Morgunblaðið - 16.04.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 23
LISTIR
Tveir menn og
þrjár konur
í einu tíaldi
LEIKLIST
T h c a t c r K c n n c d y
TVEIR MENN í
EINU TJALDI
eftir Anders Larsson. Leikendur:
Anders Slotte og Niklas Haggbloom.
Leikstjóri Dick Idman. Möguleikhús-
ið, föstudagur 12. apríl.
FINNSKA tveggja manna leik-
húsið Theater Kennedy kom hingað
til lands fyrir milligöngu Frú Emel-
íu og bauð upp á tæpra tveggja
tíma grátbroslega sýningu á leik-
verki sem þeir frumsýndu fyrir ná-
kvæmlega tveimur árum í Svenska
Teatern í Helsinki og hafa síðan
sýnt víða um heimaland sitt og á
öðrum Norðurlöndum. Verkið, Tveir
menn í einu tjaldi eftir Anders Lars-
son, gerir sig vel sem ferðaleikhús,
umgjörð er einföld - tjald, tvö reið-
hjól og svefnpokar - og hægt er
að leika hvar sem er (væri frábært
útileikhús).
Leikið er á sænsku og það skal
strax tekið fram að þótt undirrituð
sé slarkfær í þeirri syngjandi tungu
vandast heldur málið þegar sterkur
finnskur hreimurinn ræður ferð-
inni. Þannig fór nokkur hluti text-
ans óhjákvæmilega forgörðum og
hætt er við því að hin fínni blæ-
brigði samtalanna hafi að nokkru
leyti misst marks hjá gagnrýnand-
anum sem og fleiri áhorfendum.
En nóg skildist þó til að þræði var
vel haldið og víða naut hinn
skemmtilegi húmor verksins sín að
fullnustu.
Leikritið fjallar um tvo unga
menn sem hafa verið vinir frá
æskuárum sem fara saman í úti-
legu. Þeir virðast vera afar ólíkir;
annar þeirra (Anders Slotte) hefur
sig mun meira í frammi, virðist í
upphafi vera sjálfsöryggið uppmál-
að og sá sem hefur yfirhöndina í
vinskapnum. Félagi hans (Niklas
Hággblom) er hlédrægari og virðist
reynsluminni á fiestum sviðum. Sá
fyrrnefndi ítrekar dýrslegt eðli sitt
og karlmennsku, en segir vin sinn
vera hinn tilfinninganæma, mjúka
mann. Ekki veit ég hvort þetta leik-
rit er afsprengi þeirrar „karlabar-
áttu“ sem farið hefur fram hin síð-
ustu ár, einkum í Ameríku, þar sem
karlmenn taka sig gjarnan saman
og fara í ferð út í náttúruna til
fundar við horfna „karlmennsku"
sína og frumeðli og leitast við að
endurheimta sitt sanna eðli. Hvað
um það, Tveir menn í einu tjaldi
er samtímaverk og eflaust ágætt
innlegg í umræðuna um eðli karl-
manna, hlutverk þeirra í samtíman-
um og samskipti þeirra við hitt
kynið.
Eins og vænta má snýst flétta
leikritsins um að afhjúpa í gegnum
samtöl félaganna tveggja annað
eðli þeirra en það sem fyrst blasir
við. Dregin eru fram í dagsljósið
ýmis óvænt mál og tekst höfundi
oft að koma áhorfendum skemmti-
lega á óvart. Samtöl vinanna
tveggja snúast að mestu leyti um
kvenfólk og samskipti þeirra við
það. Þrjár konur koma mest við
sögu og eru þær svo fyrirferðar-
miklar í samtölunum og slíkir
áhrifavaldar í lífi þeirra að á vissan
hátt eru þær með í för þótt líkam-
leg návist þeirra sé ekki til staðar.
Túlkun leikaranna tveggja var
athyglisverð og leikstíll þeirra ólík-
ur því sem við eigum að venjast í
íslensku leikhúsi, sérstaklega hvað
varðar líkamsbeitingu. Meira mæddi
á Anders Slotte lengst af og tókst
honum að skapa trúverðuga per-
sónu: sjálfshæðinn og mótsagna-
kenndan töffara sem á sínar við-
kvæmu hliðar. Erfíðara var að fall-
ast á persónusköpun Niklas Hágg-
blom. Allan fyrri hluta leikritsins er
hann svo barnalegur og einfaldur
að manni finnst það jaðra við
heimsku og erfitt verður að trúa á
þá sterku og útsmognu hlið hans
sem í ljós kemur í síðari hluta, svo
ekki sé minnst á alla kvenhyllina!
Að minu mati hefði Hággbolm mátt
leik-a á aðeins hófstilltari nótum.
Það hlýtur að vera af hinu góða
að fá í heimsókn erlenda leikhópa
(a. m. k. á meðan þeir eru ekki
því lélegri). Það er gaman að sjá
hvað aðrir eru að gera og máta það
við það sem hér er gert. Leikrit
Anders Larsson er sniðugt og vel
mættu einhverjir íslenskir leikarar,
sem ekki eru að drukkna í verkefn-
um, taka sig til og þýða það á ís-
lensku og leika það í sumar (t.d. í
Laugardalsgarðinum) - ég myndi
mæta, þótt ekki væri nema til að
fá á hreint allt það í textanum sem
fór framhjá mér á þessari sýningu
af fyrrgreindum ástæðum.
Soffía Auður Birgisdóttir
Einleikara-
próf í
Listasafni
Islands
TÓNLEIKAR verða haldnir á veg-
um Tónlistarskólans í Reykjavík í
Listasafni Is-
lands miðviku-
daginn 17. apríl
kl. 20.30. Tón-
leikarnir eru síð-
ari hluti einleik-
araprófs Gúst-
avs Sigurðsson-
ar klarínettuleik-
ara frá skólan-
um. Kristinn Örn
Gústav Kristinsson leik-
Sigurðsson ur Uieð á píanó.
Á efnisskrá eru Fantasiestiicke
op. 73 eftir Robert Schumann,
Sónata eftir Paul Hindemith, Fjög-
ur stykki op. 5 eftir Alban Berg,
Stef og tilbrigði eftir Jean Franca-
ix, Blik eftir Áskel Másson og
Sónata op. 120 nr. 2 í Es-dúr eft-
ir Johannes Brahms.
Aðgangseyrir er 300 kr.
Fyrirmæli dagsins
EFTIR DAN GRAHAM
HÚSEIGANDI kaupi sér örk af
tvíspeglandi filmu (mylar) sem
sett er á glugga til að veijast
sólarljósi og augum vegfarenda
að degi til.
Filman skal sett á stofu-
gluggann.
I sterku sólarljósi er filman
gagnsæ innanfrá en einsog speg-
ill utanhúss. Þegar dimmt er yfir
og á bilinu frá sólarlagi til rökk-
urs verður sýn í báðar áttir eins,
speglandi og gagnsæ í senn,
þannig að svipir fólks og hluta
innanhúss og utanhúss sjást í
sama mund. Síbreytilegur styrk-
ur ljóssins veldur stöðugum víxl-
um gagnsæis og speglunar.
• Fyrirmæhisýning ísamvinnu við Kjarvalsstaði og Dagsljós.
Laglínur lifna
TRIO Borealis (Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Richard Talkowsky og
Einar Jóhannesson) ásamt Sigrúnu
Eðvaldsdóttur fiðluleikara léku á
tónleikum í Danmörku og Svíþjóð
nú í lok mars.
Gagnrýnandinn Jan Jacoby skrif-
ar í Politiken (29. 3.) um tónleika
sem haldnir voru í Örkinni, listhús-
inu nýja í nágrenni Kaupmanna-
hafnar. Jacoby segist sjaldan hafa
heyrt jafn fagra túlkun á verki
Messianens, Kvartett við endalok
tímanna, sem hann segir klassískt
nútímaverk. Hann segir að tónlist-
armennirnir íslensku hafi gætt
langar laglínurnar slíku lífi að svo
hafi virst sem þær væru með texta
og óregluleg hrynjandi liafi líkamn-
ast með þeim hætti sem sjaldan
gerist.
Staðið við gefin fyrirheit
í Arbetet Nyheterna í Malmö
(30. 3.) skrifar Lennart Bromander
og talai' um stórfenglegt tónlistar-
kvöld í Skandiasalnum í Malmö
Konserthus. Hann rifjar upp gaml-
an dóm um Sigrúnu Eðvaldsdóttur,
en þá kallaði hann hana Anne
DEMPARAR
Bílavörubúðin
FJÖDRIN
Skeifunni 2 — Sími 588 2550
Sophie Mutter íslands og segir að
hún hafi fyllilega staðið við gefin
fyrirheit. Hann hælir henni fyrir
leik í Vorsónötu Beethovens og
notar við það orð eins og ákefð og
samkvæmni. Sigrún lék verkið í
réttum anda Beethovens að dómi
gagnrýnandans.
Bromander þykir líka sómi að
leik Trio Borealis, sérstaklega hafi
Rímnadansar Jóns Leifs notið sín í
flutningi tríósins og sama megi
segja um Spor eftir Karsten Fundal.
Sorplúgulok
Verð kr. 7.540.
Laugavegi 29,
S. 552 4320 og 552 4321
Valgerður Einarsdóttir:
Ég hef stundað æfingabekkina í 2 ár og
líkað mjög vel. Ég var slæm af vöðva-
bólgum og er nú allt önnur. Ég mæli því
eindregið með æfingabekkjunum.
Margrét Ámundadóttir:
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur
stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma.
Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk, sem ekki
stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva
o.fl. 7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og
eykur blóðstreymi til vöðva þannig að ummál
þeirra minnkar. Einnig gefur það gott nudd og
slökun.
Ég er eldri borgari og hef verið hjá
Sigrúnu í æfingabekkjunum í 5 ár og
hlakka til í hvert sinn. Mér finnst þetta
ómetanleg hreyfing fyrir alla vöðva og
finnst mér ég ekki mega missa úr einn
tíma enda finnst mér að eldri borgarar
eigi að njóta þess að vera i æfingum til
að halda góðri heilsu og um leið hafa
eigin tíma.
Stefanía Davíðsdóttir:
Undirrituð hefur stundað æfingabekki-
na reglulega í 5 ár og líkað mjög vel.
Ég þjáðist verulega af liðagikt og
vöðvabólgum og þoldi þess vegna ekki
venjulega leikfimi. Með hjálp
æfingabekkja hefur vöðvabólgan smá
saman horfið og liðan í liðamótum allt
önnur. Þetta er eitthvað það besta
æfingabekkjakerfi fyrir allan líka-
mann sem flestir ættu að þola.
Erum meö þreksliga
Tilboö út apríl: 12 tímar kr. 5.900.
■ Ælingabekkir Hreylingar,Ármúla 24, sími 568 0677
Opið irá kl. 9'12 og 15-20 - Frír kynningartími
• Ert þú með lærapoka?
• Ert þú búin að reyna allt, án árangurs.
• Hjá okkur nærðu árangri.
• Prófaðu og þú kemst að því að senti-
metrunum fækka ótrúlega fljótt.
• Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki,
öxlum eða handleggjum?
• Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?
• Vantar þig aukið blóðstreymi, þol og
slökun?
• Þá hentar æfingakerfið okkar vel.
Ég hef stundað æfingabekkina í tvö ár
og finn stórkostlegan mun á vextinum.
Og ekki hvað síst hafa vöðvabólgur og
höfuðverkur algjörlega horfið. Þetta er
það besta sem ég hef reynt og vil ekki
missa úr einn einasta tíma.