Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 43 FRÉTTIR Ráðstefna um gi*æna ferðamennsku FRÚ Vigdís afhendir skáta forsetamerkið á laugardag. 60 skátar fengu forsetamerkið MÁLEFNI grænnar ferðamennsku er viðfangsefni viðamikillar ráð- stefnu er haldin verður á Flúðum þann 19. og 20. apríl nk. Ráðstefn- an verður með óvenjulegu sniði því auk lifandi fræðsluerinda verður boðið til grænnar skoðunarferðar, I kvöldvöku og hlöðuballs. Skipaðir verða vettvangshópar sem m.a. hafa það að markmiði að gera úttekt á umhverfisþáttum í rekstri hótels og koma með tillögur Fundur með frambjóð- 1 endum FÉLAG stjórnmálafræðinema held- ur fund með forsetaframbjóðendum í Lögbergi, stofu 101, þriðjudaginn 16. apríl kl. 12.10. Yfirskrift fundarins er Forseta- embættið og framtíðarsýn og er til- gangur hans að kynna fyrir háskóla- nemum framkomna frambjóðendur j til embættis forseta íslands, sýn ' þeirra á embættið og framtíðina. Frambjóðendur munu halda stutta framsögu, svara spumingum úr sal og taka þátt í umræðum fundarins. um græna afþreyingarmöguleika fyrir ferðamenn á Flúðum. I fréttatilkynningu segir: „Mark- mið ráðstefunnar er að gefa áhuga- mönnum um ferðaþjónustu á íslandi sem gleggsta innsýn í hvernig græna ferðamennska virkar í fram- kvæmd og skapa vettvang fyrir umræður um framtíðarfarveg ís- lenskrar ferðaþjónustu., Komið verður inn á gildi umhverf- isvottunar samkvæmt EB-stöðlum, náttúrugjald, vistvæna stjórnun ferðaskrifstofa, virka ferðamennsku og þróun menningarafþreyingar í gegnum fornminjar, sögu og bók- menntir, skipulagsmál og sjálfbæra landnýtingu, ástand umhverfismála hér á landi o.fl. Það er ekki oft að tækifæri býðst til að njóta reynslu og þekkingar fagfólks frá stærstu ferðamanna- þjóðum í heimi, en erindi á ráðstefn- unni flytja m.a. Prof. dr. Hansruedi Muller frá Sviss, Angelica Frei frá Þýskalandi og Jouko Parviainen frá Finnlandi, en þau eru öll þekktir ráðgjafar í sínum heimaslóðum. Ráðstefnugjald er 6.900 kr. en þar að auki greiða þátttakendur fyrir gistingu og fæði á Flúðum. Skráning og upplýsingar í síma 561-5835. Að ráðstefnunni sendur ferðaráðgjafarfyrirtækið Landnáma í samvinnu við Goethe Institut og Flugleiðir." FRÚ Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, sæmdi 60 skáta á aldrinum 17 til 25 ára forsetamerkinu á Bessastöðum sl. laugardag. Aldrei hefur jafn stór hópur skáta verið sæmdur forsetamerkinu í sama skiptið. Forsetamerkið er æðsta þjálfunarmerki skáta. Þorsteinn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta, sagði að í móttöku að lok- inni athöfninni í Bessastaðastofu hefði frú Vigdísi verið færð þakk- argjöf frá skátahreyfingunni fyrir farsælt samstarf. Gjöfin var silfur- næla og handunnin silkislæða með merki hreyfingarinnar. Forseti ís- lands er verndari skátahreyfingar- innar og hefur hann afhent merkið 31 sinni frá upphafi. Frú Vigdís hefur afhent forsetamerkið 16 sinn- um. Skátarnir 60 eru alls staðar að af landinu. Kynning á Háskólan- um í Skövde FULLTRÚI frá Háskólanum í Skövde í Svíþjóð verður á ís- landi frá 15. apríl tii 29. apríl nk. Hann mun kynna tölvunám skólans, jafnframt því sem hann mun veita upplýsingar um annað nám erlendis. Fulltrúi frá Skövde verður í Upplýsinga- stofu um nám erlendis að Nes- haga 16 sem hér segir: Þriðju- dag 16. apríl kl. 13-15.30, miðvikudag 17. apríl kl. 13-17 og mánudag 29. apríl kl. 13-17. Föstudaginn 19. apríl verður kynningarfundur í Menntaskólanum á Akureyri kl. 14 að Möðruvöllum (hús skól- ans). Á þessum vetri hafa 39 ís- lenskir námsmenn verið við nám í Skövde í tölvu- og tækni- greinum. Umsóknarfrestur til náms við tölvudeild Háskólans í Skövde rennur út 15. maí fyr- ir íslenska umsækjendur. Al- mennar forkröfur eru stúdents- próf. Umsóknareyðublöð og kynningarbæklingar á íslensku eru fáanlegir hjá Upplýsinga- stofu um nám erlendis við Há- skóla Islands (Neshaga 16) eða hjá námsráðgjöfum framhalds- skólanna. Viðskiptaumhverfi og samkeppnisstaða ■ ÍSLENSKA lestrarfélagið og Lestrarmiðstöð Kennarahá- skóla Islands standa fyrir tveim opnum fyrirlestrum fimmtudaginn j 18. apríl í húsnæði Kennarahá- ' skóla Islands við Stakkahlíð. Ann- an fyrirlesturinn flytur Anna Lena Ostern, prófessor við kenn- araháskólann í Vasa í Finnlandi. Hún mun fjalla um hvernig nota má látbragð og líkamstjáningu í kennslu byijenda. Hinn fyrirlest- urinn flytur Margit Tornéus, pró- fessor við háskólann í Umeá í Svíþjóð. Fjallað verður um aðferð- ir til að ýta undir hljóðskynjun | barna, en aðferðirnar hafa reynst vel við undirbúning lestrarnáms og byrjendakennslu. Báðir fyrir- lestrarnir hefjast kl. 20.30. ■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp sem hefst miðvikudag- ( inn 17. apríl. Námskeiðið telst vera 16 kennsiustundir og verður ) haldið í Ármúla 34, 3. hæð. Kennt er á kvöldin. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Þeir sem hafa áhuga á að komast á þetta námskeið geta skráð sig hjá Reykjavíkurdeild RKÍ. Meðal þess sem verður kennt á námskeiðinu verður blástursaðferðin, endur- lífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna, beinbrotum, blæðing- um úr sárum. Einnig verður fjall- að um helstu heimaslys, þ.m.t. slys á börnum og forvarnir al- mennt. Að námskeiðinu loknu fá nemendur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. ■ AÐALFUNDUR Samtak- anna Lífsvogar verður haldinn 17. apríl nk. í sal kvennadeildar Slysavarnafélagsins, Sigtúni 9, og hefst hann kl. 20 með venjuleg- um aðalfundarstörfum og kosn- ingu stjórnar. Um kl. 20 er fyrir- hugað að kynna og ræða um fram- komið frumvarp um réttindi sjúkl- inga. Munu samtökin bjóða þing- mönnum til þess að taka þátt í þeirri umræðu. ■ FRÆÐSL UNÁMSKEIÐ um dulsálfræði verður haldið dagana 16. og 18. apríl kl. 20-23 í Síðu- múla 33. Á námskeiðinu verður fjallað um hvað vísindamenn segja um vísindalegar rannsóknir um dulskynjun (ESP), hugarorku, firðhræringar (plotergeist), árur og líkurnar á lífí eftir dauðann. Umsjón hefur Loftur Reimar Gissurarson, sálfræðingur, sem jafnframt veitir nánari upplýs- ingar. ■ AÐALFUNDUR Kvenrétt- indafélags íslands verður haldinn í kjallara Hallveigarstaða Jiriðju- daginn 16. apríl kl. 17.30. A fund- inum fer fram stjórnarkjör auk þess sem fulltrúar verða kjörnir á landsfund félagsins, sem haldinn verður dagana 27.-28. september nk. Þá verða lagðar fram tillögur til breytinga á lögum félagsins, kosið verður í fastanefndir félags- ins auk fleiri reglulegra aðalfund- arstarfa. ÞRJÁ næstu þriðjudaga í apríl munu málefnanefndir Sjáifstæðis- flokksins standa fyrir fundaröð um samkeppnis_stöðu Islands undir yfír- skriftinni: ísland á 60 mínútum. Fundirnir eru öllum opnir. Þeir verða haldnir á Hótel Borg og hefj- ast kl. 17.15 og standa í eina klukkustund. Fyrsti fundurinn verður i dag, þriðjudaginn 16. apríl. Umræðuefni þess fundar er íslenskt viðskipta- umhverfi og samkeppnisstaða at- vinnulífs. Framsögumenn verða: Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs Skelj- ungs hf. og Jón Sigurðsson, for- stjóri Össurar hf. Fundarstjóri verð- ur Halldóra Vífilsdóttir, varafor- maður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna. Annar fundurinn verður 23. apríl. Umræðuefni þess fundar er'mikil- vægi menntunar og menningar fyr- ir samkeppnisstöðu Islands. Fram- sögumenn verða: Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra, Sigrún Gísla- dóttir, skólastjóri og Súsanna Sva- varsdóttir, blaðamaður. Fundar- stjóri verður Guðlaugur Þór Þórðar- son, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þriðji og síðasti fundurinn í fundaröðinni verður 30. apríl. Þar verður rætt um nýsköpun og nýjar auðlindir, sérstaklega á sviði hugvits og upplýsingatækni. Framsögumenn verða: Halldór Blöndal, samgönguráðherra, Guð- björg Sigurðardóttir, tölvunarfræð- ingur og Geir Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Marels hf. Fundar- stjóri verður Elsa Valsdóttir, vara- formaður Heimdallar. í < <1 i i i i : i Úr dagbók lögreglunnar Fá innbrot og engin líkamsmeiðing Morgunblaðið/Ingvar TVEIR leigfubílstjórar slösuðust í aftanákeyrslu í miðri Ártúnsbrekku aðfaranótt sunnudagsins. 12.-15. apríl HELGIN var tiltölulega róleg. „Einungis" var tilkynntum 11 inn- brot og 10 þjófnaði. í nokkrum þjófnaðartilvikunum var um hnupl að ræða. Engin líkamsmeiðing var tilkynnt að þessu sinni. Vista þurfti 23 í fangageymslunum, en það telst fátt yfir helgi. Afskipti voru höfð af 30 manns vegna ölvunar- ástands á almannafæri og 7 öku- menn eru grunaðir um ölvuna- rakstur. Þá voru 30 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, auk þess sem skráningarnúmer voru tekin af nokkrum ökutækjum vegna vanrækslu á að fara þau til skoðunar. í 21 umferðaróhappi urðu slys á fólki í þremur tilvikum. Fernt var flutt á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á Vesturlandsvegi við Vallá á föstu- dag. Á laugardag féll 13 ára drengur af reiðhjóli á Háteigsvegi og lærbrotnaði og ökumaður var fluttur á slysadeild aðfaranótt sunnudags eftir að ekið hafði verið aftan á hann á Vesturlandvegi í Ártúnbrekku. Á föstudagsmorgun var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við Skip- holt. Hurð hafði verið spennt upp og tölvubúnaði stolið. Hluti þýfis- ins fannst þar skammt frá. í flest- um innbrotum helgarinnar var far- ið inn í bíla og úr þeim stolið geisla- spilurum og öðrum lauslegum verðmætum. Á föstudag lögðu lög- reglumenn hald á þýfi við húsleit í húsi við Mjölnisholt. í framhaldi af því upplýstust nokkur innbrot, þ. á m. nýlegt innbrot í sumarbú- stað við Meðalfellsvatn. Aðfara- nótt sunnudags var ungmenni handtekið í Seljunum eftir að hafa reýnt að stela þar bifreið. Á föstudag var tilkynnt um særða gæs á svæðinu við BSÍ. Við nánari eftirgrennslan virtist hún vera vængbrotin. Reynt var að handsama gæsina, en án árangurs. Því var ákveðið að aflífa hana á staðnum. Einu haglaskoti var hleypt af á u.þ.b. 50 metra færi og dó gæsin samstundis. Vegna góðviðris bergmálaði hvellurinn um svæðið. Á hverju ári þurfa lögreglu- menn að aflífa eða láta aflífa u.þ.b. 160 særð dýr á svæðinu. Ávallt er reynt að gæta þess að með þau mál sé farið af eins mikilli tillits- semi og nokkur kostur er. Maður féll af hestbaki við Rauða- vatn skömmu eftir hádegi á sunnu- dag. Hann var fluttur á slysadeild. Á sunnudag var tilkynnt um tvo menn vera að veiða á stangir í Ell- iðaám efst í Víðidal. Hald var lagt á aflann og veiðarfæri. Tilkynnt var um eld í íbúð við Reynimel á sunnudagskvöld. I ljós kom að gleymst hafði að slökkva undir potti á eldavél. Óverulegar skemmdir hlutust af. Lögreglan í Kópavogi og í Hafnarfirði í sam- vinnu við fíkniefnadeild lögregl- unnar í Reykjavík handtóku mann aðfaranótt laugardags er marg- sinnis hefur verið orðaður við inn- flutning og sölu fíkniefna. Við leit hjá honum fundust u.þ.b. 300 g af fíkniefnum og munir, sem grunur er um að hafi verið notað- ir sem gjaldmiðill i fikniefnavið- skiptum. Málið er í rannsókn hjá fíkniefnadeildinni. Þetta er í ann- að sinn á skömmum tíma, sem samstarf lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu skilar góðum ár- angri á þessu sviði. Ljóst er að ástæða er til gefa hnuplmálum sem og öðrum afbrot- um barna og unglinga aukinn gaum. í lögum er gert ráð fyrir sérstakri meðferð mála hjá lög- reglu tengdum börnum og ungling- um. Til að taka á afbrotum þessa aldurshóps meö hæfilegri ákveðni svo draga megi úr líkum á að þau endurtaki sig verða öll börn og unglingar, sem staðin verða að hnupli, framvegis færð á lögreglu- stöð. Þangað mun fulltrúi barna- verndaryfirvalda einnig verða kvaddur. í öllum tilvikum verður reynt að ná til foreldra og þeim kynntir málavextir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.