Morgunblaðið - 16.04.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 33
FYRIR
WINDOWS 95
§n KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8C55
náðst að konur hafa í auknum
mæli stundað nám í greinum sem
áður voru helgaðar körlum. Hins
vegar er enn lítið um það að karl-
ar fari í nám sem konur hafa aðal-
lega stundað. Stór ástæða fyrir
þessu eru vafalaust þau laun sem
myndast hafa í hinum hefðbundnu
stéttum kvenna. Varanlegur
árangur að þessu leyti mun ekki
nást nema að viðhorfsbreyting eigi
sér stað. Nauðsynlegt er að virðing
sé borin fyrir störfum karla á t.d.
uppeldis- og umönnunarsviðum og
að það þyki sjálfsagt og eðlilegt
að karlmenn sinni slíkum störfum
í jafnríkum mæli og konur.
Öll getum við átt þátt í því að
viðhorfsbreyting eigi sér stað.
Aukið jafnrétti er hagsmunamál
bæði karla og kvenna. Nauðsyn-
legt er að kynin fari að vinna sam-
an að því að allir einstaklingar
njóti sömu tækifæra óháð kynferði.
Höfundur er 2. varaformaður
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna og starfar með Sjálfstæð-
um konum.
90 ára viðureign
ÞRIÐJUDAGINN
21. ágúst árið 1906
var mikill mannfjöldi
saman kominn í hinu
nýbyggða samkomu-
húsi Góðtemplara á
Akureyri þeirra er-
inda að fylgjast með
fyrstu kappglímu um
Grettisbeltið, _ sem
hlaut nafnið íslands-
glíman. Þarna voru
mættir tólf ungir kná-
legir menn til að
keppa um æðstu sig-
urlaun glímunnar.
Atta voru frá Akur-
eyri og fjórir úr Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Mikill áhugi
var fyrir þessari glímu meðal al-
mennings nyrðra og kapp og
metnaður glímumanna ekki
minna þá en nú. Svo fór sem
kunnugt er að Ólafur Valdimars-
son, ættaður frá Vopnafirði, sigr-
aði í þessari Íslandsglímu og varð
þar með fyrsti glímukóngur ís-
lands. Var hann þá 19 ára gam-
all og yngstur þeirra sem hlotið
hafa glímukóngstignina.
íþróttakeppni í 90 ár
Þessi fyrsta Islandsglíma var
mjög merkur atburður í íþrótta-
sögu íslands því hún markar upp-
haf samfelldrar íþróttakeppni á
nútímavísu hérlendis. Islandsglí-
man féll niður árin 1914 til 1918
á árum fyrri heimsstyijaldar en á
þeim tíma voru ýmis árviss íþrótta-
mót haldin, t.d. héraðsmót Skarp-
héðins á Þjórsártúni, þannig að
slík íþróttakeppni féll aldrei niður
með öllu eftir 1906. Áður höfðu
íþróttir oft verið þreyttar á manna-
mótum og þá var yfirleitt um
glímukeppni að ræða því aðrar
íjiróttir þekktust lítt. Þetta var
hins vegar í fyrsta sinn sem keppt
var um farandgrip sem árlega var
lagður undir til verðlauna handa
sigurvegaranum. 29 glímukóngar
Jón M. Ivarsson
hafa verið krýndir á
þessum 90 árum.
Grettisbeltið er
hinn veglegasti grip-
ur með silfurbúnum
sylgjum skreytt skildi
með mynd Grettis
fornkappa Ásmund-
arsonar enda gefið af
glímufélaginu Gretti
á Akureyri sem
kenndi sig við kapp-
ann. Beltið er skarað
silfurskjöldum með
nöfnum sigurvegara
og árlega er bætt við
skildi með nafni
sigurvegarans á belt-
ið. .Jafnframt er þá elsti skjöldur-
inn fjarlægður og settur í gler-
skáp í vörslu Glímusambands ís-
lands.
Íslandsglíman í dag
Laugardaginn 27. apríl næst-
komandi kl. 14 verður íslands-
glíman haldin í íþróttahúsi Kenn-
araháskólans. Þar sem nú eru liðin
90 ár frá upphafi glímunnar og
þar með almennri íþróttakeppni á
Islandi hyggst Glímusambandið
vanda sérstaklega til mótsins. Þar
Íslandsglíman, segír
Jón M. Ivarsson, hefur
líklega aldrei verið jafn
tvísýn og nú.
munu taka þátt öflugustu glímu-
menn landsins og verður keppt af
metnaði og þrótti og væntanlega
drengskap sem er aðalsmerki
góðra glímumanna.
Líklega hefur mótið aldrei verið
jafn tvísýnt og nú því ekki færri
en fimm glímukappar eru taldir
eiga jafna möguleika á að girðast
Grettisbeltinu. Til mótsins verður
boðið fyrri glímukóngum, for-
ystumönnum í íþróttahreyfing-
unni og svo öllum almenningi því
mótið er öllum opið og aðgangur
ókeypis. Það er von okkar sem
störfum að þjóðaríþrótt okkar ís-
lendinga að sem flestir komi að
fylgjast með Íslandsglímunni á
þessum tímamótum. Verið vel-
komin.
Höfundur er formaður Glímusam-
bands íslands.
Ármúli 17 108 Rvk. S: 533 1234 GRÆIUT MÚMER: 800 6123
HUGMYNDASAMKEPPNIN
i c. t n zm 0 C "
n
Lr
er kjörið tækifæri til að koma
góðri hugmynd á framfæri
UmsóknareySublöS og nánari upplýsingar fást hjá Björgvini Njáli Ingólfssyni,
Iðntæknistofnun Islands, Keldnaholti. Sími 587 7000.
Umsólcnarfrestur er til 3. mai 1 996
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ (^) IÐNLÁNASJÓÐUR jj IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR IðntæknÍStOfnun
Jafnrétti á öllum aldri
í ÞJOÐFELAGI
okkar verður sífellt al-
gengara að báðir for-
eldrar vinni úti. Það
uppeldishlutverk sem
áður var aðallega í
höndum foreldra og þá
einkum mæðra hefur
af þessum sökum í æ
ríkari mæli færst yfir
til leikskóla og grunn-
skóla. Mikilvægt er að
þegar frá unga aldri
njóti börn fræðslu um
jafnréttismál og að
sjónarmiðum um jafn-
rétti kynjanna sé hald- Áslaug
ið á lofti af kennurum Magnúsdóttir
og forstöðumönnum
umræddra stofnana.
Jafnréttislögin
í lögum um jafna stöðu og jafn-
an rétt kvenna og karla kemur
fram að í skólum og öðrum
mennta- og uppeldisstofnunum
skuli kynjunum ekki mismunað.
Þess beri að gæta í námi og
kennslu, starfsháttum og daglegri
umgengni við nemendur. Á öllum
skólastigum skuli veita fræðslu um
jafnréttismál, meðal annars með
því að leggja áherslu á að búa
bæði kynin jafnt undir virka þátt-
töku í samfélaginu, fjölskyldulífi
og atvinnulífi. Jafnframt skuli þess
gætt að kennslutæki og
kennslubækur séu þannig úr garði
gerð að kynjum sé ekki mismun-
aði. Einnig segir í lögunum að við
náms- og starfsfræðslu og við ráð-
gjöf í skólum skuli
leitast við að kynna
bæði piltum og stúlk-
um störf sem hingað
til hefur verið litið á
sem hefðbundin karla-
eða kvennastörf.
Jafnréttismál í
leikskólum og
grunnskólum
Þessari lagasetn-
ingu þarf að fylgja
eftir enn betur en gert
hefur verið. Iæggja
verður áherslu á að
fræðsla um jafnréttis-
mál nái til kennara og
skólastjórnenda. Skól-
ar verða að viðurkenna og vinna
eftir því að kynin eru ekki eins og
að þau hafi mismunandi þarfir.
Rannsóknir sýna t.d. að sjálfsmat
stúlkna er lakara en drengja þrátt
fyrir að stúlkur hafi að meðaltali
hærri einkunnir en drengir. Jafn-
framt hafa rannsóknir sýnt að
drengir eigi erfiðara með að sýna
tilfinningar sínar og að það valdi
samskiptaörðugleikum hjá þeim.
Þessir mismunandi eiginleikar
drengja og stúlkna endurspeglast
í sjálfsmati karla og kvenna á
vinnumarkaði. Margt bendir til
þess í könnunum að karlar telji
störf sín skipta meira máli fyrir
fyrirtækin en konur gera. Konur
telja síður að störf þeirra hafi þýð-
ingu fyrir fjárhagslega velgengni
fyrirtækjanna. Mikilvægt er að
strax í leikskólum og grunnskólum
Konur stunda í auknum
mæli nám í greinum,
segir Aslaug Magnús-
dóttir, sem áður voru
helgaðar körlum.
sé unnið markvisst að því að
styrkja bæði kynin á þessum svið-
um og öðrum sviðum þar sem þau
þurfa mest á því að halda.
Á síðastliðnúm árum hefur verið
bent á það að konur eiga jafnvel
enn ríkari þátt í uppeldi barna nú
en áður þrátt fyrir aukna þátttöku
feðra í heimilisstörfumm. Þetta
stafar af því að mjög mikill meiri-
hluti allra leikskóla- og grunn-
skólakennara eru konur. Hins veg-
ar er mikill meirihluti skólastjóra
karlar. Þessar fyrirmyndir hafa
óhjákvæmilega áhrif á viðhorf
barnanna til hlutverka kynjanna.
Þannig finnst börnunum eðlilegra
að konur sinni uppeldis- og umönn-
unarstörfum en karlar fremur öðr-
um störfum, svo sem stjórnunar-
störfum.
Kvenna- og karlastörf
Ekki er einvörðungu mikilvægt
að jafnréttissjónarmið ríki innan
leik- og grunnskóla því auðvitað
skipta framhaldsskólar og háskól-
ar líka miklu máli. Framhalds-
menntun hefur töluverð áhrif á
laun en kannanir benda til að eftir
því sem menntun kvenna og karla
eykst vaxi launamunur kynjanna.
Þó að launamunurinn verði til á
vinnumarkaðinum er mikilvægt að
menntakerfið ýti ekki undir þennan
mun, til dæmis með því að konur
séu hvattar til að stunda ákveðið
nám en karlar til að stunda annars
konar nám.
Reynt hefur verið að taka tillit
til þessa í námsráðgjöf með því
að kynna starfsgreinar jafnt fyrir
báðum kynjum. Sá árangur hefur
Vorvörurnar streyma inn
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfalnaSur
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433