Morgunblaðið - 18.04.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Áfangaskýrsla um heildarstefnu og nýskipan náms í málmiðngreinum
FRETTIR
Borgarholtsskóli
verði kjamaskóli í
máhniðngreinum
í ÁFANGASKÝRSLU Stýrihóps
málmiðngreina, um heildarstefnu og
nýskipan náms í málmiðngreinum,
sem skipaður var af menntamálaráð-
herra í maí 1994, er lagt ti! að Borg-
arholtsskóli íReykjavík verði kjama-
skóli í málmiðngreinum. Þar verði
einnig boðið upp á meistaranám og
iðnfræðinám fyrir málmiðnaðarmenn
og tækninámskeið á vegum Fræðslu-
ráðs málmiðnaðarins. Þá er lagt til
að stofnaðar verði ráðgjafarnefndir
við skólann sem í eiga sæti fulltrúar
atvinnulífs og skóla.
Sveinspróf verði tvískipt
Lagt er til að nám í málmiðngrein-
um taki 4 ár og skiptist í 2 megin-
hluta. Fyrri hluti námsins verði fjög-
urra anna sameiginlegt grunnnám
fyrir allar málmiðngreinar. Námið
fari eingöngu fram í skóla og því
ljúki með prófí. Seinni hluti námsins
verði tveggja anna sémám í skóla
ásamt starfsþjálfun í fýrirtæki.
Einnig er lagt til að sveinspróf í
málmiðngreinum verði tvískipt. Fyrri
hlutinn verði í lok skólanáms en sá
síðari í lok seinasta starfsþjálfunar-
tímabils. Starfsþjálfun í fyrirtæki
verði a.m.k. 15 mánuðir, þar af 6
mánuðir að lágmarki eftir að fyrri
hluta sveinsprófs er lokið. Gengið er
út frá að tillögumar leiði til betri og
markvissari menntunar í einstökum
iðngreinum í samræmi við kröfur
atvinnulífsins, aukins samstarfs milli
atvinnulífs og skóla og aukins hag-
ræðis i skólastarfi.
í áfangaskýrslunni kemur fram
að í upphafí ársins 1996 séu framtíð-
arhorfur í málmiðnaði bjartari en að
undanfömu, m.a. vegna ýmissa að-
gerða atvinnulífs og stjómvalda er
verið hafa í undirbúningi um nokk-
urt skeið. Miklar annir eru nú hjá
fyrirtækjum í greininni og hefur
skortur á hæfu vinnuafli þegar gert
vart við sig. Bent er á að á vegum
iðnaðarráðuneytisins er komin út
áfangaskýrsla um mannaflaþörf
vegna stóriðjuframkvæmda árin
1996-2002. Þar segir að um mitt ár
1997 munu rúmlega 150 málmiðnað-
armenn starfa við byggingu iðjuvers
og við orkuframkvæmdir vegna
stækkunar Álversins í Straumsvik.
Einnig kemur fram að það eru eink-
um málmiðnaðarmenn sem kröfur
um sérstaka sérhæfingu eru gerðar
til og þá í málmsuðu. Ef litið er til
áranna fram til 2002 er áætlað í
skýrslunni að þörf sé fyrir allt að
800 málmiðnaðarmenn til starfa við
iðjuver og orkuframkvæmdir þegar
mest verður árið 2001.
Sérhæft nám eftir sveinspróf
í áfangaskýrslu Stýrihópsins er
einnig komið inn á framhaldsnám
að loknu iðnnámi, enda megi ljóst
vera að málmiðnaðarmenn eru ekki
fullnuma við sveinspróf. Sú hæfni
og þekking sem málmiðnaðarmaður
hefur við sveinspróf sé hins vegar
talinn góður grunnur til að byggja á
í áframhaldandi námi eða sérhæf-
ingu. Gerðar eru tillögur um sérhæft
nám eftir sveinspróf og gæti það
orðið hluti af faggreinanámi til
meistaraprófs. Tækninámskeið
Fræðsluráðs málmiðnaðarins gætu
einnig verið liður í slíku framhalds-
námi. Samnýting sem þessi ætti að
hafa betri rekstrargrunvöll en nám-
skeiðsframboð sem stendur eitt sér.
Hægt er að halda hluta slíkra
námskeiða utan höfuðborgarsvæð-
isins og er mögulegt að hafa bóklega
þætti námskeiða í fjarkennsluformi
en verklega hluta þeirra þar sem
fullnægjandi aðstæður eru fyrir
hendi. Slík framkvæmd myndi geta
sparað nokkra fjármuni vegna styttri
viðveru meðan á námskeiði stendur,
hjá þeim nemendum sem þurfa að
sækja nám utan heimabyggðar.
Það er mat stýrihópsins að meist-
ara- og iðnfræðinám á sviði málmiðn-
aðar eigi að fara fram í kjarnaskóla
málmiðngreina - Borgarholtsskóla.
Þar verði öllu námi í málmiðngrein-
um gerð tæmandi skil með fullko-
minni aðstöðu til verklegrar kennslu
og starfsfólki sem uppfyllir nauðsyn-
legar lágmarkskröfur um menntun
og hæfni.
Lagt er til að Borgarholtsskóli
verði þróunarmiðstöð menntunar í
málmiðnaði bæði að því er varðar
þróun fagþekkingar og kennslufræði
greinanna. Stjómendum og starfs-
mönnum ber að fylgjast vel með þró-
uninni í málmiðnaði hérlendis og á
alþjóðavettvangi og laga námið jafn-
óðum að þörfum atvinnulífsins á
hveijum tíma. Skólinn hafi einnig
forgöngu um að þróa með markviss-
um hætti námsefni, námsskipan,
kennsluaðferðir og námsmat í málm-
iðngreinum. Æskilegt er að hann
geti aðstoðað aðra framhaldsskóla
við þróun þess hluta iðnnáms í málm-
iðngreinum sem þeir kenna. Nem-
endur eigi þess kost að sækja þá
námsþætti í Borgarholtsskóla sem
ekki eru kenndir í heimabyggð.
Aðrir skólar sem að einhveiju leyti
veita menntun á sviði málmiðnaðar
eiga að geta leitað til hans um leið-
sögn og ráðgjöf m.a. varðandi skipu-
lag námsins, námsefni og kennslu-
hætti sem og sérstök þróunarverk-
efni.
Fylgja þarf
tillögunum eftir
í lokaorðum skýrslunnar segir
m.a. að mikilvægt sé að fylgja þess-
um tillögum fast eftir og að við taki
hópur kennara og fagmanna sem
útfæri nánar þær hugmyndir um
námsáfanga og markmið sem fram
eru settar. Gera þarf áætlun um
upphaf náms í málmiðngreinum við
Borgarholtsskóla og hvernig þeir
nemendur sem þegar hafa hafið nám
í málmiðngrein ljúki sínu námi. Einn-
ig þarf að huga að hvemig rétt sé
að standa að framkvæmd hugmynda
um verkaskiptingu milli framhalds-
skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Höskuldur Skarphéðinsson skipherra segir upp störfum
eftir tæplega 40 ár hjá Landhelgisgæslunni
Hörð gagnrýni á reglugerð um
úrvinnslu upplýsinga úr skattskrá
Þingmenn
krefjast
afturköllunar
HÖSKULDUR Skarphéðinsson,
skipherra hjá Landhelgisgæsl-
unni, hefur sagt upp störfum,
eftir tæplega fjörutíu ára starf
hjá Landhelgisgæslunni, vegna
óánægju með það hvernig búið
er að Gæslunni. Hann segist einn-
ig ósáttur við að sami maður
gegni starfi sjávarútvegs- og
dómsmálaráðherra og segir að
starfsemi Landhelgisgæslunnar
hafi goldið fyrir það. Forstjóri
Landhelgisgæslunnar segist hafa
átt mjög gott samstarf við Hösk-
uld og hann sjái eftir honum úr
starfi.
Höskuldur sagði að hann hefði
horft upp á það að stöðugt drægi
úr Landhelgisgæslunni, þ.e.a.s.
landhelgisstörfum. Að vísu hefði
flugflotinn fengið sitt og vegur
hans aukist, en allt sem sneri að
landhelgisstörfum, björgunum
og eftirliti til sjós hefði setið á
hakanum. Sífellt hefði dregið úr
fjárveitingum til Gæslunnar, allt
frá því að það takmark hefði
náðst að færa landhelgina út í
200 milur. Hann væri mjög ósátt-
ur við þetta og það vonleysi sem
væri framundan.
Höskuldur sagði að hins vegar
væri hann mjög ósáttur, og það
gilti um fleiri, við það hvað dóms-
málaráðherra væri hallur undir
sjávarútvegsráðherra, en einn og
sami maðurinn gegndi báðum
embættunum. Allt eftirlit og lög-
gæslustörf Landhelgisgæslunnar
gyldu fyrir það og það gilti ekk-
ert frekar um Þorstein Pálsson
en Halldór Ásgrímsson í embætt-
Oánægður
með hvemig
búið er að
Gæslunni
um sjávarútvegs- og dómsmála-
ráðheira.
Hann sagði að þetta hefði hríð-
versnað eftir að þessi stjórnskip-
un var tekin upp. Hann teldi að
það hefði verið gert af ásettu
ráði að hafa sama mann í báðum
þessum embættum, þótt hann
gæti ekki sannað það. Áður hefði
dómsmálaráðuneytið staðið með
Gæslunni, en það gilti ekki leng-
ur, og það skipti ekki máli hvort
um væri að ræða möskvamæling-
ar, veiðileyfi eða hvort Landhelg-
isgæslan sannaði í skýrslum að
það væri kastað óhemju af fiski.
Hann bætti því við að það
væri ótrúlegt hvað margir land-
helgismenn sýndu mikinn áhuga
og vilja til vinnu við þessar kring-
umstæður.
Höskuldur sagði að hann hefði
stefnt að því að vinna næsta ár
og öðlast þar með rétt til 70%
eftirlauna, en hann gæti ekki
búið við þetta lengur og myndi
snúa sér að því að finna sér eitt-
hvað annað til að hafa fyrir
stafni.
Farsælt samstarf
Hafsteinn Hafsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar,
sagði að samstarf sitt og Hösk-
uldar hefði verið mjög gott og
hann sæi eftir honum úr starfi
hjá Landhelgisgæslunni. Hann
skildi hins vegar nyög vel að
Höskuldur skyldi vilja hætta
störfum eftir svo langan starfs-
feril hjá Gæslunni.
Hafsteinn sagðist ekki vilja tjá
sig neitt um þær ástæður sem
Höskuldur gæfi upp fyrir upp-
sögninni. „Eg vil undirstrika það
að okkar samstarf hefur verið
mjög farsælt og ég sé eftir hon-
um,“ sagði Hafsteinn ennfremur.
g] KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
HÖRÐ gagnrýni kom fram í alþing-
isumræðu s.l. þriðjudag á reglugerð
fjármálaráðuneytis sem bannar hvers
konar úrvinnslu á upplýsingum úr
álagningar- og skattskrám.
„Ef fjármálaráðherrann getur
hengt sig á einhvern lagabókstaf í
lögum um meðferð og skráningu
persónulegra upplýsinga, þá ber þeg-
ar í stað að fella þetta ákvæði úr
gildi og taka þennan kaleik frá fjár-
málaráðherra. Aðalatriðið er að þetta
mál verði leiðrétt nú þegar, og eðli-
legur aðgangur verði að álagningar-
skránni og skattskránni," sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, þingmaður
Þjóðvaka.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði, að vegna gagnrýni á
reglugerðina hefði hann óskað eftir
því að starfsmenn fjármálaráðuneyt-
isins, embætti skattstjóra og Tölvu-
nefnd ijölluðu um málið.
Það voru einkum þingmenn stjórn-
arandstöðunnar, sem tóku til máls
en Jón Kristjánsson Framsókn-
arflokki tók einnig undir það sjónar-
mið að það væri ekki gott ef reglu-
gerðin kæmi í veg fyrir eðlilegt að-
hald með skattsvikum sem birting
upplýsinga úr skattskrá veitti. Ræða
þyrfti þetta mál sérstaklega í tengsl-
um við upplýsingalög sem nú eru til
meðferðar á Alþingi.
Svavar Gestsson Alþýðubandalagi
óskaði eftir utandagskrárumræðu
um regiugerðina, sem hann sagði
vera ritskoðun að beiðni Verslunar-
ráðs íslands, sem hefði snúið sér til
ýmissa aðila og beðið um að settar
yrðu reglur til að koma í veg fyrir
að reiknað verði of mikið á grund-
velli upplýsinga í álagningar- og
skattskráa. Niðurstaða fjármála-
ráðuneytisins hefði verið að setja
þessa einstæðu reglugerð.
Samkvæmt reglugerðinni er
óheimilt að gefa út hvers konar upp-
lýsingar úr álagningarskrá. Þó sé
heimilt að birta fjölmiðlum upplýs-
ingar úr skránni meðan hún liggur
frammi á þann hátt sem þær liggja
fyrir í skránni. Öll úrvinnsla upplýs-
inga úr skránni er óheimil, svo sem
útreikningur álagðra gjalda yfir í
tekjur, umreikna skatta fyrirtækja
yfir í veltu, og einnig er bannað að
bera upplýsingar saman milli ára.
Þá er bannað að reikna umræddar
upplýsingar til núvirðis með vísitölu-
reikningi.
Tölvunefnd
hefur lögsögu
Svavar spurði hvenær fjármála-
ráðherra ætlaði að fella reglugerðina
úr gildi. Friðrik sagði að álagningar-
skrá og skattskrá væru persónulegar
upplýsingar um fjárhag einstaklinga
og samkvæmt lögum fjallaði Tölvu-
nefnd um slík mál. Og reglugerð fjár-
málaráðuneytisins byggði á bréfi
Tölvunefndar frá síðasta ári til ríkis-
skattstjóra, þar sem tekið var fram
að upplýsingar úr álagningar- og
skattskrá mætti aðeins birta á þann
hátt sem þær kæmu fyrir í skránum.
Úrvinnsla upplýsinga, til dæmis uin-
reikningu álagsgjalda yfír í tekjur
eða veltufjárhæð, samanburður á
milli ára, framreikningur til núvirðis
með vísitölureikningi, sé óheimill.
Friðrik sagði að líklega myndi
engu breyta þótt reglugerðin væri
afnumin, því Tölvunefndin hefði vald
í málinu og reglugerðin yrði að
byggjast á lögum og það væri af-
staða Tölvunefndarinnar sem réði.
Hann viðurkenndi, að erfitt væri
að fara eftir reglugerðinni eða niður-
stöðu Tölvunefndar, því ekki væri
hægt að banna fólki að reikna og
gefa sér forsendur á grundvelli upp-
lýsinga sem væru birtar. En afstaða
Tölvunefndar byggðist á því að ekki
mætti safna saman þessum upplýs-
ingum og gefa út sérstakar skrár
og selja.
Fallegtraðhús
á besta stað í austurborginni
Fallegt endaraðhús 156 fm á einni hæð ásamt 28 fm
bílsk. á rólegum stað innst í botnlanga. Góðar stofur
og skjólgóð suðurverönd. 3-4 svefnherb.
B*INGHOLTs fasteignasala,
Suðurlandsbraut 4a, s. 5680666.