Morgunblaðið - 18.04.1996, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður úthafsveiðinefndar Landssambands íslenskra útvegsmanna
Þörf á íhlutun
stjómvalda
LÍÚ muni fylgja því eftir að fá ís-
lensk varðskip á svæðið, ef fram
JÓHANN A. Jónsson formaður út-
hafsveiðinefndar LIÚ segir að komi
til fleiri árekstra við rússnesk skip,
á borð við það sem varð á Reykjanes-
hrygg aðfaranótt þriðjudags, þurfi
íhlutun íslenskra stjómvalda að
koma til. „Við getum ekki ekki íátið
svona framferði yfir okkur ganga,“
segir hann.
Jóhann segir bæði koma til greina
að fá íslenskt varðskip á svæðið og
senda stjómvöldum í Rússlandi mót-
mæli vegna málsins.
Truflar veiðar
„Nú er búið að skipta veiðistofn-
inum á Reykjaneshrygg niður í
kvóta og vrð höfum fengið 45 þús-
und tonn og eigum væntanlega fulit
í fangi með að veiða það magn, þó
að þokkalega gangi, þannig að öll
áreitni og trufiun á miðunum verður
til þess að við náum síður því magni.
Því þarf að grípa með einhveijum
ráðum inn í þær aðgerðir, og fá
rússnesk skip til virða siglingareglur
eins og aðra. Ég á því ekki von á
að þetta gangi átölulaust fyrir sig
lengi,“ segir Jóhann. Hann segist
eiga von á að úthafsveiðinefndin eða
haldi sem horfi.
„Þetta er ekki fyrsta dæmið en
er kannski að ágerast og sjónar-
miðið breytist þegar búið er að skipta
upp stofninum, því á ég von á að
vinna hefjist við að láta taka á þessu,
ef þetta heldur áfram í sama dúr.
Við munum fyigjast með þróuninni
og taka á málum í takt við hana.“
Jóhann segir ekki ljóst hvað ís-
lensk varðskip gætu aðhafst utan
íslenskrar landhelgi en þó ættu þau
að geta séð til þess að skip þar virði
alþjóðlegar siglingareglur. Auk þess
sem, ef atvik sem þetta endurtaki
sig, þurfi að bera fram formleg
mótmæli við stjórnvöld í Rússlandi.
Erfitt samstarf
Hann segir að erfiðlega hafi geng-
ið að ná samstarfi við Rússa um
veiðar en þeir virðist veiða í hópum
og lúta utanaðkomandi flotastjórn,
sem sé eflaust ein orsök þess að
erfiðlega gangi að ná sambandi við
þá.
■ Það gerir enginn/18
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
GREINILEGT er að átt hefur verið við kumlið því beinin liggja óreglulega í því, eins og kumlið hafi einhvern tímann verið grafið upp,
það sennilega rænt og beinin sett ofaní það aftur í eina hrúgu. Hnífur úr járni og hárkambur úr beini í beinslíðri fundust í kumlinu.
Gripimir sjást innan rammans á myndinni til vinstri og í nærmynd til hægri. Hnífsoddurinn bendir til vinstri en kamburinn er til hægri.
mjaðmabein, handleggjabein, rif-
bein, viðbein og hryggjarliðir.
Hnífurinn og hárkamburinn, sem
skreyttur er með munstri sem
rispað er í slíðrið, verða að telj-
ast merkilegustu hlutirnir er upp
komu og benda eindregið til að
kumlið sé úr heiðnum sið, eða frá
því fyrir árið þúsund, að sögn
Guðrúnar.
Gröfin hefur verið fyllt með
vikurblönduðum jarðvegi sem í
em viðarkolatrefjar er gerir
auðveldara að afmarka stærð
kumlsins. Greinilegt er að átt
hefur verið við kumlið því beinin
liggja óreglulega í því, eins og
kumlið hafi einhvern tímann ver-
ið grafið upp, það sennilega rænt
og beinin sett ofaní það aftur í
eina hrúgu. Ekki er gott að átta
sig á þvi hvað sá er það gerði
hefur verið að fara vegna þess
að hnífurinn og kamburinn eru
óhreyfð.
Að sögn Guðrúnar getur verið
að fleiri bein og munir séu á svæð-
inu sem gætu hafa flust til þegar
ýtt var ofanaf kumiinu með trakt-
orsgröfu í júlí siðastliðnum, en
hún ætlar að athuga það nánar í
dag. En lokarannsókn fer fram í
sumar þegar frost er farið úr
jörðu, en svo heppilega vildi til
að það sem fannst af kumlinu lá
mestallt ofan á frostinu er var í
jörðu í vetur og aðeins varð að
skilja eftir fáein bein nú. Munirn-
ir er nú fundust lágu mest á þijá-
tíu sentimetra dýpi í jarðvegi,
aðeins stóð upp úr hauskúpa, lær-
leggur lá ofanjarðar og ýmsir
beinendar stóðu einnig uppúr
jörðinni.
Guðrún segir að í sumar verði
að taka jarðveginn er ýtt var ofan
af kumlinu á síðasta sumri og
fara í gegnum hann og sigta til
að finna það sem enn er heilllegt
og fylgt hefur kumlinu. Ekki er
búið að ákveða hvað gert verður
við beinin og munina, til að byija
með fá hlutirnir og beinin með-
ferð svo þau hætti að rotna, en
síðan er vonast til að fundurinn
geti verið til sýnis fyrir almenn-
ing, sagði Guðrún Kristinsdóttir
minjavörður að lokum..
GUÐRÚN Kristinsdóttir, minjavörður á Egilsstöðum, og Páll Pálsson frá Aðalbóli grafa upp kumlið.
Beinafundurinn 1 Jökuldal
Mannabein ásamt hníf og
kambi úr heiðnu kumli
Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið.
MANNABEININ, er Ármann
Halldórsson gröfumaður fann
við bæinn Hrólfsstaði á Jökuldal,
eru að öllum líkindum úr heiðnu
kumli, að sögn Guðrúnar Krist-
insdóttur, minjavarðar á Egils-
stöðum, sem rannsakaði þau. í
kumlinu fundust einnig hnífur
úr járni og hárkámbur úr beini
í beinslíðri.
Kumlið liggur sex metra neðan
við vegkantinn á þjóðvegi eitt við
Sandhól mitt á milli bæjarins á
Hrólfsstöðum og eyðibýlisins
Slútagerðis er stendur í landi
Sellands í Hlíðarhréppi, kumlið
er rétt við hreppamörk Jökuldals
og Hlíðarhreppa í 132,5 metra
hæð yfir sjó.
Guðrún gróf kumlið upp ásamt
Páli Pálssyni frá Aðalbóli og tel-
ur hún þetta merkan fund. Kuml-
ið, sem er vel afmarkað með
dökkum lit vegna vikurs sem í
því er, Iiggur norður-suður,
150-160 sentimetrar á lengd og
50-60 sentimetrar á breidd og í
því var heygð frekar hávaxin
mannvera, allt að 180 sentimetr-
ar að hæð miðað við lengd Iær-
leRgja er í kumlinu voru, kumlbú-
inn hefur verið nokkuð við aldur
miðað við slit tanna hans.
Búið er að taka þá muni og
bein er í kumlinu fundust, ganga
frá þeim og flytja til Egilsstaða
þaðan sem þau verða send suður
til Reykjavíkur til frekari með-
ferðar. I kumlinu voru nokkuð
heilleg bein, hauskúpa, kjálkar,
tveir lærleggir, tveir sköflungar,
Atlanta í Nígeríu
Píla-
gríma-
flugi hætt
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur
hætt með öllu pílagrímaflugi
sínu frá Nígeríu til Sádi-Arabíu
vegna heilahimnubólgufarald-
ursins í Nígeríu.
Eins og skýrt var frá í
Morgunblaðinu í gær þurfti
Atlanta að finna Lockheed-þotu
sinni önnur verkefni en píla-
grímaflug, þar sem Sádi-Arab-
ar hafa takmarkað pílagríma-
flutninga frá Vestur-Afríku.
Ástæðan er mannskæður heila-
himnubólgufaraldur, sem geis-
að hefur í Vestur-Afríku að
undanförnu.
í gær lokuðu Sádi-Arabar
síðan endanlega fyrir flug með
pílagríma frá Nígeríu. Að sögn
Arngríms Jóhannssonar, for-
stjóra Atlanta, voru Boeing
747-þotunni, sem eftir var í
Nígeríu, þegar í stað fundin
verkefni í Indlandi og kom hún
til Bombay í gær.
Arngrímur segir að áhafnir
þotnanna fari með þeim til Ind-
lands og Frakklands. Samn-
ingnum við Nígeríumenn hafi
verið lokað og verði ekki fram-
hald á pílagrímaflugi í ár.
Fylgzt náið með
heilahimnubólgntilfellum
„Heilahimnubólga stingur
sér niður hér af og til, en farald-
ur í Vestur-Afríku snertir okkur
ekki sérstaklega," sagði Ólafur
Ólafsson, landlæknir, í samtali'
við Morgunblaðið.
„Um tíma var smávægileg
aukning á heilahimnubólgu af
b-stofni hér á landi, en hún
hvarf aftur síðastliðið haust,“
sagði landlæknir. „Hérna koma
upp 8-9 tilfelli á ári og við fylgj-
umst mjög náið með öllum
breytingum.“
Hrafnkell
A. Jónsson
ráðinn
skjaiavörður
Egilsstöðum. Morgunbiaðið.
HRAFNKELL A. Jónsson var
í gær ráðinn skjalavörður Hér-
aðsskjalasafnsins á Egilsstöð-
um frá 1. júní. Hrafnkell er
formaður Verkamannafélags-
ins Árvakurs á Eskifirði og er
einn frammámanna Sjálfstæð-
isflokksins í sinni heimabyggð.
Hrafnkell sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að
hann ætti eftir að ráðfæra sig
við stjórn Árvakurs um starfs-
lok sín en hann hefur gegnt
formennsku í féiaginu með litl-
um hléum frá 1977, að eigin
sögn.
„Það er æskilegt fyrir stétt-
arfélög að menn verði ekki elli-
dauðir í starfi og heppilegt,
bæði fyrir mig og félagið að
inn komi nýtt fólk,“ segir hann.
Hvað stjórnmálaþátttöku
áhrærir segir Hrafnkell eftir
að koma í ljós hvað mikill tími
sé eftir til annarra verka þegar
skjalavörslunni sleppir.
Auk Hrafnkels sóttu um
stöðuna Sigfús Guttormsson
kennari á Skjöldólfsstöðum,
Sveinn Herjólfsson kennari á
Egilsstöðum og Össur Torfa-
son starfsmaður Kaupfélags
Héraðsbúa á Egilsstöðum. Sig-
urður Óskar Pálsson hefur
gegnt starfi skjalavarðar í
safninu frá 1985.