Morgunblaðið - 20.02.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 47
I DAG
BRIDS
llmsjón (iuAmundur l'áli
Arnarsun
„SEX tíglar?!“
„Já, við skulum tala sem
minnst um það.“
„Vinnast þeir alltaf?"
„Það fer eftir því hversu
hratt er spilað."
Vestur hættu. gefur; AV á Norður ¥ Á102 ¥ ÁKD ♦ Á942 ♦ D62
Vestur Austur
♦ D97 ♦ KG8654
¥ 72 llllll V954
♦ D87 111111 ♦ G103
♦ K10983 ♦ 5
Suður
♦ 3
¥ G10863
♦ K65
♦ ÁG74
ÁRA afmæli. í dag,
þriðjudaginn 20.
febrúar, er sjötugur Viggó
M. Sigurðsson. Eiginkona
hans er Kolbrún Guð-
mundsdóttir. Þau verða að
heiman.
ÁRA afmæli. í dag,
þriðjudaginn 20. febr-
úar, er fimmtugur Guð-
mundur Kristjánsson,
hæstaréttarlögmaður,
Hofgörðum 21, Seltjam-
arnesi. Hann verður að
heiman í dag.
Aðalsveitakeppni Brids-
félags Reykjavíkur stendur
nú sem hæst. Spilaðir eru
tveir 16 spila leikir á kvöldi
og er sama gjöfin notuð í
öllum leikjum. Umsjónar-
maður leit yfir öxlina á liðs-
mönnum VÍB þar sem þeir
voru að bera saman eftir
fyrri umferð sl. miðviku-
dagskvöld. Og rak þá aug-
un í 920 fyrir sex tígla, slétt
unna. Þeir Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arn-
þórsson gáfu loðin svör í
fyrstu, en leystu loks frá
skjóðunni. Auðvitað kom
misskilningur við sögu:
Vestur Norður Austur Suður
Örn Guðlaugur
1 lauf * 2 spaðar 3 tíglar**
Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar
Pass 4 grönd Pass 5 lauf
Pass 5 hjörtu Pass . 6 tígiar
Pass Pass Pass
* Sterkt lauf.
** Meint sem yfirfærsla í lyarta,
en skilið sem tígull.
Guðlaugur leit á flóra
tígla Arnar sem eðlilega
tígulsögn og sagði sam-
kvæmt því, en Örn taldi sig
vera að styðja tígul Guð-
laugs.
Utspil vesturs var spaði.
Guðlaugur drap á ásinn og
trompaði spaða. Spilaði svo
hjarta á ás og trompaði
aftur spaða. Tók næst tígul-
kóng, fór inní borð á hjarta
og spilaði tígulás og meiri
tígli. Hjartað er stíflað,
þannig að sagnhafi þolir
ekki að austur lendi inni og
spili laufi. En vestur
gleymdi sér í hita leiksins,
lét lítinn tígul í ásinn og
lenti því inni á drottning-
una.
Farsi
HÖGNIHREKKVÍSI
Pennavinir
NORSK stúlká sem getur
ekki aldurs en er_ líklega
táningur, með íslands-
áhuga:
Astrid R. Storum,
Skanselien 33,
5018 Bergen,
Norway.
NÍTJÁN ára danskur pilt-
ur með áhuga á fótbolta,
hjólaferðum úti í náttúr-
unni, bréfskriftum og tón-
list. Er á lýðháskóla þar
sem tvær íslenskar sfúlkur
og einn piltur eru í námi:
Bo Christensen,
D.I.H. Nebbegárd,
Nebbegárdsd Allé 2-9,
DK-2970 Horsholm,
Denmark.
FIMMTÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á tónlist:
Chiharu Okazaki,
543-1 Higashisue,
Osafune-cho,
Oku-gun,
Okayama-ken,
Japan.
TVÍTUGUR líberískur
tölvufræðinemi með áhuga
á fótbolta, bókmenntum
og bröndurum:
Budu Killen,
Liberia Telecom-
munication Corporation,
P.O. Box 9039,
Monrovia,
Liberia.
TUTTUGU og fjögurra
ára Ghanastúlka með
áhuga á íþróttum, menn-
ingu, ferðalögum og sundi:
Dorotliy Dadson,
P.O. Box 1236,
Light House Lane,
Oguaa Town, C/R,
Ghana.
NÍTJÁN ára sænsk stúlka
með íslandsáhuga og seg-
ist langa til að prófa að
vinna í fiski hér á landi:
Caroline Böving,
Fastingsgatan 32,
68135 Kristinehamn,
Sweden.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á bréfa-
skriftum, bókmenntum,
tónlist o.fl.:
Asuka Sasaki,
142-11 Higashi-
hayak ita,
Hayakita-cho,
Yututsu-gun,
Hokkaido 059-15,
Japan.
SEX ára sænskur piltur
sem á heima skammt frá
Helsingjaborg, hefur mik-
inn áhuga á frímerkjum:
Linus Bárström,
V&stlyckegatan 11,
260 35 Ödákra,
Sweden.
Á alnetinu (Internet) barst
ósk frá manni sem heitir
Peter Nathan og vill hefja
„bréfasamband“ um tölvu-
póst. Getur hvorki aldurs
né áhugamála en netfang-
ið hans er: p—nathan-
(©ix.netcom.com
SAUTJÁN ára dönsk
stúlka sem nýkomin er til
landsins vill kynnast 17-18
ára stúlkum. Síminn hjá
hennir er 5883477 og
heimilisfangið:
Jeanette Kynde
Hestbech,
Háaleitisbraut 51,
4 li.v.,
108 Reykjavík.
eríisskólinn
Garðyrkj
Frlstundaskóli fyrir ahugafólk um blómaskreyt-
ingar, garóraskt, skógrækt, endurheimt og
varðveislu landgæða ásamt náttúruvernd.
Námskeið á vorönn
Trjáklippingar 10st.
Trjápiöntuuppeldi og skógrækt 10 st.
Garðskipulag 20 st.
Blómaskreytingar I & II
Kennari:
Steinn Kárason
Garðyrkjumeistari
Kvöldfyrirlestrar
Auk þess
Vettvangsferðir og sérsniðin
hagnýt námskeið og fyrir-
lestrar fyrir hópa og félög.
Kynningarfundur og skráning
fimmtudaginn 22. febrúar.
kl. 20.30 á Hallveigarstöðum
v/Túngötu, gengið inn frá
Öldugötu.
Garðskálaplöntur; klipping og
umhirða.
Vorverkin I garðinum.
Innritun og upplýsingar
í síma 552-6824.
Kennsla hefst þriðjudaginn
27. febrúar.
GA.RÐYRKJU
MEISTARINN
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ættir að slaka örlítið á í
dag og ef til vill skreppa í
hársnyrtingu eða líkams-
rækt. Kannaðu vel tilboð um
viðskipti.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Vertu ekki með ástæðu-
lausar efasemdir í garð ást-
vinar, og eyddu ekki pening-
ijm í óþarfa. Þú ættir að
heimsækja ættingja í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nærvera þín er vel þegin á
mannfundi í dag, en mundu
að gæta hófs í mat og drykk.
Þér er óhætt að treysta ráð-
um góðs vinar.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú fagnar því að eiga tíma
út af fyrir þig í dag vegna
breytinga í vinnunni. Láttu
skynsemina ráða ferðinni í
viðskiptum dagsins.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Þú hefur tilhneigingu til að
gleyma að hugsa um heils-
una, og ættir að reyna að
bæta þar úr, til dæmis með
því að stunda líkamsrækt.
Stjörnuspána á að lesa sem
ciægraclvöl. Spár a f þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísincialegra staðreynda.
Seljendur í Kolaportinu eru á öllum aldri
Kolaportið:
Kompuhátíð um helgina
Um helgina verður sérstök áhersla lögð á kompudót í
Kolaportinu og munu seljendur slíks varning fá sölubása með
miklum afslætti eða á aðeins 1800 krónur. Kompudót hefur
mikið aðdráttarafl fyrir gesti Kolaportsins og aldrei nóg af slíku.
'“Þetta er mikil synd” segir Guðmundur G. Kristinsson hjá
Kolaportinu, “því margítrekaðar kannanir okkar sýna að fólk
græðir yfirleitt tugi þúsunda á sölu gamals dóts sem ella lenti
bara á haugunum”.
Kolaportið hefur stofnað sér-
stakan kompuklúbb og er öllum
boðin ókeypis þátttaka. Tilgang-
urinn með kompuklúbbnum er að
benda áhugasömum aðilum á marg-
vísleg ráð til að ná hámarksárangri
í sölu á kompudóti í Kolaportinu og
er það gert með útgáfu frétta-bréfs
og námskeiðahaldi, en auk þess
býðst klúbbfélögum öðru hverju
sérstök tilboð á básaverði.
Þess má geta að um 1700 manns
seldu kompudót í Kolaportinu á
síðasta ári og hafa þeir fengið sent
fyrsta fréttabréf kompuklúbbsins.
Annað tölublað fréttabréfs klúbbs-
ins kemur út á næstu dögum og er
þeim sem hafa áhuga á að fá það
sent og gerast félagar í klúbbnum
bent á að hafa samband við skrif-
stofu Kolaportsins.
STJÖRNUSPÁ
Hrútur
(21. mars- 19. apríl) V*
Þótt eitthvað virðist valda
þér áhyggjum ættir þú ekki
að vera með ónot í garð
þeirra, sem vilja rétta þér
ivjálparhönd.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinur er ekki fyllilega hrein-
skilinn í dag. Varastu deilur
við ættingja, þær gera bara
illt verra. Gættu tungu þinnar.
Tvíburar
(2T. mal - 20. júní) 5»
Vinur hlustar ekki á þig og
neitar að fara að ráðum þín-
um. Einhver breyting getur
orðið á ferðaáformum þínum
vegna anna.
Krabbi
(21.júnf - 22. júlí)
Heimilið er að taka stakka-
skiptum, svo er góðri sam-
vinnu fjölskyldunnar fyrir að
þakka. Hlustaðu á góð ráð
starfsfélaga.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúat) <et
Þú hefur heppnina með þér,
og góðar hugmyndir bæta
stöðu þína í vinnunni. Hrein-
skilni er það eina rétta í sam-
skiptum ástvina.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Ef ágreiningur kemur upp
milli ástvina í dag, tekst þér
að leysa málið ef þú leggur
þig fram. Gerðu ekki úlfalda
úr mýflugu.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú ert undir miklum þrýst-
ingi í vinnunni, og kemur ef
til vill meiru í verk ef þú vinn-
ur heima. Fjölskyldan stend-
ur með þér.
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú vinnur vel með
öðrum oghefurgott
vit á fjármálum.
UTSALA -
ÚLPUR —
ÚTSALA
ÚLPUR
5-50%
afsláttur
Bílastæði við búðarvegginn
Erum flutt af Laugavegi
í Mörkina 6 - sími 588 5518
(við hliðina á Teppalandi).
Síðustu dagar!
Enn meiri verðlækkun.
s
Ulpur og ullarjakkai'
á sértilboði!
Stærðir 46-52.
Opið lau. 10-16.
\o^Hl/l5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518