Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Bauð Emelía Já, geturðu Afsakaðu, kennari... ég var að hugsa um dálitið ann-
þér á para- trúað því? að...
ballið?
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Unga fólkið og
siðleysi yfirvalda
Frá Guðbirni Jónssyni:
SUNNUDAGINN 24. mars sl. birt-
ist hér í blaðinu greinin „Átak
gegn yfirgangi og siðleysi“, rituð
af þrem ungum stúlkum, með fal-
legt alvöru- og góðvildarblik í aug-
um. I svip þeirra var ekki gáski
æskunnar, enda málefnið mjög al-
varlegt sem þær voru að fjalla um.
Þær höfðu, og það með fullum
rétti, miklar áhyggjur af okkur
fullorðna fólkinu, siðleysi okkar og
spillingu og að við værum slæmar
fyrirmyndir.
Mig langar að þakka þeim fyrir
þessa grein, og biðja þeim, og öllu
öðru ungu fólki blessunar í fram-
tíðinni, því hún á eftir að verða
þeim nokkuð erfið. Mun erfiðari
en það sem liðið er af ævi foreldra
þeirra. Greinin er afar vel skrifuð
og ber glöggan vott um þroskaða
dómgreind, sjálfsvirðingu og metn-
að. Þetta eru helstu og mikilvæg-
ustu fjársjóðir ungs fólks á Ieið inn
í lífið.
Hvers vegna?
í greininni eru margar spurning-
ar um það, hvers vegna ungt fólk
sé í þessari erfiðu stöðu. Foreldrar
þess svo uppteknir í lífsgæðakapp-
hlaupinu og þau hafa ekki haft
tíma til þess að sinna samskiptum
við þau á eðlilegan hátt, og stjórn-
völd upptekin við að fela eigin
axarsköft og spillingu, og þjónusta
hagsmunahópa sem tryggja þeim
setuna á vaidastólunum. Ohætt er
að segja að það er ekki bjart hjá
ungu fólki að horfa til framtíðar-
innar. En, á þéssum stað er eðli-
legt að spyrja: verður þetta svona
áfram?
Nei, þetta er ástand sem á að
breytast. Þær tvær kynslóðir sem
á undan hafa gengið, þ.e. fólk á
aldrinum ca. 30-60 ára, tók sér
það vald að haga sér óskynsam-
lega, vera ábyrgðarlaust í skoðun-
um og aðgerðum. Það varð meira
og meira á valdi spillingarorkunnar
en samhliða aukningu hennar
minnkuðu áhrif kærleiksorkunnar
í lífsmynstri þess. Eftir því sem
nær dregur aldri þessa unga fólks,
hafa aukist áhrif spillingarorkunn-
ar á kostnað kærleiksorkunnar.
Tilraunir til þess að fá þessar kyn-
slóðir til að snúa af þessari röngu
braut hafa ekki borið árangur.
Þess vegna varð alheimsstjórnun á
orkujafnvæginu að grípa til nokk-
uð róttækra aðgerða.
Hópfæðing þroskaðra sálna
Segja má að aðgerðaráætlun
hafi verið sett í gang. Þar var stillt
inn á fæðingu mikils íjölda þrosk-
aðra sálna á svipuðum tíma, sem
gætu stöðvað þetta neikvæða spill-
ingarferli og snúið mannkyninu
aftur til jafnvægis við kærleiks-
flæðið. Unga kynslóðin nú, er upp-
haf'ið að þessu verkefni. Þess vegna
finnur hún mikið til einmanaleika
og óréttlætið virkar afar þungt á
hana. Henni er ætlað að taka út
óvenju mikinn þroska á stuttum
tíma, því á næstu 10-15 árum er
henni ætlað að vera rödd hrópand-
ans, sem kallar á breytingar. Henni
er einnig ætlað að ala börn sín upp
við aðrar og hollari aðstæður en
nú er gert, til þess að þau geti
fullkomnað þær breytingar sem
hún byijar á. Ef þið viljið sjá áþreif-
anlegar vísbendingar um þessa
hluti, þá horfið í augun á þeim
börnum sem nú eru að fæðast.
Takið eftir dýpt augnanna. Alvörú-
þrunginni visku í augnaráðinu.
Takið einnig eftir því hve fljót þau
eru að ná valdi á augnhreyfingum
og hve fljót þau eru að ná valdi á
því að fylgja eftir hreyfingum ykk-
ar. Takið einnig eftir því hvernig
þau horfa á ykkur. Þau horfa ekki
mest í augu ykkar. Þau horf mest
á stað rétt fyrir ofan höfuð ykkar.
Þau eru að horfa á höfuðgeislann.
Þau meta þá sem þau sjá af birtu
þessa geisla og viskunni í augn-
svipnum. Orðagjálfur kemur ekki
til með að plata þau, þegar þau
verða fullorðin.
Ekki horfa á það sem liðið er
Unga fólkið nú finnur mikið
fyrir óþoli gagnvart því óréttlæti
sem viðgengst í þjóðfélaginu. Afar
mikilvægt er að það eyði ekki of
mikilli orku í að fást við það sem
liðið er. Afar nauðsynlegt er að
það geti haldið athyglinni sem
mest við að þróa þær breytingar
sem það vill sjá verða á samfélagi
okkar. Það skilar því von, já-
kvæðri orku og samstillingu að
sameiginlegu markmiði, þ.e. betra
þjóðfélagi, þar sem mannkærleik-
urinn ríkir. Að vera mikið að horfa
á þá spillingu og óréttlæti sem nú
viðgengst, dregur frá fólki orku,
auk þess sem sú litla orka sem
eftir verður, fer í hugsanir um
neikvæða hluti, sem búnir eru að
gerast og verður ekki breytt. Við
breytum því sem gerist í framtíð-
inni, en getum ekki breytt því sem
er búið að gerast. Þetta viðhorfs-
mat er eitt mikilvægasta viðfangs-
efni þessarar mikilvægu kynslóðar.
Eins og að framan er getið, er
þroskaganga unga fólksins nú,
frekar átakamikil. Því miður getið
þið ekki vænst mikillar hjálpar frá
okkur eldri kynslóðum. Þeir ein-
staklingar sem þar eru vaknaðir
til vitundar um vegferð mannkyns-
ins eru það sundraðir að það er
lítil von til þess að þeir nái að
mynda samstilltan hóp. Fyrsti
samstillti breytingahópurinn verð-
ur því sú unga kynslóð sem nú er
að koma út í þjóðfélagið. Guð blessi
hana, oggefi henni kærleika, kjark
og réttsýni.
GUÐBJÖRN JÓNSSON,
Hjarðarhaga 26, Reykjavík.
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda hlaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.