Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Menningarsj óður
útvarpsstöðva
Hluti
styrkja
gengur upp
í skuldir
MENNIN G ARSJ ÓÐUR út-
varpsstöðva hefur úthlutað ríf-
lega 65 milljónum króna í
styrki til undirbúnings og
framleiðslu á efni fyrir hljóð-
varp og sjónvarp en nokkur
hluti þeirra styrkja er hins
vegar aldrei greiddur út heldur
gengur upp í skuldir styrkþega
við sjóðinn. Tekjur sjóðsins eru
að jafnaði á milli 80 og 100
milljónir en stór hluti þeirra
fer til rekstrar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, eða tæpar 50
milljónir. Útgreiddir styrkir til
umsjækjenda hafa verið um
40 milljónir þótt úthlutun hafi
iðulega verið hærri.
Að sögn Bjarna Þórs Ósk-
arssonar, ritara sjóðsins,
stendur það í starfsreglum
sjóðsins að ekki skuli greiða
út styrki til aðila sem skulda
honum. „í þeim tilvikum sem
útvarps- eða sjónvarpsstöðvar
skulda sjóðnum en fá þrátt
fyrir það styrki til tiltekinna
verkefna þá er skuldajafnað
þannig að styrkféð er ekki
greitt út. Úthlutunin er látin
ganga upp í skuldina."
Aðspurður sagði Bjarni Þór
að allar stöðvarnar sem hlut
eiga að sjóðnum hafí einhvem-
tímann verið í skuld og því
hafí hluti úthlutunarinnar
stundum verið í formi skulda-
jöfnunar. „Og þetta er til
dæmis skýringin á því hversu
há úthlutunin er í ár, hluti
hennar gengur upp í skuldir
styrkþeganna."
Sýning á sænskum vörum og þjónustu hófst í Kringlunni í gær
Um 30 fyr-
irtæki eru
með kynn-
ingarbása
SÆNSKIR dagar hófust form-
lega í Kringlunni í gær. Sendi-
herra Svía, Par Kettis, bauð
gesti velkomna og Halldór As-
grímsson utanríkisráðherra
opnaði sýningu á sænskum vör-
um ogþjónustu sem stendur
yfir fram á sunnudag.
Margar verslanir í Kringlunni
eru með kynningu á sænskum
vörum og á bilinu 20 til 30 fyrir-
tæki eru með sérstaka sýningar-
bása á göngum Kringlunnar.
Sum fyrirtækin sem taka þátt í
þessari uppákomu sýna einnig
vörur sínar annars staðar og
þar standa kynningar á sænsk-
um vörum kannski lengur en
fram á sunnudag.
Auk þess sem verið er að
kynna sænskar vörur og þjón-
ustu eru tilboð í gangi og ýmsar
uppákomur. Hafa íslensk og
sænsk fyrirtæki í sameiningu
skipulagt þessa uppákomu með
stuðningi sænska sendiráðsins
og útflutningsráðs Svíþjóðar.
Martin Bagge syngur Bellman
Bellman-söngvarinn Martin
Bagge söng við opnunina í gær,
en í tilefni af sænsku dögunum
söng hann fyrir gesti Lista-
klúbbs Þjóðleikhúskjallarans á
mánudagskvöldið. Hann mun
taka lagið aftur á Kaffi Mílanó
í dag klukkan 12 og í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.30. Á þeim
Morgunblaðið/Sverrir
FRIÐRIK Brekkan ásamt dóttur sinni Júlíu í sænskum þjóðbún-
ingi, Par Kettis sendiherra Svíþjóðar á íslandi og Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra.
tónleikum kemur og fram Ens-
amble Ginestra, sem einnig
skemmti við opnunina í Kringl-
unni í gær. Bagge kemur einnig
fram á föstudaginn kl. 12 í Kaffi
Reykjavík og kl. 15.30 ásamt
Ensamble Ginestra í Kaffihús-
inu í Kringlunni. Á sama stað
verður haldin tískusýning kl. 16
og kl. 16.30 heldur Laila Spik
kynningu á Samalandi.
Sænskur matseðill verður á
Kaffi Mílanó og Kaffi Reykjavík
alla sænsku dagana.
í Kringlunni milli kl. 13 og
16 á laugardag verða lögreglan
og Lúlli löggubangsi með um-
ferðarfræðslu, Lína langsokkur
kemur í heimsókn, Bagge syng-
ur og haldin verður tískusýning
og kynning á Samalandi. í Nor-
ræna húsinu flytur sænski rit-
höfundurinn Jan Guillou fyrir-
lestur um hlutverk njósnasög-
unnar í samfélags- og stjórn-
málaþróun kl. 16 og kl. 17 verð-
ur kvikmynd hans „Vendetta"
sýnd.
Á sunnudaginn kl. 14 verður
barnadagskrá í Kringlunni þar
sem Lína langsokkur kemur í
heimsókn og sagt verður frá
aðstæðum barna í Samalandi. I
Norræna húsinu segir ljósmynd-
arinn og rithöfundurinn Bobby
Andström frá undir yfirskrift-
inni „Ferð um Svíþjóð" kl. 16.
Klukkan 19 verður sýnd kvik-
myndiu„Sagolandet" eftir Jan
Troell. í Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni, verða tónleikar
Ensamble Ginestra kl. 20.30. Á
Kaffi Reykjavík verður svo
haldið óformlegt lokahóf dag-
anna þar sem boðið verður upp
á sænska og íslenska rétti. Ens-
amble Ginestra leikur tónlist kl.
22.-23.
I Norræna húsinu á mánudag-
inn kl. 20 mun Laila Spik svo
halda fyrirlestur um menningu
Sama.
Skoðanakönnun DV
Ólafur
Ragnar með
61% fylgi
SAMKVÆMT skoðanakönnun DV
nýtur Ólafur Ragnar Grímsson stuðn-
ings 61% þeirra sem afstöðu tóku í
könnun blaðsins um stuðning við þá
fimm forsetaframbjóðendur sem hafa
gefið kost á sér. 14% sögðust styðja
Guðrúnu Pétursdóttur, 11,5% Pétur
Kr. Hafstein, 6,1% Guðrúnu Agnars-
dóttur og 0,7% Guðmund Rafn Geir-
dal. Könnun DV var gerð í fyrra-
kvöld skömmu eftir að Pétur Kr.
Hafstein hafði tilkynnt um framboð
sitt;
Úrtakið í könnuninni var 600
manns og skiptist það jafnt milli höf-
uðborgarsvæðis og landsbyggðar sem
og kynja. Alls tóku 74% úrtaksins
afstöðu í könnuninni, þar af 69% til
frambjóðendanna fimm, en auk þeirra
voru 15 einstaklingar nefndir til sög-
unnar í könnuninni.
♦ ♦ ♦----
Jón Kjartansson á
Stóra-Kroppi
Viðræður um
kaup á Artúni
JÓN Kjartansson bóndi á Stóra-
Kroppi í Reykholtsdal hefur náð sam-
komulagi við eigendur Ártúns á
Rangárvöllum um kaup á búinu þar.
Hann segir að kaupin séu ekki frá-
gengin og endanleg ákvörðun sín um
búsetu á Stóra-Kroppi verði tekin
þegar niðurstaða fáist í deilu um stað-
setningu vegarins.
Jón hefur ásamt fleiri bændum í
Reykholtsdalshreppi barist gegn
ákvörðunum um að Borgaríj'arðar-
braut verði færð og lögð yfir tún
Stóra-Kropps. Hefur hann lýst því
yfír að vegurinn myndi kippa grund-
vellinum undan þeim búskap sem
hann er að byggja upp á jörðinni.
Misjafnt eftir apótekum hvort boðið er upp á afslátt í kjölfar aukinnar samkeppni
í KJÖLFAR þess að lyfsala var
gefín fijáls hafa verið veitt lyfsölu-
leyfí til nýrra apóteka og hafa tvö
þegar tekið til starfa, í Ármúla og
Keflavík. Fleiri munu að líkindum
bætast í hópinn í Reykjavík, Kópa-
vogi og víðar. Þijú hafa þegar feng-
ið lyfsöluleyfí í Reykjavík, fyrir utan
Lyfju í Ármúla, sem var opnuð í
síðustu viku. I kjölfar aukinnar
samkeppni hafa apótekin auglýst
afslætti, til dæmis 20% afslátt af
kostnaðarhlutdeild sjúklings, eða
20% af heildarverði lyfja sem ekki
eru lyfseðilsskyld. Hlutdeild Trygg-
ingastofnunar í lyfjaverði er mis-
munandi eftir lyfjaverði, en að með-
altali greiðir stofnunin 70% lyfja-
verðs og sjúklingar 30%. í þeim til-
vikum er 20% afsláttur af hlut sjúkl-
ings í raun 6% afsláttur af heildar-
verði lyfsins.
I Apóteki Austurbæjar hafa ekki
verið sérstakir afslættir og í Árbæj-
arapóteki er sama uppi á teningn-
um. Ámi Vésteinsson yfirlyfjafræð-
ingur þar segir að apótekið bjóði
hér eftir sem hingað til upp á 10%
afslátt til elli- og örorkulífeyris-
þega, enda ekki séð ástæðu til að
taka þátt í baráttu um viðskipta-
vini. Verðstríð væri enda hæpið, því
þrátt fyrir að lyfsalar
hefðu komist þokkalega
af í Reykjavík, væri mun
erfíðara að reka apótek á
landsbyggðinni. Sú hætta
væri fyrir hendi með af-
sláttartilboðum, að lyfjaverðsnefnd
teldi apótekin aflögufærari en þau
em og lækkaði lyfjaverð. Þar með
væri rekstri apóteka á landsbyggð-
inni stefnt í voða.
Ingibjörg Pálsdóttir, yfirlyfja-
fræðingur í Breiðholtsapóteki, sagði
að þar hefði ekki verið auglýstur
afsláttur, en fastir viðskiptavinir
Apótek bíða þess að
nýjabrumið hverfi
Misjafnt er hvort apótek í Reykjavík bjóða upp á sérstakan afslátt,
en sum þeirra hafa tekið upp þann sið í kjölfar aukinnar sam-
keppni. Önnur hafa ávallt boðið slíkt og halda því áfram. Apótekar-
ar sögðu Ragnhildi Sverrísdóttur að svigrúm til afsláttar væri
ekki ótakmarkað. Verðstríð kallaði á aukna veltu og því meiri lyfsölu.
20% afslátt-
urinn í raun
6% afsláttur
ættu kost á afslætti nú sem fyrr.
„Við tökum ekki þátt í einhveiju
stríði, sem enginn veit hvað stendur
lengi. Það er ákaflega hæpið fyrir
rekstur apótekanna að bjóða
20-25% afslátt af hlut sjúklinga í
lengri tíma. Þetta er því frekar ein-
hver byijunarskjálfti en
varanleg lækkun."
Ingibjörg sagði að apó-
tekin þyrftu ekki iengur
að veita Tryggingastofn-
un sérstakan afslátt af
lyfjaverði, sem miðaðist við veltu
apótekanna, og því hefði skapast
svigrúm hjá einhveijum til að veita
tímabundna afslætti. Hún tók undir
með Árna Vésteinssyni að slíkt
svigrúm væri ekki fyrir hendi hjá
apótekum á Iandsbyggðinni. „Við
höfum fylgst með daglegri sölu lyfja
og fjölda lyfseðla eftir að sam-
keppni jókst. Salan er sveiflukennd,
til dæmis eftir því hvaða tími mán-
aðarins er, hvort nýtt greiðslukorta-
tímabil er að skella á eða annað í
þeim dúr, en við höfum ekkert sér-
staklega fundið til samkeppni. Það
breytist ef til vill þegar apótek verð-
ur opnað í Engihjalla í Kópavogi í
júlí.“
Hjá Holtsapóteki er sem fyrr
boðið upp á 10% afslátt fyrir elli-
og örorkulífeyrisþega, en frekari
afsláttur er ekki fyrirhugaður.
Werner Rasmusson, lyfsali í Ing-
ólfsapóteki í Kringlunni, segir að
apótekin virðist bjóða afslátt einn
og einn dag, eða þá vikuna sem
hvert apótek sinnir kvöldvakt. „Það
er ljóst að ekkert apótek þolir 20%
afslátt til lengdar, en þau reyna að
bregðast við þegar nýr aðili kemur
inn á markaðinn og fellir verðið í
auglýsingaskyni. Við buðum afslátt
í tvo daga í síðustu viku og verðum
með afslátt í 1-2 daga í þessari
viku. Við sjáum hvað setur þegar
nýjabrumið fer af.“
Werner kvaðst ósáttur við að
stjórnvöld virtust ekki geta ákveðið
hvaða hlutverki þau vildu
að apótekin gegndu.
„Eina stundina eru apó-
tekin hluti af heilbrigðis-
þjónustunni og eiga til
dæmis að sinna ókeypis ““
heimsendingarþjónustu. Þá næstu
er litið á þau eins og mjólkurbúðir.
Þegar talað er um frelsi í lyfsölu
er það bara frelsi til að opna apó-
tek, en ekki frelsi til að flytja inn
lyf 0g komast undan að kaupa frá
innlendum framleiðendum, á verði
sem þeir ákveða. Ný lög um lyfsölu
eru öfundarlög, þar sem mönnum
Heilbrigðis-
þjónusta eða
mjólkurbúð?
hefur vaxið í augum að lyfsalar
hafa rekið apótek í eigin nafni. Og
það er ekki hægt að skýla sér á
bak við upphrópanir um aukna
þjónustu. Væri þá ekki alveg eins
ástæða til að hafa fimm heilsu-
gæslustöðvar á Laugavegi eins og
fimm apótek?“
Borgarapótek er í næsta ná-
grenni við Lyfj'u og Vigfús Guð-
mundsson lyfsali sagði að þar hefði
síðustu daga verið boðið upp á 20%
afslátt af kostnaðarhlut sjúklings
og heildarverði lausasölulyfja. Elli-
lífeyrisþegar fengju sem fyrr einnig
10% afslátt af öðrum vörum en lyfj-
um og apótekið veitti 3% stað-
greiðsluafslátt. „Ef afsláttur á að
geta haldist áfram verðum við að
auka veltuna og selja meira af lyfj-
um. Ég er ekki viss um að fólk vilji
aukna lyíjaneyslu og óróleika á
þessum markaði, sem þarf að vera
rólegur og öruggur. Verðstríð, þar
sem barist er um lyf og sjúklinga
er óeðlilegt, enda eiga allir að sitja
við sama borð í heilbrigðisþjón-
ustunni."
Oddur Thorarensen, lyfsali í
Laugavegsapóteki, sagði að apótek-
ið hefði boðið afslátt og heimsend-
ingarþjónustu í svo mörg ár, að
verðstríð núna snerti það
ekki. „Ég bíð hins vegar
eftir að samkeppnisyfír-
völd geri verðkönnun,
svo í ljós komi hvort eitt
' apótek er í raun að bjóða
ódýrari vöru en annað. Nú er fijáls
álagning á lausasölulyf. Það þýðir,
að þrátt fyrir að eitt apótek bjóði
25% afslátt frá sínu verði, þá þarf
það afsláttarverð ekki að vera
lægra en verð í öðrum apótekum.
Viðskiptavinirnir vita ekkert hvað
er verið að bjóða, nema gerður sé
samanburður."