Morgunblaðið - 18.04.1996, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fíkniávaninn líffræðileg-
ur en ekki félagslegur?
Fjölskyldumeðferð, góður árangur endur-
komusjúklinga, ný aðferð við að lækna
áfengissjúka með hláturgasi og opin með-
ferðarstofnun þar sem lögð er áhersla á ein-
staklingsbundna áfengismeðferð voru
meðal umræðuefna á nýlokinni alþjóð-
legri ráðstefnu um fíknisjúkdóma, sem
haldin var hér á landi. Hildur Einars-
dóttir sat ráðstefnuna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RÁÐSTEFNUNA sóttu á þriðja hundrað innlendir
og erlendir gestir.
HÁTT á þriðja hundrað manns
sóttu ráðstefnuna, sem
haldin var á Hótel Sögu.
Fyrirlesarar voru úr fremstu röð
fræðimanna á þessu sviði, inniendir
og erlendir og vinnuhópar voru starf-
andi. Margt athyglisvert kom fram
hvað varðar rannsóknir, meðferð og
forvarnir á fíknisjúkdómum.
í opnunarræðu sinni upplýsti Ól-
afur Ólafsson landlæknir hina er-
lendu gesti um það að þó að áfengis-
neysla á íslandi væri með því lægsta
á Vesturlöndum hefðum við þrisvar
til flórum sinnum fleiri sjúkrarúm
fyrir áfengissjúklinga og tvöfalt
fleiri legudaga en hin Norðurlöndin.
Taldi hann skýringuna geta falist í
því að við erum iítið samfélag þar
sem nálægðin er meiri og því yrðum
við varari við áfengisvanda nágrann-
ans eða að við sýndum áfengis-- og
fíkniefnaneytendum minna umburð-
arlyndi en nágrannalöndin. Ólafur
gerði unga íslenska fíkniefnaneyt-
endur að umtalsefni og sagði að
þeir kæmu flestir frá heimilum í
upplausn, þeir hefðu litla menntun,
vantaði starfsþekkingu og ættu í
samskiptaörðugleikum. Taka þyrfti
tillit til þessa í meðferð þeirra. I
framhaldinu kynnti hann norræna
könnun þar sem leitast er við að
mæla lífsgæðin á Norðurlöndunum.
Kemur þar fram að íslensk börn eiga
foreldra sem hafa ágætustu mennt-
unina, besta húsnæðið, flesta bílana,
þeir mældust einnig vera ánægðast-
ir í starfi sínu. Börn þessa fólks
sýndu hins vegar minnsta ánægju
með lífið samanborið við börn á hin-
um Norðurlöndunum.
Endurkomur áfengissjúklinga var
umræðuefni Þórarins Tyrfíngssonar
yfirlæknis SÁÁ. Greindi hann frá
því að hjá SÁÁ væri boðið upp á
sérstakta meðferðaráætlun fyrir þá
sem hafa komið oftar en tvisvar í
venjulega áfengismeðferð. Meðferð-
in hefði það meðal annars að markm-
iði að beijast gegn vonleysi og ein-
angrun og innræta samheldni og
ábyrgðartilfinningu. Þórarinn sagði
að árið 1994 hefðu 1.639 manns
komið í meðferð á Vog, konur og
karlar. Af þeim fóru 364 karlar
tvisvar í meðferð og 111 konur. Af
körlunum fóru 123 í svokallaða vík-
ingameðferð sem er mun ítarlegri
meðferð þar sem megináhersla er
lögð á að breyta lífsstíl. Árangur
hennar væri sá, að þijátíu karlar eða
24% þeirra neyttu ekki áfengis eitt
til tvö ár eftir meðferðina. Fimmtíu
og átta karlar eða 47% neyttu hins
vegar áfengis á þessu tímabili.
Af þessum hópi fóru tíu aftur í
meðferð. Þeir voru allsgáðir í 7-14
mánuði eftir meðferðina. Niðurstað-
an væri því sú að þeir sem ekki
neyttu áfengis í hálft ár eða lengur
eftir meðferð væru fjörutíu eða 32%
karlanna. Taldi hann þetta góðan
árangur.
Fíkniávani,
af hverju er hann til?
„Hvers vegna er fólk að leggja á
sig allt það böl sem fylgir ofneyslu
fíkniefna eins og heilsumissi, upp-
lausn fjölskyldunnar, at-
vinnu- og tekjumissi,"
spurði John Wallace, dokt-
or í sálfræði og kunnur
ráðgjafi og fyrirlesari um
fíknisjúkdóma. Ástæðurn-
ar sagði hann vera einkum þijár:
Erfðafræðilegar, líffræðilegar, fé-
lags- og menningarlegar. Sjálfur
kvað hann fjölskyldu sína vera sönn-
un um erfðaþáttinn og rakti fíkni-
sjúk skyldmenni sín langt aftur í
ættir og til dagsins í dag! Wallace
sagði að það væri í rauninni ofur
eðlilegt að fólk sækti í hvers kyns
fíkniefni því þegar þeirra væri fyrst
neytt hefðu þau mjög ánægjuleg
áhrif. Það væri ekki fyrr en farið
væri að neyta þeirra oftar sem nei-
kvæðu áhrifin kæmu í ljós. Hann tók
neyslu kókaíns sem dæmi um hvern-
ig fíkniefni hafa neikvæð áhrif á lík-
amsstarfsemina. Þegar kókaíns væri
neytt ykist framleiðsla taugaboðefn-
isins dóbamin í heilanum og menn
fylltust mikilli orku og
gleði. Þegar kókaíns
væri neytt að staðaldri
minnkaði dóbamínið í
heilanum sem ylli
mönnum þunglyndi sem
aftur ylli meiri neyslu
efnisins. Sagði hann
svipaða sögu að segja
um taugaboðefnið sero-
tonin. Við aukna áfeng-
isneyslu minnkaði efnið
í heiianum og ylli þung-
lyndi. Eftir eitt til tvö
ár án fíkniefna mætti
gera ráð fyrir að þung-
lyndiseinkennin hverfi.
Wallace sagði að margir
sem komnir væru á
réttan kjöl héldu að þá væri allt í
lagi að fá sér t.d. í glas aftur. Þeir
gleymdu því að vandinn væri líf-
fræðilegur en ekki félagslegur.
Börn áfengissjúklinga
í brennidepli
Málefni fjölskyldunnar voru ofar-
lega á baugi á ráðstefnunni. Claudia
Black, sem er frumkvöðull í málefn-
um fjölskyldna, hélt tvo fyrirlestra.
Black hefur skrifað margar bækur
um þetta efni og er eftirsóttur fyrir-
lesari um allan heim. I fyrri fyrir-
lestrinum sagði hún frá neikvæðum
áhrifum þess fyrir börn að alast upp
á heimili áfengissjúkra. í
Bandaríkjunum væru um
30 milljónir barna sem
ælust upp á slíkum heim-
ilum en flest fengju enga
hjálp. Mörg þeirra yrðu
fíkninni að bráð eða þau giftast
áfengissjúklingum. Claudia sagði
börn áfengissjúklinga lifa í stöðug-
um ótta við það hvað gerðist næst.
Þau væru hrædd við að verða yfir-
gefin og sum ælust upp hjá foreldr-
um sem væri tamt að grípa til ofbeld-
is eða þau væru misnotuð kynferðis-
lega. Foreldrarnir ættu oft við þung-
lyndi eða geðræna kvilla að stríða
og gerðu oft óbilgjamar og óraun-
hæfar kröfur til umhverfisins. Börn-
in fengju það því fljótlega á tilfinn-
inguna að það væri eitthvað verulega
að þeim. Þetta leiddi til tilfinninga-
legrar einangrunar. Þau töluðu ekki
um sjálf sig eða reynslu sína vegna
þess að þau skömmuðust sín. Claud-
ia kvað það einkennandi fyrir Qöl-
skyldur áfengissjúkl-
inga að enginn talaði
um ástandið. „Ef þú
segir ekkert er hægt
að láta sem ekkert sé
að.“ Börnin ættu líka
erfitt með að treysta
öðrum. Sagði hún að
börn alkóhólista hefðu
óeðlilega mikla
ábyrgðartilfinningu og
væru oft sjálfstæð og
stjórnsöm. Sagði hún
frá níu ára gamalli
stúlku sem hún kynnt-
ist en sú skipulagði
nákvæmlega hvernig
hún ætlaði að haga
næsta degi. Á þann
hátt gat hún haft reglu á lífi sínu
þrátt fyrir ruglingslegar kringum-
stæður. Önnur börn reyndu fyrst
og fremst að aðlaga sig að breyti-
legum aðstæðum, lægja öldurnar
og sefa umhverfið. „Hvert sem hlut-
verkið væri sem þau tækju sér þá
væri í því að finna í senn styrk og
veikleika," sagði hún.
í síðari fyrirlestrinum sagði hún
meðal annars að börn sem ælust upp
við ótta og skömmustutilfinningu,
bæru þessar tilfinningar með sér
fram á fullorðinsárin. „Samfara
þeim upplifðu fullorðin börn áfeng-
issjúklinga þá tilfinningu að þau
hafi misst af einhveiju,
sumir kölluðu þessa til-
finningu óhamingju, þung-
lyndi, tómatilfinningu,
óöryggi, kvíða eða leiðindi.
Hvaða orð sem væri notað
þá truflaði þessi tilfinning vellíðan
fólksins. En hvað er það sem börn
alkóhólista hafa farið á mis við?“
spurði Claudia. „Jú, þau misstu af
tækifærinu til að verða þau sjálf.
Þau voru alla tíð persónur í leikriti
annarra sem voru að reyna að yfir-
vinna þjáningar sínar. Sviðsljósið var
oftast á aðalpersónunni, sjálf voru
börnin aðeins í lítilvægum aukahlut-
verkum, sem aldrei voru almennilega
útfærð í handritinu að þessu fjöl-
skyldudrama."
Áhersla lögð á ein-
staklingsmeðferð
Óttar Guðmundsson sérfræðingur
Geðdeildar Landspítalans sagði frá
nýrri íslenskri meðferðarstofnun
sem staðsett er í miðborg Reykjavík-
ur og hefur verið starfandi innan
við eitt ár. Þar er fyrst og fremst
boðið upp á göngudeild og dagdeild
auk þess sem þar er tólf rúma inn-
lagningardeild. „Hjá okkur er lögð
áhersla á einstaklingsmeðferð og að
fjölskyldan sé með í ráðum á öllum
stigum meðferðarinnar. Ef við tök-
um ekki ijölskylduna inn í þetta ferli
verður árangurinn ekki góður“,
sagði hann. „Við bjóðum upp á fjöl-
skylduráðgjöf og reglulega fundi þar
sem fjölskyldan kemur saman og
ræðir málin. Tel ég þetta lið í að
sameina fjölskylduna upp á nýtt.“
Ennþá sagði hann ekki boðið upp á
sérstaka meðferð fyrir börn eða
unglingana en verið væri að þróa
slíka meðferð. Kom fram í erindi
hans að hann teldi æskilegra að
hver sjúklingur fengi meðferð sem
hæfði hans sérstaka vanda en þyrfti
ekki að breyta sjálfum sér til að
falla inn í þá meðferðaráætlun sem
öllum væri boðið upp á. Sagði hann
þessa opnu meðferðarstofnun hafa
gengið vel og kostnaður við hvern
sjúkling væri lægri en á lokuðum
stofnunum.
Betri árangur ef
AA er með í spilinu
Fjórtán prósent Bandaríkjamanna
þjást af ofneyslu áfengis og allt að
níu prósent eru fíkniefnaneytendur.
Margt af þessu fólki á við geðræn
vandamál að stríða. Þeir sem haldn-
ir eru geðrænum kvillum ná þó jafn
góðum árangri í áfengismeðferð og
hinir sem eru lausir við þessi ein-
kenni. Þetta kom fram í erindi Norm-
ans S. Miller, sem er læknir og pró-
fessor við háskólann í Illinois. Hann
sagði jafnframt að reynsla þeirra
væri sú að eftir því sem meðferðin
stæði lengur yfir því betri væri ár-
angurinn. Meðferðaráætlanir sem
styddust við kenningar AA-manna
bæru líka meiri árangur. Einnig
sýndi það sig að þeir sem stunduðu
AA-fundi reglulega héidu sig lengur
frá áfenginu. Sagði hann þróunina
í átt til opinna meðferðarstofnana í
Bandaríkjunum, þar sem boðið væri
upp á meðferð á göngudeildum og
dagdeildum auk lokaðra stofnana.
Áfengissýki læknuð
með hláturgasi
Finnskur læknir að nafni Reijo
Ojutkangas kynnti nýja aðferð til
að lækna áfengissjúklinga. Hann
sagði að með réttum skammti af
nituroxíði eða hláturgasi væri hægt
að koma jafnvægi á dópamínið í
heilanum. Við það hyrfu einkenni
ofneyslunnar, eins og skjálfti, höf-
uð- og magaverkir, kvíði og þung-
lyndi. Sagði hann að aðal munúrinn
á hefðbundnum aðferðum og hlát-
urgasaðferðinni væri sá að hin síð-
arnefnda kæmi í stað lyfja. Aðrir
kostir við aðferðina væru þeir að
áhrifin kæmu strax í ljós
og að hliðarverkanir
væru engar. Sagði hann
að þessi aðferð hefði
upphaflega verið þróuð í
Suður-Afríku fyrir rúm-
lega tuttugu árum við Suður-
afrísku heilarannsóknarstofnunina,
SABRl. Ojutkangas kvaðst hafa
bytjað að nota þessa aðferð árið
1990 við Mehilainen-sjúkrahúsið í
Helsinki. Ári seinna opnaði hann
göngudeild í eigin nafni þar sem
hann býður upp á þessa meðferð.
Árangur af meðferðinni kvað
hann góðan en tuttugu prósent
sjúklinga sinna hefðu verið án
áfengis tveim árum eftir meðferð-
ina.
Útlit og
horfur í
samskiptum
Rússlands
og Vestur-
landa
DMITRI Trenin, sérfræðingur
við Carnegie Endowment for
International Peace í Moskvu,
flytur erindi á sameiginlegum
hádegis-
verðar-
fundi Sam-
taka um
vestræna
samvinnu
(SVS) og
Varðbergs í
Grillinu á
Hótel
Sögu, laug-
ardaginn 20. apríl nk. kl. 12.
Þetta er í fyrsta sinn sem
fyrrverandi háttsettur rúss-
neskur hershöfðingi í hernum
flytur erindi hjá samtökunum.
Trenin er mjög eftirsóttur fyr-
irlesari og það verður því mjög
forvitnilegt að hlýða á hann
fjalla um öryggis- og utanrík-
ismál séð frá sjónarhóli Rúss-
lands, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Dmitri Trenin, sem fæddist
árið 1955 í Moskvu, er félagi
í Evrópustofnun rússnesku
vísindaakademíunnar. Hann
er vel þekktur bæði í heima-
landi sínu sem og á alþjóða-
vettvangi á sviði öryggis-,
vama- og utanríkismála.
Trenin stundaði nám við
Varnarmálastofnunina í
Moskvu og að því loknu gekk
hann í sovéska herinn þar sem
hann varð herforingi í utan-
ríkisdeild hersins.
Á árunum 1978 til 1983
starfaði hann sem samskipta-
fulltrúi sovéska hersins hjá
heijum vestun'eldanna í V-
Þýskalandi. Árið 1985 var
Trenin skipaður starfsmaður
viðræðunefndar Sovétríkj-
anna sem samdi við Banda-
ríkjamenn í Genf um kjarn-
orku- og geimhernað. Hann
gegndi því starfi til ársins
1991.
Árið 1993 var hann fyrsti
einstaklingurinn sem valinn
var í NATO Defence College
í Róm frá ríki utan Atlants-
hafsbandalagsins. Trenin var
jafnframt fyrsti herforinginn
utan NATO-ríkis sem boðið
var að gerast félagi í Internat-
ional Institute for Strategic
Studie (IISS) í London en það
var árið 1992.
Þegar Dmitri Trenin lét af
störfum í rússneska hernum
árið 1993 var hann orðinn
háttsettur herforingi með
mikla reynslu að baki í sam-
skiptum Rússa við vestræn
ríki. Hann er nú lektor við
Varnarmálaháskólann í
Moskvu auk þess sem hann
starfar hjá Carnegie-stofnun-
inni þar í borg.
Trenin lauk doktorsgráðu í
sögu utanríkismála við The
Institute af US and Canadian
Studies í Moskvu. Hann hefur
skrifað fjölda rita og greina
um varnar- og öryggismál
Rússlands. Auk þess ijallar
hann mikið í ræðu og riti um
hernaðarkenningar, öryggis-
mál Evrópu og friðargæslu.
Hann er kvæntur og á tvö
börn.
Fundurinn er opinn félags-
mönnum SVS og Varðbergs,
auk áhugafólks um erlend
málefni og þróun öryggis- og
stjórnmála í Evrópu.
íslenzk börn
óánægðust
með lífið
NORMAN S. Miller
Fjölskyldan
taki þátt í
meðferðinni
Dimitri Trenin