Morgunblaðið - 16.04.1996, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Félag1 þýskukennara stendur fyrir árlegri þýskuþraut meðal 16-18 ára framhaldsskólanemenda
----------------------------------------1-----------------------------------------
Markmið að nemendur
kynnist landi og þjóð
EITT hundi'að og þrjátíu nemendur
á aldrinum 16-18 ára tóku þátt í
þýskuþraut framhaldsskólanema
að þessu sinni. Er þetta í fj'órða
sinn sem Félag þýskukennara efn-
ir til slíkrar samkeppni í samvinnu
við þýsk yfirvöld. Tveir nemendur
hrepptu mánaðardvöl í Þýskalandi
fyrir frammistöðu sína og 16 nem-
endur aðrar viðurkenningar.
Fara nemarnir tveir utan í júní,
þar sem þeir ferðast um landið og
skoða ýmsa merka hluti
og staði. „Þeir fara einn-
ig í skólaheimsóknir og
búa hjá fjölskyldum um
tíma. Hugmyndin er að
nemendur víðs vegar úr
heiminum kynnist landi
og þjóð en einnig hver öðrum, því
þarna hittast margir nemendur frá
ýmsum heimshlutum," sagði
Oddný Sverrisdóttir dósent við
þýskudeild HI en hún sér meðal
annarra um undirbúning keppninn-
ar.
Hér fylgja nokkur sýnishorn úr
þýskuþrautinni. Svörin eru annars
staðar á síðunni.
I. Lesskilningur
„Dicker Peter“, so heiSt eine der
gröSen Glocken der Welt. Sie wiegt
25 Tonnen, hat einen Durchmesser
von mehr als 3 Metern und hángt
mit acht kleineren Schwestern im
Glockenturm des Kölner Doms.
Wenn sie geláutet wird, dann hört
man ihren Klang noch in einer
Entfernung von 20 Kilometern.
Ganz Köln war auf den Beinen,
als man diese Glocke am 12. Nov-
ember 1924 zum Dom brachte. Sie
kam aus Thiiringen, wo damals der
einzige GlockéngieSer lebte, der
eine so groSe Glocke herstellen
konnte. Der Thuringer Meister
kannte wahrscheinlich noch einige
alte Rezepte. So soll er zum Beispi-
el mehrere hundert Eier gebraucht
haben, um die Form, in die das
fltissige Metall gegossen wurde,
richtig abzudichten. Leider konnte
er seine schönste Glocke
in Köln nicht mehr hören.
Er starb wenige Wochen
nach ihrer Fertigstellung.
Der „dicke Peter“ aber
wurde erst am Weihnac-
htsabend 1925 zum erst-
enmal geláutet. Beim
Aufhangen der Glocke hatte es
námlich sehr groSe Schwierigkeiten
gegeben.
Setjið kross við rétt svar, aðeins
eitt er rétt:
1. Warum wurde der „dicke Pet-
er“ nicht in Köln gegossen?
__ a) Weil es in Köln kein geeig-
netes Metall mehr gab.
__ b) Weil die Kölner Industrie im
Krieg zerstört worden war.
__ c) Weil die Glocke aus Thtiring-
en billiger war.
__ d) Weil es in Köln keine Fach-
Ieute ftir so groSe Glocken gab.
2. Bei welcher Gelegenheit war-
en auSerordentlich viele Kölner auf
der StraSe?
__ a) Als der „dicke Peter“ zum
erstenmal láutete.
i_ b) Als die Glozke zum Dom
130 nemend-
ur, 16-18 ára,
tóku þátt í
þrautinni
Brúðhjó
Allur boröbiinaður Glæsileg gjaíavara
on
Briiðarhjóna lislar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
gebracht wurde.
___ c) AIs die Soldaten zum Dom
marschierten.
___ d) Als die „Kaiserglocke“ her-
untergeholt wurde.
II. Málfræði og orðaforði
1. In diesem Monat kann ich
mir keine CDs kaufen, ..........
ich habe vor Weihnachten so viel
Geld ausgegeben.
___ a) darum
___b) weil
— c) ftir
— d) denn
2. Wie heiSt das Gegenteil (and-
stæðan)?
Schreiben Sie hier den richtigen
Buchstaben:
1. BegrtiSung
2. Lachen
3. Sieger
4. Freund
5. Helligkeit
6. Tief
a. Feind
b. Abschied
c. Weinen
d. Hoch
e. Verlierer
f. Dunkelheit
III. Landeskunde
Setjið kross við rétt svar, aðeins
eitt er rétt:
1. Hvaða borg er ekki í Þýska-
landi?
___ a) Rostock
___ b) StraSurg
___ c) Mainz
___ d) Hameln
IV. Textar með eyðum
Setjið viðeigandi sagnir í réttri
mynd í eyðurnar:
Gestern abend war ich mit .....
Freunden im Café. Wir hatten
..... nich lange dort gesessen,
da ......... sich die Ttir, und ein
............. Mann trat ein. Er
kam ........... unseren Tisch und
grtiSte: „Darf .... mich zu Ihnen
setzen?“Wir ........ zurtick und
sagten: „Bitte, nehmen .... Platz!“
„Danke“, sagte derjunge ....... ,
setzte sich auf den einen .....
der noch frei war, und ........
eine Portion Kaffee.
Morgunblaðið/RAX
EIRÍKUR Haraldsson formaður Þýskukennarafélagsins (t.v.),
því næst koma verðlaunahafarnir Ríkarður Ríkarðsson og Finn-
bogi Óskarsson. Við hlið hans stendur fulltrúi frá þýska sendiráð-
inu, dr. Alexander Olbrich.
Hrepptu mánaðar-
dvöl í Þýskalandi
RÍKARÐUR Ríkarðsson nemandi
í 5-X í Menntaskólanum í Reykja-
vík og Finnbogi Óskarsson nem-
andi á öðru ári í
Flensborgarskólanum í Hafnar-
firði urðu hlutskarpastir í Þýsku-
þraut 1996.
Keppnin er ekki sú eina sem
þeir hafa tekið þátt í, því Ríkarð-
ur sló út Islandsmeistara í flug-
sundi í mars síðastliðnum þegar
hann setti nýtt met og Finnbogi
er kominn í tíu manna undanúr-
slit hér á landi í Stærðfræði-
keppni Norðurlanda, sem fram
fer þessa dagana.
Ekki verið með áður
Hvorugur hefur þó tekið þátt
í þýskuþraut áður, en báðir voru
með að þessu sinni vegna ábend-
inga frá kennurum. „Mér hefði
aldrei dottið í hug að ég ætti
neitt erindi þangað,“ sagði Finn-
bogi og því komu úrslitin honum
í opna skjöldu. Tvímenningarnir
voru þó sammála um að þrautin
hefði ekki verið mjög erfið og
Finnbogi kveðst til dæmis alltaf
hafa átt frekar auðvelt með að
læra málfræði.
Hann hefur aldrei komið til
Þýskalands en Ríkarður nokkrum
sinnum og keppti hann meðal
annars þar í sundi í fyrra. „Ég
bjó í Svíþjóð frá 7 til 14 ára og
þá keyrðum við oft niður til Evr-
ópu. Ég er því sæmilega kunnug-
ur landinu," sagði hann. Þeir eiga
það þó sameiginlegt að geta vel
hugsað sér að stunda framhalds-
nám í Þýskalandi og á Finnboga
var að heyra að það væri reyndar
mjög líklegt. „Ætli það verði ekki
í raungreinum,“ sagði hann.
Ferð í stað vinnu
Að öllum líkindum verður far-
ið utan í lok júní og því lá bein-
ast við að spyrja hvað yrði um
sumarvinnu hjá námsmönnunum
tveimur. „Ég vann til dæmis bara
fyrri hluta sumars í fyrra en
seinni hlutinn fór í sundæfingar
og keppnir. Ætli þetta sumar
verði ekki svipað,“ sagði Ríkarð-
ur. „Ég reikna með að ganga
atvinnulaus í sumar, því ég á
ekki von á að hægt verði að fá
frí í heilan mánuð,“ sagði Finn-
bogi, sem hafði reyndar ekki
fengið vinnu þegar í ljós kom að
hann hlaut í verðlaun dvölina í
Þýskalandi.
skólar/námskeið
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna vió Burda. Sparið og saumió
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 551 7356.
myndmennt
■ Glerlist. Morgun- og kvöldnámskeió
aö hefjast. Skráning til 19/4.
Nánari upplýsingar í síma 588 7878 og
568 2568.
tungumál
■ Enskunám i Englandi
í boöi er enskunám allt árió viö virtan
enskuskóla. Barna- og unglinganámskeiö
6-18 ára í sumar. Fararstjórn meö
yngstu nemendum. Fjölskyldur velkomn-
ar. Fámennir hópar. Fæöi og húsnæði
hjá enskri fjólskyldu. Skoóunarferóir og
íþróttir í lok skóladags og um helgar.
Allar nánari upplýsingar gefur
Marteinn M. Jóhannsson eftir
kl. 18.00 í sfma 581 1652.
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein pláss laus á vornámskeiói í
maí-júní.
Hannes Flosason, s. 554 0123.
heilsurækt
■ Sjálfefli
Áttu erfitt meó að einbeita þér?
Gengur þér illa aó slaka á?
Viltu skapa þér þinn innri friö?
Dreymir þig sjaldan?
Áttu erfitt meö aö kyrra hugann?
Komdu þá á hnitmiðað námskeið í hug-
leiðslutækni hjá Sjálfefli, Nýbýlavegi
30, Köpavogi um næstu helgi kl. 10-17
báða dagana.
Efni námskeiðs:
Hvernig vinnur hugur okkar?
Hvað er hugleiösla?
Hvernig getum við notað hugleiðslu til
aó skapa innra jafnvægi, öryggi, frið og
Iífsgleði?
Kennarar: Kristín Þorsteinsdóttir og
Eggert V. Kristinsson.
Verð: Kr. 6.000,-.
Upplýsingar og skráning í síma
554-1107 milli kl. 10-12 f.h. annars
símsvari.
tölvur
■ Tölvunámskeið
Starfsmenntun:
- 64 klst tölvunám
- 84 klst. bókhaldstækni
Stutt námskeið:
- PC grunnnámskeið
- Windows 3.1 og Windows 95
- Word grunnur og framhald
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel grunnur og framhald
- Access grunnur
- PowerPoint
- Paradox fyrir Windows
- PageMaker fyrir Windows
- Internet námskeið
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Barnanám
- Unglinganám í Windows
- Unglínganám í Visual Basic
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í síma 561 6699, netfang
tolskrvik@treknet. is,
veffang www.treknet.is/tr.
Tölvuskóli Reykiavíkur
K.tl'fini ,!K. -íiii, .1.1 l.L'i‘1
Sjónvarps-
þáttaröð um
myndlistar-
kennslu
NÝ ÞÁTTARÖÐ um myndlist barna
og unglinga og myndlistarkennslu
í grunnskólum hefur göngu sína í
sjónvarpinu annað kvöld. Eru þætt-
irnir unnir í samvinnu Félags ís-
lenskra myndlistarkennara (FÍMK)
og Ríkisútvarps/Sjónvarps.
Að sögn Grétu Mjallar Bjarna-
dóttur- formanns FIMK er hug-
myndin á bak við þættina sú að
vekja athygli almennings á gildi
listkennslu. „Listkennsla getur haft
jákvæð áhrif á nýbreytni í atvinnu-
lífi og menningu þjóða.
Auk þess er myndræn framsetn-
ing og myndmiðlum stöðugt meira
áberandi. Því er mikilvægt að fólk
læri um uppbyggingu og áhrifa-
mátt þessa myndmáls og læri að
lesa myndir og skilja," sagði hún.
Fjögur aldursst.ig
Um er að ræða fjóra þætti, sem
hver er 20 mínútna langur, þar sem
tekið er fyrir ákveðið aldursstig
nemenda.
Fyrsti þátturinn fjallar um fyrstu
skólaárin og komið er inn á gildi
listkennslu, hvernig standa eigi að
henni, skapandi kennsluaðferðir og
fleira. í öðrum þætti er fjallað um
listkennslu 9-12 ára barna og m.a.
farið í hvernig listnám getur eflt
sjálfsvitund og siðferðiskennd. í
þriðja þætti er unglingastigið tekið
fyrir og í fjórða þætti framhalds-
skólastigið.
Víða er komið við í hverjum
þætti og rætt við fjölda sérfræðinga
auk foreldra og nemenda. Þættirnir
voru styrktir af nokkrum innlendum
félagasamtökum, stofnunum og
fyrirtækjum. Auk þess var veittur
sérstakur styrkur frá Norræna
menningarsjóðnum til þess að tal-
setja þættina yfir á hin Norður-
landamálin, en að sögn Grétu Mjall-
ar er mikill áhugi hjá skólafólki á
Norðurlöndum að fá þættina til
sýninga.