Morgunblaðið - 23.02.1996, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEIIMN GUÐMUNDSSON,
Æsufelli 2,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
22. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fjóla Steinþórsdóttir,
Ragnar Þorsteinsson, Þóra Vignisdóttir,
Hulda Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Grímsson
og barnabörn.
t
Ástkær móðir mín og fósturmóðir,
ÞÓRHILDUR MARGRÉT VALTÝSDÓTTIR
frá Seli,
Austur-Landeyjum,
til heimilis
i Ljósheimum 11,
verður jarðsungin frá Voðmúlastaðakapellu laugardaginn
24. febrúar kl. 14.00.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.30 sama dag.
Valtýr Sigurðsson,
Sverrir Kristjánsson.
+
Hjartkær eiginmaður minn,
TORFI SIGURJÓNSSON,
Miðhúsum,
Garði,
verður jarðsunginn frá Útskálakirkju í
Garði laugardaginn 24. febrúar kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er
bent á Sjúkrahús Suðurnesja.
Margrét Sæmundsdóttir,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Móðurbróðir minn,
SIGURÐUR ÁSGEIRSSON
frá Eiði
í Hestfirði,
sem lést 17. febrúar, verður jarðsung-
inn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn
24. febrúar kl. 14.00.
Högni Sturluson
og vandamenn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma,
KRISTJANA JÓHANNA EINARSDÓTTIR,
sem lést á dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, miðvikudaginn
14. febrúar sl., verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardag-
inn 24. febrúar kl. 14.00.
Árni Gestsson,
Sæmundur Jónsson,
Margrét Gestsdóttir, Eyvindur Árnason,
Trausti Gestsson, Ásdi's Ólafsdóttir,
Matthildur Gestsdóttir, Björgvin Kristjánsson,
Lísebet Gestsdóttir, Jón Vilhjálmsson,
Einar Gestsson, Margrét Friðriksdóttir,
Haukur Sigurðsson, Jónína Kristjánsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR,
Suðurgötu 32,
Keflavfk.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun.
Högni Oddsson,
Örn Högnason, Sesselja Jóhannsdóttir,
Már Grétar Arnarson,
Vilhelmína Oddný Arnardóttir,
Örn Haukur Arnarson,
Högni Arnarson, Dagrún Jónsdóttir.
KARL
MAGNÚSSON
+ Karl Magnússon
fæddist í Svefn-
eyjum á Breiðafirði
6. apríl 1913. Hann
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 16. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Hallgerður
Grímsdóttir og
Magnús Magnússon
í Flatey á Breið-
firði. Karl ólst upp
hjá föðursystur
sinni, Guðríði
Magnúsdóttur, og
manni hennar,
Andrési Sigurðssyni frá Flatey.
Karl kvæntist 27. september
1941 eftirlifandi eiginkonu
sinni, Sigurborgu Guðmunds-
dóttur frá Flatey. Dóttir þeirra
er Sigrún. Karl var sjómaður,
lengst af stýrimaður og togara-
skipsfjóri í Reykjavík. Er Karl
hætti á sjó vann hann við fisk-
mat, lengst hjá Fiskmati ríkis-
ins.
Útför Karls verður gerð frá
Áskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.00.
í DAG verður fornvinur minn, Karl
Magnússon skipstjóri, jarðsunginn
frá Áskirkju.
Hann fæddist í Flat-
ey á Breiðafirði. Þeim
fækkar smám saman,
hinum gömlu Breið-
firðingum, sem ólust
upp við og þekktu til
horfinna atvinnuhátta,
fomra, og mannlífs í
þessari jarðnesku
paradís náttúrunnar,
þar sem blár fjalla-
hringur umlykur eyj-
arnar á þrjá vegu og
hafsbrún ljómar í
vestri.
Karl ólst upp við
leik og störf til sjós
og lands, kátur drengur, vel af
Guði gerður og tápmikill. Hann
laðaðist snemma að Sigurborgu
móðursystur minni og hún að hon-
um. Þau giftust ung og voru hvort
öðru allt í senn, lífsförunautur,
félagi og vinur. Hélst ástar- og
vináttusamband þeirra fölskva-
laust ævina alla.
Hugur Karls hneigðist snemma
til sjómennsku. Hann fór ungur í
Stýrimannaskólann, og síðan tók
við langur ferill á togaraflotanum.
Karl var árum saman skipstjóri við
góðan orðstír, aðallega á skipum
Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Hann
var góður sjómaður, kappsfullur en
um leið aðgætinn, prýðilegur fiski-
+
Elsku litla dóttir okkar og systir,
MARTA SOFFÍA ÓSKARSDÓTTIR,
Bjarkarbraut 21,
Dalvík,
lést á vökudeild Landspítalans 29. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram.
Hjartans þakkir til starfsfólks Landspítalans og ættingja og vina
fyrir ómetanlegan stuðning.
Anna H. Jóhannesdóttir, Óskar Óskarsson,
Harpa Rut Heimisdóttir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR HAFSTEINN
VALDIMARSSON
frá Rúfeyjum,
Breiðafirði,
sfðar Hnúki, Dalasýslu,
til heimilis i Mávahlíð 16,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
mánudaginn 26. febrúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Gigtarfélag íslands.
Kristín Gunnarsdóttir, Hörður Þorsteinsson,
Sigurður Óli Gunnarsson, Ólafia Ingibjörg Ingólfsdóttir,
Pétur Gunnarsson, Helga Þ. Sigurðardóttir,
Jóhannes Valdimar Gunnarsson, Guðríður Linda Karlsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóð-
ur, systur, ömmu og langömmu,
HELGURÓSUINGVARSDÓTTUR,
Vallholti 3,
Ólafsvík.
Oliver Kristjánsson,
Anna E. Oliversdóttir, Karl V. Karlsson,
Jóhanna H. Oliversdóttir, Magnús Steingrímsson,
Hjördís Oliversdóttir,
Jón Þ. Oliversson, Kolbrún Þ. Björnsdóttir,
Guðmunda Oliversdóttir, Páll Ingólfsson,
Björg Jónsdóttir og fjölskylda,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar
MARINÓS ÓLAFSSONAR.
Bergnes ehf.
maður og var skipstjórnarferill hans
óvenjulega farsæll.
í landi var Karl afskiptalítill,
frænka mín sá um praktísu málin.
Karl undi sér við lestur góðra bóka,
enda lestrarhestur, og vel að sér í
bókmenntum, líkt og margir sjó-
menn af hans kynslóð.
Þegar Karl hætti á sjónum fann
hann störf við hæfi við fiskmat og
-eftirlit. Umfangsmikil þekking
hans og reynsla af öllu því sem fisk-
veiðar snerti, komu nú að góðu
gagni. Hann ferðaðist milli ver-
stöðva um land allt og gegndi þeim
störfum af einstakri nákvæmni og
samviskusemi.
Ég var elsta barnabarn ömmu
minnar í Flatey og naut mikils eftir-
lætis alls frændgarðsins. Karl, sem
var einstaklega barngóður maður,
hélt mikið upp á mig. Oft færði
hann mér gjafir þegar hann kom
úr siglingum, forláta hníf, boga og
örvar, en þetta þótti ungum pilti
kjörgripir. Það var áður en allt
fékkst í búðunum og sjálfsagt þótti
að börn fengju allt og ættu allt.
Ástin á mér færðist síðar yfir á
syni mina báða. En Karl kenndi
þeim ungum áralagið, sagði þeim
til fiskimiða, og sýndi þeim hvern-
ig beita skyldi fyrir þaraþyrskling,
á sólríkum sumarkvöldum fyrir
vestan.
Karl og frænka mín dvöldu þar
löngum á sumrin, í gamla húsinu
hennar ömmu. Ég var oft þar með
þeim ásamt öðrum úr fjölskyld-
unni. Síðustu árin sóttu elli- og
hrörnunarsjúkdómar að Karli, og
dvaldi hann á Hrafnistu í Laugar-
ásnum. Naut hann þar hins besta
atlætis og umönnunar til hinstu
stundar, umvafinn ástríki Sigur-
borgar eiginkonu sinnar og Sigrún-
ar dóttur þeirra. Fékk hann hægt
andlát.
Blessuð sé minning Karls Magn-
ússonar og megi hann hvíla í friði.
Atli Heimir Sveinsson.
Karl Magnússon er dáinn. Hann
hafði víst beðið eftir þessu, karlinn.
Nú fær hann frið til að fiska á hin-
um eilífu miðum. Nú lifir hann á
ný og kennir ótal framliðnum til
verka á sjó, líkt og hann kenndi
mér forðum.
Það voru líflegir dagar í Flatey
þegar Kalli tók okkur krakkana
með á smáfisk, eins og það var
kallað. Hann þótti hijúfur í við-
móti, en alltaf var hann sanngjarn
og skemmtilegur við okkur. Það var
líf og fjör í kringum hann og skilst
mér að hann hafi á árum áður tek-
ið þátt í leiksýningum og uppákom-
um á tyllidögum.
Er ég hugsa til baka verður mér
ljóst hvað hann hefur haft mikið
vægi í mínum uppvexti. Hann
kenndi mér að meta það sem náttúr-
an hefur uppá að bjóða, um sjó-
mennsku og hættur hafsins, en
einnig þá einföldu gleði sem gagn-
tekur mann sem hefur nýlokið við
að landa vænum þaraþyrsklingi.
Fyrst og fremst var hann barn-
góður. Þótt hann ætti til að segja
eitt og annað misjafnt var það aldr-
ei nema í spaugi og mátti skilja á
ýmsa vegu. Hann var strangur íeið-
beinandi en réttlátur. Hann vissi
líka alltaf nákvæmlega hvað hann
var að gera. Þetta kenndi hann mér
og nú hef ég, kominn til manns,
miðlað af þessari reynslu til fjölda
vina minna, innlendrá sem erlendra.
Fyrir þetta er ég honum að eilífu
þakklátur.
Kalli minn, megir þú hvíla í friði.
Þú lifir í huga mínum. Vittu það
þar sem þú ert.
Hrólfur Sæmundsson.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er mðttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4
miðað við meðallinubil og hæfilega linu-
lengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar
eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.