Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 18. APRÍL1996 43 yfir því að börnin mín eiga bjartar minningar um afa sem var óþreyt- andi að fara með þau í gönguferðir og fræddi þau um blóm og jurtir auk þess sem hann kenndi þeim ófáar vísur og kvæði. Hjörtur hafði yndi af góðri ljóðlist og mig langar að kveðja hann með nokkrum línum úr Passíusálmum Hallgríms Péturs- sonar sem við lásum stundum sam- an síðustu vikurnar sem hann lifði. Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér; sálin vaki, þá sofnar líf; sé hún ætíð í þinni hlíf. Rósa Kristín. Það er bjart yfir minningunni um Hjört föðurbróður minn. Ég sé hann fyrir mér við heyskap eða í fjósinu með gamanyrði á vör. Eða syngj- andi við raust á gamla farmallnum með hattkúf fram á ennið og barn- askarann hoppandi á heyvagninum. í honum bjuggu, að því er virtist í sátt og samlyndi, eðlisþættir sem venjan er að telja andstæður. Hann var í senn sveitamaður og heims- borgari, íslenskur bóndi sem hafði hlotið háskólamenntun erlendis og víða hafði farið. Hann átti mýkt og hörku, hann var rómantískur og raunsær. í, Ahugi er það orð sem helst verð- ur fyrir mér ef ég ætti að finna eitt orð til að lýsa Hirti. Hann hafði áhuga á mannlífinu, þjóðlífinu, náttúrunni, sögunni, ljóðum, tungu- málum. Ekkert var fjær honum en að yppa kæruleysislega öxlum og segja „hvað varðar mig um það?“. Allt vildi hann vita og skilja og miðla því síðan til annarra. Engin jurt slapp framhjá honum ónafn- greind, enginn staður án örnefnis, jafnvel stjörnur himinsins urðu að gera grein fyrir sér hver og ein. Orðabækur hafði hann ætíð innan seilingar og krafði þær sagna um merkingu og uppruna. Ef góð vísa eða meitluð setning flaug fyrir ófeðruð var Hjörtur ekki í rónni fyrr en höfundur var fundinn. Sjálfur var hann einstaklega rit- fær, eins og lesendum Norðurslóðar mun kunnugast um. Þar hefur hann birt ótal athuganir sínar, hugleið- ingar og ferðasögur sl. 20 ár. Margt af því er hrein skemmtilesning, svo sem endurminningar hans frá námsárunum á Bretlandseyjum í seinni heimsstyijöldinni. Hann rit- aði einnig nokkrar bækur, svo sem lýsingu Svarfaðardals í Árbók Ferðafélagsins 1973 og 1994 kom frá honum stórverk í tveimur bind- um, Saga sýslunefnda Eyjafjarðar- sýslu. Hjörtur var mikill hamingjumað- ur í einkalífi sínu. Hann eignaðist frábæra konu árið 1948, Sigríði Árnadóttur Hafstað frá Vík í Skagafirði. Á undraskömmum tíma eignuðust þau 7 mannvænleg börn sem öll hafa erft eiginleika foreldra • sinna í ríkum mæli. En þó hópurinn væri stór og að mörgu að hyggja var samt alltaf pláss fyrir okkur sumarbörnin. Það hafa sagt mér fleiri en einn af félögum Hjartar frá fyrri tíð að sjaldan hafi þeir fyrirhitt nokkurn mann jafngeislandi af lífsþrótti og fjöri. Sú orka sem hann þar virtist eiga umfram aðra menn dugði hon- um vel í nær tíu ára stríði við ill- víga sjúkdóma, þó hratt gengi á birgðirnar. Hann streittist á móti miklu lengur en allir meðalmenn hefðu getað og reyndi að fara sinna ferða eins og kostur var þó oft væri hann sárlega kvalinn. Þannig auðnaðist honum til dæmis að heim- sækja námsslóðir sínar í Skotlandi hinsta sinni síðastliðið haust. Hjörtur lést aðfaranótt 1. apríl sl. og var lagður 6. apríl til hinstu hvíldar í Tjarnarkirkjugarði, í suð- vesturhorni garðsins, eins nálægt og komist verður bænum þar sem hann fæddist fyrir rúmum 76 árum. Svarfdælsku fjöllin, sem hann þekkti öllum mönnum betur, eru vegleg umgjörð um líf hans. Hann lifði því lifandi og var á svo margan annan hátt eins og við ættum öll að vera. Þórarinn Eldjárn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR PÉTUR EINARSSON, Austurvegi 12, ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 20. apríl kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda. Guðjörg R. Jónsdóttir, Reynir Pétursson, Margrét J. Pétursdóttir, Þorgeir J. Pétursson, Guðbjörg Þorláksdóttir, Gunnar P. Pétursson, Halla H. Birgisdóttir, Dagný R. Pétursdóttir, Guðmundur Fr. Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, EGILS SIGURGEIRSSONAR. Ebba Urbancic, Agla Egilsdóttir, Ingibjörg Egilsdóttir, Jón Axel Egilsson, Guðrún Egilsdóttir, Ásta Egilsdóttir, Pétur Urbancic, Tryggvi Ásmundsson, Svavar Ármannsson, Sigríður Magnúsdóttir, Axel Gómes, Karl Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÓHANNS HJALTA ANDRÉSSONAR, Vetrarbraut 19, Siglufirði. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Zóphoníasson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför frænda okkar, JÓNMUNDAR JENSSONAR Viðimel 34. Guð blessi ykkur öll og geymi minningu góðs drengs. Ásta Halldórsdóttir, Hermannía Halldórsdóttir, Sesselja Halldórsdóttir, Guðmundur Halidórsson. t Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnd- uð okkur hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför sonar míns, stjúpsonar og bróður, JÓNS SIGURÐSSONAR vélstjóra og fyrrum ráðgjafa hjá SÁÁ. Sérstakar þakkir til vina hans hjá SÁÁ. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför foreldrar okkar, tengdafor- eldrar, afa, ömmu, langafa og langömmu, ÓLAFS ÞÓRIS JÓNSSONAR ÁSU SIGURBJARGAR ÁSGEIRSDÓTTUR, Grettisgötu 75. Jóhanna Ólafsdóttir, Bragi Sigfússon, Hrefna Maren Ólafsdóttir, Bruce H. Denmark, Ásgeir Þór Ólafsson, Kristín Árnadóttir, Jón Kristinn Bragason, Ásborg Ó. Arnþórsdóttir, önnur barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs föð- ur okkar, tengdaföður, aff og langafa, ÞORVALDS GUÐJÓNSSONAR söðlasmíðameistara Laugarnesvegi 54. Ragnar V. Þorvaldsson, Guðjón S. Þorvaldsson, Hulda Þorvaldsdóttir, Heiðar Þorleifsson, Jóhann H. Þorvaldsson, Unnur Eggertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar og frænda, ÞÓRIS KÁRASONAR, Ljósheimum 8a, Reykjavík. Lára Káradóttir, Lilja Hallgrímsdóttir, Sigríður Benediktsdóttir, Erna Pálsdóttir og aðrir vandamenn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU SIGURLAUGAR SIGURGEIRSDÓTTUR fyrrum húsfreyju að Hrafnsstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Hvammi og sjúkrahússins á Húsavík. Sigurður Flosason, Þóra Flosadóttir, Hrafnhildur Flosadóttir, Guðrún Flosadóttir, Jónina Flosadóttir, Hallfríður Ragnarsdóttir, Sigriður Sveinbjarnardóttir, Aðalgeir Olgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þórunn Þorsteinsdóttir, Gunnar Hafdal, Björn Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson, Eymundur Magnússon, Örn Jensson, Rebekka Stella Magnúsdóttir, Haraldur Jónsson, Ásgeir Sigurðsson, Magnús Sigurðsson og fjölskyldur. t Elsku litla dóttir okkar, TANJA RÁN ALEXANDERSDÓTTIR, sem lést í Landspítalanum 8. apríl, var jarðsungin frá Fossvogs- kapellu 16. apríl. Innilegar þakkir til allra, sem hafa sýnt okkur samúð og hlýhug á þessum sáru og erfiðu tímum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans. Guðbjör j Guðlaugsdóttir, Alexander Þórsson. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur hlýju og samúð við and- lát og útför móður okkar, SÓLVEIGAR AÐALHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR frá Hofi í Skagahreppi. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Eiður Hilmarsson, Ingunn Hilmarsdóttir, Árný Hilmarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.