Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 39

Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 39 auga fyrir margbreytileika við- fangsefnanna. . Síðustu misserin stýrði Ingólfur hópi list- og verkgreinakennara og kennslufræðinga á listgreina- sviði KHÍ. í því starfi kom vel í ljós áhugi hans á að efla þátt hönnunar og handverks í skóla- starfi, bæta starfsaðstæður verk- legra greina og auka veg verk- menningar. Ég hitti Ingólf síðast á skrif- stofu hans í Skipholtinu. Ég var á förum til Bandaríkjanna og hann trúði mér fyrir því að hann hefði hug á að komast vestur um haf, til að kynna sér stefnur og strauma í handmenntum. En fyrst og fremst vildi hann heimsækja rauðviðar- skóga og risafurur í Kaliforníu. Ingólfur teygði sig upp í hillu og dró fram kennsluhefti sem hann hefur tekið saman um viðarfræði. Síðan upphófst hann í fyrirlestur um risafururnar sem eru elstu líf- verur jarðarinnar, sumar um 4000 ára gamlar. Ég skynjaði í einni svipan ferska sýn á samspil nátt- úru og menningar. Frásögn Ingólfs minnti mig á stef úr Hringadrótt- inssögu Tolkiens, þar sem segir frá tijánum í Fangornskógum sem geyma minningar langt aftur í ald- ir, en lifa í annarri veröld og öðrum tíma en menn og vættir. Á örlaga- stundu leggjast Fangornskógar þó á sveif með hinum góðu öflum í baráttunni gegn myrkraöflunum. Komist ég einhvem tímann í skóga Kaliforníu mun ég sannarlega minnast Ingólfs G. Ingólfssonar og hugsjóna hans. Ingólfur og Helga bjuggu fjöl- skyldu sinni heimili í Lindar- hvammi í Kópavogi. Hús og garður mynda þar órofa heild um fjöl- skyldulífið og hönnun og hand- bragð bera smekkvísi þeirra og menntun fagurt vitni. Ég votta Helgu og fjölskyldu þeirra mína dýpstu samúð í sorg þeirra. Sigurjón Mýrdal. Kveðja frá Kennarafélagi Kennaraháskóla íslands Ágætur félagsmaður og sam- verkamaður, Ingólfur Gísli Ingólfs- son lektor í smíðúm, er látinn langt fyrir aldur fram. Daginn sem hann lést hafði hann komið í Kennarahá- skólann og rætt við sum okkar sem með honum störfuðum. Hann var fullur bjartsýni um að hefja störf á ný eftir páska en veikindi hans höfðu valdið því að hann hafði verið frá vinnu í nokkra mánuði. Síðdegis var hann allur. Okkur setti hljóð þegar fregnin barst. Snöggt andlát manns á besta aldri minnir okkur enn á ný á hve skammt er á milli lífs og dauða. Það vekur til umhugsunar um hve dýrmæt sérhver stund er og það gerir harminn sárari þegar horft er á bak góðum félaga sem kvaddur var burt alltof fljótt. Ingólfur var ötull og traustur samverkamaður. Glaðværð, bjart- sýni og fómfýsi einkenndu hann. Það var ætíð gaman að spjalla við hann því hann var einlægur og hressilegur í viðmóti, hafði mótaðar skoðanir á málum og átti sér vonir og drauma sem hann lét oft í ljós. Kennarafélag Kennarahásicól- ans naut hæfileika hans og þekk- ingar með margvíslegu móti. Hann var ávallt fús til að leggja sitt af mörkum til félagsins og samfélags HUGBÚNAÐUR FYRIR WINDOWS FRÁBÆR ÞJÓNUSTA B1KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 MINNINGAR okkar sem störfum við Kennarahá- skólann. Hann átti meðal annars sæti í stjórn félagsins í nokkur ár og gegndi því starfi af trú- mennsku. Sl. vetur þegar félagið hóf að lagfæra íbúð í húsnæði skól- ans að Varmalandi í Borgarfirði tók hann því strax vel að vera í nefnd til að undirbúa og skipu- leggja framkvæmdir og var ætíð boðinn og búinn að leggja málinu lið eins og hann gat best. Hæfileik- ar hans og smekkvísi áttu dijúgan hlut í því að svo glæsilega tókst til sem raun ber vitni. Ingólfs er sárt saknað í hópi samstarfsfólks hans í Kennarahá- skólanum. Við kveðjum hann með virðingu og þökk og vottum eigin- konu hans, bömum og öðrum ná- komnum ættingjum dýpstu samúð okkar. Fh. Kennarafélags Kennaraháskóla Islands, Giinnar J. Gunnarsson formaður. Ingólfur Gísli Ingólfsson.-Iektor við Kennaraháskóla íslands, var góður félagi. Því kynntumst við samstarfsmenn hans á margvísleg- an hátt en sérstaklega vel þegar við unnum með honum að lagfær- ingu íbúðar Kennarafélags Kenn- araháskólans að Varmalandi í Borgarfirði. Síðastliðinn vetur fórum við með Ingólfi og fleirum fjölmargar vinnuferðir þar sem Ingólfur var potturinn og pannan í því sem gera þurfti. Harin var sá sem skipulagði verkið frá upphafi til enda. Hann gerði nýtt skipulag að íbúðinni, stjómaði innkaupum, vann vandasömustu verkin og stjórnaði okkur hinum af alúð og mikilli fagmensku. Það veittist honum létt að setja okkur fyrir og kenna okkur rétt handbragð enda góður hönnuður og reyndur kenn- ari í smíðum við Kennaraháskól- ann. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sín og annarra um vönduð vinnubrögð. Hann var smekkmað- ur í hvívetna og hafði næmt auga fyrir stíl, efni og hagkvæmum FRÁ áramótum til 15. febrúar sl. birti Morgunblaðið 890 minn- ingargreinar um 235 einstakl- inga. Ef miðað er við síðufjölda var hér um að ræða 155 síður í blaðinu á þessum tíma. í janúar sl. var pappírskostnaður Morg- unblaðsins rúmlega 50% hærri en á sama tíma á árinu 1995. Er þetta í samræmi við gífurlega hækkun á dagblaðapappír um allan heim á undanförnum misserum. Dagblöð víða um lönd hafa brugðizt við miklum verð- hækkunum á pappír með ýmsu móti, m.a. með því að stytta texta, minnka spássíur o.fl. Af þessum sökum og vegna mikillar fjöigunar aðsendra greina og minningargreina er óhjákvæmilegt fyrir Morgun- blaðið að takmarka nokkuð það rými í blaðinu, sem gengur til birtingar bæði á minningargrein- Iausnum. í þessum vinnuferðum okkar var oft glatt á hjalla. Ingólfur átti þar dijúgan þátt enda brosmildur og glaðvær og naut þess að gantast við okkur. Oft sagði hann okkur skemmtilegar sögur af mönnum sem hann hafði kynnst á lífsleið- inni en margt rifjaðist upp fyrir honum þegar við ókum fram hjá æskuslóðum hans í Mosfellssveit- inni á leið í Borgarfjörðinn. Við minnumst þessara ferða með hlýhug og þakklæti. Því miður verða samverustundimar með Ing- ólfi ekki fleiri. Hann var kallaður burt frá okkur allt of fjótt. Við kveðjum hann með söknuði og vottum eftirlifandi eiginkonu hans og börnum samúð okkar. Börkur Hansen og Gunnar J. Gunnarsson. Kær vinur og samkennari til margra ára er allur, langt fyrir aldur fram. Kynni okkar Ingólfs hófust fyrir hartnær 17 árum þeg- ar hann sótti um stöðu smíðakenn- ara við listasvið Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem þá var í mikilli mótun undir stjórn Guðmundar Sveinssonar skólameistara. Ingólfur var mikill hugsjóna- maður og baráttumaður fýrir upp- byggingu á íslenskri nytjalist og hönnun. Ingólfur var menntaður smiður, viðarfræðingur og hönnuð- ur og lagði hann sérstaklega rækt við íslenskan tijávið í rannsóknum sínum og þróunarstarfi. 1985 var Ingólfur skipaður lekt- or við smíðakennaradeild Kenn- araháskóla íslands og gegndi hann því starfi til dauðadags. Ingólfur var skapmikill maður og stórhuga sem gerði miklar kröf- ur til sjálfs sín og til þeirra sem með honum unnu, en utan við starfið, í ferðum til fjalla, í veiði- skap eða þegar vinir komu saman þá reyndist Ingólfur maður gleð- innar, gestrisinn og hjálpsamur. Ég og kona mín kveðjum góðan vin og vottum fjölskyldu hans okk- ar innilegustu samúð. Gunnsteinn Gíslason. um og almennum aðsendum greinum. Ritstjórn Morgunblaðs- ins væntir þess, að lesendur sýni þessu skilning enda er um hóf- sama takmörkun á lengd greina að ræða. Framvegis verður við það mið- að, að um látinn einstakling birt- ist ein uppistöðugrein af hæfí- legri lengd en lengd annarra greina um sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksentimetra í blaðinu. í mörgum tilvikum er samráð milli aðstandenda um skrif minn- ingargreina og væntir Morgun- blaðið þess, að þeir sjái sér fært að haga því samráði á þann veg, að blaðinu berist einungis ein megingrein um hinn látna. Jafnframt verður hámarks- lengd almennra aðsendra greina 6.000 tölvuslög en hingað til hefur verið miðað við 8.000 slög. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Landsliðskeppni kvenna HJÖRDÍS Siguijónsdóttir og Ragn- heiður Nielsen höfðu sigur í fyrri hluta keppni um sæti í landsliði kvenna á Norðurlandamótinu í brids, sem haldið verður í Dan- mörku í júnílok. 12 pör kepptu um helgina um rétt til að mynda sveitir, sem spila einvígisleik um landsliðsætin. Tvö efstu pörin öðluðust þennan rétt en lokastaðan varð þessi: Hjördís Siguijónsdóttir - Ragnheiður Nielsen 48 Erla Siguijónsdóttir - Hulda Hjálmarsdóttir 40 Dröfn Guðmundsdóttir - Guðlaug Jónsdóttir 33 Stefanía Skarphéðinsdóttir - Gunnlaug Einarsdóttir 26 Freyja Sveinsdóttir - Sigríður Möller 17 Hjördís og Ragnheiður völdu Stefaníu og Gunnlaugu með sér í sveit en Hulda og Erla hafa ekki tilkynnt um sitt val enn. Einvígis- leikurinn fer fram að Þönglabakka 1 um næstu helgi, og hefst kl. 11 á laugardag. Frá Skagfirðingum og B. kvenna í Reykjavík Fyrsta og eina parakeppni ársins (í félagakeppni) hefst hjá Skagfirðing- um og B. kvenna í kvöld, þriðjudags- kvöld. í parakeppni spila kvenspilari og karlspilari, og er slíkt keppnisform viðurkennt og keppt í á landsvísu svo og á alþjóðavettvangi. Þessi parakeppni hefur verið árleg- ur viðburður hjá Bridsfélagi kvenna um árabil. Mótið að þessu sinni er um leið hugsað sem undirbúningur fyrir íslandsmótið í parakeppni, sem haldið verður í maí. Engin fyrirfram skráning verður, aðeins nóg að mæta á keppnisstað, sem er Drangey við Stakkahlíð 17, en spilamennska hefst kl. 19.30. Spil- arar mæti tímanlega til skráningar. Spilamennska öllum opin. Síðasta þriðjudag var róleg spila- mennska. Urslit urðu (efstu pör): U nnur Sveinsdóttir - Eyþór Hauksson 224 Inga Lára Guðmundsd. - Guðrún D. Erlendsd. 22 í Dúa Ólafsdóttir - Inga Lýðsdóttir 218 Erla Ellertsdóttir - Kristín Jónsdóttir 218 Aðstoðað verður við myndun para og einnig er heimilt að tveir kvenspil- arar myndi par. Nánari upplýsingar gefa Sigrún Pétursdóttir s: 551 0730 og Ólafur Lárusson s: 551-6538. Opna Edenmótið Edenmótið í brids verður haldið laugardaginn 20. apríl og hefst kl. 10 stundvíslega. Spilað verður í Eden eins og í fyrra, en þá létu spilaramir mjög vel af því að spila í því óvenjulega og fallega umhverfi sem þar er. Þátttökugjald er það sama og í fyrra, kr. 5.000 parið, góð verðlaun. Skráning er þegar hafrn og stendur til kl. 10 föstudaginn 19. apríl. Tekið er á móti skráningu hjá BSÍ, sími 587 9360, og hjá Þórði, vinnusími 483 4151 og heimasími 483 4191. Ath. hámarksfjöldi 32 pör. íslandsmótið í tvímenningi 25.-28. apríl íslandsmótið í tvímenningi hefst á sumardaginn fyrsta, 25. apríl. Undankeppnin stendur yfir fyrri tvo dagana og hefst spilamennska kl. 13. Seinni tvo dagana verður úr- slitakeppnin og verður byijað að spila kl. 11 á laugardag og sunnu- dag. Spilað verður í húsi Bridssam- bands Íslands í Þönglabakka 1, áhorfendur eru velkomnir og að- gangur ókeypis. Bridsdeild félags eldri borgara í Kópavogi •» Spilaður var Mitchell tvímenningur þriðjudaginn 9. apríl. 26 pör mættu, útslit urðu: N-S: JónStefánsson-ÞorsteinnLaufdal 403 ValdimarÞórðarson-JónAndrésson 367 Bergsveinn Breiðprð - GunnarPálsson 351 Þórhildur Magnúsd. - Sigurður Pálsson 342 A-V: Eysteinn Einarsson - Sigurieifur Guðjónsson 382 Baldur Ásgeirsson ^ Magnús Halldórsson 359 Sæmundur Bjömsson - Böðvar Guðmundsson 349 Sigríður Pálsdóttir—Eyvindur Valdimarsson 324 Meðalskor 312 Spilaður var Mitchell tvímenningur föstudaginn 12. apríl. 20 pör mættu, útslit N-S: JónAndrésson-BjömKristjánsson 241 ÞórarinnÁmason-ÞorleifurÞórarinsson 235 Þorsteinn Erlingsson - Stefán Jóhannesson 227 A-V: ÁsthildurSigurgíslad.-LámsAmórsson 266 Baldur Ásgeirsson — Magriús Halldórsson 250 HannesAlfonsson-BjamiSigurðsson 241 Meðalskor 216 □ EDDA 5996041619 I 1 Frl. □ HLÍN 5996041619 VI - 2 I.O.O.F. Ob. 1 = 17704168:30 = 9.00 KALLANIR I.O.O.F. Rb. 4 = 1454168 8V2.I. (/1 II allveigarstíg 1 • simi 561 4330 Dagsferft sunnud. 21. aprfl Kl. 10.30 Ný raðganga : Nytja- ferð, 1. áfangi, kræklingartíndir. Útivist. 9 Frá Sálarrannsóknafélagi ísiands Danski leiðbeinandinn og fyrir- lesarinn Kaare Sörensen kemur til starfa hjá félaginu 17. apríl. Kaare býður upp á einkatíma í fyrrilffsupprifjunum (Past Life Therapy). Þeir sem hafa látið skrá sig á biðlista vinsamlega hafi samband við skrifstofuna sem fyrst. Allar upplýsingar og bókanir í síma 551 8130 milli kl. 10-12 og 14-16 og á skrifstofunni Garðastræti 8 frá kl. 9-17 alla virka daga. Ferð á slóðir Njálssögu Laugardaginn 20. apríl nk. kl. 8.15. Fararstjóri Jón Böövarsson. Skráning í síma 588 7222. Tómstundaskólinn. ADKFUK, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30. Margrét K. Jónsdóttir segir frá starfinu á Löngumýri og stofn- anda skólans, Ingibjörgu Jó- hannsdóttur. Konur, munið afmælis- og mat- arfundinn 30. apríl. Skráning á skrifstofu fyrir föstud. 26. aprfl. Allar konur velkomnar. FERÐAFÉIAG # ÍSLAMDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Kvöldvaka „Laugavegurinn“ Miövikudaginn 17. aprfl kl. 20.30 efnir Ferðafélagið til kvöldvöku í Mörkinni 6 (stóra salnum). Efni: Saga gönguleiðarinnarfrá Land- mannalaugum til Þórsmerkur, en i sumar eru liðin 20 ár frá því fyrsta skálanum var komið fyrir á gönguleiðinni. Tómas Ein- arsson o.fl. sjá um flutning efnis f máli og myndum. Aðgangur kr. 500. „Laugavegurinn" ervinsæl- asta gönguleiöin hjá Ferðafélagi íslands. Væntanlegir farþegar í ferðum sumarsins ættu ekki að láta þessa kvöldvöku fram hjá sér fara! Ferðafélag islands. Mmningargreinar og aðrar greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.