Morgunblaðið - 16.04.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 19
ERLENT
LISTIR
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Stórfengleg myndbönd
MYNDLIST
lampa
London. Reuter.
BRESKIR læknar og vísindamenn
segja aö þeir hafi náð mjög góðum
árangri við að eyða húðkrabbameini
með nýjum leysilampa. Telja þeir,
að hugsanlega sé um að ræða tíma-
mót í baráttunni við sjúkdóminn.
Til þessa hafa rúmlega 150 sjúk-
lingar með húðkrabbamein, annað
en sortuæxli, verið meðhöndlaðir
með lampanum, sem er á stærð við
brauðrist og drepur krabbameins-
frumurnar. Tók meðferðin 45 fnínút-
ur og eftir nokkrar vikur voru öll
ummerki um húðkrabbann horfin.
„Hér er um að ræða mikilvæga
uppgötvun eða nýjung, sem mun
hugsanlega hafa veruleg áhrif á það
hvernig annað krabbamein verður
meðhöndlað," sagði Gordon McVie
prófessor og forstöðumaður Krabba-
meinsrannsóknastofnunarinnar
Cancer Research Campaign, CRC.
Reyndur á
annað krabbamein
Verið er að reyna lampann, sem
dr. Colin Whitehurst við Paterson-
stofnunina í Manchester fann upp,
á sjúkrahúsum í Skotlandi og N-
Englandi og verið er að undirbúa
prófanir á áhrifum hans á aðrar
krabbameinstegundir. Er þar um að
ræða krabbamein í heila, brjóstum,
vélinda, blöðruhálskirtli, þörmum og
móðurlífi en við því er venjulega
beitt uppskurði eða lyfjum.
CRC vinnur að því að fá einka-
leyfi á lampanum og bresk og banda-
rísk fyrirtæki eru að semja um um-
boð fyrir hann á heimsmarkaði.
MYNDBANDALIST
Steina Vasulka. Opið kl. 10-18 alla
daga til 12. maí. Aðgangur kr. 300
(gildir á allar sýningar). Sýningar-
skrá 900 kr.
Þér stendur til boða
ráðgjöf sérfræðinga um garða-og gróðurrækt
ÞAÐ eru ekki mörg ár síðan
fyrstu kynningar á þessu nýja list-
formi fóru fram hér á landi, þó
miðillinn hafi tekið að hasla sér
völl innan myndlistarinnar fyrir
meira en aldarfjórðungi; þannig
hafa íslendingar á stundum verið
undarlega aftarlega á merinni,
þrátt fyrir alla nýjungagirnina.
Ekki var þessi listgrein okkur
þó með .öllu ókunn, þar sem nokkr-
ir listamenn hafa komið að henni
hér. Þannig þekktu menn að
minnsta kosti til hennar, og má
síðan nefna sjónvarpsþætti um
þennan miðil sem Þór Elís Pálsson
vann fyrir nokkrum árum. Mynd-
bandalist hefur brugðið fyrir á
samsýningum, og loks var kynning
á myndbandalist kvenna á Kjarv-
alsstöðum á síðasta ári, sem varð
þó í raun ekki til að auka hróður
miðilsins.
Því má segja, að það sé fyrst
með þessari sýningu á verkum
Steinu Vasulka sem þetta listform
hafi fengið verðugt tækifæri til að
slá í gegn á íslandi. Og það tekst
svo sannarlega, því hér er á ferð-
inni ein athyglisverðasta sýning á
myndlistarsviðinu hér á landi það
sem af er árinu, sem ætti ótvírætt
að verða til þess að opna augu
fjöldans fyrir þeim fjölbreyttu og
ríkulegu möguleikum, sem þessi
miðill hefur upp á að bjóða.
Steina fæddist í Reykjavík 1940,
og lagði sem barn og unglingur
stund á fiðlunám, og fór loks utan
til frekara náms á því sviði í Tékkó-
slóvakíu. Hún fann sig hins vegar
ekki á því sviði, og eftir að hún
kynntist manni sínum sneri hún
sér að myndgerð og loks mynd-
bandinu um 1970, en þá voru þau
hjónin sest að j Bandaríkjunum.
Steina og Woody Vasulka hafa
verið í fremstu röð á þessu sviði
alla tíð síðan, og sérstaða þeirra
verka markast mikið af þeirri list-
þjálfun, sem þau komu með að
þessum nýja miðli. Gehe Youngblo-
od bendir á þessi sterku tengsl í
inngangi sínum í sýningarskrá:
„Fyrir Steinu Vasulka, sem hóf
listferil sinn sem fiðluleikari, eru
hinar fjölbreyttu rásir mynda og
hljóða í margskjáa myndbandalist
líkt og fjölrödduð tónlist, þar sem
hver rás líkist rödd í söng-
sveit. .. . Því er hægt að hugsa sér
innsetningarnar á þessari sýningu
sem kvartetta og tríó, þar sem
Steina nýtir sér sjónrænar hlið-
stæður hljómfalls, tóns, áferðar og
hljómblæs."
í sýningarskrá eru kynnt til sög-
unnar fjögur verk sem verða tekin
til sýningar hér á landi, og í raun
má tala um að með þeim séu skap-
aðar gjörólíkar, síkvikar innsetn-
ingar; þannig geta gestir fengið
að njóta mikillar ijölbreytni yfir
allan sýningartímann, eftir því
hvernig listakonan hefur ákveðið
að setja verkin fram.
Þessi verk eru nefnd „Eldrún-
ir“, „Ferund frá Tokyo“, „Raddan-
ir“ og „Ptólomeos". Það er fróðlegt
að lesa texta Gene Youngblood um
tilurð hvers fyrir sig og þá sam-
verkandi þætti sem þar er að finna.
Sérstaklega er fróðlegt að fylgjast
með ríkulegum þætti tónlistar eða
hljóðsetningar almennt í þessum
verkum, og t.d. er „Raddanir"
einkar áhi-ifamikil samsetning tóna
og myndmáls. „Eldrúnir" er ein-
stakur minnisvarði um eldinn, lif-
andi og myndræn form hans jafnt
sem hljóðin, sem eru ekki síður
mikilvæg.
Það sem á ef til vill mestan hlut
í að gera þessa sýningu svo sér-
staka og eftirminnilega er fram-
setningin, þar sem mynd- og hljóð-
heimi Steinunnar er sköpuð einstök
umgjörð. Myrkrið, stórir myndflet-
ir (sem sjá má frá báðum hliðum),
víðóma hljóð og margföldunaráhrif
speglunar á þessa heild verður til
að flytja gestinn alfarið inn í þenn-
an heim listakonunnar fremur en
að leyfa honum aðeins að líta inn
um gluggann. í þessu nær lista-
konan mun lengra með þessum
miðli en hefðbundin kvikmynd eða
sjónvarpsmynd gæti nokkru sinni
gert.
Hér er á ferðinni merkur listvið-
burður, sem vert er að benda sem
flestum á að njóta í eigin persónu.
Áhugafólk um kvikmyndir mun hér
sjá margt, sem þegar er tekið að
krydda almenna kvikmyndagerð,
og þeir sem hafa áhuga á nútíma-
tónlist fá ekki síður nokkuð fyrir
sinn snúð; hinn almenni listunn-
andi getur hér sannfærst endan-
lega um að myndbandalistin er
verðugur miðill sem á eftir að gera
myndlistina enn ríkulegri en hún
er fyrir.
Eiríkur Þorláksson
Steina Vasulka.
Morgunblaðið/Þorkell
Hvar og hvernig á aö nota áburö og fræ?
Er mosi í grasflötinni þinni?
Gosbrunnar, dælur, vatnsheldir dúkar,
stútar og fleira sem til þarf
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT
Vönduð gróðurhús
Garðverkfæri
Jurtalyf gegn
plöntusjúkdómum, skordýrum
Reuter
Mótmæli við Gorleben
LÖGREGLUMENN sprauta vatni
úr háþrýstitækjum á hóp fólks
sem lagðist á járnbrautarteina á
milli borganna Dannenberg og
Gorleben í Þýskalandi á sunnu-
dag. Fólkið mótmælti fyrirhug-
uðum flutningi á geislavirkum
úrgangi frá kjarnorkuverum sem
á að endurvinna í stöð er annast
slík verkefni í Gorleben. Telja
margir að hætta sé á slysum í
sambandi við flutningana.
Þingmeirihluti Majors aðeins eitt sæti
Hvatt til liðhlaups
í íhaldsflokki
London. Reuter.
BRESKI Verkamannaflokkurinn
hefur skorað á þá þingmenn Ihalds-
flokksins, sem eru óánægðir með
stjórn John Majors forsætisráð-
herra, að ganga til liðs við stjórnar-
andstöðuna. Til þessa hafa þrír
Krabbameins-
lækningar
Meinvörp'
umeytt
með leysi-
þingmenn íhaldsflokksins sagj; skil-
ið við hann en ekki virðast líkur á
meira liðhlaupi að sinni.
Ríkisstjórn Majors hefur nú að-
eins eins atkvæðis meirihluta á
þingi eftir mikinn ósigur í auka-
kosningum í síðustu viku og líkur
á, að hún baldi út kjörtímabilið fram
í maí á næsta ári hafa minnkað
verulega.
Bresku blöðin sögðu um helgina,
að tveir og jafnvel fjórir þingmenn
íhaldsflokksins, sem sættu sig ekki
við aukna hægristefnu Majors,
hefðu átt viðræður við fulltrúa
Verkamannaflokksins um hugsan-
leg flokkaskipti. Var sérstaklega
nefndur tii Peter Temple-Morris en
hann lýsti yfir í gær, að hvorki
hann né hinir þrír væru á förum
úr flokknum.
APGUS / ÖRKIN/SÍA GVQ27