Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 32

Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Hveijir eiga miðhálendið? MARGT er á huldu um eignar- og umráðarétt einstaklinga jafnt sem opinberra aðila á miðhálend- inu og er líklegt að sú óvissa eigi eftir að valda umtalsverðum vand- kvæðum í framtíðinni ef eigi verða fundnar hæfilegar lausnir, sem sæmilegur friður skapast um. Fyrr á tíð var landnýting á öræfaslóðum fremur einhæf og löngum í föstum skorðum hins gróna bændasamfé- lags - fyrst og fremst búfjárbeit að sumarlagi en jafnframt nokkur veiði og önnur hlunnindanot, eftir því sem aðstæður leyfðu. Með breyttum þjóðfélagsháttum hefur landnýting óbyggðanna tekið nokkrum stakkaskiptum, þótt enn nýti bændur þær að nokkru marki með hefðbundnum hætti, því að til sögunnar er komin umtalsverð ferðamennska, sem gerir sérstak- ar kröfur til aðstöðu og skipulagn- ingar umsvifa umfram hina hefð- bundnu búskaparhætti, og svipað er að segja um starfsemi og mann- virkjagerð vegna orkunýtingar. Fer þá ekki hjá því að hagsmunir ferðaþjónustunnar og orkunýt- ingaraðila geti skarast við hags- muni þeirra manna, sem gera til- kall til eignar- og umráðaréttar landsins í skjóli fornrar hefðar og venju. Allt er þetta að vísu mörgum kunnugt, en óleystur er enn vand- inn við að búa svo um hnúta að eigi verði árekstrar milli mismun- andi hagsmunaafla, sem með ein- um eða öðrum hætti gera tilkall til óbyggðanna - árekstrar milli þverrandi bændasamfélags (í hefðbundinni mynd) í uppsveitum þeirra héraða, sem liggja að hálendinu, annars vegar og „landlausra" þéttbýlisbúa og fyrir- tækja í ferðaþjónustu hins vegar, auk orku- nýtingarmanna. Þar bíður skipulagsyfir- valda mikið og verð- ugt hlutverk og sem betur fer er nú unnið að þessu þjóðþrifamáli á þeirra vegum. Hætt er þó við, að seint muni allri hættu á ágreiningi verða út- rýmt, og má í því sam- bandi m.a. minna á að hagsmunir hinna ýmsu „tengunda" ferða- manna fara alls ekki alltaf saman og að sjálfsögðu er mikil sam- keppni milli ferðaþjónustumanna innbyrðis. Vitað er, að eigendur sumra stóijarða, sem liggja að hálendinu, telja sig enn eiga mikil landflæmi inni í óbyggðunum, þ.á m. víðáttu- mikla sanda, hraunfláka og jökla auk gróðurlendis þar sem það er að finna - jafnvel allt inn að miðju landsins! Væri almennt mark tak- andi á eignarréttarkröfum af þessu tagi yrði að líta svo á, að stórir hlutar miðhálendis íslands séu undirorpnir beinum einstak- lingseignarrétti einhverra ein- staklinga eða annarra aðila. Stundum má reyndar finna forn skjöl, sem virðast við fyrstu sýn veita glöggar heimildir um beinan eignarrétt að af- mörkuðum víðáttum landsins, eða þá að upplýsingar frá „elstu mönnum" benda til hins sama, en oft reynist það svo, við nánari aðgæslu, að þessi gögn eða frá- sagnir halda ekki þeg- ar á hólminn kemur. Hefur þá oftar en ekki komið í ljós, m.a. fyrir dómi, að það, sem menn hafa viljað kalla fullkomið eignarland sitt, reynist ekki vera í þeirra eigu og hefur e.t.v. aldrei komist undir bein eignarráð eins né neins. í stað eignarréttar hefur þá oft einvörðungu skapast afnotaréttur, einkum réttur bænda til upp- rekstrar sauðfjár að sumarlagi ásamt veiðirétti í vötnum á afrétti o.þ.h. Þar sem svo háttar verða byggingarleyfi fyrir mannvirki, sem t.d. tengjast ferðamennsku, ekki veitt eða umsóknum um þau hafnað í skjóli eignarréttarins. Á síðustu áratugum hafa geng- ið allnokkir merkir hæstaréttar- dómar í málum þar sem reyndi á kröfur einstaklinga, sveitarfélaga eða upprekstrarfélaga um að við- urkenndur yrði eignarréttur þeirra yfir tilteknum öræfasvæðum (oft- ast gömlum afréttarsvæðum, sem kennd eru við nærliggjandi byggð- ir). Sannast sagna hafa krefjendur þó almennt eigi riðið feitum hest- um frá þeim dómþingum. Athygl- Páll Sigurðsson isvert er, að málin hafa venjulega farið á þá leið, að kröfum um bein- an eignarrétt hefur verið hafnað og hin umdeildu landsvæði jafnvel verið dæmd eigendalaus með öllu - einnig þar sem sjálft ríkisvaldið gerði kröfu til viðurkenningar á grunneignarrétti yfir þeim svæð- um, sem áður höfðu verið fríuð undan eignarréttarkröfum ein- staklinga eða sveitarfélaga. Má nú fullyrða, að Hæstiréttur hafi markað skýra stefnu í þessu efni. Landamerki jarða eru víða óljós, þegar heimalöndum sleppir, og er það að sjálfsögðu fallið til ágrein- ings og vandkvæða í samskiptum þeirra, sem landið vilja nýta. Þá er þess að geta, að mörk lögsagnarumdæma milli einstakra sveitarfélaga og stjórnsýsluum- dæma eru tíðum óviss á miðhá- lendinu og hefur einnig komið upp bagalegur ágreiningur manna á milli af þeim sökum. Er m.a. aug- ljóst, að vandkvæðum er og verður Eigendur stóijarða, seg- ir Páll Sigurðsson, telja sig eiga mikil landflæmi í óbyggðum. bundið að byggja nýja og nauðsyn- lega fjallaskála á vegum ferða- þjónustuaðila, þegar með öllu er óvíst til hvaða sveitarfélags á að sækja um byggingarleyfi, svo ein- falt dæmi sé tekið. Nýlega dæmdi Hæstiréttur á þann veg, að eitt hið fjölsóttasta og vinsælasta ferðamannasvæði á landi okkar, sjálf Þórsmörk, heyri ekki undir neitt sveitarfélag, og getur það augljóslega valdið vandkvæðum við uppbyggingu ferðamannaað- stöðu þar í framtíðinni. Af því, sem hér hefur verið sagt, má ljóst vera, að almenningur - þ.e. allt það fólk, sem lætur sér annt um náttúru lands síns, vemd hennar og skynsamlega nýtingu - hlýtur nú að gera þær kröfur til æðstu ríkisstjórnvaldá, einkum Alþingis en jafnframt fram- kvæmdarvaldshafa, að með kröft- ugu átaki og með lögformlegum hætti verði skorið endanlega úr álitamálum um óljós mörk lög- sagnarumdæma og um eignarrétt þeirra, sem gera tilkall til land- svæða í óbyggðum. Til þessa eru vissulega fyrir hendi úrræði, sem nota má og nota verður, en beiting þeirra þarfnast hins vegar styrkrar stjómar og nokkurs áræðis. Ég álít að meginþorri íslendinga muni styðja stjórnvöld í þessu átaks- verkefni og er því ástæðulaust að hvika þótt vitað sé að mótmæla- raddir muni í fýrstu heyrast frá tilteknum aðilum, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta en byggja andóf sitt á umdeilanlegum rétt- indum eða stundum engum. Æski- legast væri, að miðhálendið yrði allt með lögum gert að þjóðareign og jafnframt að friðlandi - jafnvel eins konar þjóðgarði með sérstöku sniði - og verði undir samræmdri stjóm í stað yfirráða (eða meintra yfirráða) tuga sveitarfélaga svo sem nú er, en hætt er við að sum hinna smærri sveitarfélaga muni vart eða ekki valda verkefnum á sviði byggingar- og skipulagsmála í óbyggðum. Það verður þó ekki gert nema sannanlegum eigendum óbyggðalendna (sem era í reynd miklu færri en oft hefur verið tal- ið) verði greiddar fullar eignar- námsbætur að undangengnu formlegu eignarnámi. Ólíklegt er, að almenningur muni horfa í fjár- greiðslur úr sameiginlegum sjóði til þeirra þarfa eftir að menn hafa almennt gert sér fulla grein fyrir því hvers virði sú þjóðarauðlind, er felst í óbyggðum okkar, hlýtur að vera okkur, sem nú byggjum landið, og afkomendum okkar. Höfundur er forseti Ferðafélags íslands. Samræmd neyð- arsímsvörun EINS og flestum landsmönnum er eflaust kunnugt er búið að taka í notkun nýtt neyðamúmer, 112, sem á að leysa öll gömlu neyðar- númerin af hólmi. Um það gilda „Lög um samræmda neyðarsím- svörun nr. 25/1995“. Allir hljóta að vera sammála um að með einu sameiginlegu neyðamúmeri fyrir alla landsmenn sé verið að stíga stórí skref fram á við í neyðarþjón- ustu íslendinga. Hins vegar hafa margir gagnrýnt fyrirkomulagið sem á að vera á starfseminni og þá sérstaklega þeir sem mest hafa sinnt neyðarsímsvörun fram að þessu, þ.e. lögreglumenn og slökkviliðsmenn. Tel ég að fólk geri sér ekki almennt grein fyrir því um hvað málið raunveralega snýst enda hefur það ekki verið kynnt nægilega vel. Það sem eink- um hefur verið gagnrýnt varðandi hina nýju neyðarsímsvöran er ann- ars vegar eignaraðild að fýrirtæk- inu Neyðarlínunni hf. og hins veg- ar fyrirkomulag þjónustunnar sjálfrar. Dómsmálaráðuneytið hefur samið við fyrirtækið Neyðarlínuna hf. um að sjá um samræmda neyðarsímsvöran fyrir allt landið með vaktstöð í Reykjavík og er ráðgert að starfsemin hefjist að fullu 1. júlí á þessu ári. Eignarað- ild Neyðarlínunnar hf. skiptist þannig að einkarekin fyrirtæki (ör- yggisgæslufyrirtækin Securitas, Vari, Sívaki og .Öryggisþjónustan) ásamt félagasamtök- um (Slysavamafélag íslands) eiga rúmlega 70% en opinberir aðilar (Reykjavíkurborg og Póstur og sími) eiga tæplega 30%, eða m.ö.o. einkaaðilar, og frjáls félagasamtök eiga yfirgnæfandi meirihluta í sameigin- legri neyðarsímsvöran landsmanna. Að mínu mati á samræmd neyð- arsímsvörun alfarið að vera á höndum og í eigu ríkis og sveitarfé- laga til að tryggja að allir geti notið þjón- ustunnar á jafnréttisgrandvelli og til að útiloka að einhveijir útvaldir aðilar hafí fjárhagslegra hags- muna eða annarra hagsmuna að gæta í slíkum rekstri. Það er eðli- legast að samræmd neyðarsím- svörun allra landsmanna sé sam- eign þjóðarinnar, rétt eins og mennta- eða heilbrigðiskerfið. Allt tal um fijálsa samkeppni eins og um hveija aðra söluvöru væri að ræða er út í hött og á ekki við um sameiginlega neyðarþjónustu. Starfsemi Neyðarlínunnar hf. virðist eiga að felast í því að á einum stað verði neyðarsímsvörun fyrir allt landið, stjómstöð Slökkviliðs Reykjavíkur, vöktun fyrir hin ýmsu aðvörunarkerfí á vegum öryggisgæslufyrirtækja og jafnvel fleiri verkefni. Starfsmenn Neyð- arlínunnar hf., svo- nefndir neyðarverðir, eiga að svara öllum hringingum í síma 112 og kalla út eða koma á sambandi við rétta viðbragðsaðila ásamt því að vakta aðvöranarkerfín. Það verður að teljast óeðli- legt að útseld þjón- usta einkaaðila í ör- yggisgæslu sé rekin með neyðarsímsvörun vegna löggæslu, sjúkraflutninga, slökkvi- eða björg- unarstarfa en þar er um ólíka starfsemi á allt öðrum forsendum að ræða. Þeirri spurningu er svo ósvarað hvort það verða slökkvi- liðsmenn eða neyðarverðir sem koma til með að stjóma útköllum Slökkviliðs Reykjavíkur. Lögreglu- og slökkviliðsmenn hafa sinnt nánast allri neyðarsím- svörun á íslandi frá upphafi enda eru langflestar beiðnir um aðstoð ætlaðar lögreglu og slökkviliði. I þessu sambandi má geta þess að yfir 80% sjúkraflutninga á landinu eru í höndum slökkviliða auk þess sem Iögreglan sinnir sjúkraflutn- ingum á nokkrum stöðum. Þeir lögreglu- og slökkviliðsmenn sem starfa við neyðarsímsvörun hafa yfirleitt margra ára og jafnvel Stefán Alfreðsson áratuga starfsreynslu og á það einnig við um störf á slysa- eða afbrotavettvangi. Mér er mjög til efs að starfandi lögreglu- eða slökkviliðsmenn muni sækja um störf hjá Neyðarlínunni hf. og kemur þar ýmislegt til er ég mun ekki rekja hér. Hvar á þá að fá fólk með raunverulega starfs- reynslu í neyðarsímsvörun? Til- vonandi neyðarverðir munu eiga að fá starfsþjálfun hjá „viðbragðs- aðilum“ sem eru þá fyrst og fremst lögreglan og slökkvilið. Draga verður þá ályktun að stutt starfskynning hjá viðbragðsaðil- um eigi að koma í stað margra ára og áratuga þekkingar og réynslu lögreglu- og slökkviliðs- Koma þarf á sameigin- legri varðstöð lögreglu og slökkviliðs, segir Stefán Alfreðsson sem telur fyrirkomulag Neyðarlínunnar hf. ekki til fyrirmyndar. manna. Slíkt er svipað og að ófag- lært fólk væri Iátið starfa sem hjúkrunarfræðingar á slysadeild- um sjúkrahúsa að loknu stuttu skyndihjálparnámskeiði. Reynslan hefur sýnt að best er að fólk í neyð komist í beint, milli- liðalaust samband við viðbragðsað- ila því að þannig verður viðbragðs- tíminn stystur auk þess sem líkur á misskilningi og mistökum þegar brugðist er við kallinu minnka. Rétt og skjót viðbrögð geta nefni- lega skipt sköpum og jafnvel skilið milli lífs og dauða í neyðartilvikum. Neyðarlínan hf. kemur óhjákvæmi- lega til með að vera milliliður milli fólks í neyð og viðbragðsaðila og í mörgum tilvikum hlýtur útkalls- tíminn að lengjast. Það fyrirkomulag sem ég og margir fleiri telja æskilegast í þess- um efnum er að komið yrði á fót sameiginlegri vaktstöð lögreglu og slökkviliðs og etv. fleiri aðila þar sem samræmd neyðarsímsvöran fyrir allt landið færi fram auk þess að vera sameiginleg stjómstöð opinberra aðila er sinna neyðar- þjónustu. Einnig mætti hugsa sér sams konar vakt- og stjórnstöðvar í hveijum landsfjórðungi eða víðar. Rekstur og eignarhald þessara stjórnstöðva væri alfarið á höndum ríkis og sveitarfélaga. Engin skynsamleg rök hef ég heyrt fyrir eignaraðild og fyrir- komulagi Neyðarlínunnar hf. Heyrst hefur að þetta sé í nafni sparnaðar hjá ríkinu en þó hefur lítið farið fyrir opinberam upplýs- ingum um kostnað eða skiptingu kostnaðar í því sambandi. Hitt er ljóst að ríkið og sveitarfélögin munu koma til með að þurfa að greiða verulegan hluta stofn- og rekstrarkostnaðar Neyðarlínunnar hf. þrátt fyrir minnihlutaeign í fyrirtækinu. Það er aumt til þess að vita að þjóð sem telur sig efnaða og vel menntaða skuli ekki geta rekið samræmda neyðarsímsvöran fyrir alla landsmenn þar sem tiltæk þekking og reynsla \ neyðarþjón- ustu er nýtt til fulls. Ég sem starfs- maður í neyðarþjónustu ríkisins, skattgreiðandi og almennur borg- ari hlýt að krefjast þess að betur verði staðið að þessari lífsnauðsyn- legu þjónustu og skora á almenn- ing, þingmenn og ráðamenn þjóð- arinnar að leggjast á eitt um að bæta þar úr. Höfundur er lögreglumaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.