Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 1

Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 1
72 SIÐUR B/C 82. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR11. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Arafat vegurað Hamas Ramallah, Vesturbakkanum. Reuter. YASSER Arafat, forseti sjálfstjórn- arsvæðis Palestínumanna, sagði í gær að Hamas, samtök palestínskra strangtrúarmanna, hefðu á laun lýst yfir stríði á hendur stjórn sinni og bætti við að forsprakkar samtak- anna væru í Jórdaníu. Samskiptin milli yfirvalda á sjálf- stjórnarsvæði Palestínumanna og Hamas hafa verið mjög stirð frá því að Frelsissamtök Palestínu (PLO), sem Arafat veitir forystu, gerðu at- lögu að Hamas í kjölfar sjálfsmorðs- sprengjutilræða í Israel í lok febrúar og byijun mars. „Þetta er stríðsyfirlýsing,“ sagði Arafat og las úr skjali, sem hann sagði úr fórum Hamas. Að sögn Arafats hyggst Hamas grafa undan friðarviðræðum Israela og Palestínumanna og fá fram við- ræður milli gyðingaríkisins og Ham- as, „hinna nýju yfirvalda". „Þetta stendur í skjalinu og hefur komið fram við yfirheyrslur," sagði Arafat og hélt á loft blaði. Hernaðaráætlun Hamas „Forysta Hamas er í Amman og skipanirnar k,oma frá Amman,“ sagði Arafat og bætti við að samtök- in hefðu gert rækilega hernaðar- áætlun til að knýja Israela til að snúa baki við PLO. Jórdanar neita því að forysta Hamas starfi í Amman og segja að umsvif félaga samtakanna þar ein- skorðist við pólitíska starfsemi og upplýsingamiðlun. Hópur arabaríkja í Sameinuðu þjóðunum fór þess á leit í gær að ástandið á Vesturbakkanum og Gaza, sem var lokað af eftir að sj álf smorðssprengj utilræðin hófust með þeim afleiðingum að um 60 þúsund Palestínumenn komast ekki til vinnu í ísrael, yrði tekið fyrir í öryggisráði SÞ. ------» -------- Jeltsín heim- ilar viðræður við Tsjetsjena Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti heimilaði í gær opinberri nefnd, sem Viktor Tsjernómyrdín forsætisráð- herra veitir forstöðu, að samræma viðræður við tsjetsjenska aðskilnað- arsinna, þeirra á meðal uppreisnar- leiðtogann Dzokhar Dúdajev. Jeltsín segist heimila nefndinni, sem sett var á laggirnar til að fylgj- ast með framkvæmd friðaráætlunar hans, að taka upp viðræður á lægri stigum. Meðal annars er nefndinni heimild að taka upp samband við hernaðarleiðtoga uppreisnarmanna. Viðræður við Dúdajev í gegnum milliliði var einn af hornsteinum frið- aráætlunarinnar sem Jeltsín kynnti í sjónvarpsávarpi þann 31. mars. Þrátt fyrir að Jeltsín hafi lagt bann við frekari hernaði í Tsjetsjníju benda fregnir þaðan til að ekkert lát sé á aðgerðum rússneska hersins. Hefur þetta vakið upp spurningar á ný um það hvort forsetinn hafi í raun vald yfir hernum. Kosningabaráttan í Suður-Kóreu Segja Norður- Kóreumenn í stríðshug Tókíó, Seoul, Róm. Reuter. SUÐUR-kóreskir leiðtogar gerðu mikið úr spennunni á Kóreuskaganum á lokaspretti kosningabaráttunnar í gær, en gengið er til þingkosninga í Suður-Kóreu í dag. Aðstoðarvamar- 'málaráðherrann, Park Yong-ok, líkti ástandinu við það er norður-kóreskir hermenn drápu tvo bandaríska her- menn með exi í landamæraþorpinu Panmunjon í ágúst 1976 en þá römb- uðu ríkin á barmi styijaldar. Park sagði, að búast mætti við að norð- anmenn gerðu allt til þess að upp úr syði og stríð brytist út. „Norður-kóreskir leiðtogar hafa ítrekað sagt að stríð væri óumflýj- anlegt, spumingin væri ekki hvort heldur hvenær. Þess vegna lítum við atburði síðustu daga mjög alvarlegum augum og erom undir það versta búnir,“ sagði Park. Vítalíj Ignatenko, aðstoðarforsæt- isráðherra Rússlands, kom í gær til Pyongyang, höfuðstaðs Norður- Kóreu, í þeim tilgangi að reyna draga úr spennu á Kóreuskaganum. Hugðist hann kanna undirtektir þarlendra leiðtoga við tillögu um alþjóðlega ráð- stefnu til að stuðla að stöðugleika á skaganum. Peter Taroff, aðstoðarotanríkisráð- herra Bandaríkjanna, ítrekaði í gær, að ekki kæmi til greina að hefja ein- hvers konar tvíhliða samningaviðræð- ur við Norður-Kóreu um nýjan vopna- hléssamning fyrir Kóreuskagann. Vaxandi neyð í Norður-Kóreu Matvælaskortur fer versnandi í Norður-Kóreu, að sögn Trevors Page, yfirmanns skrifstofu matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Pyongyang. Sagði hann skortinn „mjög alvarleg- an“ um land allt og væri þörfín fyrir utanaðkomandi neyðarhjálp orðin afar brýn. Lægju matvælasendingar til landsins nánast niðri en landsmenn hefðu þörf fyrir að minnsta kosti eina milljón tonna matvælahjálp til að seðja sárasta hungrið fram yfir næstu hrísgijónauppskeru í október. Brown borinn til grafar BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagði við minningarathöfn um Ron Brown viðskiptaráðherra, sem lét lífið í flugslysi í Króatíu 3. apríl, að hann hefði búið yfir „ótrúlegri lífsorku" og bætti við að án hans liðsinnis „stæði ég ekki hér“. Athöfnin var haldin í dómkirkjunni í Washington í gær og að henni lokinni var Brown jarðsunginn í Arlington-kirkju- garðinum i Virginíu. Clinton sagði að Brown hefði verið lítt þekktur, en haslað sér völl í forystusveit svartra Banda- ríkjamanna. Forsetinn þakkaði Brown sérstaklega stuðning hans í kosningabaráttunni fyrir fjórum árum og sagði að án hans hefði hann ekki náð kjöri. „Hann lifði lífi sínu fyrir Bandarikin og þar kom að hann lét hann lífið fyrir Bandaríkin,“ sagði Clinton. Kínveijar og Frakkar undirrita viðskiptasamninga í París Mannréttíndabrotum mótmælt París. Reuter. FORSÆTISRÁÐHERRA Kína, Li Peng, og franskur starfsbróðir hans, Alain Juppé, voru í gær viðstaddir undirritun samninga í París um 130 milljarða króna viðskipti á næstu árum en Li er nú í opinberri heimsókn í Frakklandi. Efnt var til mótmæla vegna mannréttindabrota stjórn- valda í Peking og fjölmiðlar gagnrýndu frönsk stjórnvöld harkalega fyrir hentistefnu. Engar skálaræður voru fluttar við opinberan málsverð í gærkvöldi eftir að Juppé og Li höfðu gert athugasemdir við ummæli um mannréttindi í ræðum hvors annars. Kínveijar munu m.a. kaupa 33 Airbus-þotur og Citroen-bílaverksmiðja og gasverksmiðja í Kína verða stækkaðar. í öðrum tilvikum er yfir- leitt um viljayfirlýsingu að ræða og viðskiptin gætu því orðið mun minni en vænst er nú. í gærmorgun strengdu um 150 félagar í sam- tökunum Amnesty International borða með áletr- uninni „Li hundsar mannréttindi. Það gerum við ekki!“ yfir Champs Elysees-breiðgötuna. Óeirða- lögregla fjarlægði þegar borðann og handtók fólkið. 1.000 manns hugðust ganga frá Trocad- Reuter EFNT var til mótmæla á Trocadero-torgi vegna heimsóknar Li Pengs, forsætisráð- herra Kina, til Frakklands. ero-torgi að kínverska sendiráðinu en lögreglan stöðvaði göngumenn. Franskir fjölmiðlar voru margir fjandsamlegir í garð Li og sökuðu stjórn Juppés um tækifæris- stefnu gagnvart Kína. í blaði vinstri manna, Liberation, var sagt að viðskiptahagsmunum væri hampað á kostnað mannréttinda. Hægri- blaðið France-Soir lýsti Li sem „vélbyssumannin- um frá Torgi hins himneska friðar" en andóf lýðræðissinna var kæft í blóði á torginu 1989. Hervé de Charette utanríkisráðherra visaði þessari gagnrýni á bug, sagði að fremur væri hægt að ná fram umbótum í mannréttindamál- um í Kína með því að auka viðskipti við landið og ræða ágreiningsefni í vinsamlegum samræð- um. Útilokað væri að hundsa land þar sem árlegur hagvöxtur hefði verið 10%'undanfarinn áratug. Skömmu eftir komu Li til landsins á þriðjudag sendu rúmlega 200 franskir þingmenn frá sér yfirlýsingu þar sem Kínveijar voru hvattir til að veita Tíbetum frelsi. Kommúnistastjórnin í Peking lagði Tíbet undir sig árið 1950. Brfxxccxxmnpcccclllmm- nprxvclmnckssqlbbllll6!! Stokkhólmi. Reuter. FLEST fimm ára gömul böm kunna að stafa nafn sitt, en fimm ára dreng i Halmstad í Svíþjóð er vorkunn að vera þess ekki megnugur enn. Nafn hans er bor- ið fram Albin, en það er skrifað Brfxxccxxmnpcccclllmmnprxvcl- mnckssqlbbllll6. Héraðsdómstóll í Svíþjóð hefur samkvæmt sænsku fréttastofunni TT hafnað þessu nafni og sektað foreldrana um 5.000 sænskar krónur (45.000 islenskar krónur) fyrir að skíra ekki drenginn. Foreldrarnir segja að nafnið beri vitni „expressjóniskri þróun“ þungunar móðurinnar og hyggj- ast áfrýja dómnum. Nafnið sé „listrænt sköpunarverk" og vald dómstóla nái ekki til lista.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.