Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 33
32 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMT'JDAGUR 18. APRÍL 1996 33
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haligrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AFSTAÐA SOLANA
JAVIER Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, hefur hafnað þeirri kröfu Rússa að fyrrverandi
aðildarríki Varsjárbandalagsins fái einungis „pólitíska aðild“
að NATO. Solana, sem undanfarna daga hefur verið á ferð
um Eystrasaltsríkin og Austur-Evrópu, sagði slíkt útilokað
þar sem ekki væri til neinn „pólitískur hluti“ bandalagsins.
Öll ný aðildarríki yrðu að taka fullan þátt í starfi bandalags-
ins.
Þessi ummæli Solana eru til marks um að ekki verði lið-
ið að Rússar fái einhvers konar neitunarvald varðandi aðild
nýrra ríkja að bandalaginu eða stöðu þeirra innan þess. En
auðvitað er æskilegt að stækkun bandalagsins leiði ekki til
meiri háttar pólitískra átaka við Rússa.
Viðkvæmust í því sambandi er aðild Eystrasaltsríkjanna
að bandalaginu, þau eiga öll landamæri að Rússlandi og í
þeim býr fjölmennur rússneskur minnihluti. Hefur þeirri
hugmynd m.a. verið varpað fram að öryggishagsmunum
Eista, Letta og Litháa kunni að vera best borgið í fyrstu
með aðild ríkjanna að Evrópusambandinu. Hins vegar væri
ömurlegt til þess að hugsa, ef Eystrasaltsríkin yrðu skilin
eftir í annað skipti á þessari öld. Það var ekki sízt fyrir
atbeina okkar Islendinga, sem áttum engra stórveldahags-
muna að gæta, að aðrar þjóðir viðurkenndu að lokum sjálf-
stæði og fullveldi Eystrasaltsríkjanna.
Það er augljós staðreynd að Evrópa er að breytast. Skil-
greiningar kalda stríðsins eiga ekki lengur við og flest fyrr-
verandi aðildarríki Varsjárbandalagsins stefna nú að aðild
að jafnt Evrópusambandinu sem Atlantshafsbandalaginu.
Með því eru þau fyrst og fremst að sækjast eftir póli-
tískri og efnahagslegri tengingu við vesturhluta álfunnar,
sem er forsenda bættra lífskjara í þessum ríkjum.
Rússar geta ekki gert kröfu til þess að stöðva þá þróun.
Yfirlýsingar í Rússlandi um, að Sovétríkin beri að endur-
reisa og hótanir í garð nágrannaríkja ýta þvert á móti und-
ir tilraunir nágrannaríkja til varnarsamstarfs við vestræn
ríki.
MENNIN GARVERÐMÆTI
í GÖMLUM HÚSUM
HÚSAFRIÐUNARNEFND ríkisins, sem árlega úthlutar
styrkjum til endurbyggingar og viðhalds gamalla húsa,
hefur tekið upp þá nýbreytni að veita hærri styrki, að upp-
hæð milljón krónur hver, til stærri verkefna í húsfriðunar-
málum í hveijum landshluta. Níu hús um allt land fengu
slíkan styrk. Þau eru á bilinu 89 til 209 ára gömul og tengj-
ast öll verzlunar-, atvinnu- og menningarsögu landsins með
einum eða öðrum hætti. Að auki voru veittir smærri styrk-
ir til 144 húsa og samtals nema styrkirnir rúmlega 43 millj-
ónum króna.
Það er vel að húsafriðunarnefnd hefur markað þá stefnu
að veita hærri styrki til viðgerða á merkum húsum í hverj-
um landshluta. Það er í fyrsta lagi afar dýrt að gera upp
gömul hús og milljón hrekkur skammt. Einkaaðilar hafa
víða unnið stórvirki við björgun þeirra menningarverðmæta,
sem oft liggja í gömlu timburhúsunum, en þeir hafa yfir-
leitt takmarkað bolmagn til að ráðast í þessar dýru fram-
kvæmdir. í öðru lagi er jákvætt að landsbyggðin njóti
styrkfjárins til jafns við höfuðborgina, en athygli hefur oft
einkum beinzt að verndun gamalla húsa í miðborg Reykjavík-
ur, vegna þess að þar eru þau eðli málsins samkvæmt flest
saman komin.
Um allt land er hins vegar að finna fagrar og stórmerk-
ar byggingar frá fyrri öldum. Það er fyrst á seinustu árum,
að menn hafa áttað sig á mikilvægi þess að varðveita gömlu
húsin og nú hafa mörg þeirra gengið í endurnýjun lífdaga.
Sums staðar gegna gömlu húsin hlutverki byggðasafns eða
ferðamannamiðstöðvar og alls staðar eru þau bæjar- eða
þorpsprýði og aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Það eru ekki sízt sveitarfélög, sem bera ábyrgð á varð-
veizlu gamalla bygginga. Víða hafa sveitarfélögin hlaupið
undir bagga með þeim, sem viljað hafa sýna þessum forn-
minjum sóma. Hins vegar gerast e.nn menningarsöguleg
slys og má til dæmis minnast þess er hið fornfræga
Wathneshús á Seyðisfirði var rifið eftir bruna, þrátt fyrir
að hópur manna hefði áformað að endurnýja það. Vonandi
læra menn af slíkum mistökum.
Gömlu húsin eru hluti af sögu okkar og arfleifð og mikil-
vægur hluti íslenzkrar menningar. Það ber því að umgang-
ast þau með varkárni og virðingu og þörf er á að um allt
land móti sveitarstjórnir sér stefnu um varðveizlu þeirra
og viðhald.
100
NOTKUN TÍÐNISVIÐS
-1000-
(megarið, MHz)
^VHFsjÓn-
varpsrásir 5-12,
7 megarið hver rás
Z
UHF sjónvarps-
rásir 21 -65,
8 megarið hver rás
OO
oco
CgCM
MMDS fástasamb.
(Mtcrowave Muftiple DistributiOT System)
18 megarið hver rási
Fjölrása sjónvarpsdreifing á höfuðborgarsvæðinu
Notandi Dagskrá
Landsvirkjun Fastasamband
Sýn hf...............Býft
Þremur rásum hafði til bráða-
birgða verið úthlutað til íslenska
útvarpsfélagsins og þremur til
íslenska sjónvarpsins.
Fjórum þeirra, tveim frá hvorum aðila,
hefur nú verið úthlutað til Sýnar hf.
Tíðnisvið
2500-2508
2508-2516
2516-2524
2524-2532
2532-2540
2540-2548
2548-2556
2556-2564
2564-2572
2572-2580
2580-2588
2588-2596
2596-2604
2604-2612
2612-2620
2620-2628
2628-2636
2636-2644
2644-2652
2652-2660
2660-2668
2668-2676
(ísj. útvarpsfélagið hf.) Ðiscovery Channei
Isl. útvarpsfólagið hf.
Isl. útvarpsfélagið hf.
ísl. utvarpsfélagið hf.
jsi. útvarpsfélagið hf.
ísl. útvarpsfélagið hf.
RÚV
ísl. útvarpsfélagið hf.) —
ísl. utvarpsfélagið hf.
(ísl. útvarpsfélagið hf.)-
Isl. sjónvarpið hf.
jsl. sjónvarpið hf.
ísl. sjónvarpið hf.
Landsvirkjun/ísl. sjón. hf.
ísl. sjónvarpið hf.
(\s\. sjónvarpið hf.)
(ísl. sjónvarpið hf.)
(ísl. sjónvarpið hf.)
(Háskóli íslands?)
(Kristniboðskirkjan)
CNN
Sky News
Cartoon Networks/TNT
MTV
Eurosport
RÚV
Stöð 2
BBC .......mmpgmmmm
StÖð3
CNN
Eurosport
Fastasamband
MTV
Ðiscovery Channel
Engin útsending
0STÖÐ2
Islenska útvarpsfélagið hf.
Útherji tif. 80%
Jón Ólafsson og Co. sf. 37%
Sigurjón Sighvatsson 32%
Jóhann J. Ólafss. og Co. 14%
Sigurður G. Guðjónsson 6%
Guðjón Oddsson 3%
Aðrir 8%
Chase
Investment Bank 20%
Samtals 100%
S T Ö O
: Sýn hf. =====
Jón Ólafsson 21 %
Fjölmiðlunhf.* 20%
Chase Investment Bank 16%
Sigutjón Sighvatsson 15%
Haraldur í Andra 10%
Engín útsending
Engin utsending
Islenska sjónvarpið hf. ►-
Sambióin, Ámi Samúels. 14%
Holtabúiðhf. 14%
Skurnhf. 10%
Árvakurhf. 10%
Nýherji hf. 10%
Texti hf. 6%
Birgir Skaptason 5%
Pétur Steingrímsson 5%
Björn Á. Árnason 4%
Jóhann J. Ólafsson 9%
Sigurður G. Guðjóns. 3%
Guðjón Oddsson 3%
Gunnar Ólafsson 2%
Samtals 100%
* Fjölmiðlun hf. ef að 80 hlutum
I eigu Úthetja hf. og aö 20 hlut-
um I eigu Chase Investment
Bank.
Hlutabréfasj. Auðlind
Birkir Baldvinsson
Háskólabíó
Vífilfell ehf.
Axel Skúlason
Þórarinn Ágústsson
G. Jóhannsson
Hávöxtunarfélagið
Samtals
4%
4%
4%
2%
2%
2%
2%
2%
100%
R
ÁSUNUM ij'órum hafði áður
verið úthlutað til bráða-
birgða til íslenska útvarps-
félagsins hf. vegna Stöðvar
2 og Islenska sjónvarpsins hf. vegna
Stöðvar 3. Sýn hf. fékk úthlutað
tveimur rásum til lengri tíma og
tveimur til bráðabirgða, eða sex mán-
aða, en félagið mun hafa sótt um
fimm sjónvarpsrásir á höfuðborgar-
svæðinu. Stjórnarformaður Stöðvar 3
lítur svo á að þessi ákvörðun útvarps-
réttarnefndar skekki samkeppnis-
stöðu á sjónvarpsmarkaði verulega
og vísar til þess að sömu eigendur
standa að baki Stöð 2 og Sýn. For-
maður útvarpsréttarnefndar segir að
gagnvart nefndinni sé þarna um tvo
sjálfstæða lögaðila að ræða. í út-
varpslögum séu engin ákvæði sem
gefi fyrirmæli um né heimildir til að
líta til eignaraðildar þegar útvarps-
leyfum er úthlutað.
Sýn hefur haft eina rás á örbylgju-
sviði líkt og aðrar íslenskar stöðvar
sem hafa sent út á VHF og UHF tíðni.
Að sögn Páls Magnússonar, sjón-
varpsstjóra Sýnar, er ætlunin að nota
örbylgjurásirnar fjórar til endurvarps
á erlendum sjónvarpsstöðvum. Hann
vildi ekki að svo stöddu upplýsa hvaða
stöðvar þar væri um að ræða. Páll
sagði áskrifendur Sýnar nú vera 11
þúsund taisins en útsendingar stöðv-
arinnar nást einungis á höfuðborgar-
svæðinu.
Skekkt samkeppnisstaða
Gunnar M. Hansson, stjórnarfor-
maður Islenska sjónvarpsins hf. sem
rekur Stöð 3 og Árvakur hf., útgef-
andi Morgunblaðsins, á 10% í, segir
að þessi breyting sé gerð undir því
yfirskyni að gæta jafnræðis á mark-
aðnum. „Hvernig menn fá það til að
ganga upp skil ég ekki, þar sem með
þessu er tvímælalaust verið að gera
samkeppnisstöðuna enn ójafnari en
hún er í dag,“ sagði Gunnar. „Hvern-
ig er hægt að setja jafnaðarmerki á
milli sex rása, sem Stöð 3 eru ætlað-
ar eftir að tvær hafa verið teknar af
okkur, og tólf rása sem Stöð 2 og
Sýn fá auk þess sem þær hafa tvær
VHF-rásir. Með þessu er verið að
færa stærsta hluta af þessari auðlind
í vasa eins og sama aðilans á kostnað
eðlilegrar samkeppni. Hún
hlýtur að vera almenningi
fyrir bestu.“
íslenska sjónvarpið hf.
fékk úthlutað fimm sjón-
varpsrásum til þriggja ára
og þremur til bráðabirgða
í haust er leið. Ráðstöfun útvarpsrétt-
arnefndar á tveimur rásanna mun
hafa komið Stöð 3 í opna skjöldu.
Stöð 3 hefur sent út eina dagskrár-
rás og endurvarpað fjórum erlendum
sjónvarpsrásum. Fyrirhugað var að
nota tvær hinna ónotuðu rása fyrir
kvikmyndasýningar gegn greiðslu
(pay-per-view) sem ætlunin var að
hefja í sumar. Á þriðju rásinni átti
að senda út menningardagskrá,
kennsluefni og íþróttaþætti. „Ef á að
taka af okkur rásir er greinilegt að
við verðum að skera niður þessar
Allar rásir
uppteknar
Utvarpsréttamefnd hefur endurúthlutað fjór-
um sjónvarpsrásum á örbylgjusviði til Sýnar
hf. Guðni Einarsson kynnti sér málið.
Samkeppnis-
staða raskast
á sjónvarps-
markaði
fimm rásir sem við sendum á í dag
eða hætta við kvikmyndasýningar
gegn greiðslu," sagði Gunnar M.
Hansson. Hann sagði kvikmynda-
framleiðendur gera kröfu um tvær
kvikmyndarásir hið minnsta, helst
fjórar.
Engar rásir á lausu
Samkvæmt upplýsingum frá Fjar-
skiptaeftirlitinu hefur öllum 22 sjón-
varpsrásunum á 2,5 Ghz (gígariða)
örbylgjusviði á höfuðborgarsvæðinu
verið úthlutað. Að sögn Harðar Harð-
arsonar, starfsmanns Fjarskiptaeftir-
litsins, eru rásir sem tengjast flugum-
ferð fyrir ofan þetta tíðnisvið. Fyrir
neðan eru örbylgjuofnar og fleira og
þar fyrir neðan símtalaflutningur.
Að sögn Harðar er unnið að tilraun-
um með að þjappa útsendingum t.d.
sjónvarpsefnis allt frá fjórfalt og upp
í tífalt. Með þeirri tækni gætu því
orðið frá 88 og upp í 220 rásir í boði
á þessu tíðnisviði í stað 22 nú. Til
að njóta slíkra útsendinga þyrftu sjón-
varpsnotendur að bæta „þenjara“ við
tækjabúnað sinn til að breyta þjapp-
aðri útsendingu þannig að sjónvarps-
tækið nemi hana.
Einnig er unnið er að þróun nýs
evrópsks fjöivarpskerfis á 40 gígariða
tíðnisviði. Þar verður pláss fyrir eitt-
hvað á fjórða hundrað sjónvarpsrása.
Útsendingar ríkissjónvarpsins hóf-
ust á VHF-tíðnisviði og
flestir sjónvarpsnotendur
eru með loftnet til að taka
við því. VHF-tíðnisviðið er
langdrægara en hærri
senditíðnir. Þetta gerir
VHF-rásir eftirsóknarverð-
ari en aðrar. Á VHF-sviði eru átta
sjónvarpsrásir en ekki nýtist nema
önnur hver rás því útsendingin „smit-
ar“ yfir á aðliggjandi rásir. Á höfuð-
borgarsvæðinu eru notaðar rásir 6,
8, 10 og 12 á VHF-sviði og engar
rásir á lausu.
Á Vatnsenda eru þrír VHF-sendar,
Stöð 2 sendir á rás 6, RÚV á rás 10
og Sýn á rás 12. RÚV er með VHF-
sendi á Borgarspítala sem notaður
er til „holufyllinga“ á skuggasvæði í
Kópavogi og sendir á rás 8.
Á höfuðborgarsvæðinu er sent út
á 19 UHF-sjónvarpsrásum, en það
tíðnisvið er það næsta ofan við VHF-
sviðið. Fræðilega er pláss fyrir 45
sjónvarpsrásir á því sviði en skörun
takmarkar þann fjölda. UHF-rásir
hafa mikið verið notaðar til „holufyil-
inga“ á höfuðborgarsvæðinu. í þeim
tilgangi er RÚV með sjö UHF-rásir,
og Stöð 2 og Sýn hvor um sig með
4 UHF-rásir. Sjónvarpsstöðin Omega
sendir dagskrá sína út á þremur
UHF-rásum og Hafnfirsk fjölmiðlun
sendir út á einni UHF-rás.
Haustið 1993 hóf íslenska útvarps-
félagið rekstur Fjölvarps á örbylgju-
rásum, 2,5 Ghz tíðni, á höfuðborgar-
svæðinu. Til að nema útsendingarnar
þarf sérstök örbylgjuloftnet. Á þessu
tíðnisviði eru 22 rásir, þar af tvær
sem Landsvirkjun hefur notað til fjar-
skipta. Fljótlega var íslenskum stöðv-
um á VHF og UHF tíðni úthlutað
örbylgjurásum þannig að þeir sem
skiptu alveg um loftnet gætu numið
sendingar RÚV, Stöðvar 2 og Sýnar.
Kristniboðskirkjan, sem mun tengjast
Omega, hefur eina örbylgjurás sem
ekki er notuð til útsendinga nú.
í haust er leið hóf íslenska sjón-
varpið hf. rekstur Stöðvar 3 og fékk
úthlutað átta örbylgjurásum, fimm til
lengri tíma og þremur til bráða-
birgða. Ein þessara rása er önnur
þeirra sem Landsvirkjun hefur notað.
Mun sjónvarpsfélagið þurfa að bera
kostnað af því að leysa úr
fjarskiptavanda Lands-
virkjunar sem skapast við
að taka rásina undir sjón-
varpsrekstur.
Útvarpsréttarnefnd
Kjartan Gunnarsson, formaður út-
varpsréttarnefndar, sagði að fyrir
útvarpsréttarnefnd lægju ávallt um-
sóknir um sjónvarpsrásir og yfirleitt
miklu fieiri en hægt er að sinna.
Hann sagði að áður en samningur er
gerður á milli útvarpsréttarnefndar
og útsendingaraðila um úthlutun á
sjónvarpsrás gefi nefndin út vilyrði
til væntanlegs útsendingaraðila fyrir
því að hann muni fá úthlutað sjón-
varpsrás til tiltekins tíma eða bráða-
birgða. Slík vilyrði eru gefin til að
sjónvarpsfélag geti sýnt erlendum
Bráðabirgða-
úthlutun má
rifta fyrir-
varalaust
viðsemjendum fram á að það muni
fá sjónvarpsrás eða rásir hér á landi.
Vilyrðið gildir um ákveðinn tíma,
venjulega hálft ár.
Áð sögn Kjartans hafa menn yfir-
leitt komið innan þess tíma og lagt
fyrir útvarpsréttarnefnd samning um
við erlenda aðila um endurvarp sjón-
varpsefnis. Slíkur samningur við eig-
anda erlendu rásarinnar er nauðsyn-
legur vegna höfundarréttarsjónarmiða
og fleira sem ísland er skuldbundið
til að gæta vegna aðildar að alþjóða-
samningutn um endurvarp. Þegar
samningur af þessu tagi liggur fyrir
er gerður samningur, ýmist til bráða-
birgða eða lengri tíma, milli útvarps-
réttarnefndar og útsendingaraðila hér
á landi.
Kjartan sagði að gerðir væru tvenns
konar samningar um úthlutun sjón-
varpsrása, annars vegar bráðabirgða-
samningar til sex mánaða og hins
vegar langtímasamningar til þriggja
eða fímm ára. Að sögn Kjartans eru
þeir sem hafa fengið úthlutað sjón-
varpsrásum hvort tveggja með samn-
inga til bráðabirgða og lengri tíma.
Uppsagnarákvæði
í samningunum útvarpsréttar-
nefndar og handhafa sjónvarpsrása
eru uppsagnarákvæði og þeir upp-
segjanlegir af beggja hálfu. Uppsagn-
arákvæði eru samræmd í hvorri gerð
samninganna. í bráðabirgðasamning-
um er ákvæði um fyrirvaralausa upp-
sögn samningsins af hálfu útvarps-
réttarnefndar.
I langtímasamningum er samið um
fastan gildistíma og er samningurinn
ekki uppsegjanlegur af hálfu útvarps-
réttarnefndar nema almenn skilyrði
úthlutunarinnar séu brotin. Sá sem
hefur umráð yfir sjónvarpsrásinni
getur þó sagt samningnum upp þegar
honum sýnist, enda ekki hægt að
neyða aðila til að sjónvarpa.
Tvö aðskilin fyrirtæki
Það vekur athygli að Sýn, sem er
í eigu sömu aðila og Stöð 2, skuli
vera úthlutað tveimur rásum sem
teknar eru af Stöð 3 en hún er í eigu
annarra. Kjartan Gunnarsson var
inntur eftir því hvort þessi úthlutun
stuðlaði ekki að ójafnvægi á markaðn-
-------- um.
„Gagnvart útvarpsréttar-
nefnd eru þetta (Sýn og
Stöð 2) tvö aðskilin fyrir-
tæki, tveir lögaðilar og tvö
hlutafélög sem bæði hafa
““ starfað lengi á þessum
markaði. Þau eru með aðskildar stjórn-
ir og aðskilda framkvæmdastjórn og
aðskilinn rekstur eftir því sem best
er vitað. Það er vitað um að það eru
ákveðin eigendatengsl á milli fyrir-
tækjanna, eins og er afar algengt með
mikinn fjölda íslenskra fyrirtækja. í
útvarpslögum eru engin ákvæði sem
með neinum hætti, hvorki gefa fyrir-
mæli um né gefa heimildir til, líta til
þess þegar útvarpsleyfum er úthlut-
að.“
Ekki náðist í talsmenn Stöðvar 2 í
gær.
Menntunarstigið
helzti styrkur Islands
Morgunblaðið/Kristinn
JEAN-Claude Paye, framkvæmdastjóri Efnahagssamvinnu- og
framfarastofnunarinnar: Efnahagslíf á íslandi hefur ekki Iengur
falskan hvata verðbólgunnar og verður æ samkeppnishæfara.
Dökkar og bjartar hliðar eru á frammistöðu
—
Islands í efnahagsmálum. Ein sú bjartasta er
hátt menntunarstig þjóðarinnar, að mati Jean-
Claude Paye, framkvæmdastjóra OECD. Olaf-
ur Þ. Stephensen átti viðtal við Paye, sem
kom í opinbera heimsókn til íslands í gær.
JEAN-Claude Paye, fram-
kvæmdastjóri Efnahagssam-
vinnu- og framfarastofnun-
arinnar, OECD, kom hingað
til lands í opinbera heimsókn í gær.
Paye, sem gegnt hefur embættinu í
nærri tólf ár, hitti forsætis-, utanrík-
is- og fjármálaráðherra, efnahags-
og viðskiptanefnd Alþingis og banka-
stjóra Seðlabankans og forstjóra
Þjóðhagsstofnunar. OECD er sam-
starfsvettvangur vestrænna iðnríkja
í efnahagsmálum og innan stofnunar-
innar fara fram umræður um efna-
hagsstefnu, auk þess sem hún er
aðildarríkjunum tii ráðgjafar og bend-
ir á atriði, sem hún telur að betur
megi fara í hagstjórn.
— Aðildarríki OECD bera oft
frammistöðu sína í efnahagsmálum
saman við meðaltal innan OECD eða
í hvaða röð þau eru meðal ríkja stofn-
unarinnar. I mörgum efnum virðist
sem ekki gangi nógu vel hjá íslandi.
í dag er sagt frá því í fréttum að
íslenzk heimili séu einhver þau skuld-
ugustu innan OECD, og nýlega hefur
komið fram að erlend íjárfesting er
langt fyrir neðan meðaltalið. Hvað
varðar alþjóðlega samkeppnisstöðu
er ísland í átjánda sæti OECD-ríkja,
sem kemur meðal annars fram í því
að framleiðni og arðsemi fyrirtækja
er lægri en í mörgum öðrum OECD-
ríkjum. Bendir þetta til að íslendingar
séu að dragast aftur úr öðrum vest-
rænum iðnríkjum og verði að fara
að taka sér tak?
Alþjóðavæðing hafin á íslandi
„Sérhvert ríki verðuy auðvitað að
reyna að gera betur. Eg hef samt
ekki þá mynd af íslandi að það sé
að dragast aftur_ úr hinum. Eg hef
blendna mynd af íslandi. Þér nefnduð
dökku hliðarnar, en það eru margar
ijósar hliðar á íslenzku efnahagslífi.
Island er byrjað að alþjóðavæða at-
vinnuvegi sína og lætur æ meira að
sér kveða á heimsmarkaðnum. Ég
nefni sem dæmi hina stóru álbræðslu,
sem nú er verið að stækka að frum-
kvæði svissneska álfélagsins. Aðrir
álframleiðendur víða um heim hafa
sýnt Islandi áhuga. Þið seljið nú
tækniaðstoð og þekkingu á öllum
sviðum sjávarútvegs til margra ríkja.
Annað dæmi á svipuðu sviði er þró-
unarsamvinnuáætlun íslendinga, en
þið hjálpið mörgum þróunarríkjum
að byggja upp sjávarútveg.
Ég tel' þess vegna ekki að fsland
muni dragast aftur úr. Helzta ástæð-
an fyrir því er mjög hátt menntunar-
stig, eitt hið hæsta í heimi. Við erum
að ganga inn í öld, þar sem þjóðfélag-
ið og efnahagslífið er í auknum mæli
grundvallað á þekkingu. Þekking og
námshæfileikar eru bezta auðlind,
sem land getur átt, og mér sýnist að
í þessu efni sé ísland betur sett en
mörg önnur OECD-ríki.“
Vernd fyrir alþjóðlegri
samkeppni aflétt
— OECD hefur hins vegar gagn-
rýnt skort á samkeppni í íslenzku
atvinnulífi. Samkvæmt nýlegu mati
íslenzkrar sérfræðinganefndar, ríkir
engin samkeppni í þriðjungi íslenzka
hagkerfisins, meðal annars vegna
umfangsmikils ríkisrekstrar.
„Það má ekki gleyma því að ísland
er mjög sérstakt land, stór norðlæg
eyja, þar sem fátt fólk býr við erfitt
veðurlag, auk þess sem landið er ekki
mjög frjósamt. Það kemur þess vegna
ekki svo mjög á óvart að ríki og sveit-
arfélög hafi leikið stærra hlutverk en
venjulegt er í OECD-ríkjum. Það, sem
skiptir máli, er hins vegar sú breyt-
ing, sem er að verða á þessu. Mér
sýnist að umbætur hafi átt sér stað
á að minnsta kosti tveimur sviðum.
í fyrsta lagi hafa menn komið
böndum á verðbólguna. Ég kom hing-
að til lands fyrir níu árum, í lok tíma-
bils þegar verðbólgan var á bilinu 30
til 75% á ári, sem var gervihvati fyr-
ir efnahagslífið. íslenzkt atvinnulíf
bjó í gerviheimi. Það varð að koma
niður á jörðina og það hefur nú gerzt.
Efnahagslíf á íslandi hefur ekki leng-
ur þennan falska hvata og verður nú
æ samkeppnishæfara.
í öðru lagi hafa átt sér stað breyt-
ingar á hlutverki ríkisins, íhlutun
þess hefur minnkað og einkavæðing
er hafin. Þessari þróun lýkur ekki á
einum degi, en hún er í þá átt að
aflétta vernd landsins fyrir síharðn-
andi alþjóðlegri samkeppni.“
— Margir hafa fyrir satt að sam-
keppnisstaða Evrópu fari nú versn-
andi. Suðaustur-Asía verði helzta
vaxtarsvæðið á 21. öldinni, en Evrópa
eigi á hættu að verða jaðarsvæði í
efnahagslegu tilliti. Eru þetta raun-
sæir spádómar?
„Þetta væri raunsæ framtíðarsýn
ef við gengjum út frá því að Evrópu-
menn sofí á verðinum, en það er ekki
tilfellið. Evrópa á erfiðara en til dæm-
is Bandaríkin eða Ástralía með að
bregðast við nýjum aðstæðum í heim-
inum, sem er hin hnattræna þróun
efnahagsmála. Ástæða þess er að
Evrópa er álfa með langa sögu. Það
er erfitt fyrir fólk með langa sögu
að breyta henni eða fórna henni á
einum degi. Menn eru hins vegar
bytjaðir að laga sig að breytingunum.
Evrópa hefur verið vagga og aflgjafi
iðnbyltingarinnar og er vel i stakk
búin, hvað varðar hugarfar, menntun
og getu íbúanna. Ég lít svo á að
Evrópa sé vel undir átök næstu aldar
búin, að því gefnu að Evrópubúar
reyni ekki að skýla sér fyrir vindum
breytinga.11
Atvinnumálin efst á dagskrá
— Eitt þeirra málefna, sem hefur
borið hátt á vettvangi iðnríkjanna
að undanförnu er atvinnuleysi á
Vesturlöndum. Menn hafa rætt um
að aukið alþjóðlegt samstarf um at-
vinnumál muni skila árangri, en það
virðist ekki vera nein samstaða um
það til hvaða aðgerða beri að
grípa ...
„Það er ekki samstaða um útfærsl-
una að því leyti að engin tvö ríki vilja
grípa til nákvæmlega sömu aðgerða,
með réttu því að aðstæðurnar eru
ekki alls staðar þær sömu. En það
er samstaða um margt. í fyrsta lagi
eru menn sammála um að atvinnu-
leysi sé eitt helzta vandamálið í ríkjum
okkar og sé nú efst á dagskrá í fiest-
um löndum. Við ættum reyndar að
tala um félagsleg vandamál yfirleitt,
fremur en aðeins atvinnuleysi, því að
í sumum ríkjum er minna atvinnu-
leysi en á móti kemur að misrétti
eykst og félagsleg og þjóðernisleg
átök færast í vöxt. í öðru lagi eru
menn sammála um greiningu á orsök-
um vandans; hann er kerfislægur og
atvinnulífið hefur ekki lagað sig að
breytingum. í þriðja lagi er samstaða
um að þar sem öll ríki standa frammi
fyrir því að þurfa að aðlaga sig með
einum eða öðrum hætti að nýjum
aðstæðum í heiminum, ætti engum
hluta samfélagsins að finnast hann
vera skilinn eftir í þróuninni."
— Framtíð ríkisrekstrar og nýskip-
an I ríkisgeiranum hefur verið eitt
af viðfangsefnum OECD á und-
anförnum árum. Hvaða umbætur eru
nauðsynlegar I ríkiskerfi Vestur-
landa? Eruð þér til dæmis sammála
þeirri róttæku leið, sem stjórnvöld á
Nýja-Sjálandi völdu?
„Nýja-Sjáland stökk úr einum öfg-
unum í aðrar. Þar hafði verndarstefna
ríkt í áratugi og breytingar á þjóðfé-
lagsgerðinni og hlutverki stjórnvalda
í efnahagslífinu voru mjög hægar. í
upphafi aldarinnar var Nýja Sjáland
talið eitt ríkasta land í heimi. en hafði
lækkað hratt á listanum. í byijun
níunda áratugarins komust Nýsjá-
lendingar að þeirri niðurstöðu að ef
þeir gerðu ekkert í málinu, myndu
þeir áfram verða hlutfallslega fátæk-
ari. Þeir ákváðu því að ráðast í breyt-
ingar, sem voru mjög djarfar. Það,
sem tókst á Nýja-Sjálandi, er hugsan-
lega ekki framkvæmanlegt í öllum
öðrum löndum. Hafi ríkisstjórnin hins
vegar raunverulegan vilja til að koma
breytingum í gegn og takist henni
að sannfæra almenning um að aðrar
leiðir séu ekki færar, er hægt að ná
miklum árangri."
Markaðslausnir efnahagslífinu
fyrir beztu
— Menn líta gjarnan á OECD sem
framvörð fijálslyndrar efnahags-
stefnu og stofnunin hefur sem slík
stundum verið gagnrýnd af hálfu
stjórnmálamanna á vinstri vængnum.
Er það tilfellið að OECD sé virki
fijálshyggjumanna. í efnahagsmálum?
„Nei, alls ekki. Ástæðan er einfald-
lega sú að ríkisstjórnir margra ríkja
í OECD eru sjálfar vinstra megin við
miðju. En það er satt að helzta hlut-
verk og skylda þessarar stofnunar er
að láta ríkisstjórnum í té greiningu
og ráðgjöf um það hvað sé efnahags-
lífínu fyrir beztu. Og það, sem er
bezt fyrir efnahagslífið, byggir yfir-
leitt á markaðslausnum fremur en á
opinberri íhlutun. Reynsla kommún-
istaríkjanna er gott dæmi um það,
hveiju íhlutun ríkisins og hömlur á
markaðsöflin koma til leiðar. En síðan
er það hverrar ríkisstjórnar að hafa
í huga aðra þætti, því að stjórnvöld
láta ekki stjórnast eingöngu af efna-
hagssjónarmiðum. Þau verða að finna
málamiðlanir og taka tillit til annarra
þátta en efnahagsmálanna."
— Tékkland hefur þegar bætzt í
hóp OECD-ríkja og á næstu mánuð-
um hyggst stofnunin samþykkja aðild
tveggja eða þriggja annarra fyrrver-
andi kommúnistaríkja í Mið-Évrópu.
Má búast við að það haldi áfram að
fjölga mikið í OECD?
„Það er reyndar ekki bara von á
tveimur eða þremur aðildarríkjum,
heldur fjórum eða fimm. Mexíkó kem-
ur sterklega til greina, ásamt Suður-
Kóreu. Ungvetjaland mun bætast í
hópinn á næstu dögum, Pólland verð-
ur næst í röðinni og sennilega kemur
Slóvakía þar á eftir._ Ég veit ekki
hvað gerist eftir það. Ég hef á tilfinn-
ingunni að þá verði nokkurt hlé, nema
að aðildarríkjunum takist að koma
sér saman um stefnu um áframhald-
andi stækkun á næstu mánuðum, en
slíkt hefur enn ekki tekizt. Ríkin hafa
mismunandi skoðun á þessum málum.
Sum lönd telja að OECD eigi að vera
opið sérhveiju ríki, þar sem markaðs-
kerfi sé í gildi, lýðræði að fullu virt,
og þróunarstigið svipað og hjá okkur
eða stefni í það sama. Þetta gæti
þýtt að aðildarríkjunum fjölgaði mjög
á næstu tveimur áratugum. Önnur
lönd telja að verði þessari stefnu fylgt,
muni OECD verða eins konar al-
heimssamtök og að eðli stofnunarinn-
ar og venjur muni því breytast veru-
lega. Slíkri fjölgun verði því að fylgja
róttækar breytingar á starfsháttum
stofnunarinnar. Áttatíu ríki geta ekki
starfað saman með sama hætti og
35 ríki. Þessi ríki líta svo á að aðal-
atriðið sé að hafa stofnun, sem taki
ekki til alls heimsins, heldur miðist
við að á vettvangi hennar fari fram
umræður um efnahagsstefnu og að
þar verði leidd saman þau ríki, sem
mest munu láta að sér kveða á heims-
markaðnum á næstu áratugum. OECD
verður þá vettvangur þar sem öflugir
gerendur koma saman og ræðast við.
Slíkir gerendur geta bæði verið einstök
ríki og svæðisbundin samtök, þar sem
nægilegur efnahagssamruni hefur átt
sér stað, eins og Evrópusambandið.
Ég er sjálfur sammála þessu síðar-
nefnda viðhorfi. Ég skil röksemdir
þeirra, sem eru á hinni skoðuninni og
það er óskemmtilegt að neita ríki, sem
er lýðræðislegt og vel þróað, um aðild.
En ef menn vilja hafa vettvang í hinu
hnattræna hagkerfi, þar sem stærstu
gerendurnir geta rætt saman og reynt
að koma í veg fyrir hugsanlegt mis-
sætti, tel ég að seinni leiðin sé betri.“