Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 Ný frímerki I DAG MORGUNBLAÐIÐ í dag koma út ný frímerki tileinkuð merkum konum Fyrstadagsumslög fáststimpluð á pósthúsum um land allt. Einnig er hægt að panta þau frá Frímerkjasölunni. FRIMERKJASALAN PÓSTUR OG SÍMI Pósthólf 8445, 128 Reykjavík (Ifflisty Óðinsgötu 2, sími 551-3577 - * ** Brjóstahald Kr. 1.230 Buxur Kr. 510 Yndiðleq bómull VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Stórsýning hestamanna ÉG ÁKVAÐ að drífa mig á stórsýningu hestamanna í Reiðhöllinni á vegum Fáks. Miðasalan var opnuð á fímmtudegi kl. 12 og fór ég þá og ætlaði að fá miða í stúku. Þá er mér tilkynnt það að allir miðar á stúku hefðu verið uppseldir strax á laugardagskvöld- ið. Hvernig má það vera að allir miðar séu uppseld- ir í raun áður en miðasala hefst? Mér buðust að vísu nokkrir miðar á „svörtum" úti á bæ á 2.500 krónur, eða 500 umfram miðaverð í stúku. Því velti ég því fyrir mér hvor einn eða fleiri „braskarar" hafi keypt upp alla stúkumið- ana áður en miðasalan var opnuð formlega. Ákvað ég þá að bíða til næsta dags með að kaupa miða þar sem ég bauð föð- ur mínum með (sem er skakkur og snúinn) og þurfti að staðfesta við hann hvenær við færum. Ákveðum við síðan að fara á föstudeginum og fer ég og kaupi miða. Þá er líka uppselt í stúku, bara laust á steypuna og læt ég mig hafa það þrátt fyrir skakk- an og snúinn pabba. Sýningin hófst kl. 20.30 og mættum við kl. rúm- lega 20. Þá er allt orðið uppsetið, ef svo má segja, og máttum við láta okkur hafa það að sitja í tröppunum í tæplega fjór- ar klukkustundir, með tveimur hléum að vísu. Ég hélt að ég hefði keypt miða á steypuna eins og ég kalla það en ekki í tröppurnar (það er mikill munur á því að sitja á steypunni heldur en í tröppunum, það eru u.þ.b. 50-60 sm úr sæti í gólf á steypunni, en u.þ.b. 20-30 sm úr tröppunum). Það er náttúrulega algjörlega óviðunandi að borga fullt gjald, kr. 1.500, í þessu tilviki og fá síðan ekki sæti nema í tröppunum, og var maður því fyrir fólkinu sem var á leið upp og niður og var það frekar neyðarlegt, bæði fyrir okkur og fólkið sem var á leið upp og niður. Ég vona að Hesta- mannafélagið Fákur sjái sóma sinn í því næst er þeir halda sýningu að passa upp á það að fólk þurfi ekki að standa eða sitja í tröppum ef það borgar fullt gjald. Ljóst má vera að selt er meira inn en húsið tekur. Annars var sýningin al- veg ágæt nema allt of löng, tæplega fjórir klukkutímar með misjöfn- um atriðum, það gengur ekki. Þó vil ég geta þess að skrautsýning Fáks- manna var glæsileg í alla staði og langt síðan, ef þá nokkurn tíma, sem maður hefur séð jafnvel útfærða sýningu. Kerruaksturinn var flottur og glæsilegar Harðarkonur voru með skemmtilega sýningu. Helgi Björnsson stóð sig eins og hetja á glæsihryss- unni Nælu. Vonandi verður ekki uppselt á næstu sýningu áður en miðasalan opnar. Reið kona. Vinkonu leitað Ingeborg Fredriksen frá Noregi hafði samband við blaðið en hún leitar gam- allar vinkonu sinnar. Vin- konan heitir Sif Guðrún Jónsdóttir og starfaði sem flugfreyja síðast þegar þær Ingeborg hittust. Ingeborg hyggur á íslandsferð í júlí og vill gjarnan hitta þessa vinkonu sína. Sími Inge- borg í Noregi er 761- 51866. Góð þjónusta MIG LANGAR að koma á framfæri þakklæti til Gler- augnaverslunarinnar í Mjódd. Ég hafði brotið gleraugun mín og hélt þar af leiðandi að þau væru ónýt. Ég fór með þau í verslunina og starfsfólkið þar gerði við þau fyrir mig mér að kostnaðarlausu. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Ingibjörg Jóhannesdóttir. Gæludýr Kettlingur FALLEGUR fjögurra mánaða kettlingur, læða, fæst gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma SKÁK límsjón Margeir Pétursson SVARTUR leikur og vinnur STAÐAN kom upp á Mel- ody Amber-mótinu í Món- akó sem nú stendur yfir í 30 mínútna blindskák Ljubomirs Ljubojevic (2.600), Júgóslavíu, og Vladímirs Kramnik (2.775), Rússlandi, sem hafði svart og átti leik. 24. — Hxg4! 25. fxg4 — Rxe4 (Opnun löngu skálín- unnar að hvíta kóngnum ræður nú úrslitum) 26. Rxe4 — Bxe4+ 27. Hf3 - Dxg4 28. Rel - Bh4 29. h3 - Dh5 30. Kh2 - Bxel 31. Hxel - Bxf3 (Svartur hefur unnið hrókinn til baka með ger- unnu tafli) 32. Df2 — Hg2+ 33. Dxg2 - Bxg2 34. Kxg2 - Dg6+ og nú loksins gafst hvítur upp. Tefldar eru at- skákir og blindskákir á þessu óvenjulega móti. Staðan eftir 8 umferðir: 1. Kramnik 7Vi v. 2. Anand 6 v. 3-4. ívantsjúk og Júdit Polgar 5 v. 5. Shirov 4'/2 v. 6-8. Karpov, Lautier og Piket 3Vz v. 9-10. Kamsky og Nikolic 3 v. 11. Ljubojevic 2 v. 12. Xie Jun 1V2 v. HOGNIHREKKVISI 7/ SfciptuþereJhMiafþ/í fv/a&þau boréa!** Víkveiji skrifar... KÖNNUN tveggja lækna á verkjaeinkennum í börnum í reykvískum skólum stendur nú yfir og barst 12 síðna spurningalisti inn á heimili skrifara nýverið. Um viða- mikla rannsókn er að ræða og er markmiðið að reyna að varpa ljósi á tíðni verkjaeinkenna í bömum og hvort eitthvert samhengi sé við persónuleika barnanna og félagsað- stöðu. Fram hefur komið í fréttum að kvartanir barna um magaverki og stoðkerfisverki eru algengar og nið- urstöður forkönnunar sem gerð var í þremur skólum í fyrra bentu til að 20-30% barnanna kvörtuðu um slíka verki að minnsta kosti mánað- arlega. Skrifara fínnst þessi könnun mjög áhugaverð og verður forvitni- legt að sjá niðurstöður úr könnun- inni þegar þær liggja fyrir. Meðal fjölmargra spurninga læknanna er spurst fyrir um heimil- istekjur hjá fjölskyldu bamsins og er það eðlileg spurning miðað við að rannsóknin tekur m.a. til félags- legra þátta. Hins vegar fannst skrif- ara of langt gengið þegar einnig var spurt um kennitölu barnsins. Með því finnst skrifara gengið of nærri einkahögum fólks þótt hann efíst ekki um að farið verði með svörin á faglegan hátt og þau með- höndluð sem trúnaðarmál. xxx TJARNAN úr Garðabæ og Haukar úr Hafnafirði beijast þessa dagana um meistaratitilinn i handknattleik kvenna. Áður en úrslitakeppnin hófst, og að lokn- um tveimur leikjum, benti ekkert til annars en að Stjarnan sigraði örugglega. í þriðja leiknum bitu Haukastúlkurnar hins vegar hressilega frá sér. Fjórði leikurinn fer fram í kvöld og takist Hauka- stúlkum að sigra er ekki ólíklegt að fari um ýmsa í Garðabænum. Þessi barátta kvenfólksins er bráðskemmtileg og bæði lið eru vel studd af stuðningsmönnum sínum. Það er stór galli hversu mjög úrslitakeppnin í kvennahand- boltanum hefur dregist á langinn. Vegna landsleikja erlendis var úrslitunum frestað um nokkrar vikur, nokkuð sem karlarnir létu ekki bjóða sér. Þessi frestur hefur ábyggilega dregið úr áhuga al- mennings á keppninni og hugsan- lega einnig bitnað á einbeitingu leikmanna sem standa í barátt- unni. XXX SKRIFARI rakst í vikunni á stutta samantekt um nýaf- staðið Skeiðarárhlaup í fréttabréfi Jöklarannsóknafélagsins. Þar segir m.a. að meðan á hlaupinu stóð hafi verið tekin sýni af vatninu til efnagreiningar og aurburðarmæl- inga. Þau hafa ekki verið greind ennþá, en búast má við að fram- burðurinn hafi verið á bilinu 10-20 milljónir tonna. Það magn er hins vegar af þeirri stærðargráðu sem venjulegt fólk á erfit með að átta sig á - slíkar hafa hamfarirnar verið og átökin þó mannvirki öll hafí staðið sig fullkomlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.