Morgunblaðið - 11.04.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 19
ERLEiMT
Mikil heift í kappræðum
stjórnmálaleiðtoga á Italíu
Létu brigslyrði
fjúka og töluðu
allir í einu
Róm. Reuter.
LEIÐTOGAR fimm flokka á Ítalíu
tóku þátt í sjónvarpskappræðum í
fyrrakvöld sem þóttu einkennast af
mikilli heift og ringulreið. Hitinn var
mikill í umræðunum, leiðtogarnir
skiptust á brigslyrðum og töiuðu
hver í kapp við annan.
Þetta voru fyrstu sjónvarpskapp-
ræðurnar á Italíu fyrir þingkosning-
arnar 21. þessa mánaðar. Leiðtog-
arnir létu móðan mása í tvær og
hálfa klukkustund og kappræðurnar
voru sýndar í beinni útsendingu rík-
issjónvarpsins RAI.
Tónninn var settur nokkrum mín-
útum eftir að kappræðurnar hófust
þegar Silvio Berlusconi, fyrrverandi
forsætisráðherra og leiðtogi banda-
lags mið- og hægriflokka, og Mass-
imo D’Alema, leiðtogi bandalags
mið- og vinstriflokka, tóku að skatt-
yrðast og reyndu að tala hvorn ann-
an í kaf.
Berlusconi sagði að efnahagsum-
bætur væru nauðsynlegar áður en
hægt yrði að lækka skattana og
D’Alema greip fram í fyrir honum:
„Loksins hefur Berlusconi viður-
kennt að skattalækkanir eru ekki
mögulegar sem stendur". Leiðtog-
arnir töluðu síðan hvor í kapp við
annan en stjórnandi kappræðnanna,
Bruno Vespa, reyndi að þagga niður
í þeim.
„Ég hafði vonað að í kvöld gætum
við rætt málin í rósemd og án yfir-
gangs og ofsa,“ sagði D’Alema. „Ég
veit að hér eru ekki staddir neinir
stuðningsmenn til að trufla kapp-
ræðurnar með gjammi, þannig að
Berlusconi vill bæta það upp með
því að hindra að viðmælandinn kom-
ist að.“
„Þú ert sérfræðingur þegar blekk-
ingar eru annars vegar," hreytti þá
Berlusconi út úr sér þungur á brún.
Fini og Bossi munnhöggvast
Kappræðurnar einkenndust af því
að leiðtogarnir töluðu allir í einu,
hrakyrtu hver annan og minntu á
þátt andstæðinga í spillingarmálun-
um sem hafa tröllriðið ítölskum
stjórnmálum síðustu misseri.
Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóðar-
bandalagsins, sem er lengst til hægri
í ítölskum stjórnmálum, minnti kjós-
endur á að Umberto Bossi, leiðtogi
Norðursambandsins, hefur verið
fundinn sekur um mútuþægni. „Þú
ert sá eini hérna sem hefur tekið
200 milljónir líra [7,9 milljónir
króna] í vasann," sagði hann. Bossi
kvaðst hafa verið sakfelldur af pólit-
ískum ástæðum og sagði Fini hald-
inn „andlegum óheiðarleika".
Margir kjósendanna á Italíu eru
enn óákveðnir og samkvæmt skoð-
anakönnunum standa kosninga-
bandalögin tvö jöfn að vígi. Margir
stjórnmálaskýrendur telja að hvor-
ugt þeirra fái meirihluta í þriðju
þingkosningunum á Italíu á fjórum
árum.
Afram gýs á Montserrat
ELDGOS hafa haldið áfram með
hléum í eldfjallinu Soufriere á
eynni Montserrat frá því á mið-
vikudag í síðustu viku og var svo
enn í gær. Eldfjallafræðingar
hafa spáð miklu sprengigosi í
fjallinu. Um 4.000 íbúar í höfuð-
borginni Plymouth á suðurhluta
eyjunnar hafa verið fluttir að
heiman og hafast þeir við í neyð-
arskýlum og á heimilum fólks á
norðurhluta hennar.
Póstur & sími býður til Samnetssýningar þar sem eftirtaiin fyrirtœki
kynna vörur og þjónustu:
0
Apple-umboðið
SÍNSMIRKINN
PÓSTUR
OG SÍMI
Heimilistæki hf
TÆKIMI-OC TOLVUDEILD
OPIN KERFIHF
Wfipl hewlett
mL'rim packard
iS Tæknival
SMITH &
NORLAND
Sístel
0
Sýningin er opin t'ró kl. 10.00 til 17.00 bóða dagana
Aðgangur er ókeypis
VerO stgr.
29.995
GR 1400
H: 85 B: 51 D: 5Ó cm
Kælir: 140 I.
Verðstgr.
44.5QOy-J
iil
Verö stgr.
48.000,-
GR 1860
• H:1 17 B: 50 D: 60 cm
• Kælir: 140 Itr.
• Fryslir: 45 Itr.
Verðstgr. \
1.900,-]
(Verð stgr.
59.980,-.
GR 2260
H:140 B: 50 D: 60 cm
Kælir:180 Itr.
• Frystir: 45 Itr.
GR2600
H:152 B: 55 D: 60 cm
■ Kælir: 187 Itr.
1 Frystir: 67 Itr.
GR 3300
H:170 B: 60 D: 60 cm
Kælir: 225 Itr.
Frystir: 75 Itr.
Oíndesíl
.../ eldhúsið og sumarbústaðinn.
BRÆÐURNIR
Lá g m ú
S í m i
8820
Umbo&smertn um land allt
Vesturland: Málnlngarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðlnga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búðardal Vestflrölr: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf.Steingrímsfjarðar.Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð.Sauðárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Siglufiröi.Ólafsfiröi og Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum.
Kf.Vopnfiröinga.Vopnafiröi. Stál, Seyðisfiröi. Verslunin Vlk, Neskaupsstaö. Kf.Fáskrúösfiröinga, Fóskrúösfiröi. KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rós, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell.Keflavík. Rafborg, Grindavík. ^______________