Morgunblaðið - 16.04.1996, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
b
AKUREYRI
Væntanleg uppbygging nótaveiðiflota
Staða skipasmíða-
stöðva skoðuð
ATVINNUMALANEFND Akur-
eyrarbæjar samþykkti ályktun á
fundi sínum nýlega, þar sem skor-
að er á sjávarútvegs- og iðnaðar-
ráðherra að við væntanlega upp-
byggingu nótaveiðiflotans verðL
staða íslenskra skipasmíðastöðva
skoðuð sérstakiega með það að
markmiði að þær geti með eðlileg-
um hætti komið að því verkefni
sem fyrir höndum er.
Ennfremur segir í ályktuninni,
að stöðugt séu gerðar meiri kröfur
um meðferð sjávarafurða, þar á
meðal um meðferð síldar og loðnu,
hvott sem aflinn er ætlaður til
manneldis eða bræðslu. Nótaskipa-
floti íslendinga er almennt ekki
búinn að mæta þessum auknu
kröfum. Um 90% nótaskipanna
voru 1970 og flest þeirra smíðuð
á árunum 1964-’68, þ.e. fyrir hrun
síldarstofnsins.
Atvinnumálanefnd bendir jafn-
framt á að aukin vinnsla loðnu og
síldar til manneldis og aukin fram-
leiðsla á gæðamjöli og lýsi kalli á
bætta meðhöndlum aflans. Vænt-
ingar um auknar veiðar á síld,
loðnu og jafnvel öðrum tegundum
til bræðslu birtast í byggingu nýrra
bræðsluverksmiðja og endurnýjun
margra eldri. Með tilliti til alls
þessa virðist óhjákvæmilegt að
endurnýja nótaskipaflotann að
verulegu leyti á næstu árum ef
hann á að geta svarað kröfum
tímans.
Sparisjóður Mývetninga
flytur í Skjólbrekku
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
SPARISJÓÐUR Mývetninga hefur
flutt afgreiðslu sína frá Helluvaði,
þar sem hann hefur verið til húsa
frá stofnun, í Skjólbrekku.
Af því tilefni bauð Sparisjóðurinn
Mývetningum og öðrum gestum
léttar veitingar í hinum nýju húsa-
kynnum sínum. Alls mættu rúmlega
100 manns. Þá var einnig yngstu
kynslóðinni boðið í ratleik.
Þetta nýja húsnæði í Skjól-
brekku, sem er um 80 fermetrar,
keypti Sparisjóðurinn á síðasta ári.
Verktakafyrirtækið Sniðill hf. í
Mývatnssveit annaðist ailar breyt-
ingar og innréttingar og allar áætl-
anir stóðust fullkomlega.
Sparisjóður Mývetninga var
stofnaður árið 1945. Aðalforgöngu-
maður að stofnun sjóðsins var Tóm-
as Sigurtryggvason, sem þá bjó í
Syðri-Neslöndum. Fyrsti sparisjóðs-
stjóri var Jónas Sigurgeirsson á
Heliuvaði, gengdi hann því starfi
til ársins 1980. Þá tók sonur hans
Ingólfur við og hafði það með hönd-
um fram á síðasta ár. Núverandi
sparisjóðsstjóri er Kristján Hjelm.
Sparisjóður Mývetninga er einnig
með afgreiðslu í Reykjahlíð. For-
maður stjórnar sjóðsins er Helgi
Jónasson, Grænavatni.
í tilefni flutningsins afhenti Ung-
mennafélagið Mývetningur sjóðn-
um fagurt málverk úr Mývatnssveit
eftir séra Örn Friðriksson.
UTBOÐ
Húsnæðisnefnd Akureyrar óskar eftir tilboðum í að byggja 36
félagslegar íbúðir. Um er að ræða níu fjögurra íbúða
fjölbýlishús við Snægil 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16 og 18 á
Akureyri. Húsin eru tveggja hæða, stærð alls 3.289 m2og
11.605 m? Lóð er 11.100 m2 að stærð.
Verkinu er skipt í tvo áfanga.
í fyrri áfanga verða byggðar 20 íbúðir við Snægil 10, 12,
14, 16 og 18. Verklok eru l.júlí 1997.
í seinni áfanga verða byggðar 16 íbúðir við Snægil 2,4, 6
og 8. Framkvæmdir við seinni áfanga eru háðar því að
Húsnæðisnefnd Akureyrar fái framkvæmdalán til verksins frá
Byggingarsjóði verkamanna. Framkvæmdir hefjast þegar
framkvæmdalán hefur fengist staðfest og verða tímasetningar á
greiðslum til verktaka í verksamningi eins og
framkvæmdalánasamningur segir til um. Stefnt er að því að
hefja framkvæmdir innan tveggja ára:
Útboðsgögn verða afhent á Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks hf., Kaupangi við Mýrarveg, Akureyri, gegn 30.000
kr. skilatryggingu. Ef þeir sem fá gögn skila ekki inn tilboði í
verkið endurgreiðist helmingur af skilatryggingu 15.000 kr. við
skil á gögnum.
Tilboð skulu berast á opnunarstað, fundarsal bæjarstjómar
Akureyrar í Geislagötu 9, eigi síðar en kl. 10.00 hinn 30. apríl
1996.
Tilboðsgjafi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Húsnæðisskrifstofan á Akureyri,
Skipagötu 12, sími 462 5311.
Morgunblaðið/Kristján
JÓN Þorsteinsson skipstjói'i hífir hrognatunnur í land.
ÞÓRÐUR Jakobsson og Ingólfur Ásgeirsson gera að hnísu.
Grásleppuvertíðin í ár
betri en í fyrra
I GRÁSLEPPUVERTÍÐIN stendur
nú sem hæst, en veiðar hófust
20. mars sl. Fimm bátar stunda
grásleppuveiðar frá Grenivík og
eru þrír menn á hverjum þeirra.
Jón Þorsteinsson skipstjóri á
Feng ÞH segir að vertíðin í ár
sé snökktum skárri en í fyrra,
enda hafi hún verið óvenjulega
léleg.
„Það má segja að þetta hafi
verið í slöku meðallagi í ár, ef
maður hugsar 5-10 ár aftur í tím-
ann. Menn hafa verið að fá 2-300
grásleppur í hverjum túr, en
veiðisvæðið er frá Flatey og alveg
inn að Látrum," segir Jón.
Grásleppukarlar fá töluvert af
þorski í netin og allt upp í 1,5
tonn í túr. Jón og skipverjar hans
á Feng komu með 380 grásleppur
að landi fyrir helgina, nokkur
hundruð kíló af þorski og eina
hnísu, en þeir fengu tvær hnísur
í grásleppunetin. Jón sagði þá allt-
af fá hnísu í netin annað slagið.
Gagnlegt uppeldis-
málaþing kennara
„MÉR fannst þingið afar gagnlegt
og það var mjög vel sótt,“ sagði
Guðmundur Heiðar Frímannsson
forstöðumaður kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri um uppeldis-
málaþing sem haldið var í Verk-
menntaskólanum á Akureyri um
helgina. „Ég vonast til að kennarar
og þeir sem sóttu þingið hafi haft
af því umtalsvert gagn og gaman.“
Kennarasamband íslands, Hið
íslenska kennarafélag og Félag
leikskólakennara stóðu að uppeldis-
málaþinginu og sagði Guðmundur
Heiðar framtakið verulega þarft.
Tveir útlendir fyrirlesarar fluttu
erindi, dr. Andrew Burke prófessor
í kennaramenntun við St. Pat.rick’s
Dublin City University, sem rætti
um kennaramenntun í Evrópu og
Ellen Wisloff frá ílogskolen í West-
falM Noregi, sem ræddi um kenn-
aramenntun í Noregi á tímum um-
bóta. Þá voru fluttir fyrirlestrar um
kennaramenntun í nútíð og framtíð,
framhalds- og endurmenntun kenn-
ara og um uppeldisháskóla.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
flutti erindi um kennaramenntun á
íslandi og gerði m.a. grein fyrir
tímamótum í starfsemi Iláskólans
á Akureyri á þeim vettvangi, en
fyrstu kennararnir verða brauD
skráðir frá háskólanum nú í vor„
Þá hefur háskólinn fengið heimild
til að stofna leikskólasvið innan
deildarinnar og hefst kennsla á því
næsta haust. Einnig hefur háskól-
inn fengið heimild til að hefja nám
í uppeldis- og kennslufræði fyrir
þá sem lokið hafa háskólaprófi.
Þannig vonast Guðmundur til að
innan nokkurra ára byði Háskólinn
á Akureyri upp á nám fyrir kenn-
ara sem sjá um nám barna allt frá
tveggja ára aldri upp í tvítugt.
♦ ♦ ♦
Féll út úr
bíl sínum
TÆPLEGA tvítugur ökumaður féll
út úr bíl sínum á ferð fyrir helgina.
Hann meiddist á höfði og var fluttur
á slysadeild FSA.
Atburðinn átti sér stað að nætur-
lagi á gatnamótum Skógarlundar og
Birkiiundar. Samkvæmt því sem
næst verður komist var ökumaðurinn
að sýna fífldirfsku er óhappið var.
Þykir mesta mildi að ekki varð þarna
stórslys. Félagi ökumannsins í fram-
sæti náði að stöðva bílinn.
Unga fólk-
ið og skatt-
arnir
„UNGA fólkið og skattarnir -
eru börnin féþúfa Friðriks?" er
heiti á fyrirlestri Finns Birgis-
sonai' sem fluttur verður á
umræðufundi um skattamál á
vegum Lýðveldisklúbbsins í
Deiglunni á Akureyri í kvöld,
þriðjudagskvöldið 16. apríl kl.
20.30.
í erindinu er einkum fjallað
um það hvernig núverandi
tekjuskattskerfi með öllum sín-
um tekjutengingum og jaðar-
sköttum bitnar einkum á ung-
um fjölskyldum, þrýstir niður
lífskjörum þeirra og mismunar
kynslóðum. Sagt verður frá
breytingum sem nú hafa verið
gerðar á þýska skattakerfinu í
kjölfar þess að þarlendur
stjórnarskrárdómstóll lýsti
fyrra skattkerfi ólöglegt og í
andstöðu við stjórnarskrána og
útskýrt er af hveiju íslenska
skattkerfið myndi fá sama dóm
á þeim vettvangi.
Að loknu erindi Finns verða
almennar umræður.
Tvö tilboð
í steinefni
TVÖ tilboð bárust í steinefni
til malbikunar á vegum Akur-
eyrarbæjar og Flugmálastjórn-
ar, en alls er um að ræða
19.100 tonn.
Tilboð Arnarfells var 11.390
þúsund krónur, en tilboð frá
Möl og sandi hljóðaði upp á
tæplega 15.982 þúsund krónur.
Þá voru opnuð tilboð í efra
burðarlag á öryggissvæði á
Akureyrarflugvelli og bárust
þijú tilboð. Möl og sandur átti
lægsta tilboð, 6.320 þúsund,
Ari Hilmarsson bauð 7.480
þúsund og Arnarfell 8 milljónir.
Bílvelta í
Eyjafjarðar-
sveit
BILVELTA varð við bæinn
Hvamm í Eyjafjarðarsveit um
áttalejdið á sunnudagsmorgun.
Ökumaðurinn sem var einn
í bílnum hlaut áverka á höfði
og var fluttur með sjúkrabif-
reið á slysadeild FSÁ. Hann
var grunaður um ölvun við
akstur. Bíllinn skemmdist mik-
ið og var dreginn í burtu með
kranabíl.
Námskeið um
slysavarnir
barna
BJÖRGUNARSKÓLI Lands-
bjargar og Slysavarnafélag ís-
lands stendur fyrir leiðbein-
endanámskeiði um slysavarnir
barna á Akureyri laugardaginn
20. apríl. Námskeiðið hefst kl.
10.30, stendur til kl. 18 og
verður hadið í Lundaskóla.
Markmið námskeiðsins er að
koma upp traustri keðju leið-
beinenda sem gætu leiðbeint
þeim sem hafa áhuga á að taka
þátt í almennu slysavarna-
starfi. Leiðbeinendanámskeiðið
er ætlað hjúkrunarfræðingum,
kennurum, leikskólakennurum
og leiðbeinendum í skyndihjálp.
Verð á námskeiðinu er 2.000
kr. og eru öll gögn innifalin.
Kennari verður Herdís I. Stor-
gaard frá Slysavarnafélagi Is-
lands.
►
I
>
\
i
I
r
F
»
I
|
\
»
|
l
»
4-