Morgunblaðið - 18.04.1996, Page 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
88. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Dánar-
vottorð
verðbólg-
unnar
London, Reuter.
KUNNUR breskur hagfræðing-
ur, Roger Bootle, gefur út dánar-
vottorð fyrir verðbólgu í bók,
Dauði verðbólgunnar, sem út
kom í gær. Hann segir, að eftir
60 ára tímabil hækkandi verðlags
muni mörg helstu iðnríki heims
héðan í frá búa annað- hvort við
óverulega verðbólgu eða jafnvel
verðhjöðnun.
Bootle, sem er aðalhagfræð-
ingur HSBC-bankahópsins, seg-
ir, að lítil verðbólga geti leitt til
vaxandi efnahagslegs óstöðug-
leika. Sjálfkrafa launahækkanir
verða úr sögunni, fasteignaverð
kann að lækka jafnoft og það
hækkar, forn- og listmunir glata
ljárfestingagildi og verðskyn
neytenda verður afar næmt.
Andlátiðýkt?
Hann segir meginástæðuna
fyrir því að verðbólguskeiðinu
væri lokið vera þá að launþega-
samtök og stórfyrirtæki hefðu
glatað mestu af því valdi sem
þau áður höfðu, á sama tíma og
ný tækni og ný efnahagslega
öflug ríki hefðu leitt til aukinnar
alþjóðlegrar samkeppni. Staðan
væri orðin sú, að fjármagns-
markaðir hefðu líf ríkisstjórna í
hendi ?ér í krafti óhefts fjár-
magnsflæðis á alþjóðavísu.
Stjórnir sem leyfðu verðbólgu að
hækka myndu ekki kemba hær-
urnar á valdastóli.
Bootle segir að verðbólgu-
hugsunin sé að hverfa úr huga
vestrænna áhrifamanna. Hvetur
hann þá til að gera meira af því
að stuðla að hagvexti, laékka
vexti enn frekar og skera opin-
bera lántöku stórlega niður.
Eddie George, bankastjóri Eng-
iandsbanka, gaf þó ekki mikið
fyrir niðurstöðu Bootle og sagði
sögur af andláti verðbólgunnar
stórlega ýktar. „Mér sýnist þess-
ar fréttir jafnótímabærar og
fréttirnar af andláti Marks Twa-
in,“ sagði hann.
Mannskæðir bardagar 1 Tsjetsjníju
26 hermenn vegn-
ir úr launsátri
Moskvu. Reuter. ,
AÐSKILNAÐARSINNAR í
Tsjetsjníju réðust á lest rússneskra
herbíla og skriðdreka úr launsátri
og drápu 26 hermenn, að sögn
fréttastofunnar Interfax í gær. 51
hermaður særðist í árásinni.
Fréttastofan hafði eftir tals-
manni rússneska hersins að að-
skilnaðarsinnarnir hefðu ráðist á
27 skriðdreka, brynvagna og bíla
með sprengjuvörpum í Shatoi-hér-
aði, um 50 km suður af Grosní,
höfuðstað Tsjetsjníju. Ekki kom
fram hvenær árásin var gerð.
Tveir rússneskir hermenn til við-
bótar biðu bana og 11 særðust í
átökum í suðurhluta Tsjetsjníju.
Fréttir um mikið mannfall gætu
grafið undan tilraunum Borís Jelts-
íns Rússlandsforseta til að koma á
friðarviðræðum við tsjetsjenska
aðskilnaðarsinna fyrir forsetakosn-
ingarnar 16. júní. Meira en 30.000
manns hafa beðið bana í Tsjetsjníju
frá því í desember 1994, þegar
Jeltsín sendi þangað hersveitir til
að kveða niður uppreisn aðskilnað-
arsinna.
Jeltsín var í gær í bænum Bud-
ennovsk í suðurhluta Rússlands,
þar sem 100 manns biðu bana í
fyrra þegar rússneskar hersveitir
réðust á Tsjetsjena sem höfðu tek-
ið fólk í gíslingu. Forsetinn sakaði
Dzhokhar Dúdajev, leiðtoga tsjetsj-
enska aðskilnaðarsinna, um að
hafa hindrað fyrri tilraunir til að
koma á friðarviðræðum. Hann
kvaðst telja að ekki væri hægt að
leiða deiluna um framtíð Tsjetsjníju
til lykta með því að beita aðeins
valdi eða reyna aðeins að ná samn-
ingum. Hann lýsti Tsjetsjníju sem
„miðstöð alþjóðlegrar hryðjuverka-
starfsemi".
Sprengjuárás í Ingúsetíu
Interfax skýrði ennfremur frá
því í gær að flugvél hefði varpað
sprengju á gisliheimili fyrir bygg-
ingarverkamenn í Ingúsetíu, ná-
grannahéraði Tsjetsjníju. Lög-
reglumaður beið bana og átta
verkamenn, þar af sex frá Serbíu,
særðust, að sögn fréttastofunnar.
■ Segir Jeltsín/19
Stríð í heiminum
200.000
börn bíða
bana á ári
Bogota. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti tvær milljónir
barna biðu bana í vopnuðum átök-
um í heiminum á síðustu tíu árum,
eða 200.000 að meðaltali á ári, að
sögn Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna í gær.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
stofnunarinnar á afleiðingum póli-
tískra átaka og stríða fyrir milljón-
ir barna í heiminum. Ennfremur
kom fram að börn í Kólumbíu, E1
Salvador, Nicaragua, Rúanda, Só-
malíu, Afganistan og Kambódíu
urðu verst fyrir barðinu á stríðum
á síðustu tíu árum.
Grace Machel, sem stjórnaði
rannsókninni, sagði að dánartalan
væri varlega áætluð og að líklega
hefðu mun fléiri börn beðið bana.
„Slíkar tölur eru yfirleitt langt frá
því að endurspegla veruleikann,"
sagði hún. „í öllum stríðum eru
opinberar tölur um látna, horfna
og særða of lágar.“
-----» ♦ ♦-----
Tilræði í
London
London, Reuter.
SPRENGJA sprakk í Kensington-
hverfínu í vesturhluta London í
gærkvöldi og lék grunur á að þar
hefði írski lýðveldisherinn (IRA)
verið að verki.
Sprengjan sprakk í auðu og yfir-
gefnu húsi í niðurníðslu og varð
hvellur mikill en tjón lítið. Fólk sak-
aði ekki. Hernaðarleg skotmörk eru
ekki í hverfinu en þar býr einkum
ríkt fólk og erlendir stjórnarerin-
drekar.
Ajax í úrslit
LIÐSMENN hollenska félagsins
Ajax fagna sigri á gríska félag-
inu Panathinaikos í Aþenu í gær-
kvöldi. Með 3-0 sigri vann Ajax
sæti í úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða, sem fram fer í
Rómaborg 22. maí. Þar mætir
Ajax ítalska félaginu Juventus.
■ Ekki hægt/C5
Klíkustríð
í Danmörku
FLUGSKEYTI, sem smíðað
var til að granda skriðdreka,
var skotið í fyrrinótt á félags-
miðstöð mótorhjólasamtak-
anna Vítisenglar í Snoldelev,
30 km suður af Kaupmanna-
höfn. Talið er að önnur bif-
hjólasamtök, Bandidos, hafi
verið þar að verki. Engan sak-
aði en tjón varð töluvert. Síðar
um nóttina var skeyti skotið á
hús dóttursamtaka Vítisengla
í Alaborg en sprengjan sprakk
ekki og varð það fjórum liðs-
mönnum sem sváfu í húsinu
til lífs. Danska lögreglan sagði
að flugskeytunum hefði verið
stolið í Malmö í Svíþjóð fyrir
tveimur árum. Eitt þeirra var
notað í árás á félagsmiðstöð
Vítisengla í Helsingjaborg í
Svíþjóð í síðustu viku, en alls
telur lögreglan að sex skeyt-
um af 12 hafi verið skotið.
Talsmaður lögreglunnar
sagði að hafin væri styrjöld
mótorhjólagengja. Undanfar-
in ár hefur valdabarátta átt
sér stað milli bifhjólasamtak-
anna tveggja í Noregi, Sví-
þjóð, Finnlandi og Danmörku.
Blossaði ofbeldi þeirra í mill-
um upp í síðasta mánuði er
leiðtogi Bandidos var drepinn
í fyrirsát á Kastrup-flugvelli
í Kaupmannahöfn.
Bráðabirgðalausn í Færeyjum
2.700 tonn handa
smábátunum
STJÓRNVÖLD í Færeyjum hafa
ákveðið að bregðast við vanda smá-
báta með því að úthluta' þeim þorsk-
kvóta er nemur alls 2.700 tonnum
fram að 1. júní. Sjávarútvegsnefnd
Lögþingsins ræðir enn tillögur stjóm-
ar Edmunds Joensens um nýtt fisk-
veiðikerfi er byggist á sóknardögum
og heildaraflamarki.
Er Morgunblaðið ræddi við Henrik
Old, jafnaðarmann og formann sjáv-
arútvegsnefndarinnar, í gær sagði
hann að um bráðabirgðalausn á vanda
smábáta undir 20 tonnum væri að
ræða. Gæftir hefðu verið svo góðar
fyrstu mánuði ársins að bátamir
hefðu verið búnir með heildarkvóta
smábátaflotans fyrir nokkram vikum
og ástandið því orðið óviðunandi.
„Flestir era á því að kvótakerfíð hafi
ekki virkað nógu vel,“ sagði Old.
Stjórnvöld í Kaupmannahöfn hafa
andmælt hugmyndum Færeyinga um
að afnema kvótakerfið eða gerbreyta
því. Old sagði að á mánudag hefði
Poul Nyrap-Rasmussen forsætisráð-
herra sagt að næstu tvö árin yrði
samningur Dana og Færeyinga um
efnahagsmál í gildi og hann hlyti að
vona að ráðamenn í Þórshöfn gripu
ekki til ábyrgðarlausra aðgerða. Að-
spurður sagðist Old telja þetta benda
til þess að afstaða Dana væri að
breytast og þeir myndu láta Færey-
inga sjálfa um að leysa fískveiðivand-
ann.
Reuter