Morgunblaðið - 27.03.1996, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Samæfing björgunarsveita SVFI á Suðurnesjum og Landhelgisgæslunnar
ÁHÖFN Hannesar Þ. Hafstein æfði björgun fólks
úr flugvélarflaki á hafi úti.
Æfðu viðbrögð
við nauðlendingu
B JORGUN ARDEILD Slysa-
varnafélags íslands stóð síð-
astliðinn laugardag fyrir æf-
ingn með björgunarsveitum
félagsins á Suðurnesjum í þeim
tilgangi að æfa björgunar-
sveitirnar í viðbrögðum vegna
hugsanlegrar nauðlendingar
flugvélar á sjó skammt undan
flugvellinum í Keflavík. Æf-
ingin var haldin í náinni sam-
vinnu við stjórnstöð og flug-
deild Landhelgisgæslunnar, en
þyrla Landhelgisgæslunnar sá
m.a. um flutning slasaðra flug-
manna. Þá var fulltrúum al-
mannavarnanefndar Suður-
nesja boðið að fylgjast með
æfingunum.
Meðal þeirra markmiða sem
leitast var við að ná með
samæfingunni eru fagleg sam-
skipti björgunarmiðstöðvar
SVFÍ og stjórnstöðvar Land-
helgisgæslunnar, fagleg og vel
skipulögð samskipti björgun-
armiðstöðvar SVFÍ og björg-
unarsveita og eininga SVFI á
Suðurnesjum, svo sem við
Hannes Þ. Hafstein, björgun-
arskip SVFÍ í Sandgerði, fjar-
skiptamiðstöð björgunarsveit-
ar SVFÍ í Garðinum og ann-
arra björgunarsveita SVFI á
Suðurnesjum. Einnig fagleg
samskipti og vinnubrögð milli
flugdeildar Landhelgisgæsl-
unnar og fyrrnefndra aðila.
Útkallstölva björgunarmið-
stöðvar SVFI var notuð til að
boða björgunarsveitarfólk út
vegna æfingarinnar, en með
henni er möguleiki á að boða
út björgunarsveitir um allt
land á örskömmum tíma.
Áhöfn Hannesar Þ. Hafstein
æfði björgun fólks úr flugvél-
arflaki á hafi úti, slökkvistörf
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sá um flutning
slasaðra flugmanna.
í brennandi flugvélarflaki og
móttöku á þyrlu Landhelgis-
gæslunnar sem flutti slasaða
til Sandgerðis þar sem björg-
unarsveitirnar á Suðurnesjum
æfðu móttöku þyrlu á landi og
flutning slasaðra. Henry A.
Hálfdánsson, björgunarskip
SVFÍI Reykjavík, var staðsett
nokkrar sjómílur út af Staf-
nesi, en áhöfn skipsins sá um
að gera æfinguna sem raun-
verulegasta. Hún lék áhöfn
Falcon-einkaþotu í ferjuflugi
sem neyddist til að nauðlenda
í sjó.
Uppeldismálaþing HIK, KI og Félags íslenskra leikskólakennara
Auka þarf æfingakennslu
nemenda og starfsmenntun
Morgunblaðið/Kristinn
RÚMLEGA 400 kennarar á öllum skólastigum sóttu uppeldis-
málaþing á Hótel Loftleiðum á laugardaginn.
KENNARASAMBAND Islands,
Hið íslenska kennarafélag og Félag
íslenskra leikskólakennara efndu til
uppeldismálaþings sl. laugardag á
Hótel Loftleiðum. Voru þátttakend-
ur rúmlega 400 víðs vegar af land-
inu, en svipað þing verður haldið í
Verkmenntaskólanum á Akureyri
13. apríl nk.
„Það sem stendur upp úr eftir
daginn er að auka þarf fjárveitingar
til rannsókna- og þróunarstarfa á
öllum skólastigum. Einnig var lögð
mikil áhersla á að auka þyrfti æf-
ingakennslu kennaranema og
starfsmenntun," sagði Svanhildur
Óíafsdóttir, formaður Skólamála-
ráðs Kennarasambands íslands.
Menntun misjöfn í Evrópu
Fjöldi fyrirlesara hélt erindi á
þinginu. Dr. Friedrich Buchberger,
prófessor í kennaramenntun við há-
skólastofnun í Austurríki, fjallaði um
kenntaramenntun í Evrópu, sem
hann sagði að væri mjög misjöfn.
Nær hún allt frá tveggja ára námi
á framhaldsskólastigi í það að vera
fimm ára menntun á háskólastigi.
Dr. Buchberger taldi að meiri gagn-
rýni þyrfti að vera á inntaki námsins
og nauðsynlegt væri að endurskil-
greina markmiðin með það í huga
að samfélagið væri í örri þróun.
Kennarar þyrftu sífellt að hafa á
valdi sínu nýja tækni og breytingar.
Hann taldi að auka þyrfti kenslu-
fræði greina, efla æfingakennslu og
leiðsögn við nýja kennara.
Dr. Buchberger lagði áherslu á
að auka þyrfti fjárveitingar til rann-
sókna- og þróunarstarfs á öllum
skólastigum, þannig að hægt væri
að móta raunhæfa stefnu í skóla-
málum. Gefa þyrfti kennurum og
skólum tækifæri til þess í tengslum
við endur- og framhaldsmenntun,
sem væru ekki síður mikilvægir
þættir.
Fjölbreytt „kennaraflóra“
Aðrir fyrirlesarar tóku undir
þessi orð Buchbergers og lýstu
margir yfír ánægju með kennara-
menntun hér á landi. Undirbúning-
ur væri góður og almennur, en í
máli kennara kom fram að nauðsyn
væri á aukinni æfingakennslu
og/eða leiðsögn með nýliðum.
Jón Torfi Jónasson, prófessor í
uppeldis- og kennslufræðum við
HÍ, lagði áherslu á fjölbreytni í
kennaramenntun og varaði við eins-
leitni í námi. Hann lagði áherslu á
að kennarar kæmust í framhalds-
nám erlendis og að í skólum væri
fjölbreytileg „kennaraflóra". Þá
ræddi hann um nauðsyn þess að
stofna kennaranám fyrir fram-
haldsskólakennara á Akureyri.
Fulltrúar KHÍ, HÍ og Fósturskól-
ans sögðu frá skipan endur- og
framhaldsmenntunar og lögðu
áherslu á mikilvægi þess í síbreyti-
legu þjóðfélagi. Var rætt um að
auka þyrfti fjárveitingar til þessara
þátta og stuðla þyrfti að samræm-
ingu og samstarfi á milli kennara-
stofnana. Fram kom að meistara-
nám í kennaramenntun hefst næsta
haust við Háskóla íslands, en slíkt
nám hófst fyrir tveimur árum við
KHÍ. Einnig kom fram að eins árs
framhaldsnám er mögulegt við
Fósturskólann og í fyrra var það
helgað listgreinum.
Sidsen Germeten, deildarstjóri
við Hogskolen í Osló, sagði frá
kennaramenntun í Noregi, sem
fram fer á háskólastigi. Ein lög, sem
tóku gildi 1994, eru um alla kenn-
aramenntun, og samræmd kennslu-
skipan er á milli þeirra skóla sem
sinna slíkri menntun.
Frumvarp á Alþingi
Leynileg
kosning
tryggð
SVAVAR Gestsson alþingismaður
hefur lagt fram frumvarp á Alþingi
um að kjósendur í alþingiskosning-
um geti óskað eftir því við kjör-
stjórn að umboðsmenn lista fái ekki
að vita nafn hans og sé kjörstjórn
skylt að verða við því.
Svavar segir í greinargerð að
samkvæmt stjórnarskránni skuli
alþingismenn kosnir leynilegri hlut-
bundinni kosningu. Samkvæmt
kosningalögum sé umboðsmönnum
framboðslista heimilt að fylgjast
með framkvæmd kosninga með því
að sitja í kjörfundarstofu og þannig
fá flokkarnir upplýsingar um hvern-
ig þeir sem eru á kjörskrá hafi
neytt kosningaréttar síns. Þessar
upplýsingar séu síðan nýttar við
kosningasmölun.
„Kjósandi hlýtur að eiga rétt á
því, í landi þar sem ekki er skylda
að greiða atkvæði við alþingiskosn-
ingar, að ekki sé haft eftirlit með
því hvort hann nýti atkvæðisrétt
sinn eða ekki. Taka verður af allan
vafa um að hugtakið „leynileg kosn-
ing“ nái einnig til þessa atriðis,“
segir Svavar.
----♦ ♦ ♦----
Halldór
hittir Dick
Spring
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Dick Spring, utanríkis-
ráðherra írlands, halda fund í Dubl-
in fimmtudaginn 28. mars. Þá fer
utanríkisráðherra í opinbera heim-
sókn til Liechtenstein hinn 29.
mars.
Á fundinum með írska utanríkis-
ráðherranum verða málefni EES til
umræðu svo og samskipti EFTA
og ESB og samskipti þeirra við
önnur ríki, s.s. Bandaríkin og ríki
Asíu. Jafnframt verða til umræðu
ríkjaráðstefna ESB og stækkun
þess, myntsamband Evrópu, örygg-
ismál Evrópu og tvíhliða málefni
ríkjanna. Irland tekur við for-
mennsku í ESB hinn 1. júli 1996
en Island verður með formennskuna
í EES til áramóta.
{ opinberri heimsókn utanríkis-
ráðherra til Liechtenstein mun ut-
anríkisráðherra m.a. eiga fundi með
Mario Frick forsætisráðherra og
Andrea Will utanríkisráðherra. Á
þeim fundum verða málefni Evrópu
einkum til umræðu. Liechtenstein
er aðildarríki að EFTA og EES.
----♦■■■♦ ♦--
V erkakvennaf élagið
Framsókn
Sameiningar-
viðræður á
byrjunarstigi
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ
Framsókn hefur sent frá sér frétta-
tilkynningu þar sem segir, að til
að fyrirbyggja misskilning sem
komið hafi fram í viðtali við Hall-
dór Björnsson, formann Dagsbrún-
ar, 22. mars sl., hafi verið haldinn
einn fundur með formanni Dags-
brúnar um sameiningu verkalýðs-
félaganna fyrir fjórum árum og nú
aftur 16. febrúar síðastliðinn í ann-
að sinn.
„Viðræður eru á byrjunarsligi,
og engin tímasetning verið sett um
sameiningu félaganna enn sem
komið er,“ segir í tilkynningunni
frá Framsókn.