið nafnið Dimm-
blá, lauk í Fíladelfíu í Bandarikjun-
um s.l. laugardag með sigri heims-
meistarans, 4-2. Kasparov gekk
ekki vel framan af einvíginu, en
vann tvær síðustu skákimar og
tryggði sér þar með væna verð-
launaíjárhæð, er nam jafnvirði 25
milljóna íslenskra króna.
SIGUR tölvunnar í fyrstu skák-
inni og staðan eftir fjórar skákir,
2-2, kom flatt upp á marga. Tvær
síðustu skákirnar sýndu þó vel,
að maðurinn hefur enn yfirburði
í viðureign við vélina. Það þarf
meira til að tefla vel en gott minni,
reikningshæfíleika og sterkar
taugar. Skilning heimsmeistarans
á grundvallarlögmálum stöðu-
byggingar og innsæi hans réð
tölvan ekki við, og að auki hefur
hæfileiki mannsins til að læra á
vélina haft sitt að segja. Niður-
staðan verður samt sú, að ofurtöl-
van stóð í heimsmeistaranum, og
styrkur hennar við skákborðið er
orðinn ótrúlega mikill.
Við skulum nú sjá tvær síðustu
skákirnar í einvíginu, þá síðustu
með skýringum.
5. skákin:
Hvítt: Dimmblá
Svart: Kasparov
l.e4—e5 2.Rf3-Rf6 3.Rc3-Rc6
4.d4—exd4
6.Rxc6—bxc6
8.exd5—cxd5
10.Bg5—c6
12.Hael—He8
14.Bf4—Bd6
16.Dg3—Bxf4
18.c4—Bd7
20.Hxe8-i—Hxe8
22.Bxe4—dxe4
24.Dc3 —f5
26.De3—Bf7
28.Hd2—Df6
30.a3—Kh7
5.Rxd4—Bb4
7.Bd3-d5
9.0-0—0-0
ll.Df3—Be7
13.Re2-h6
15.Rd4—Bg4
17.Dxf4—Db6
19.cxd5—cxd5
21.Dd2—Re4
23.b3—Hd8
25.Hdl—Be6
27.Dc3-f4
29.g3—Hd5
31.Kg2—De5
32.f3-e3 33.Hd3-e2 34.gxf4-
elD 35.fxe5—Dxc3 36.Hxc3—
Hxd4 37.b4—Bc4 38.Kf2-g5
39.He3—Be6 40.Hc3-Bc4
41.He3—Hd2+ 42.Kel-Hd3
43.Kf2—Kg6 44.Hxd3—Bxd3
45.Ke3—Bc2 46.Kd4-Kf5
47.Kd5—h5 og hvítur gafst upp.
6.. skákin:
Hvítt: Kasparov
Svart: Dimmblá
Slavnesk vörn
l.Rf3-d5 2.c4—c6 3.d4-e6
4.Rbd2—
Venjulega er leikið hér 4.Rc3—
Rf6 5.Bg5, og eftir 5.—dxc4
6.e4-b5!? 7.e5-h6 8.Bh4-g5
9.Rxg5!?—hxg5 lO.Bxgö kemur
upp geysiflókið afbrigði, sem
Kasparov hefur oft teflt með góð-
um árangri með hvítu mönnunum.
4. —Rf6 5.e3—c5
I fjórðu einvígisskákinni varð
framhaldið 5. —Rbd7 6.Bd3—
Bd6 7.e4—dxe4 o.s.frv.
6.b3—
Önnur leið er hér 6.Be2—Rc6 7.0-
0—cxd4 8.exd4—Be7 9.a3—0-0
10.c5—Re4 ll.Dc2—Bf6 12.Hdl,
og eftir 12. —Rxd4!? 13.Rxd4—
Rxf2!? 14.R2Í3—Rxdl lö.Dxdl-
e5 16.Rc2—e4 var samið jafntefli
í skákinni Keres-Nei, Tallin 1973.
6,- Rc6 7.Bb2—cxd4 8.exd4-
Be7 9.Hcl—
í skákinni Pachman-Botwinnik,
ólympíuskákmótinu í Munchen
1958, varð framhaldið 9.Bd3—
dxc4 10.bxc4—Rxd4!? ll.Rxd4—
e5 12.Da4+-Bd7 13.Rb5-a6
14.Db3—axb5 15.cxb5-0-0 16.0-
0—Be6 17.Dc2—Hc8 18.Dbl-
Dd7 og skákinni lauk með jafn-
tefli í 29 leikjum.
9. -0-0
Svartur hefði getað reynt 9. —
Re4 10.Bd3-f5 o.s.frv.
10. Bd3—Bd7
Ef svartur notar aðferð Botvinn-
iks í fyrrnefndri skák, vinnur hvít-
ur peð eftir 10. •—dxc4 ll.bxc4—
Rxd4 12.Bxd4-e5 13.Bxh7+-
Kxh7 14.Dc2+-Kg8 15.Bxe5
o.s.frv.
11.0-0—Rh5
Taflmennska tölvunnar verður nú
ráðleysisleg. Eðlilegt hefði verið
að leika 11. —Rb4 12.Bbl—a5
13. a3—Rc6 14.Re5—Be8 ásamt
—b6 við tækifæri.
12.Hel—Rf4 13.Bbl—Bd6
14. g3-Rg6 15.Re5—Hc8
16.Rxd7—Dxd7 17.Rf3 Bb4?
18.He3—Hfd8?! I9.h4-Rge7?!
20.a3—Ba5 21.b4-Bc7 22.c5-
He8
Vélin hefur teflt án góðrar áætl-
unar frá 11. leik, og er nú komin
í ógöngur.
23.Dd3 g6—24.He2—Rf5
25.Bc3-h5 26.b5—Rce7
Gari Kasparov, heimsmeistari í skák, í þungum þönkum í sjöttu
einvígisskákinni.
27.Bd2—Kg7 28.a4-Ha8?
29.a5-a6? 30.b6 Bb8?
Svarti biskupinn á b8 kemst ekki
í spilið aftur, nema með manns-
fórnum, og í leiðinni lokast hrók-
urinn á a8 úti! Svartur varð að
reyna 30. Bd8 ásamt —Bf6
síðar.
31.Bc2—Rc6 32.Ba4—He7
33. Bc3—Re5
Brella, sem gerir illt verra, því
að nú kemst hvíti biskupinn á c3
til f6 í valdi peðsins á e5.
34. dxe5—Dxa4 35.Rd4—Rxd4
36. Dxd4—Dd7
Eftir drottningakaup getur
svartur ekki komið í veg fyrir
37. c6 með auðunninni stöðu
fyrir hvítan.
37.Bd2—He8 38.Bg5-Hc8
39. Bf6+-Kh7 40.c6!
Hvítur neytir nú aflsmunar, því
að hrókurinn á a8 og biskupinn á
b8 geta engan þátt tekið í barátt-
unni.
40. —bxc6 41.Dc5—Kh6
42.Hb2—Db7
Eða 42. —Hg8 43.Dxc6—Dxc6
44.Hxc6—Kh7 45.f4—d4
46.KÍ2—Kh6 47.b7-Ha7
48.Hc8—Hxb7 47.Hxg8 Hxb2+
48.KÍ3 g5 49.hxg5+-Kh7
50.Hg7+—Kh8 51.Hxf7+-Kg8
52.g6-d3 53.Hh7-d2 54.Hh8+
mát.
43.Hb4 og svartur gafst upp í
stöðu, sem ekki þarf að hafa
mörg orð um. Svartur getur eng-
um manni leikið nema kóngnum.
Hvítur getur unnið á þann hátt,
sem hann kýs, t.d. getur hann
sótt með tveim hrókum og drottn-
ingu að svarta peðinu á c6, eða
stillt hrókum sínum upp á f4 og
f3 og leikið biskupnum frá f6.
a b c d e f g h
Bragi Kristjánsson.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Aðalfundarboð
Sjálfstæðisfélag Mosfellinga
helduraðalfundsinn
í Hlégarði fimmtu-
daginn 22. febrúar
nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
2. Róbert Agnars-
son, oddviti sjálf-
stæðismanna í
bæjarstjórn,
kynnir stöðuna í bæjarmálunum.
3. Gestur fundarins verður Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Mægum vel og stundvislega.
Stjórnin.
Stefnir í gjaldþrot
heilbrigðiskerfisins?
Hverervandinn?
Hverjir eru valkostirnir?
Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík - efnir til al-
menns fundar á Hótel Borg miðvikudaginn 21. febrúar nk. kl. 17.15.
Framsögumenn:
Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður, og Sturla Böðvarsson, alþing-
ismaður og varaformaður fjárveitinganefndar.
Fundarstjóri: Ásta Möller, form. heilbrigðisnefndarSjálfstæðisflokksins.
Allir velkomnir.
Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík.
• •
Oskudagur-
inn í Hafn-
arfirði
LIONSKLÚBBURINN Kaldá og
Æskulýðsráð Hafnarfjarðar verða
með öskudagsball í íþróttahúsinu
í Kaplakrika miðvikudaginn 21.
febrúar frá kl. 13-15.
Kl. 13 verður kötturinn sleginn
úr tunnunni og verða þijár tunn-
ur, ein fyrir 5 ára og yngri, ein
fyrir 6-9 ára og ein fyrir 10 ára
og eldri. Króna og Króna koma í
heimsókn og hljómsveit André
Bach- mann spilar og verður með
uppákomur. Lionsklúbburinn
Kaldá veitir verðlaun fyrir 6
skemmtilegustU búningana og
verður með sölu á kaffi, gosi og
sælgæti.
• •
Oskudagsball í
Gerðubergi
Á ÖSKUDAGINN verður hið ár-
lega grímuball fyrir börn í Gerðu-
bergi. Húsið opnar kl. 13 en dag-
skráin hefst um kl. 13.30.
Hljómsveitin Fjörkarlar leika.
Miðaverð er 200 kr. og frítt fyrir
fullorðna í fylgd með börnum.
Skemmtun
í Árseli á
öskudag
ÖSKUDAGSSKEMMTUN veður
haldin í félagsmiðstöðinni Árseli
á Öskudaginn.
Kötturinn verður sleginn úr
tunnunni, tunnukóngur krýndur,
verðlaun verða veitt fyrir frumleg-
ustu búningana, andlitsmálun,
leikir, dans og grín.
Skemmtanirnar verða sem hér
segir: 13-14.30 7 ára og yngri,
15-16.30 8 og 9 ára og 17-18.30
10-12 ára. 20-22 13-15 ára.
• •
Oskudagurinn
á Laugavegi
SÁ skemmtilegur siður hefúr við-
haldist undanfarin ár að krakkar
klædd grímubúningum arki upp
og niður Laugaveginn, líti inn í
verslanir, taki lagið fyrir verslun-
arfólk og fái í staðinn sælgæti
að launum.
Verslunarfólk á Laugaveginum
býður börnum velkomin í verslan-
ir sínar og býður upp á sælgæti
meðan birgðist endast eða a.m.k.
til kl. 12 á hádegi.
• •
Oskudags-
skemmtun í
Fjörgyn
SKÁTAFÉLAGIÐ Vogabúar
stendur fyrir Öskudagsskemmtun
miðvikudaginn 21. febrúar í Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn og er hún
fyrir alla krakka 12 ára og yngri
í Foldaskóla, Hamraskóla og
Húsaskóla.
Þtjár skemmtanir verða yfir
daginn. Kl. 13.30-15 fyrir 7 ára
og yngri, 15.30-17 fyrir 8-9 ára
og 17.30-19 fyrir 10-12 ára.
Aðgangseyrir er 150 krónur.
Kötturinn verður sleginn úr tunn-
unni 20 inínútum fyrir hveija
skemmtun og veitt verða verðlaun
fyrir 3 bestu grímubúningana á
hverri skemmtun.
Guðmundur Gíslason
sigraði í helgarmóti TR
TAFLFÉLAG Reykjavíkur gekkst
fyrir helgarhraðskákmóti um síð-
ustu helgi og mættu 34 keppendur
til leiks.
Guðmundur Gíslason vann ör-
uggan sigur, hlaut sex vinninga
af sjö mögulegum. Hann vann
fimm fyrstu skákirnar en gerði
síðan tvö jafntefli. í öðru til þriðja
sæti urðu þeir Sævar Bjarnason,
alþjóðegur meistari, og Hrannar
Baldursson. Þeir hlutu fimm og
hálfan vinning. Fjórða sætinu
deildu þeir Jón Árni Jónsson, Jam-
es Burden og Guðlaug Þorsteins-
dóttir með fimm vinninga. Góður
árangur Guðlaugar vakti mikla
athygli. Hún hefur afar lítið teflt
undanfarin ár þar sem hún hefur
starfað sem læknir í Svíþjóð.
Skákstjórn pnnuðust þau Ólafur
H. Ólafsson og Svava J. Sigberts-
dóttir.
Gengið með
ströndinni
á stórstreymi
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð frá
Bakkavör, húsi Slysavarnafé-
lagsins Álberts, Seltjarnarnesi,
þriðjudagskvöldið 20. febrúar.
Ströndinni verður fylgt á einu
mesta stórstreymi ársins. Gang-
an er við allra hæfi og þeir sem
vilja vera viðstaddir sjálft háflæð-
ið mæti kl. 19.30. Allir velkomnir.