Morgunblaðið - 16.04.1996, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Deilt um verð á hlutabréfum á aðalfundi Tollvörugeymslunnar
Hlutafjáraukning og
samrunaáætlun samþykkt
Úr
reikningum
ársins
1995
Tollvörugeymslan
Rekstrarreikningur Mnijónir króna 1995 1994 Breyt.
Rekstrartekjur 137,7 118,5 +16,2%
Rekstrargjöld 121,5 103,6 +17,3%
Rekstrarhagnaður 16,3 14,9 +8,9%
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (4,0) (2,7) +50,7%
Hagnaður fyrir skatta 12,2 12,3 -0,2%
Hagnaður ársins 9,9 9,7 +1,7%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1995 1994 Breyt.
I Etonir: I Milljónir króna
Veltufjármunir 42,9 38,0 +12,8%
Fastafjármunir 297,6 273,2 +8,9%
Eignir samtals 340,4 311,2 +9,4%
I Skuldir oo eioiO fó: I Milljónir króna
Skammtímaskuldir 33,6 38,1 ■11,7%
Langtímaskuldir 64,2 71,0 -9,5%
Eigið fé 242,6 202,1 +20,0%
Skuldir og eigið fé samtals 340,4 311,2 +9,4%
Sjóðstreymi
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 40,8 39,1 +4,6%
AÐALFUNDUR Tollvörugeymsl-
unnar hf. staðfesti í gær aðgerðir
stjórnar fyrirtækisins, sem miða að
því að sameina það Skipaafgreiðslu
Jes Zimsen hf., dótturfyrirtæki Eim-
skips. Væntanlega verður gengið frá
sameiningu félaganna á hluthafa-
fundi 29. apríl og mun Eimskip þá
að öllum líkindum eiga meirihluta í
hinu nýja félagi. Eimskip á nú um
43% hlut í Tollvörugeymslunni og
hefur gert hluthöfum hennar tilboð
um að kaupa bréf þeirra á genginu
1,15. Nokkrir hluthafar telja það
verð vera of lágt og gerðu athuga-
semdir við það á fundinum.
Rekstrartekjur Tollvörugeymsl-
unnar (TVG) námu 137 milljónum
króna á síðasta ári og var um að
ræða 16,2% aukningu frá 1994.
Rekstrargjöld voru 121,5 milljónir
eða 17,3% hærri en árið áður. Hagn-
aður eftir skatta nam 9,9 milljónum
í fyrra og er það 1,7% aukning frá
1994.
Á fundinum lá fyrir tillaga um
hlutafjáraukningu og áætlun um
samruna við Skipaafgreiðslu Jes
Zimsen. Tillagan, sem samþykkt var
með þorra atkvæða, heimilar stjórn-
inni að gefa út viðbótarhlutafé að
upphæð 30.920 þús. króna til þess
að skipta út hlutafé Skipaafgreiðslu
Jes Zimsen hf. í tengslum við sam-
runa félaganna. Þá voru samþykktir
stjómar félagsins í því efni staðfest-
ar. Tillagan er háð endanlegu sam-
þykki hluthafafundar um sammna
félaganna, sem haldinn verður 29.
apríl næstkomandi.
Of lágl verð
Á fundinum komu fram efasemd-
ir um að kauptilboð Eimskips í bréf
annarra hluthafa Tollvörugeymsl-
unnar á genginu 1,15 væri nógu
hátt og óskir um að birt yrðu þau
gögn sem liggja að baki tilboðinu.
Pétur Blöndal, alþingismaður, sem
gerði fyrirhugaðan samruna fyrir-
tækjanna tveggja að umtalsefni,
sagðist ekki sjá betur en hlutafé
Jes Zimsen væri metið á genginu
7,7 í þeim samruna. Tilboð Eim-
skips í hlutabréf í Tollvörugeymsl-
unni upp á 1,15 þýddi hins vegar
að hún væri metin á um 200 milljón-
ir. „Ef við drögum frá 5% arð-
greiðslur, eða 8,4 milljónir, þá er
enn eftir af eigin fé fyrirtækisins
33,8 milljónir, sem segir mér það,
ef áritun endurskoðenda sem fram-
kvæmdu matið er rétt, að best væri
að leysa það upp, selja eignirnar
og þá fengju hluthafarnir 1,4 fyrir
hlutafé sitt, plús 5% arð.“
Þorsteinn Halldórsson, heildsali,
sagði að fljótt á litið virtist sér að
eini tilgangur samrunans væri sá
að auka hlutafjárprósentu Burðar-
áss úr tæpum 43% í 52%. „Ég sé í
raun og veru engan annan raun-
verulegan tilgang. Eitt af því sem
getur líka skeð með samrunanum
er að ýmsir innflytjendur flytji við-
skipti sín yfir til annað hvort Jóna
eða Samskipa með þetta í huga.“
sagði Þorsteinn. Bent Scheving
Thorsteinsson kvaddi sér einnig
hljóðs og sagði að ekki lægju fyrir
miklar upplýsingar um hvernig
komist var að þessari niðurstöðu.
Óskaði hann eftir því að birtur yrði
nákvæmur útreikningur á matinu
og benti á að það hefði verið gert
áð.ur en fjórir bankar voru samein-
aðir í íslandsbanka fyrir nokkrum
árum.
Eðlilegt verð
Þórður Magnússon, stjórnarfor-
maður Tollvörugeymslunnar, sagði
að endurskoðendur beggja fyrir-
tækja hefðu komist að þeirri niður-
stöðu eftir mikla yfirlegu að rétt
væri að meta fyrirtækin með þess-
um hætti. Mikið hefði verið rætt
um hvaða aðferðir ætti að styðjast
við en í raun hefði sáralítið borið á
milli þeirra. Mat á verðmæti hluta-
bréfa í TVG hefði að miklu leyti
byggst á skráðu gengi félagsins á
Opna tilboðsmarkaðnum, sem hefði
haldist svipað mjög lengi. Þegar lit-
ið væri til þess að arðsemi hlutafjár
TVG væri ekki hærri en raun bæri
vitni um væri þessi niðurstáða ekki
óeðlileg. Þá taldi hann vel koma til
greina að sýna hluthöfum reikninga
Zimsen fyrir síðasta ár.
Á aðalfundinum var samþykkt
að greiddur skuli 5% arður af nafn-
verði hlutafjár til hluthafa vegna
ársins 1995.
Viðamiklum breytingum á hluthafahópi lokið hjá Handsali
Breytt í almenn-
ingshlutafélag
BP spáir að
hagnaður
aukist um
50%í5ár
London. Reuter.
BRITISH Petroleum býst við að
hagnaður fyrirtækisins eftir skatta
muni aukast um 50% á næstu fímm
árum og arðgreiðslur aukist að sama
skapi.
John Browne forstjóri sagði á árs-
fundi að hagnaður eftir skatta yrði
um 8% á ári eða meira og að hagnað-
urinn ætti að aukast 1.5 milljarða
dollara á næstu fimm árum eða svo.
Brown sagði að takast ætti að
halda skuldum í um 7-8 milljörðum
dollara og fyrirtækið ætti að geta
aukið fjárfestingarútgjöld í um 6
milljarða dollara.
VERÐBRÉFAFYRIRTÆKINU
Handsali hefur nú verið breytt í al-
menningshlutafélag og er stefnt að
því að skrá fyrirtækið á Verðbréfa-
þingi íslands að lokinni hlutafjár-
aukningu. Hluthafafundur félagsins
samþykkti þessar breytingar nýlega
og var í því skyni losað um allar
hömlur á sölu hlutabréfa í fyrirtæk-
inu, að því er fram kemur í frétta-
bréfi Handsals.
Á fundinum var jafnframt sam-
þykkt að veita stjórn fyrirtækisin^
heimild til þess að auka hlutafé þess
um 32,5 milljónir króna að nafn-
virði. Þar af er gert ráð fyrir að
starfsmönnum fyrirtækisins verði
boðið hlutafé að nafnvirði 7,5 millj-
ónir króna til kaups. Núverandi hlut-
hafar hafa fallið frá forkaupsrétti
sínum að því hlutafé sem selt verður
og er þetta gert í þeim tilgangi að
ná tilskyldum fjölda hluthafa til þess
að hægt verði að skrá Handsal á
VÞÍ. Til þess þurfa hluthafar að
vera a.m.k. 200 en þeir eru rúmlega
30 í dag.
I fréttabréfí fyrirtækisins kemur
jafnframt fram að gengið hefur ver-
ið frá sölu á hlutabréfum þeim sem
fyrrum minnihluti í félaginu seldi
meirihlutanum fyrr á þessu ári. Alls
var um 47 milljóna króna hluta að
nafnvirði og keypti þáverandi meiri-
hluti bréfin á genginu 2,2.
Sem fyrr segir hafa bréfín nú
verið seld og eru nýju hluthafarnir
um 20 talsips. Þeirra á meðal er
Trygging hf., sem nú er stærsti
einstaki hluthafinn með 11,6% hlut-
afjár. Að auki komu Sparisjóður
vélstjóra* Samvinnusjóður íslands
hf., Sund hf. og Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn hf. inn sem hluthaf-
ar.
Símkerfi fyrir
stofnanir og
fyrirtæki i öllum
greinum
atvinnulífsins.
NÝHERJI RADIOSTOFAN-
Skipholti 37 sími 569 7600
Verðbólguhraðinn mælist 2,1% fyrstu 3 mánuði ársins
Talið styrkja vaxtalækkanir
VÍSITALA neysluverðs mældist
175,8 stig miðað við verðlag í apríl-
byijun og hefur hún þá hækkað um
0,2% frá síðasta mánuði. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað
um 0,5% sem samsvarar 2,1% verð-
bólgu á ári. Viðmælendur Morgun-
blaðsins á verðbréfamarkaði telja að
þessi niðurstaða renni styrkari stoð-
um undir lækkun Seðlabankans á
skammtímavöxtum í síðustu viku.
Hækkun vísitölunnar nú stafar
fyrst og fremst af 4,3% hækkun
grænmetis, sem hækkaði vísitöluna
um 0,10%. Þá olli 7,9% hækkun á
áskrift dagblaða 0,06% hækkun á
vísitölunni. Síðastliðið ár hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 2,3%
og á sama tíma hefur vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis hækkað um 2,9%.
Áhrifa launahækkana
gætir ekki enn
Það vekur hins vegar athygli að
launahækkanimar frá því í janúar
hafa enn ekki skilað sér að neinu
marki út í verðlagið. í Gjaldeyrísmál-
um, fréttabréfí Ráðgjafar og efna-
hagsspáa ehf., er þetta skýrt með
samkeppni á markaði og góðri af-
komu fyrirtækja. Gengishækkun
krónunnar að undanförnu hafi sömu-
leiðis haldið aftur af verðhækkunum.
I ljósi þessa hafa Gjaldeyrísmál
endurskoðað verðbólguspá sína fyrir
þetta ár niður á við og er hún nú
2,1%. Það er 0,4% lægra en spáð var
í síðasta mánuði og 0,8% lægra en
spáð var í febrúar.
Ugg um i
geislun frá
farsímum
hafnað
London. Reuter.
FARSÍMAFYRIRTÆKI segja að
uggur um að geislun frá farsímum
geti verið skaðleg heilsu notenda
sé astæðulaus.
Ástæðan er sú að brezkur
framleiðandi hefur sett í sölu
tæki, sem nefnist „Microshield“,
kostar nokkur þúsund krónur og
hægt er að festa á farsíma til
draga úr geislun.
Framleiðandinn, Microshield
Industries Plc, segir rannsóknir
sýna að geislun frá farsímum
valdi því að vefir og líffæri í höfð-
inu hitni og geti orsakað höfuð-
verk.
Einnig eer bent á að nýleg
rannsókn á rottum í Bandaríkjun-
um gefi til kynna að tengsl séu
milli lítilla örbylgna á við þær sem
farsímar sendi frá sér og krabba-
meins á byijunarstigi. „Microshi-
eld“ tækið á að minnka örbylgju-
áhrifin um 90%.
John Simpson, forstjóri Micro-
shield Industries, kvaðst hafa orð-
ið var við mikinn áhuga fyrir-
tækja, þar sem farsímar eru al-
mennt notaðir, á nýja tækinu.
Farsímafyrirtæki og geislunar-
fræðingar sögðu hins vegar að
hvorki rannsóknir þær sem Mic-
roshield vitni til né prófanir far-
símaframleiðenda sjálfra sýni að
farsímar séu skaðlegir heilsu
manna.
„Vara okkar er hættulaus,“
sagði talsmaður Motorola, mesta
farsímaframleiðanda heims.
Vodafone, sem 2.5 milljónir
notenda í Bretlandi eru tengdir
við, kvaðst ekki í nokkrum vafa
um að farsímar Motorola og ann-
arra framleiðenda væru hættu-
lausir.
Fjárhættu-
spil í vélum
Singapore
Airlines
Singapore. Reuter.
FARÞEGAR flugfélagsins Sin-
gapore Airlines (SIA) fá ef til
vill að stunda fjárhættuspil í vél-
um félagsins fyrir árslok 1996.
Notað verður gagnvirkt mynd-
bandskerfi, sem félagið hefur
þegar komið sér upp að sögn
upplýsingafulltrúa SIÁ, Rick Cle-
ments.
Clements sagði að lítið yrði lagt
undir þar sem tilgangur félagsins
sé að „skemmta farþegum fremur
en að gera þeim kleift að græða
stórfé."
Kaupsýslublaðið Business Tim-
es í Singapore hermir að SIA og
British Airways ætli fyrst flugfé-
laga að taka upp rafræna leiki
og spil í vélum sínum.
British Airways hefur þegar
tilkynnt að félagið muni taka upp
upplýsinga- og skemmtikerfi fyrir
80 milljónir punda í vélum sínum
svo að farþegar geti drepið tím-
annn til dæmis með rúllettuspili
og með því að spila tuttugu og
eitt.
Stórgróði af
flugvélafjárhættuspili
Business Times segir að SIA
muni hagnast verulega af
skemmtikerfi sínu. Blaðið segir
að ef allar 70 vélar SIA verði
búnar kerfinu geti brúttóhagnað-
ur numið rúmlega 100 milljónum
Bandaríkjadala.
i
i
r
i
!
I