Morgunblaðið - 16.04.1996, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 17
ERLENT
Baráttan fyrir forsetakosningar að komast á skrið
Zjúganov með forystu
en Jeltsín sækir á
Moskvu. Heuter.
RÚSSNESKI umbótasinninn
Grígorí Javlínskí hvetur Borís
Jeltsín Rússlandsforseta til að
draga sig í hlé þannig að ný kyn-
slóð umbótasinna geti bjargað
Rússlandi frá stríði, kommúnisma
og mafíunni. Það má þó telja ólík-
legt að forsetinn verði við þessari
beiðni, þar sem að hann hefur á
undanförnum dögum hert kosn-
ingabaráttu sína til muna.
Javlínskí hefur safnað þeim
milljón undirskriftum, sem nauð-
synlegar eru til að bjóða sig fram,
en segist þó óttast að reynt verði
að útiloka framboð hans. „Ég er
sannfærður um að Jeltsín telji mig
vera vandamál. Ég býst við alls
kyns vandræðurn," sagði Javlínskí
í viðtali.
Zjúganov er enn sigurstrang-
legastur í forsetakosningunum,
samkvæmt tveimur skoðanakönn-
unum, er birtar voru á sunnudag.
í könnun, sem gerð var af rúss-
nesku skoðanakannanastöðinni,
sögðust 18% kjósenda vera
reiðubúin að kjósa Jeltsín sem er
sama niðurstaða og í könnun fyrir
tveimur vikum. Stuðningur við
Zjúganov jókst hins vegar um eitt
prósentustig í 26%.
Þegar aðrar spurningar voru
lagðar fyrir fólk í könnuninni kom
hins vegar í ljóst að fjörutíu pró-
sent kjósenda telja eftir sem áður
líklegast að Jeltsín vinni sigur í
síðari umferð forsetakosninganna
en einungis 23% töldu líklegast
að Zjúganov yrði forseti. Enginn
annar frambjóðandi var talinn eiga
raunhæfan möguleika á sigri.
Þjóðernissinninn Vladímír Zhír-
ínovskí var í þriðja sæti með ein-
ungis 4%.
I skoðanakönnun RAMIR-
stofnunarinnar jók Jeltsín fylgi
sitt úr 19% í 22% en Zjúganov
reyndist enn með 27%. Þegar spurt
var um síðari umferð kosninganna
kom í ljós að harðasta baráttan
yrði milli þeirra Jeltsíns og Zjúg-
anovs en sá síðarnefndi myndi þó
sigra með 40% gegn 34% atkvæða.
Gorbatsjov í framboð
Zjúganov hóf kosningabaráttu
sína í gær með fjöldafundum í
suðurhluta Rússlands. Réðst hann
harkalega á Jeltsín og sagði mark-
aðsumbætur stjórnar hans ástæð-
una fyrir efnahagsvanda þjóðar-
innar.
Reuter
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, og kona hans, Naína,
standa fyrir framan Aleksí II.
patríarka i dómkirkjunni í
Moskvu.
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum
Sovétforseti, var á laugardag
skráður sem frambjóðandi í for-
setakosningunum. Gorbatsjov
sagði að hann myndi innan
skamms kynna stefnuskrá sína er
yrði valkostur við stefnu þeirra
Jeltsíns og Zjúganovs. Gorbatsjov
nýtur mikillar virðingar á Vestur-
löndum en hefur verið óvinsæll í
heimalandi sínu.
Á sunnudag var Jeltsín forseti
viðstaddur messu í endurupp-
byggðri dómkirkju Moskvuborgar
og var það fyrsta athöfnin í kirkj-
unni frá því að Jósef Stalín lét
eyðileggja kirkjuna fyrir 65 árum.
Aleksí II. patríarki sagði við það
tækifæri að endurbygging kirkj-
unnar væri táknræn fyrir endur-
uppbygginu Rússlands og von um
betra líf fyrir þá eru væru að snú-
ast til guðs að nýju.
Meðal þeirra fímmtán hundruð
gesta sem voru viðstaddir athöfn-
ina voru Nóbelsverðlaunaskáldið
Alexander Solzhenítzín og óskars-
verðlaunaleikstjórinn Níkíta Mík-
halkov.
Halda frá Tsjetsjníju
Brottflutningur rússneskra her-
sveita frá Tsjetsjníju hófst í gær.
Yfirgáfu tvö herfylki sveita innan-
ríkisráðuneytisins bækistöðvar
sínar í Shovolskoi, norðaustur af
höfuðborginni Grosní. Eru þetta
þær hersveitir er lengst hafa verið
í burtu frá átakasvæðunum í suð-
ur- og vesturhluta Tsjetsjníju, þar
sem harðir bardagar hafa verið
háðir á undanförnum sex vikum.
Kjörbók Landsbanka íslands hefur í 12 ár verið langhagstæóasta og vinsælasta
óbundna bankabók landsins.
Þann tíma hefur innstæða yfir 80.000 þúsund íslendinga vaxið og dafnað
- rétt eins og Vala Flosadóttir 18 ára Evrópumeistari í stangarstökki.
Báðar eru fremstar á sínu sviði hér á landi
og þótt víðar væri leitað.
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna