Morgunblaðið - 27.03.1996, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Séra Flókl Kristlnsson og )ón Stefánsson organisti halda bábir áfram störfum sínum:
Aftur á byrjunarreit?
GMu
ÁFRAM með smjörið í Jesú nafni . .
Notkun jarðhita til húshitunar í stað olíu
Beinn árlegur sparnað-
ur 6,5 milljarðar króna
AÆTLA má að beinn sparnaður
af nýtingu jarðhita til húshitunar
hér á landi í stað olíu sé um 6,5
milljarðar króna á ári miðað við
meðalolíuverð á árinu 1995.
Sparnaðurinn hefur verið talsvert
meiri ef litið er til síðustu 25 ára
eða tæpir 10 milljarðar króna ár-
lega vegna þess að olíuverð hefur
oft verið hærra en það er nú.
Þetta kemur fram í erindi eftir
Guðmund Pálmason um þjóðhags-
legan ávinning af nýtingu jarðhita
á Islandi sem flutt var á ársfundi
Orkustofnunar s.l. fimmtuda™
Fram kemur að samanlagð
sparnaður af því að kynda h
með hitaveitu í stað olíu frá árii
1970 eru rúmir 250 milljarð
króna. Árið 1970 voru 83 þúsui
íbúar með hitaveitu en þeir voi
orðnir 219 þúsund í fyrra.
Minna losað af koltvíildi
Jafnframt er á það bent að fy
ir utan hreinan peningalegí
sparnað af nýtingu jarðhitai
megi einnig gera ráð fyrir heilsu
arslegum sparnaði vegna sum
lauga og jákvæðum umhverfí
áhrifum vegna þess að minna <
Skipting
jarðhitanýtingar
árið 1994
250 milljarða
kr. sparnaður
frá 1970
losað af svonefndum gróðurhúsa-
lofttegundum út í andrúmsloftið
en annars væri. Erfitt sé hins veg-
ar að meta fjárhagslegan ávinning
af þessum þáttum, en þetta komi
þó örugglega til viðbótar hinum
peningalega sparnaði. Þannig
kemur fram að heildarlosun á
koltvíildi hér á landi árið 1990 er
talið hafa numið 2,9 milljónum
tonna. Gera megi ráð fyrir að ef
hús væru kynt með olíu hér á landi
yrði losun koltvíildis til viðbótar
1,9 milljónir tonna.
Til samanburðar um sparnaðinn
af notkun jarðhitans til upphitunar
í stað olíu er nefnt í erindinu að
árlegur innflutningur bíla nemur
5,4 milljörðum króna, innflutt
eldsneyti 8,4 milljörðum króna og
heildarþorskafli úr sjó 17 milljörð-
um króna.
Sundlaugar 4,5%
Snjóbræðsla 1,7%
i Iðnaður 9,1%
Gróðurhús 3,8%
Fiskeldi 2,9%
Raforkuframleiðsla
4,3%
Samanburður á kostnaði við kyndingu húsa
á íslandi með olíu eða jarðhita 1970-1995
30■
25
20
15
10
5
Milljarðar króna á ári
á verðlagl 1995
Byggingarvísitala
Tttttl
■ ■ I I I I I I
0-“*
1970
llll
_______lllllll
MPrnnimvmmimi
liiii! r p if r n r 1111 iiiiiin
1975
1980
1985
1990
1995
Samanlagður sparnaður af notkun jarðhita
til húsakyndingar á Islandi frá 1970
1990
1995
Eystrasaltsráðið
Að tryggja rétt
íbúanna gegn
yfirvöldum
LÝÐRÆÐIS- og
mannréttindastofn-
un Eystrasalts-
ráðsins var stofnuð 1994
til þess að fylgjast með
stöðu þessara mála í aðild-
arríkjum ráðsins og er
áhersla lögð á réttindi
minnihlutahópa. Ole
Espersen, fyrrverandi
dómsmálaráðherra Dan-
merkur, er fyrsti stjóm-
andi stofnunarinnar, sem
verður tekin til endurskoð-
unar 1997 eftirþriggja ára
starf og verður þá tekin
ákvörðun um framhaldið.
Ein af skyldum Espers-
ens er að ferðast um aðild-
arríki Eystrasaltsráðsins
og kynna sér stöðu mann-
réttindamála í þeim af eig-
in raun. Hann kom hingað
til Islands fyrir helgi.
„Ég hef ekki fengið neinar kvart-
anir um stöðu mála á Islandi," sagði
Espersen. „Ég hef rætt við utanrík-
isráðherrann og dómsmálaráðherr-
ann, stjómendur mannréttinda-
samtaka og þingmenn. Mér hefur
verið greint frá athyglisverðum
frumvörpum, til dæmis um lög-
mannafélagið, en sjálfstæði lög-
manna er ’mér sérstakt áhugamál.
Ég hef einnig rætt flóttamannaað-
stoð íslendinga, sem er ekki erfitt
mál á íslandi vegna þess að það
eru svo fáir, sem sækja hér um
hæli. En mér skilst að verið sé að
athuga hvernig hægt sé að breyta
lögunum þannig að ekki leiki vafi
á því hvernig hátta eigi meðferð
umsókna um hæli á íslandi og einn-
ig hvernig leggja eigi fram kvartan-
ir á hendur lögreglu. Þetta eru hins
vegar aðeins málefni, sem verið er
að ræða, og ég hef enga ástæðu
til að halda því fram að um brot
af nokkru tagi sé að ræða,“ bætti
hann við.
„Starf mitt er í raun tvíþætt,"
sagði Espersen. „Annars vegar get
ég átt frumkvæði að því að taka
upp mál og hins vegar þarf ég að
bregðast við kvörtunum, sem ber-
ast.“
Eitt fyrsta málið, sem Espersen
ákvað að beita sér fyrir var að
skipaður yrði umboðsmaður, sem
hefði það hlutverk að gæta rétt-
inda almennings gagnvart ríkis-
valdinu líkt og umboðsmaður Al-
þingis hér.
„Það er mikilvægur þáttur
mannréttinda að geta án fyrir-
hafnar og kostnaðar farið og kom-
ist að því hvort réttindi manns
hafa verið brotin," sagði Espersen.
„Nú er svo komið að umboðsmann
vantar aðeins í Eistlandi og Rúss-
landi."
Annað mál, sem Espersen segir
einkar mikilvægt, er réttur íbúa,
sem ekki hafa ríkisborgararétt.
„Til að styðja grundvallarþætti
lýðræðisins hef ég lagt til að öll
aðildarríkin veiti þeim,
sem ekki hafa ríkisborg-
ararétt, en búa í landinu,
kosningarétt, sem nái að
minnsta kosti til bæjar-
og sveitastjórnarkosn-
inga,“ sagði Espersen. „Ég er
þeirrar hyggju að sá, sem býr í
landi til frambúðar, verði að
minnsta kosti að hafa rétt til að
hafa áhrif á gang mála í héraði."
Rammt kveður að málum af
þessu tagi í Eistlandi og Lettlandi
og þar hefur Espersen beitt sér
sérstaklega: „í Eistlandi erskilyrði
fyrir ríkisborgararétti að viðkom-
andi tali eistnesku. I Narva búa
um 100.000 manns, en þar eru
Ole Espersen
► Ole Espersen fæddist í Dan-
mörku árið 1934, lauk lagaprófi
árið 1959 og hóf þá störf í
danska dómsmálaráðuneytinu.
Hann hóf afskipti af mannrétt-
indum fyrir alvöru árið 1965
þegar hann settist í sérfræð-
inganefnd Evrópuráðsins um
mannréttindi þar sem hann sat
í fimm ár. Espersen varð og
prófessor í stjórnarskrárrétti
við Kaupmannahafnarháskóla
eftir að hafa lokið doktorsprófi
1971. Hann var þingmaður fyrir
jafnaðarmenn 1973 til 1994 og
sat á Evrópuþinginu 1975 til
1977. Espersen sat í mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna
1976 til 1979. Hann var dóms-
málaráðherra 1981 til 1982.
Arið 1994 varð hann sljórnandi
Lýðræðis- og mannréttinda-
stofnunar Eystrasaltsráðsins.
Espersen hefur skrifað fjölda
bóka um lagaleg málefni.
Að láta litla
stofnun koma
að gagni
aðeins 27 eistneskukennarar. 90%
íbúanna tala rússnesku. Þeir hafa
búið þarna alla ævi og því er mjög
erfitt að þurfa allt í einu að læra
nýtt tungumál og fólk yfir ákveðn-
um aldri ætti að vera undanþegið
þessu. Þá ætti að hraða afgreiðslu
dvalarleyfa því að 327 þúsund
manns hafa sótt um og ættu að
fá svar sem fyrst. Yfirvöld í Eist-
landi hafa verið mjög fús til sam-
starfs og það á einnig við um það
að gera löggjöf skýrari þannig að
embættis- og skrifstofumenn geti
ekki tekið geðþóttaákvarðanir,
sem fólk skilur ekki. í slíkum
málum er hlutverk umboðsmanns
veigamikið."
Espersen lætur einnig til sín
taka mál, sem við fyrstu sýn virð-
ast ekki koma Eystrasaltinu við.
Hann hefur gagnrýnt Rússa fyrir
framgöngu þeirra í Tsjetsjníju og
hyggst setja á laggirnar áfalla-
hjálparstöð skammt fyrir utan
Grozní, höfuðborg uppreisnarhér-
aðsins, til að kenna
læknum og sjúkraliðum
að bregðast við þegar
börn og borgarar eru í
losti vegna átakanna.
“ „Þetta er mín leið til
að láta litla stofnun koma að
gagni,“ sagði Espersen.
Hann kveðst ekki hafa lent í
því að ríkisstjórn hafi hunsað til-
mæli hans frá því að mannrétt-
indastofnunin var stofnuð 1994.
Espersen hefur ekki vald til að
beita þvingunum, en hann getur
beitt áhrifum á ráðherra aðildar-
ríkjanna og tíundað mannréttinda-
brot í ársskýrslu stofnunarinnar
neiti ríki að virða orð hans.