Morgunblaðið - 16.04.1996, Side 29
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 29
JMtoguiifybifrife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson. -
SKYNSAMLEG
UPPBYGGING
ÞORSKSTOFNSINS
LANGTÍMASJÓNARMIÐ um skynsamlega upp-
byggingu fiskistofnanna voru tekin fram yfir
sókn eftir skammtímagróða er Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra ákvað í gær að auka ekki við þorsk-
kvótann á þessu fiskveiðiári, þrátt fyrir háværar kröf-
ur um slíkt, ekki sízt á meðal þingmanna stjórnar-
flokkanna.
Mikil veiði af stórum þorski, sem vart hefur orðið
undanfarið, gefur vissulega tilefni til bjartsýni og að
hægt verði að auka þorskaflann á komandi árum.
Hins vegar hefði verið alltof snemmt að stökkva til
og auka þorskkvótann, þegar það er haft í huga að
þetta er fyrsta glætan sem sést eftir að þorskstofninn
var kominn í mikla hættu. Hefði ekki verið gripið til
róttækra og sársaukafullra verndunaraðgerða fyrir
þremur árum, er allt eins víst að stofninn hefði hrun-
ið algerlega. Þá hefði getað stefnt í algert veiðibann
um árabil, eins og raunin varð við Nýfundnaland eft-
ir hrun þorskstofnsins þar. Batamerkin nú eru ein-
göngu fyrsta vísbending um að friðunin hafi tekizt,
ekki ávísun á stóraukna þorskveiði.
Hafrannsóknastofnun hefur ekki talið að nein efni
væru til að auka þorskkvótann nú í vor. Stofnunin
hefur bent á að slíkt myndi bq'óta nýtingarreglu þorsk-
stofnsins, sem ríkisstjórnin samþykkti fyrir tæpu ári.
Reglan gerir ráð fyrir að aðeins fjórðungur veiði-
stofns þorsks, eins og Hafrannsóknastofnun metur
hann, sé nýttur ár hvert, aldrei þó minna en 155.000
tonn. Kvótinn er í þessu lágmarki á yfirstandandi
fiskveiðiári, en þó stefnir í að raunveruleg þorskvéiði
verði 10-15.000 tonnum meiri vegna afla smábáta
og tilflutnings veiðiheimilda milli fiskveiðiára.
Um leið og nýtingarreglan var samþykkt var lagt
fram mat Hafrannsóknastofnunar á því, hvernig auka
mætti þorskkvótann yrði henni fylgt. Þar var gert
ráð fyrir að kvótinn gæti orðið 168.000 tonn á næsta
fiskveiðiári og um 200.000 tonn fiskveiðiárið 1997-
1998.
Samþykkt nýtingarreglunnar í fyrra markaði í raun
tímamót í fiskveiðistjórnun á íslandi. Hún felur í sér
aukna festu við stjórnun og vernd fiskistofnanna til
lengri tíma og sé henni fylgt er komið í veg fyrir
pólitískar ákvarðanir um að auka arð þjóðarbúsins
af veiðum til skemmri tíma, án þess að hafa augu á
langtímaafleiðingunum, eins og dæmi eru um frá
undangengnum áratugum er veiðar hafa verið leyfðar
langt umfram ráðgjöf fiskifræðinga. Það er raunar
fyrst nú á allra síðustu árum, sem farið hefur verið
eftir tillögum vísindamannanna, og það virðist vera
að skila sér.
Þeir stjórnmálamenn og hagsmunaaðilar, sem hafa
hvatt til aukningar þorskkvótans, virðast hafa furðu-
stutt minni, að leggja í raun til að nýtingarreglunni
verði kastað fyrir róða áður en ár er liðið frá því að
hún var samþykkt. Rétta stefnan í fiskveiðistjórnun
er þvert á móti sú að taka upp slíkar aðferðir við
stjórnun fleiri nytjastofna í því skyni að byggja þá
upp að nýju og koma í veg fyrir að mistök fortíðarinn-
ar verði endurtekin. Álagið á ýmsa aðra nytjastofna
en þorskstofninn hefur verið aukið umfram ráðlegg-
ingar fiskifræðinga til að hlífa þorskstofninum og er
nú orðið brýnt að þeir fái nokkra hvíld.
Á meðal hagsmunaaðila í sjávarútveginum, einkum
hjá Landssambandi útvegsmanná, Sjómannasam-
bandinu og Vélstjórafélaginu, hefur hins vegar verið
að finna skilning á því að ekki sé skynsamlegt að
ganga gegn ráðum vísindamanna. Þessi skilningur
ætti að auka líkurnar á því að hægt verði að byggja
fiskveiðiauðlindina upp með skynsamlegum hætti á
næstu árum og áratugum.
LISTAVERKAGJOF TIL HORINlAFJARÐAR
Svavar Guðnason
INTERMEZZO, frá 1940.
Vilja stofna Listasafn
Svavars Guðnasonar
Homfírðingar hafa fengið að gjöf
30 listaverk eftir Svavar Guðnason
listmálara, úr safni dansks vinar
hans. Svavar var fæddur á Höfn
og hafa Homfírðingar nú áhuga á
að heiðra minningu hans, til dæmis
með því að stofna listasafn í hans
nafni og segir Gísli Sverrir Áma-
son, forseti bæjarstjómar, Helga
Bjarnasyni að það gæti orðið mik-
il lyftistöng fyrir byggðarlagið.
MOIRA trio, frá 1980.
Morgunblaðið/Sverrir
GÍSLI Sverrir Araason, forseti bæjarstjórnar, með vatnslitamynd
Svavars frá Höfn, Bæjarsamfélag við hafið, frá árinu 1933. Á
gólfinu fyrir framan hann er elsta myndin úr listaverkagjöfinni,
Landslag með sefgróðri, frá 1931 en mótívið er einnig talið vera
frá Höfn. Eiríkur P. Jörundsson, forstöðumaður Sýslusafns Aust-
ur-Skaftafellssýslu, heldur á málverkinu Fjólublár fugl frá 1959.
Viðbrögð við ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Forsætisráðherra segir
ekki um ágreining að ræða
NÚ liggur ljóst fyrir að þorskaflinn á þessu fiskveiðiári verður ekki aukinn
frá því sem áður var búið að ákveða.
Morgunblaðið/Kristinn
SVAVAR Guðnason listmálari
fæddist á Höfn árið 1909
og ólst þar upp til átján ára
aldurs. Hann byrjaði að
mála þar. Fór síðan í Samvinnuskól-
ann og dvaldist næstu ár að mestu
í Reykjavík, eða þar til hann hélt til
listnáms í Kaupmannahöfn í byijun
árs 1935.
Nokkur verkanna sem komin eru
austur á Hornaijörð eru frá því áður
en hann hélt til náms og mörg frá
námsárunum. Þar eru einnig nokkur
yngri verk. Mest eru þetta teikning-
ar og vatnslitamyndir en einnig þrjú
olíumálverk.
Langaði til Hornafjarðar
Verkin eru úr safni vinar Svavars,
Roberts Dahlman Olsen, arkitekts.
Ásta Eiríksdóttir, ekkja Svavars,
segir að þau hafi kynnst Robert þeg-
ar árið 1938 í París. Hann hafí hjálp-
að listamönnunum sem mynduðu
hinn svokallaða Copra-hóp, meðal
annars með því að kaupa af þeim
verk og einnig verið ritstjóri tímarits
þeirra, Helhesten. Ásta segir að
Dahlman Olsen hafi eignast mikinn
íjölda verka eftir Svavar og aðra úr
Copra-hópnum.
Um aðdraganda listaverkagjafar-
innar segir Asta að Dahlman Olsen
hafi komið fjórum sinnum hingað til
lands og hrifíst af landinu. Hann
hafi langað að fara til Hornafjarðar,
fæðingarstaðar Svavars, en aldrei
gefist tími til þess. Ásta segir að
hann hafi ákveðið að gefa þangað
hluta af verkum Svavars en líklega
ekki verið búinn að taka verkin til
áður en hann dó.
Herdis, ekkja Roberts Dahlman
Olsen, ákvað að halda þessu áfram
og fór Ásta til Kaupmannahafnar í
vetur til að aðstoða við að velja verk-
in og að koma þeim heim. Hornfirð-
ingar fengu Beru Nordal, forstöðu-
mann Listasafns Islands, til að veita
ráðgjöf um það hvernig best væri
að búa um verkin, innramma þau
og setja upp og fluttu þau austur
fyrir páska. Voru þau sett upp á
sýningu í Ekru, félagsmiðstöð eldri
borgara á Höfn, um páskana.
Gísli Sverrir Árnason, forseti bæj-
arstjórnar Hornaijarðar, segir að
ætlunin sé að bjóða Herdisi Dahlman
Olsen og Ástu Eiríksdóttur ásamt
öðrum þeim sem aðstoðað hafa við
framkvæmdina til Hornafjarðar við
gott tækifæri til formlegrar afhend-
ingar gjafarinnar. Segir hann að það
gæti til dæmis orðið á næsta ári, en
þá verður haldið upp á 100 ára af-
mæli byggðar á Höfn, meðal annars
með yfirlitssýningu á verkum Svav-
ars.
Ómetanleg gjöf
Bera Nordal segir að verk Svav-
ars i safni Dahlman Olsen hafi verið
þekkt og því fátt komið á óvart í
listaverkagjöfinni. Þau séu hins veg-
ar þannig valin að þau gefi skemmti-
lega mynd af Svavari sem listmál-
ara. Gjöfin sé mikils virði fyrir Horn-
firðinga og gæti orðið lyftistöng fyr-
ir staðinn.
„Þetta er ómetanlegt fyrir okkur
og við erum enn að átta okkur á því
hvaða efni við höfum í höndunum,"
segir Gísli Sverrir á Höfn. Hann seg-
ir að verkin spanni stóran hluta af
ævistarfi listamannsins, meðal ann-
ars námsárin, en ekki væri til mikið
af myndum frá þeim tíma. „Menn
hafa séð nýja hlið á Svavari,“ segir
hann.
Listasafn í nafni Svavars
„Það er hugur í mönnum að gera
eitthvað hér til að minnast Svavars,
til dæmis að stofna listasafn sem
tengt yrði nafni hans. Ég tel að það
gæti einnig orðið lyftistöng fyrir
byggðarlagið. Það gæti meðal ann-
ars orðið aðdráttarafl fyrir erlenda
ferðamenn, enda er Svavar sá ís-
lenski listamaður sem er einna
þekktastur erlendis,“ segir Gísli
Sverrir.
Til er vísir að listasafni í Sýslu-
safni Austur-Skaftafellssýslu en
samastað vantar fyrir málverkin.
Segir Gísli hugsanlegt að þau verði
sameinuð listaverkagjöfínni í Lista-
safni Svavars Guðnasonar. Komið
hefur til tals að taka Hafnarskóla
undir þessa starfsemi þegar byggður
hefur verið nýr skóli. Gísli Sverrir
segir umræður um þessi mál enn á
frumstigi en vonast til að málið skýr-
ist á næsta ári.
„Við Svavar vorum oft á Horna-
firði á sumrin og mér þykir vænt
um staðinn. Ég er því ákaflega
ánægð með að verkin skuli hafa far-
ið þangað og vona að hægt verði að
koma þeim fyrir og helst að bæta
við verkum," segir Ásta Eiríksdóttir,
ekkja listamannsins.
DAVÍÐ Oddsson forsætis-
ráðherra segir tvennt
hafa komið til greina, að
auka þorskafla strax og
óá minna í haust, eða auka hann
einvörðungu á næsta fiskveiðiári.
Ákvörðun sjávarútvegsráðherra
stángist ekki á við hugmyndir sínar
)ar að lútandi.
„Meginatriðið er það að engin
hætta var fólgin í því að auka afla
nokkuð nú í vor og heldur minna
í haust. Það lá engin tillaga fyrir
um aukningu nú, að minnsta kosti
ekki af minni hálfu. Það liggur fyr-
ir að aflinn verður aukinn og dag-
setningar hafa ekkert með vöxt og
viðgang stofnsins að gera, heldur
veiðihlutfall. Það er enginn ágrein-
ingur um þá aukningu, sem sjávar-
útvegsráðherra er auðvitað ljóst.
Hann kýs að fara þessa leið og
ekkert nema gott um það að segja,“
segir Davíð Oddsson.
Verða að hafa biðlund
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands útvegsmanna, seg-
ir útvegsmenn telja að svo skammt
sé eftir af fiskveiðiárinu, að eðlileg-
ast sé að meta þróun þorskstofnsins
fyrir árið í heild, en taka ekki
ákvörðun nú. Ákvæði um endur-
skoðun kvótans fyrir 15. apríl hafi
verið sett í lög til að hægt væri að
bregðast við ef eitthvað óvænt
kæmi upp á, en svo sé ekki nú.
„Fiskunum hefur vegna betur í
hafinu en áður vegna þess að hita-
stig er hærra og æti meira. Það
er ekki um það að ræða að nýir
árgangar hafi verið mældir stærri,
heldur er hver einstaklingur þyngri.
Með því að leyfa hveijum einstakl-
ingi að stækka, er hægt að nýta
stofninn betur. Við höfum verið
gagnrýndir fyrir hversu mikið við
veiðum af smáfiski, því að þar með
þarf miklu fleiri fiska í hvert tonn
en ef fiskurinn fengi að vaxa. Þessi
ákvörðun, að geyma fiskinn til
næsta fiskveiðiárs, verður til þess
að við getum aukið aflann út á
betri aðstæður,“ segir Kristján.
„Það alvarlega í málinu er að
lélegir árgangar eru framundan.
Þess vegna er ekki stórbreytinga
að vænta í framtíðinni. En eins og
forsætisráðherrann hefur sagt, er
sígandi lukka bezt. Við vonum að
á næstu árum getum við smáaukið
veiðina með því að hagnýta stofninn
betur, meðal annars með því að
veiða fiskinn fullorðnari og stærri.“
Kristján segir að uppbygging
þorskstofnsins sé sérstaklega mikið
hagsmunamál fyrir vertíðarbáta-
flotann, sem byggi meginhluta
veiðiheimilda sinna á þorski. „Þegar
heimildirnar hækka koma þær
HÉR fer á eftir í heild fréttatil-
kynning sjávarútvegsráðu-
neytisins vegna ákvörðunar um
óbreyttan heildarafla:
Sjávarútvegsráðherra hefur
í dag ákveðið að fyrri ákvörðun
um leyfðan heildarafla af þorski
á yfirstandandi fiskveiðiári
skuli óbreytt standa.
Samkvæmt lögum um stjórn
fiskveiða skal leyfður heildar-
afli af hverri botnfisktegund
ákveðinn fyrirfram fyrir upp-
haf hvers fiskveiðiárs. Á grund-
velli laganna ákvað sjávarút-
vegsráðherra á síðastliðnu
sumri að heildarafli þorsks
skyldi vera 155 þúsund lestir á
því fiskveiðiári sem nú er að
líða. Var þessi ákvörðun tekin
i samræmi við aflareglu sem
ríkisstjórnin samþykkti síðast-
bátaflotanum bezt, og verðmætin
munu skila sér til þeirra í framtíð-
inni. Menn verða bara að hafa bið-
lund til þess, því að hitt er miklu
alvarlegra að það komi brestur í
stofninn og við verðum að halda
áfram að minnka."
Aflareglan haldin
„Ég er mjög þakklátur og
ánægður með að menn skuli treysta
sér til að halda aflaregluna og
bijóta hana ekki á fyrsta ári,“ seg-
ir Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar. „Ég held þess
vegna að þetta sé mjög farsæl
ákvörðun þegar til lengri tíma er
litið.“
Ráðgjöfinni fylgt
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambandsins, segir að
sambandið hafi verið þeirrar skoð-
unar að fylgja ætti ráðgjöf fiski-
fræðinga. „Ráðherra virðist hafa
tekið þá ákvörðun að gera það líka
og það er í samræmi við okkar
skoðanir," segir Sævar.
Vonbrigði
„Mér eru þetta vonbrigði. Ég
hefði haldið að Þorsteinn hefði allt
með sér í það að auka kvótann, en
þetta er hans ákvörðun og hún
stendur," segir Arthur Bogason,
framkvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda.
Arthur segir að sér finnist sér-
liðið vor. Samkvæmt henni
skyldi heildarþorskaflinn á
hveiju fiskveiðiári samsvara
25% af veiðistofni en þó ekki
vera lægri en 155 þúsund lestir.
Ákvörðunum um leyfðan
heildarafla getur ráðherra
breytt innan hvers fiskveiðiárs
en þó er honum óheimilt að
breyta þorskaflahámarki eftir
15. apríl. í framhaldi af niður-
stöðum úr mælingum Hafrann-
sóknastofnunarinnar á stofnum
kennilegt að LÍÚ hafi kvartað mjög
undan þrengingum bátaflotans, en
nú þegar tækifæri sé til að létta
byrðunum dálítið af stærri bátun-
um, vilji útgerðarmenn ekki nota
það.
Hann segir að eflaust hafi af-
staða Hafrannsóknastofnunar ráðið
úrslitum við ákvörðun sjávarút-
vegsráðherra. „Þorsteinn hefur ver-
ið sannur í því að vilja fylgja ráð-
gjöf Hafró í einu og öllu, það er
engin tvöfeldni í því hjá honum.
Ég er þeirri einstrengingsstefnu
hins vegar ekki sammála og allir
höfum við rétt á að hafa okkar
skoðun,“ segir Arthur.
Kemur ekki á óvart
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, segir
að ákvörðun um óbreyttan heildar-
afla á þorski á fiskveiðiárinu komi
ekki á óvart í ljósi fundar hags-
munaaðila í sjávarútvegi með ráð-
herra á sunnudag. „Við lögðum til
að aflamagn í þorski yrði aukið um
10-15.000 tonn á fundi með hags-
munaaðilum [á sunnudag]. Með því
móti hefði mátt lækka eitthvað
leiguverð á þorskkvóta og draga
úr því að þorski sé hent, ef þær
sögusagnir eru réttar. í þriðja lagi
held ég að þetta hefði gert mörgum
bátnum auðveldara að halda áfram
veiðum þar sem þá vantar þorsk
sem meðafla. Að sjálfsögðu virðum
við, hins vegar, þessa ákvörðun
botnfiska - svonefndu Togara-
ralli - hefur risið mikil umræða
um hvort ástæða sé til að breyta
fyrri ákvörðunum um heiidar-
afla þorsks. Niðurstaða togara-
rallsins var sú að vísitala veiði-
stofns þorsks virtist vera á upp-
leið eftir nokkurra ára lægð
enda þótt nýliðun sé áfram slök.
Bráðabirgðamat á ástandi
þorskstofnsins í framhaldi af
togararallinu leiðir þó ekki til
þess að mati stofnunarinnar að
sjávarútvegsráðherra og gerum
okkur grein fyrir þeirri knöppu
stöðu sem hann er í. Innan fisk-
vinnslunnar eru skiptar skoðanir,
sumir vildu óbreytt magn, aðrir
vildu ganga talsvert lengra í kvóta-
aukningu það sem eftir lifír af fisk-
veiðiárinu. Þannig að við fórum bil
beggja í okkar tillögum. Við erum
því í sjálfu sér ekki mjög ósáttir
og verðum að sætta okkur við þessa
ákvörðun, sem er endanleg. Við
hljótum síðan að vona og trúa því
að þorskkvótinn verði aukinn um-
talsvert á næsta fiskveiðiári,“ segir
Arnar Sigurmundsson.
Sorgleg niðurstaða
Guðjón A. Kristjánsson forseti
t Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands telur misráðið að
auka ekki þorskkvóta á yfirstand-
andi fiskveiðiári. „Við þurfum á
þessum heimildum að halda og það
er ekki annað að sjá í gögnum sem
liggja fyrir en bjartsýni og aukn-
ingu og tel því að mátt hefði taka
eitthvað til viðbótar án þess að
skaði hlytist af, nema síður væri.
Við þurfum helst að lifa fram að
næsta fiskveiðiári og eigum mikið
óveitt af öðrum fisktegundum, sem
við hefðum þurft að geta veitt. Það
getum við hins vegar ekki ef við
höfum ekki þorskheimildir. Þetta
er sorgleg niðurstaða. Það er greini-
legt að þeir sem vilja halda leigu-
verði á kvóta uppi hafa orðið ofan á.“
beiting aflareglunnar leyfi
meira en 155 þúsund lesta heild-
arafla á þessu fiskveiðiári.
Skoðanir lielstu hagsmunasam-
taka innan sjávarútvegsins á því
hvort auka eigi heildaraflann
hafa verið nokkuð skiptar. Eftir
að hafa metið þau sjónarmið
sem fram hafa verið færð að
undanförnu með og á móti
aukningu þorskkvóta, er það
niðurstaða sjávarútvegsráð-
herra að breyta ekki fyrri
ákvörðunum um heildarafla af
þorski á yfirstandandi fiskveiði-
ári.
Er sú ákvörðun tekin með
hliðsjón af niðurstöðum Haf-
rannsóknastofnunarinnar og
mikilvægis þess að halda við
þegar mótaðar meginreglur um
ákvörðun heildarafla.
Ákvörðun tekin með
hliðsjón af niðurstöðu
Hafrannsóknastofnunar
i