Morgunblaðið - 11.04.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 27
á háskólastigi er forsenda þess að
við fáum góða túlka. Góðir túlkar
eru okkar lykill að góðri menntun
og jafnrétti í samfélagi sem miðast
við heyrandi fólk.
Ný viðhorf
Ekki er svo ýkja langt síðan far-
ið var að viðurkenna og leyfa tákn:
mál sem samskiptamáta okkar. I
hundrað ár var bannað að nota
táknmálið, því það var talið koma
í veg fyrir að við gætum lært ís-
lensku (og eflaust er orðið málleys-
ingi steingerðar leifar af þessu við-
horfi). Nú hefur annað komið í ljós
og það er orðin viðurkennd stað-
reynd að barn sem fæðist heyrnar-
laust hefur bestu möguleikana á
eðlilegum málþroska ef táknmál er
talað í umhverfi þess allt frá fyrstu
tíð. Það eykur svo aftur hæfileika
þess til að læra íslensku þegar það
hefur náð tökum á táknmálinu.
Þetta færir barninu sterkari sjálfs-
mynd og eykur trú þess á hæfileika
sína.
Móðurmálskennsla
Okkur heyrnarlausa dreymir um
nýja námsskrá fyrir Vesturhlíðar-
skóla, skóla heyrnarlausra og
heyrnarskertra, þar sem tekið er
af skarið og skólinn formlega gerð-
ur tvítyngdur. Það felur í sér að
flest fög yrðu kennd á móðurmáli
heyrnarlausra, táknmáli, og að ís-
lenskan væri fyrsta framandi málið
sem kennt er.
Gerð hefur verið tilraun í þessa
átt í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð, en þar er nú í boði sérstök
námsbraut fyrir heyrnarlausa. Þar
fá heyrnarlausir nemendur kennslu
í móðurmálinu, auk þess sem boðið
er upp á íslensku- og enskukennslu
á táknmáli. Önnur fög eru svo sam-
eiginleg með heyrandi, en þá er
kennslan túlkuð á táknmál. Ohætt
er að segja að þessi tilraun hafi
auðveldað heyrnarlausum að afla
sér framhaldsmenntunar og geri
þá samkeppnishæfari á vinnumark-
aði.
Það sem hér hefur verið rakið
sýnir svo ekki verður um villst að
þeir sem eru heyrnarlausir eru ekki
mállausir. Táknmál er okkar mál!
Höfundur er formaður Félags
heyrnarlausra.
menn ættu að vita þetta allra
manna bezt.
KP er hneykslaður á lágum laun-
um, sem greidd eru í landinu, og
segir alla verða að leggja sig fram
um breytingu á þessu. Skýring á
þessu er sú, að verkalýðsfélög geta
ekki samið um hærri laun en vinnu-
veitendur eru tilbúnir að greiða.
Ástæða þess að vinnuveitendur geta
ekki greitt hærri laun er óraunhæf
offjárfesting í djúpveiði- og vinnslu-
skipum, sem stofnað er til í skjóli
kvótakerfis framsóknarmanna, og
sem notuð er til niðurrifs á öðrum
fiskveiðum og fiskvinnslu innan
fiskilögsögunnar. Þetta gildir ekki
aðeins um vinnulaun við fiskvinnslu
í landi, heldur einnig um öll önnur
vinnulaun. Þessi áhrif kvótakerfis-
ins hefir stöðvað allan hagvöxt síð-
an 1986 samkvæmt upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar. Síðan hefir ís-
land stöðugt verið að dragast aftur
úr öðrum vestrænum þjóðum í efna-
hagsmálum, nú samfellt í 10 ár.
Samningar standa nú yfir um
niðurskurð á úthafsveiðum víða um
heim. Bryan Tobin er orðinn forsæt-
isráðherra Kanada fyrir að koma á
kvókaveiðum þar, og senda spánska
djúpveiðitogara í burt úr fiskilög-
sögunni. íslenzkum útgerðum bjóð-
ast nú kaup á 12 spánskum togur-
um á Kanaríeyjum. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokks hér verða ekki varir
við að neitt sé að gerast. Þeir bara
styðja kvótauppbyggingu fram-
sóknarmanna í blindni. Menn
sakna fijálslyndis og réttlætis í
stjórn Sjálfstæðisflokksins. Eru
þingmenn hans kannski að bíða
stofnunar nýs flokks, sem almenn-
ingur geti kosið?
Höfundur er fyrrv. forstjóri OLÍS.
Framtíð
Hveravalla
Stefán Á.
Jónsson.
HINN 20. mars sl.
ritar Páll Sigurðsson,
forseti Ferðafélags Is-
lands, eina grein enn
um skipulagsmál á
Hveravöllum. Þar er
haldið sig við sama
heygárðshornið, að
gera tortryggilegan til-
gang hreppanna, sem
eru að láta vinna þar
nauðsynlega skipu-
lagsvinnu og umhverf-
ismat. Talað er um
væntanlegar stórfram-
kvæmdir og einu sinni
enn farið með tölur um
stærð fyrirhugaðra
bygginga af mikilli
ónákvæmni, svo að ekki sé meira
sagt. Þar kemur fram hvernig „fyr-
ir réttmæta tilstuðlan fjölmiðla"
hafi tekist að kynna almenningi
hugmyndir sem settar voru fram í
deiliskipulaginu. Þær urðu við það
andstæðar náttúruverndarsjónarm-
iðum. Á þann hátt tókst að snúa
hlutunum við. Að baki skipulags-
vinnunni á Hveravöllum var sú vissa
að til þess að geta í framtíðinni
verndað svæðið yrði að skipuleggja
það. Sama hugsun liggur á bak við
skipulagningu hálendisins sem ég
held að enginn mæli nú í gegn. Sá
hugsunarháttur að skipulagsvinna
sem unnin hefur verið af færum
fagmönnum á Hveravöllum sé lítt
hugsuð og andstæð náttúruvernd
þar er dæmi um óvandaðan mál-
flutning formanns ferðafélagsins.
Má því til sönnunar benda á deili-
skipulagsdrög Pálmars Krist-
mundssonar sem gerð voru fyrir
stjórnendur ferðafélagsins og send
Skipulagi ríkisins í janúar 1995.
Heimamenn hafa farið eftir
lögurn og reglugerðum
Það er með ólíkindum þegar vís-
vitandi er hallað á þá aðila sem
vilja að betur sé búið að Hveravöll-
um framvegis en í dag. Mér datt
ekki í hug að við sem töldum okkur
vera að vinna gott starf fyrir fram-
tíð þessa staðar yrðum beittir slík-
um áróðri. Á allan hátt hefur verið
unnið eftir þeim skipulagslögum
sem i gildi eru með aðstoð fag-
manna. Við höfum verið svo heppn-
ir að til þessa starfs hafa ráðist
ágætir arkitektar sem hafa unnið
vel og samviskusamlega að deili-
skipulaginu. Þeir hafa sýnt næman
skilning á Hveravallasvæðinu og
tillögur þeirra eru mótaðar af fram-
tíðarsýn og skilningi á því að fólkið
í landinu á rétt á eðlilegum að-
gangi að þessu sérstæða svæði. Nú
nýlega kom svo umhverfismatið til
sögunnar og fór fram frumvinna á
því. Ennþá liggur kannski ekki al-
veg ljóst fyrir hvernig á að ganga
frá slíku mati. Þess vegna er eðli-
legt að Skipulag ríksins vilji í fyrstu
fara með gát við staðfestingu deili-
skipulags og umhverfismats á
Hveravöllum. Þó hlýtur það sjónar-
mið að vega þungt að ekki megi
tefja um of möguleika á að bæta
aðstöðu þar til að mæta ört vax-
andi umferð. Mikil ábyrgð hvílir á
þeim sem setja fram svo viðamiklar
kröfur að málið tefjist og verulegur
skaði gæti hlotist af í framtíðinni.
Hvað segja menn þá eftir nokkur
ár? Ég er þess fullviss að ráðamenn
þjóðarinnar vilja að umhverfismat
verði faglega framkvæmt en ekki
neinn þrándur í götu eðlilegs skipu-
lags. Þetta mál snýst ekki um að
einhveijir heimamenn vilji ana
áfram í framkvæmdir sem spilli
Hveravöllum. Þeir þekkja staðinn,
hafa komið þar oft og fundið þann
góða anda öræfanna sem einkennir
þennan stað. Þess vegna vona ég
að allir sem hafa látið sig þetta
mál varða skoði það, kynni sér
málavöxtu og endurmeti síðan af-
stöðu sína. Hveravellir eru komnir
í gott vegasamband og
því verður ekki breytt.
Þeir verða best varð-
veittir með því að þar
komi upp góð aðstaða,
samt ekki stærri en
þörf er á.
Samráð 1938 en
síðan ekki
Árið 1938 reisti
Ferðafélag íslands
skála á Hveravöllum.
Samkvæmt heimildum
mínum hafði Jón Ey-
þórsson, sem þá var
einn af ráðamönnum í
ferðafélaginu, haft
samráð við eigendur
Auðkúluheiðar og samið um það
við þá að gangnamenn á Auðkúlu-
heiði ættu framvegis rétt á ókeypis
gistingu í skálanum en ferðafélagið
rétt á að þyggja hann þar og nýta
að vild. Árið 1980 þegar umferð
var farin að vaxa verulega um
Hveravelli reisti ferðafélagið þar
annan og stærri skála uppi á Breið-
mel. Þá var ekkert samráð haft við
heimamenn um byggingu hans eða
staðarval. Árið 1989 flutti ferðafé-
lagið þennan nýja skála nær hver-
unum og á friðlýsta svæðið. Jafn-
framt voru lauslega afmörkuð bíla-
Þar er haldið sig við
sama heygarðshornið,
31
segir Stefán A.
Jónsson, að gera
tortryggilegan tilgang
hreppanna.
stæði og sett upp salerni, einnig á
friðlýsta svæðinu. Þá var heldur
ekki haft samráð við heimamenn,
þótt skylt væri að bera slíkt undir
byggingarnefnd Svínavatnshrepps.
Umferð á Hveravöllum
Ef umferð á Hveravöllum er
skoðuð kemur í ljós að sumarið
1986 voru gistinætur þar taldlar
2.058. Tíu árum síðar árið 1955
voru þær orðnar 5.667 og hafði
fjölgað um 175% á einum áratug.
Sumarið 1985 voru daggestir í hóp-
ferðum 5.471 en sumarið 1995 voru
þeir 5.675. Samkvæmt skýrslum
landvarða koma þessir gestir frá
því eftir miðjan júní til ágústloka.
Daggestir á eigin bílum voru áætl-
aðir 1990 um 50 manns á dag en
hefur fjölgað mikið. Samkvæmt
umferðartalningu vegagerðarinnar
á Kjalvegi norðan Kerlingarfjalla
frá 13. júlí til 27. ágúst 1990 óku
64 bílar um veginn á dag. Þessi
umferð hafði aukist í 104 bíla sum-
arið 1995 eða um 62,5%. Þessi
aukning bílaumferðar er sennilega
vegna þess að opnuð var brú yfir
Seiðisá og Kjalvegur því fær fólks-
bílum. Ferðafélagið hefur gistiað-
stöðu fyrir um 70 manns í skálum
sínum á Hveravöllum. Síðasta sum-
ar seldi það gistinóttina á 1.150
krónur fyrir manninn en félags-
menn fá gistingu á lægra gjaldi.
Ferðafélagið leyfir tjaldstæði. Gist-
ingu í tjaldi fyrir manninn selur það
á 450 krónur. Fyrir 4 saman í tjaldi
kostar nóttin því 1.800 krónur.
Tjaldstæðin eru leyfð á grónu
landi meðfram íæknum á friðlýsta
svæðinu. Nokkur gróður er á bökk-
unum en hann er viðkvæmur. Þarna
hefur verið tjaldað í mörg ár og
hefur mér fundist of langt gengið
í því efni, sérstaklega nú seinustu
árin þegar tjöldum hefur fjölgað
verulega. Ekki er mér kunnugt um
að ferðafélagið hafi á nokkurn hátt
reynt að bæta gróðurinn með áburði
eða sá í gróðurvana svæði til að
tjalda á. Eðlilegt hefði verið ef því
er eins annt um Hveravelli og for-
seti þess segir í greininni að það
hefði skilað svæðinu einhveiju aft-
ur. Land er hægt að græða upp
með náttúrlegum gróðri. Við eigum
færa menn sem geta leiðbeint um
það. Meðfram þessum læk er ein
besta gróðurvin á Hveravöllum.
Þarna hafa verið ágætir landverðir
sem hafa reynt að færa tjaldstæðin
til og vernda þannig gróna svæðið
á bökkunum eins og hægt er þó
að það sé ekki stórt. Er það ætlun-
in að halda þessari tjaldbeit áfram
meðan eitthvert strá er eftir? Það
er svo önnur saga að skylt er að
fá leyfi fyrir tjaldstæðum þarna.
Enn mun Ferðafélag íslands ekki
hafa leitað eftir slíku leyfí. Það er
gott að vera einn í heiminum.
Höfundur er bóndi
*CHA
1.-17. apríl
AllarVNECESSIT
verslanir í Evrópu
hafa fengið nýtt
nafn ,CHA*CHA
en CHA^kCHA er vins
og mest selda vörumerki
verslananna.
í tilefni af nafnbreytingunni
bjóðum við nú 20% afslátt
af öllum CHA^CHA vorum.
Aö auki aiga allir viðskiptavinira sem versla fyrir
kr. 1.500,- eða meira kosta á að komast f C//A#
pottinn þar sem dregið verður um þrjár fataútt
1. Aðalvinningur:
30.000 króna fataúttekt
2-3 aukavinningar:
10.000, ” króna fa taúttekt
cha*cha
yt*ðir \>l&
CHAXCHA • Borgarkringlunni • Sími 588 4848