Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 64
OPIN KERFl HF. Sítni: 567 1-000 I4P VectraP^ <o> ^mAS/400 er... JBKMB ...mest selda fjölnotenda viðskiptatölvan í dag <33> NÝHERJI MORGUNBIADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI B69 II00, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK * Strýta, Söltunarfélag Dalvíkur og Oddeyri vilja viðræður um sameiningu við UA Samherji vill kaupa þriðj- ung af hlut bæjarins í UA Akureyri. Morgunblaðið ÞRJU dótturfyrirtæki Samherja, Strýta, Söltunarfélag Dalvíkur og Oddeyri, hafa óskað eftir að Akur- eyrarbær beiti sér fyrir því að tekn- ar verði upp könnunarviðræður milli fyrirtækjanna og bæjarins um hugs- anlega sameiningu þeirra og Ut- gerðarfélags Akureyringa. Sam- hliða þeim viðræðum óskar Sam- herji eftir því að skoðaður verði möguleiki á að Akureyrarbær selji hluta hlutabréfa sinna í Útgerðarfé- lagi Akureyringa til Samheija og annarra, þó með það að markmiði að Akureyrarbær verði áfram sterk- ur eignaraðili að fyrirtækinu. Þorsteinn Már Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Samhetja, lagði hug- myndir forsvarsmanna fyrirtækisins fyrir Jakob Björnsson bæjarstjóra síðdegis í gær. „Umræðan um sölu hlutabréfa Akureyrarbæjar í ÚA hefur verið mikil undanfarna mán- uði og ég held að það mál fari að nálgast leiðarenda. Áður en menn Ársvelta sameinaðs fyrirtækis yrði um sex milljarðar tækju ákvörðun í málinu vildum við fá ipn nýjan flöt í þessa umræðu. Þetta eru okkar hugmyndir og ég hef óskað eftir því við bæjarstjóra að þær verði skoðaðar," sagði Þor- steinn Már. Sameining til farsældar fyrir alla Hann telur hugmyndir um sam- einingu fyrirtækjanna fjögurra, Strýtu, Söltunarfélags Dalvíkur, Oddeyrar og Útgerðarfélags Akur- eyringa, geta orðið til farsældar fyrir Akureyrarbæ, bæjarbúa, félag- ið og starfsfólk þess. Þorsteinn seg- ir að ÚA hafi verið í nokkuð einhæf- um rekstri þar sem botnfiskvinnsla sé ráðandi og ef litið sé til afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á síðustu árum megi leiða að því rök að auk- in fjölbreytni sé ótvírætt til hags- bóta fyrir félag af þessari stærð. Sameining muni styrkja fyrirtækin og möguleikar á vinnslu afurða muni stórlega aukast á sviði mat- vælaframleiðslu úr sjávarfangi. Bent er á að mannvirki Strýtu og ÚA séu á samliggjandi lóðum við sjávarkambinn þannig að sjálf staðsetning fyrirtækjanna mæli með sameiningu þeirra. Strýta hefur yfir að ráða þróunar- og rannsóknar- stofu sem og fullkominni pökkunar- verksmiðju fyrir rækju og bolfisk sem myndi nýtast hinu sameinaða fyrirtæki vel. „Okkur er ljóst að þessum pakka þurfa að fylgja veiðiheimildir og við gerum ráð fyrir að Oddeyri hf. myndi leggja fram um 2.500 þorsk-_ ígildistonn," sagði Þorsteinn Már. Ársvelta yrði um 6 milljarðar Hagnaður þessara þriggja dóttur- fyrirtækja Samheija var ríflega 250 milljónir króna á síðasta ári, en af- koma ÚA var á sama tíma slök. Velta ÚA var um 3,6 milljarðar á liðnu ári, en áætluð ársvelta samein- aðs félags yrði tæplega 6 milljarðar. Samheijamenn viðra þá hugmynd að Akureyrarbær eigi áfram um 20-25% hlut í Útgerðarfélagi Akur- eyringa, Samheiji myndi kaupa um þriðjung hlutabréfanna og aðrir ættu um 45% hlut í fyrirtækinu. Áréttað er í bréfi til bæjarstjóra að ekki sé ráðgert að breyta núver- andi sölusamböndum þeirra fyrir- tækja sem lagt er til að sameinist. Þorsteinn Már vonast til þess að viðræður, sé fyrir þeim áhugi, geti hafist hið fyrsta og niðurstaða liggi fyrir innan fárra vikna. Útvarpsréttarnefnd endurúthlutar sjónvarpsrásum á höfuðborgarsvæðinu * I líkamsrækt á Austurvelli NEMENDUR úr Menntaskólan- um við Hamrahlíð gripu til þess ráðs í gærmorgun að hafa lík- amsræktartíma á Austurvelli í því skyni að vekja athygli al- þingismanna á aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar í skólanum. MH hefur ekki aðgang að neinu íþróttahúsi fyrir nemendur skólans og hefur búningsað- staða fengist í Hlíðaskóla. Að sögn Olgu Lísu Garðarsdóttur íþróttakennara í MH er gjarnan farið í Öskjuhlíð eða annað til íþróttaiðkunar. Gert er ráð fyr- ir íþróttahúsi við austurhlið skólans og hefur það verið teiknað og fyrsta skóflustungan tekin en ekkert fjármagn hefur fengist til að hefja framkvæmd- ir, að sögn Olgu. Morgunblaðið/Kristinn Eiður Arnór Feðgar sam- an í landsliði ARNÓR Guðjohnsen og Eiður Smári sonur hans eru báðir í landsliðshópnum í knattspyrnu, sem Logi Óiafsson þjálfari valdi í gær fyrir vináttuleikinn gegn Eistlandi í Tallinn í næstu viku. Með þessu er blað brotið í knatt- spyrnusögunni því feðgar hafa aldrei fyrr verið valdir saman í landsliðshóp í heiminum. Arnór verður 35 ára í sumar en Eiður Smári er 17 ára, fæddur 15. sept- ember 1978. ■ Einkennileg / C1 -----» ♦ ♦----- Stóru sjúkrahúsin vantar milljarð í ár Samdráttur þyrfti að nema 7 til 8% DRAGA þyrfti saman starfsemi Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkis- spítalanna um 7 til 8% til að mæta eins milljarðs króna ijárvöntun að því er fram kemur í greinargerð Ríkisendurskoðunar um fjárhags- stöðu sjúkrahúsanna í Reykjavík. í greinargerðinni kemur fram að ef tekið er tillit til óskar Sjúkrahúss Reykjavíkur um 70 milljóna króna fjárheimild vegna breytinga á hús- næði nemi spamaðaráform sjúkra- húsanna aðeins 360 milljónum króna upp í tæplega milljarðs fjárvöntun. Af henni eru um 250 milljónir vegna fjárvöntunar á síðasta ári. Fækkun sjúklinga og starfsmanna Ríkisendurskoðun telur að til að mæta eins milljarðs króna fjárvönt- un þurfi sjúkrahúsin að draga sam- an framboð á þjónustu sinni þ.e.a.s. fækka sjúkrarúmum um 114, fækka sjúklingum sem þau hafa þjónustað frá árinu 1995 um 4.111 og starfsmönnum um 338. Sam- drátturinn nemur 7 til 8% af um- fangi sjúkrahúsanna á síðasta ári. Sýn fær úthlutað fjórum rásum frá Stöð 2 og Stöð 3 ■ 625 milljónir vantar/4 -------» ♦ ♦-------- Smábátar tvöfalda þorskaflann ÚTVARPSRÉTTARNEFND hefur ákveðið að úthluta sjónvarpsstöðinni Sýn hf. fjórum sjón- varpsrásum á örbylgjusviði á höfuðborgarsvæð- inu. Rásunum hafði áður verið úthlutað til bráða- birgða til íslenska útvarpsfélagsins hf., vegna Stöðvar 2, og íslenska sjónvarpsins hf., vegna Stöðvar 3. Gunnar M. Hansson, stjórnarformaður Stöðvar 3, segir þessa ráðstöfun nefndarinnar hafa komið Stöð 3 í opna skjöldu. Hann telur að ákvörðunin skekki samkeppnisstöðu á sjónvarps- markaði því sömu eigendur séu að Stöð 2 og Sýn. Þarna sé útvarpsréttarnefnd að færa veru- legan hluta af þeirri auðlind, sem sjónvarpsrásir séu, í einn vasa á kostnað samkeppni. Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttar- nefndar, segir að nefndin líti á Stöð 2 og Sýn sem tvö aðskilin fyrirtæki þótt vitað sé um eig- endatengsl á milli þeirra. Útvarpslög hvorki krefj- ist þess né heimili að litið sé til slíkra tengsla þegar útvarpsleyfum er úthlutað. Sýn sótti um fimm örbylgjurásir en fékk tvær til lengri tíma og tvær til bráðabirgða. Páll Magn- ússon, sjónvarpsstjóri Sýnar, segir að rásirnar fjórar verði notaðar til endurvarps á erlendum sjónvarpsstöðvum en er ekki reiðubúinn að nefna þær á þessu stigi. Stöð 3 hafði ráðgert að taka rásirnar, sem hún var svipt, í notkun í sumar fyrir kvikmyndasýning- ar gegn greiðslu. Gunnar M. Hansson segir að ákvörðun útvarpsréttarnefndar kippi fótunum undan þeim áformum nema gengið verði á aðrar útsendingar. Stöð 2 mun hafa notað rásirnar sem hún missir fyrir sendingar Fjölvarpsins. Sjónvarpsrásimar, sem útvarpsréttarnefnd end- urúthlutaði í fyrradag, eru á svonefndu 2,5 gíga- riða tíðnisviði. Á þessu sviði eru 22 örbylgjurásir og hefur þeim öllum verið úthlutað, ýmist til lengri tíma eða bráðabirgða. Lengri tíma úthlutun er til þriggja eða fimm ára en bráðabirgðaúthlutun til sex mánaða. í samningum milli útvarpsréttar- nefndar og þeirra sem sjónvarpa eru uppsagnar- ákvæði og er nefndinni heimilt að segja upp samn- ingum um bráðabirgðaúthlutun fyrirvaralaust. ■ Allar rásir uppteknar/32 ÞORSKAFLI smábáta varð tvöfalt meiri í marzmánuði síðstliðnum en í sama mánuði í fyrra. Þorskafli þeirra nú varð alls 5.515 tonn á móti 2.483 tonnum í marz í fyrra. Þorskafli stærri báta jókst úr um 11.000 tonnum í rúmlega 14.150 tonn, en þorskafli togara varð um 4.400 tonn, sem er um 900 tonnum minna en í fyrra. Það, sem af er þessu ári, er þorskaflinn 10.000 tonnum, eða 20%, meiri en á sama tíma í fyrra. ■ Veruleg aukning/18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.