Morgunblaðið - 16.04.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 25
MENNTUN
Veggspjald
með tölu-
stöfum
ÚT ER komið á vegum forlagsins
Himbrima veggspjald, sem sýnir
tölustafína 0-10 ásamt táknmynd-
um og er þar um að ræða villt ís-
lensk spendýr og fugla. Prentað er
beggja vegna á spjaldið og er marg-
földunartafla á bakhliðinni. Tölurnar
eru merktar með mismunandi litum
þannig að börnin læra víxlregluna
svokölluðu, þ.e. að 3x5=15 og 5x3=
15, o.s.frv. Eru samsvarandi tölur
með sömu litum.
Dóra Hvanndal kennari og eig-
andi Himbrima hefur á undanförnum
fimm árum gefið út efni fyrir börn.
„Krakkar hafa gaman af því að
hafa myndir á veggjum, en mér
hefur oft fundist vanta falleg vegg-
spjöld, sem hafa líka þann tilgang
að fræða. Það sem böruin hafa fyrir
auguntím síast smám saman inn eins
og stafrófið eða margföldunarta-
flan,“ sagði Dóra.
Fyrsta verkið sem Himbrimi gaf
út var stafrófsveggspjald árið 1992
en síðan hefur komið út ein bók á
ári. Nú fýrir jól kom út bókin Vaski
grísinn Baddi, en um hann hefur
verið gerð kvikmynd, sem verið er
PRENTAÐ er beggja vegna spjaldsins.
að sýna í kvikmyndahúsum borgar-
innar um þessar mundir. Væntanleg
er verkefnabók, sem í verða kross-
gátur, leikir og ýmiss konar verk-
efni, sem tengjast sögubókinni um
Badda.
Veggspjaldið er silkiprentað hjá
Eureka en myndskreyting er eftir
Hrafnhildi Bernharðsdóttur mynd-
listarkonu. Það fæst meðal annars
i Skólavörubúðinni og Eymundsson
og kostar 1.490 krónur.
Samræmd próf 4.
og 7. bekkja verða
næsta haust
EKKI hefur endanlega verið ákveðið
hvenær samræmd próf verða hjá 4.
og 7. bekkjum grunnskóla, en sam-
kvæmt grunnskólalögum frá 1995
skulu slík próf fara fram í kjarna-
greinum hjá þessum árgöngum. Ein-
ar Guðmundsson deildarstjóri hjá
Rannsóknastofnun uppeldis- og
menntamála taldi líklegt í samtali
við Morgunblaðið að þau yrðu í
fyrstu viku nóvembermánaðar.
Einar sagði að aldrei hefði verið
rætt um að prófin yrðu í lok skóla-
árs, en hugmyndir hafi verið uppi
um að 7. bekkjar prófin yrðu í jan-
úar. „Vegna óska frá kennarasam-
tökum og skólastjórum var ákveðið
að halda prófin að hausti. Það er
gert í og með til að undirstrika til-
ganginn með prófunum, sem er að
fá upplýsingar um stöðu nemenda,
þannig að hægt sé að bregðast við
á skólaárinu. Þessu er öfugt farið
um lokaprófin eins og menn þekkja
úr 10. bekk,“ sagði hann. „Við fáum
hliðstæðar upplýsingar og hjá 10.
bekk en getum aukið notagildið með
því að hafa prófín að hausti."
Þær námsgreinar sem um er að
ræða eru stærðfræði og valdir náms-
þættir í íslensku. Líklegt er talið að
þeir námsþættir sem um ræðir verði
lesskilningur og stafsetning að þessu
sinni. „Síðan verður að sjá hver
reynslan verður og bregðast við með
viðeigandi hætti,“ sagði hann.
Stöðluð próf í stærðfræði
Hjá RUM er einnig verið að vinna
að stöðluðum kunnáttuprófum í
stærðfræði fyrir nemendur 1.-7.
bekkja grunnskóla. Eru þau væntan-
leg um mitt næsta skólaár. „Með
þeim prófum verður hægt að fá sam-
anburðarhæfar upplýsingar um
kunnáttu nemenda á sama stigi,“
sagði Einar. Engin slík próf hafa
verið til áður, en samkvæmt grunn-
skólalögum skulu skólum nú standa
til boða samræmd könnunarpróf og
stöðluð kunnáttupróf til greiningar
á námsstöðu nemenda.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BORNIN nota einnig tákn þegar þau syngja. Hér eru Daníel
Danni Þorbjörnsson (t.v.), Hulda Hrönn Agnarsdóttir, Helga
Guðmundsdóttir og Björgvin Axel Ólafsson.
A Víðivöllum
eiga allir sitt tákn
Á LEIKSKÓLANUM Víðivöllum
í Hafnarfirði á hvert barn og
hver starfsmaður sitt tákn og
hafa engir tveir sama táknið.
„ Við reynum alltaf að finna tákn
sem tengist barninu á einhvern
hátt, t.d. ef það er með spékoppa
þá er táknið að pota í kinnina
eða ef barnið er með eyrnalokka
þá er togað í eyrnasnepilinn,"
sagði Svava Guðmundsdóttir
leikskólastjóri í spjalli við Morg-
unblaðið.
Ástæða þess að aðferðafræðin
Tákn með tali (TMT) er notuð á
Víðivöllum er sú að frá upphafi
var starfandi þar deild fyrir
börn með sérþarfir, þar sem
TMT var notað.'Þegar deildinni
var lokað 1992 fóru börnin inn
á almennar deildir og þá var enn
meiri nauðsyn á að allir gætu
notað tákn til samskipta. „Marg-
ir söngvar og leikir sem við höf-
um notað gegnum árin eru með
táknum. Þetta eru söngvar og
leikir sem barnið lærir oftast
fyrst og finnst skemmtilegast,"
sagði Svava.
Ekki sama og táknmál
Tákn með tali er ekki það sama
og táknmál fyrir heyrnarlausa,
heldur er það Ijáningarmáti ætl-
aður heyrandi börnum, sem eiga
við mál- og talörðugleika að
stríða. Táknið er því lyálpartæki
en kemur ekki í stað tals. Upp-
hafsmenn þessarar aðferðar
voru þrír Danir, Marianne Bjer-
regaard, Lars Nygaard og Niels
Bentsen, sem gerðu tilraunir til
að nota hana við þjálfun þroska-
heftra barna. Leggja þremenn-
ingarnir áherslu á að alltaf skuli
flétta saman tali, látbragði og
táknum í eina samræmda heild.
Langflestir starfsmenn leik-
skólans Víðivalla hafa farið á
námskeið til að læra TMT og
nota þau í samskiptum við börn-
in. Segir Svava að ófötluðu börn-
in séu fljót að tileinka sér táknin
og noti þau í samskiptum sinum
við þau sem þurfi á þeim að
halda.
Börnin fljótari að læra
Hún segir þann misskilning
vera meðal sumra foreldra að
TMT hamli því að barn tali á
eðlilegan hátt en því fari víðs
fjarri. Reynslan sýni að TMT
reynist öllum börnum vel. Þau
virðist eiga auðveldra með að
tileinka sér sjónræna hreyfingu
eða táknið fremur en talað mál
og það virðist örva alhliða mál-
þroska, auk þess sem þau muni
til dæmis vísur og söngva betur.
„Eins ber að hafa í huga að ef
sem flestir geta notað TMT er
einangrun þeirra barna sem
aldrei geta „talað“ á eðlilegan
hátt rofin,“ sagði Svava.
Svör viö
þýskuþraut
Lesskilningur: 1) d - 2) b -
Málfræði og orðaforði: 1) denn
- 2) b,c,e,a,f,d - Landes-
kunde: 1) StraSburg. Textar
með 'eyðum: meinem, noch,
öffnete, junger, an, ich, gru6-
ten, Sie, Mann, Stuhl, be-
stellte.
18.APRÍL 1996
Munið ráðstefnuna sem haldin verður í Húsi iðnaðarins að Hallveigarstíg 1, fimmtudaginn 18.
apríl 1996 á vegum Verkfræðingafélagsins og Tæknifræðingafélagsins í samvinnu við Samtök
iðnaðarins og Iðnaðarráðuneytið.
12:30-13:00 Afhending ráðstefnugagna.
13:00-13:20 Formaður TFI, Páll A. Jónsson, setur ráðstefnuna og skipar
ráðstefnustjóra, Pál Kr. Pálsson, Sól hf.
Avarp. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
13:20-13:40 Framtíðarsýn iðnaðar á íslandi - möguleikar morgundagsins.
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri íslenska járnblendifélagsins.
13:40-14:00 Starfsskilyrði og samkeppnishæfni - hver er staðan og hvað þarf til.
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
14:00-14:20 Samspil iðnaðar og sjávarútvegs. Þorsteinn M. Jónsson,
framkvæmdastjóri Víftlfells. Helgi Geirharðsson, Samstarfsvettvangi
sjávarútvegs og iðnaðar.
14:20-14:40 Tækifæri á íslenskum og erlendum mörkuðum. Jón Ásbergsson,
Útílutningsráði íslands. Finnur Geirsson, Nóa Síríus.
14:40-15:10 Hlé.
15:10-15:25 Árangur í iðnaði. Bjarni Bjarnason, Kísiliðjunni.
15:25-15:45 Fjármögnun iðnfyrirtækja. Þorkell Helgason, ráðuneytisstjóri í Iðnaðar-
og viðskiptaráðuneyti. Benedikt Árnason, hagfræðingur Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneyti.
15:45-16:05 Nýsköpun og þróun. Baldur Hjaltason, Lýsi hf.
16:05-16:25 Starfsmenntun og uppbygging þekkingar. Ingi Bogi Bogason,
Samtökum iðnaðarins. Þorkelf Sigurlaugsson, Eimskip hf.
16:25-16:40 Umhverfismál í iðnaði. Guðjón Jónsson, ísal.
16:40-17:20 Pallborðsumræður. Sveinn Hannesson, Jón Ásbergsson,
Þorkell Helgason, Baldur Hjaltason, Bjarni Bjarnason og
Þorkell Sigurlaugsson. Stjórnandi, Páll Kr. Pálsson.
17:20 Ráðstefnuslit. Formaður VFÍ, Pétur Stefánsson.
Skráning þátttakenda á ráðstefnuna þarf að fara ffarn í síðasta lagi þriðjudaginn 16. apríl á
skrifstofú VFÍ og TFÍ í sfma 568 8511. Verð er 5.000 kr. fyrir félagsmenn og 6.500 kr. fýrir aðra.
Innifalið í verði eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar.
VERKFRj i ÍSLANDS
Tœknifrœðingafélag íslands
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
SAMTOK
Q)
IÐNAÐARINS