Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 27 AÐSENDAR GREINAR Friðun er líka nýting ÞAÐ hej;rist nú æ oftar, að íslendingar ættu að gerast for- ustuþjóð á sviði um- hverfismála. Meðal annars kemur það glöggt fram í skýrslu umhverfísráðherra í febrúar 1995 um ástand og þróun um- hverfismála á íslandi. Þar segir m.a. í kafla um viðfangsefni og framtíðaráherslur: „Lögð er áhersla á að Island verði um næstu aldamót fyrirmynd annarra vestrænna ríkja í umhverfísmálum eða m.ö.o. að ísland verði þá án nokkurs vafa hreinasta land hins vestræna heims og ímynd hreinleika og sjálfbærrar þróunar tengist allri atvinnustarf- semi í landinu.“ Því næst eru tald- ar upp leiðir að því marki, og ein leiðin er: „Að unnið verði að því að fjölga þjóðgörðum, friðlýstum svæðum og náttúruminjum.“ Tillaga um friðun tveggja áa Of lítið hefur gerst í því efni á undanförnum árum. Þó ber að geta laga um vernd Breiðafjarðar, sem sett voru í mars 1995, en sam- kvæmt þeim er nú unnið að vernd- aráætlun fyrir allt það svæði. Þá vinnur samvinnunefnd héraðs- nefnda nú að svæðisskipulagi fyrir miðhálendi íslands og má vænta fyrstu tillagna að landnotkun á hálendinu á þessu ári. Vonandi verður þar að finna tillögur um friðun og varðveislu landsvæða, sem er að sjálfsögðu ein leið nýt- ingar. Nú er komin fram á Alþingi tillaga um mikilvægt skref í þessu efni. Tillöguna flytur undirrituð ásamt Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, Svav- ari Gestssyni og Öss- uri Skarphéðinssyni og er hún svohljóð- andi: „Alþingi ályktar að fela umhverfísráð- herra að undirbúa lagasetningu um frið- lýsingu Hvítár/Ölfusár frá upptök- um í Langjökli til Ölfusárósa og Jökulsár á Fjöllum frá upptökum í Vatnajökli til ósa í Öxarfírði." Andvaraleysi til vansa Sú kynslóð, sem nú lifír í þessu landi, hefur verið virkjanafús. Hver stóráin á fætur annarri hefur verið fjötruð í viðjar steinsteypu og sér- stæð og einstök landsvæði eyðilögð eða stórskemmd. Á teikniborðum verkfræðinga hafa báðar þær ár, sem hér um ræðir, fengið sömu örlög. I kílóvattstunduin talið býr að öllum líkindum í þeim um '/6 þeirrar vatnsorku, sem sumir telja nú, að hagkvæmt geti orðið að virkja. Áætlanir um virkjun fjölmargra orkulinda landsins bíða fullmótaðar, en minna fer fyrir áætlunum um vemdun þeirra. Þó hefur verið gerð tilraun í þá átt. Vorið 1989 sam- þykkti Alþingi að fela ríkisstjóminni Hvítá/Ölfusá o g Jökulsá á Fjöllum eru merkileg- ustu stórár sem enn renna ótruflaðar um land okkar. Kristín Halldórsdóttir skrifar hér um nauðsyn þess að friðlýsa þær báðar. að láta undirbúa áætlun um vemdun vatnsfalla og jarðhitasvæða, fossa og hvera. Drög að slíkri áætlun skyldi lögð fyrir Alþingi til kynning- ar fyrir árslok 1990 og áætlunin fullbúin til staðfestingar síðar. Framkvæmdin hefur hins vegar gengið hægar en til stóð. Náttúm- verndarráð skilaði skýrslu um málið til umhverfísráðuneytis í nóvember 1994, en af frekari úrvinnslu hefur ekki enn orðið. Andvaraleysið er okkur til vansa. Vafasamt er að afkomendur okkar verði okkur þakklátir fyrir virkjanagleðina, ef á' landinu verður vart að fínna órask- aða á, þegar þeirra tími er kominn að njóta þeirra. Óviðjafnanlegir fossar Hvítá/Ölfusá og Jökulsá á Fjöll- um eru án efa merkilegustu stór- ár, sem enn fá að renna ótruflaðar um land okkar. í báðum ánum eru miklir fossar, sem laða að fjölda ferðamanna, Gullfoss í Hvítá og Dettifoss ásamt þremur öðrum fossum í Jökulsá á Fjöllum, en um þá fossa sagði sá góðkunni jarð- fræðingur, Sigurður heitinn Þórar- insson, að þeir væra samstæða, sem ekki ætti víða sinn líka á jarð- arkringlunni. Umhverfí ánna er mjög fjölbreytt og sérstætt, bæði hvað varðar náttúrafar og sögu þjóðarinnar. Hvítá/Ölfusá rennur að miklu leyti um blómlegar byggð- ir, sem löngum hafa hýst biskupa og höfðingja og meðfram henni era mikilvæg votlendissvæði. Jökulsá rennur um óbyggðir, þar sem hírð- ust útlagar fyrr á öldum, en era nú ýmist friðlýstar eða á náttúru- minjaskrá, og á láglendi rennur áin um einhvem fegursta stað lands- ins, Jökulsárgljúfur, sem eru að hálfu leyti friðlýst sem þjóðgarður. Óbætanlegt tjón yrði á náttúra ís- lands ef ár þessar fengju ekki að njóta friðar um ókomin ár, enda nóg til af annarri orku til að virkja, bæði í vatnsföllum og á jarðhita,- svæðum. „Brot af framtíðarhamingju" í friðlýsingum ánna fælist m.a., að vatnsmagni þeirra yrði ekki breytt af mannavöldum, t.d. með því að veita vatni, sem til þeirra fellur, inn á vatnasvið annarra áa. Mannvirkjagerð og jarðraski með- fram ánum yrði haldið í lágmarki og í óbyggðum yrði ekki komið fyrir mannvirkjum, sem áberandi eru frá árbökkunum. Náttúrulegt lífríki í og við árnar nyti verndar og umferðarréttur almennings meðfram ánum yrði tryggður. Þess yrði jafnframt gætt við skipulag og stjórnun ferðamennsku að Kristin Halldórsdóttir svæðunum yrði ekki spillt. Tillaga sama efnis var lögð fram á 113. löggjafarþingi, en dagaði þá uppi í nefnd. Þáverandi þingkon- ur Kvennalistans fluttu tillöguna undir forystu Sigrúnar Helgadóttur líf- og umhverfísfræðings. Eins og að framan segir er margt til marks um aukinn skilning og áhuga á verndun umhverfís og sérstæðrar náttúra landsins. Má því ætla, að efni þessarar tillögu eigi nú hljóm- grann. Menn skyldu minnast eftirfar- andi orða Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings í fjölriti Náttúra- verndarráðs 1978, Fossar á ís- landi: Því er nú mjög á lofti hald- ið, og vissulega með veigamiklum rökum, að í fossum landsins búi nokkuð af framtíð okkar þjóðar, er byggist á þeim verðmætum, sem mæld era í kílówattstundum. En þar við liggur einnig brot af fram- tíðarhamingju þjóðarinnar, að hún gleymi því ekki, að í fossum lands- ins búa einnig verðmæti, sem ekki verða metin til fjár, en mælast í unaðsstundum. Höfundur er þingkona Kvennalistans. • aSCOm Hasler • Frimerkjavél framtíðarinnar • Stílhrein, falleg hönnun • Svissnesk tækni og nákvæmni . j. nswniDssoN hf. i Skipholti 33,105 Reykjavík, sími 552 3580. Eldri borgarar - söfnum liði í SÍÐASTA mánuði var gert átak til að kynna starf Félags eldri borgara í Reykja- vík og nágrenni. Var það gert á „Viku aldr- aðra“ á 10 ára afmæli félagsins, þar sem fjölbreytt dagskrá var hvern dag og málefnin kynnt í fjölmiðlum í meira magni, en áður hefur tíðkast. Þótti þetta takast vel enda nutum við aðstoðar margra bestu listamanna landsins, sem gerðu þetta ógieymanlegt og oft stór-* kostlegt. Sýnir þetta að málefni aldraðra eiga víðtækan stuðning meðal listamanna og reyndar allra landsmanna, því að þátttaka var ágæt og oft frábær, eins og til dæmis í Laugardalshöll þar sem mættu á annað þúsund manns þótt veður væri slæmt. Þá tókst sjónvarpsútsending frá Ráðhúsi Reykjavíkur frábærlega og var öllum til sóma sem þar lögðu hönd á plóg. Allt skapaði þetta, og hin- ir fjölmörgu þættir aðrir, skemmti- lega stemmningu og vakti athygli á málefnum aldraðra. En þetta er ekki nóg. Orð eru til alls fyrst, en athafnir eru síðan nauðsynlegar. Aðgerða er þörf Um það eru víst flestir sam- mála að eitthvað þarf að gera til að gæta hagsmunamála aldraðra á öllum sviðum í víðasta skilningi. Eitt af því nauðsynlegasta er að efla samtök okkar svo að þau geti betur tekist á við hin mörgu málefni, sem þarf að sinna í bráð og lengd. í Félagi eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni eru nú um 6.000 eldri borgarar 60 ára og eldri á höf- uðborgarsvæðinu, þetta er varla nema 74 hluti þeirra, sem aldurs vegna ættu að vera félagar. Á öllu landinu starfa nú 43 félög eldri borgara, sem eru meðlimir í Landssam- bandi aldraðra. Alls eru í þeim um 13 þús- und félagar. Allt er þetta gott og blessað, en ef við berum okkur saman við félög eldri borgara í Bandaríkjunum, þá eru félagar þar 32 milljónir enda er byijað að skrá félaga við 50 ára aldur því að Eldri borgarar verða, segir Páll Gíslason, að treysta stöðu sína með starfi í eigin félögum. margir þar fara á eftirlaun miklu fyrr en hér. Samsvarandi tala hjá okkur ætti að vera að minnsta kosti 32 þúsund. Það er því aug- ljóst að við þurfum og eigum að geta gert betur til að auka áhrifa- mátt félagskapar okkar. Hvað getum við gert? Það yrði auðvitað of langt mál að tíunda öll þau verkefni, sem Páll Gíslason liggja fyrir að sinna, en nefna má nokkur: 1. Vera stefnumótandi um lög- gjöf sem snertir aldraða og undirbúningi slikra á frumstigi. 2. Fylgjast betur með undirbún- ingi fjárlaga hvers árs. 3. Gefa fullnægjandi leiðbein- ingar um tryggingarmál aldr- aðra. 4. Gera tillögur um lagabreyt- ingar sem gæta hagsmuna aldr- aðra, t.d. við heilbrigðismál, almannatryggingar og fleira. 5. Leita eftir tilboðum frá fyrir- tækjum á þjónustu og innkaup- um til hagsbóta fyrir aldraða. (Þetta er áberandi þáttur starfs erlendis.) 6. Sjá um kynningu á högum og verkefnum, sem aldraðir fást við. 7. Kynna einnig jákvæðar hlið- ar öldrunar og lífsviðhorf aldr- aðra. 8. Standa fyrir útgáfu fræðslu- og kynningarrita. Hér eru aðeins nefnd nokkur þau verkefni, sem blasa við, en mörg fleiri gætu komið til. Að sjálfsögðu reynum við í dag að sinna þessu, en til þess að fást við þetta allt af meiri krafti þarf meira fjármagn heldur en félög aldraðra hafa yfir að ráða. Að sjálfsögðu er það aldraðir sjáfir sem standa að þessu með því að efla félögin tneð fleiri félögum. Félög eldri borgara eru starfandi víða, hafíð samband við formennina í ykkar heimbyggð eða í Reykjavík á skrif- stofu FEB, Hverfisgötu 105, sími 552 8812. Það myndi líka skapa félögun- um betri grundvöll til að afla tekna á annan hátt með tilboðum frá fyrirtækjum o.fl. ef við værum fleiri félagar. Eldri borgarar! Látið ekki ykkar hlut eftir liggja. Treystum á okkur sjálf, en síðan aðra. Höfundur er læknir og formnður Fólags eldri borgnra í Reykjnvík og nngrenni. Hyundai Accent GS 5 dyra '95, græn- sans., 5 g., ek. aðeins 4 þ. km. V. 960 þús. MMC Lancer EXE Hiaðbakur '92, 5 dyra, sjálfsk., ek. aðeins 55 þ. km., spoiler, raf. í rúðum, hiti í sætum o.fl. Gott eintak. V. Nýr bíll (óekinn) Suzuki Sidekick JXi ’96, grásans., 5 g. (bein innsp.), spegilrúður, Nissan Sunny SLX 4x4 station ’93, grá- sans., ek. 77 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í sætum, toppgrind, dráttarkrókur o.fl. V. 1.190 þús. Plymouth Voyager V-6 SE '95, blár, sjálfsk., ek. aðeins 19 þ. km., 7 manna m/öllu. V. 2.850 Chevrolet Lumina APV 7 manna V-6 ’92, rauður, sjálfsk., ek. 70 þ. km., rafm. í öllu o.fl. V. 2,1 millj. Toyota Corolla XLi Hatchback '96, 5 dyra, 5 g., ek. 4 þ. km., spoiler o.fl. V. 1.230 þús. Audi 200 Quatro Turbo '85, 5 g., ek. 139 þ. km., rafm. í öllu, álfelgur o.fl. V. 880 þús. Sk. ód. Nissan Sunny SLX 4x4 station '92, brún- sans., 5 g.t ek. 102 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. V. 990 þús. Toyota Corolla 1.6 Si '94, hvítur, 5 g., ek. 39 þ. km., álfelgur, spoilersett, geisla- spilari o.fl. V. 1.200 þús. Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 567-1800 Löggild bílasaia Verið velkomin. Við vinnum fyrir þig. Toyota Carina II GLi Executive ’90, 4ra dyra, sjálfsk., ek. 108 þ. km., rafm. í öllu, spoiler o. fl. V. 890 þús. Dodge Caravan LE 4x4 '91, 7 manna, sjálfsk., ek. 91 þ. km., rafm. í öllu o.fl. V. 1.980 þús. Subaru Legacy 1.8 Station 4x4 ’90, sjálfsk., ek. 98 þ. km., rafm. í rúðum, grjót- grind o.fl. V. 1.080 þús. Sk. ód. Toyota Corolla GL Special series’91, 5 g., ek. 93 þ. km., 5 dyra, rafm. í rúðum, samlæsingar, blár. V. 690 þús. Húsbíll M. Benz 309 '86, hvítur, ek. 300 þ. km., 5 cyl., dísel, sjálfsk., 7 manna, svefnpláss, eldavél, gasmiðstöð, stórt for- tjald o.fl. o.fl. V. 1.490 þús. Sk. ód. Ford Mustang GT '95, ek. 14 þ. km., silf- urgrár, sjálfsk. Einn með öllu. Sjón er sögu ríkari. V. 2.980 þús. Sk. ód. Toyota Tercel 4x4 station '88, rauður, ek. 147 þ. km. V. 530 þús. Sk. ód. Toyota Landcruiser diesel ’87, 5 g., ek. 190 þ. km., drif og gírkassar ný uppt., loftlæstur aftan og framan. Nýl. 38“ dekk. Toppeintak. V. 1.870. Ford Taurus Station '86, svartur, 5 g., ek. 123 þ. km. Gott eintak. V. 670 þús. Lada Sport 5 gíra '91, hvítur, ek. 65 þ. km. V. 390 þús. Nissan Sunny 1.3 LX '90, 3ja dyra, blár, 4 g., ek. 84 þ. km. V. 460 þús. Subaru Legacy 2.0 Station '92, grár, 5 g., ek. aðeins 49 þ. km. V. 1.490 þús. Toyota Carina E '93, 5 dyra, rauður, 5 g., ek. 55 þ. km. V. 1.450 þús. Toyota Corolla XLi Hatchback 5 dyra, rauður, 5 g., ek. 24 þ. km. V. 1.050 þús. Toyota Landcruiser (stuttur) bensín '87, 5 g., ek. 139 þ. km. Gott eintak. V. 1.050 þús. MMC Colt GLXi '92, rauður, 5 g., ek. 85 þ. km., álfelgur, spoiler, rafm. í öllu o.fl. V. 860 þús. MMC Pajero V-6 '91, blár, 5 g., ek. 90 þ. km., rafm í rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V. 1.560 þús. Mazda 323 1.6 GLX 4x4 station '94, steingrár, 5 g., ek. 58 þ. km., álfelgur o.fl. V. 1.180 þús. Honda Civic ESi ’93, 3ja dyra, álfelgur, rafm. í rúðum, spoiler o.fl., ek. 50 þ. km. V. 1.250 þús. Cherokee Country 4.0 L High Output '93, grænsans., sjálfsk., ek. 80 þ. km. Gott eintak. V. 2.350 þús. Vantar nýlega bíla á skrá og á staðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.